Morgunblaðið - 13.03.2002, Page 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRESK fjögurra barna móðir hefur
verið handtekin í Dubai eftir að
hafa reynt að nema son sinn á brott
frá einni af auðugustu ættum Flóa-
ríkisins.
Hin 34 ára gamla Sarra Fother-
ingham var að sögn yfirvalda í
Dubai handtekin á sunnudag eftir
að hún hafði farið um borð í bát
sem var á leið til Írak. Með henni
var sonur hennar, hinn tíu ára
gamli Tariq, en faðir hans er Rash-
id al-Habtoor, þekktur og auðugur
kaupsýslumaður í Dubai.
Talsmaður breska sendiráðsins
sagði að menn þess hefðu rætt við
Fotheringham. „Hún hefur verið
flutt til höfuðborgarinnar og er á
lögreglustöð þar. Ákæra hefur ekki
verið gefin út og hún hefur óskað
eftir aðstoð sendiráðsins.“
Fotheringham kynntist Rashid
al-Habtoor árið 1991 þegar hún
vann sem flugfreyja. Saman eign-
uðust þau soninn Tariq sem fæddist
í Bretlandi en Fotheringham giftist
síðar öðrum manni og eignaðist
með honum þrjú börn. Faðir Tariqs
er hins vegar sonur milljarðamær-
ings sem stofnaði al-Habtoor-
fyrirtækjasamsteypuna, sem m.a.
lætur til sín taka á sviði verktaka-
starfsemi og hótelrekstrar. Fjöl-
skyldan er í vinfengi við Karl
Bretaprins og stendur einnig nærri
ráðamönnum í Dubai.
Sarra og núverandi eiginmaður
hennar, Neil Fotheringham, kynnt-
ust þegar Tariq var átta mánaða
gamall. Þau reyndu að tryggja sér
forræðisrétt yfir drengnum í Bret-
landi en töpuðu málinu.
Dagblaðið Gulf News sem gefið
er út í Dubai sagði að komið hefði
verið í veg fyrir tilraun móðurinnar
til að smygla drengnum úr landi.
Hún hefði verið klædd að hætti ar-
abískra kvenna og með henni í för
hefði verið arabískumælandi vinur
hennar. Þrátt fyrir að lífverðir
fylgdu Tariq hefði þeim tekist að
taka drenginn með sér þegar hann
mætti til skóla.
Full örvæntingar
Fréttinni fylgdi að faðirinn hefði
unnið mál vegna forræðis yfir
drengnum bæði í Bretlandi og í
Dubai.
Neil, eiginmaður Sarra Fother-
ingham, sagði í viðtölum í gær að
hún hefði áformað að fara með
drenginn um Írak og Sýrland og
komast þaðan til Bretlands. „Al-
Habtoor-fjölskyldan hefur meinað
henni að hafa nokkur samskipti við
son sinn. Hún hafði ekki séð hann
frá því í september. Hún var orðin
full örvæntingar og varð að gera
eitthvað,“ sagði Neil Fotheringham
sem starfar sem lögreglumaður.
„Dómskerfið hér brást okkur og
Sarra taldi sig ekki eiga annarra
kosta völ,“ bætti hann við. Í máli
hans kom einnig fram að móður
drengsins hefði borist orðsending
frá syni sínum skömmu fyrir árslok
í fyrra. „Elsku mamma mín, komdu
til mín, ég er að fara burtu um jól-
in,“ hefði staðið þar.
„Ég vil ekki einu sinni hugsa um
hvað þeir kunna að gera henni,“
sagði Neil Fotheringham. „Ég tek á
því þegar þar að kemur. Sarra á
þrjú önnur börn sem þrá að hitta
móður sína á ný. Hún er ekki
glæpamaður, aðeins móðir sem þrá-
ir að hitta son sinn og þau [al-
Habtoor-fjölskyldan] komu í veg
fyrir það.“
Neydd til að
undirrita skjöl
Eiginmaðurinn sagði í samtali
við breska ríkisútvarpið BBC í gær
að kona hans hefði verið yfirheyrð
og hún neydd til að undirrita skjöl á
arabísku en það mál kynni hún
ekki. Henni væri gert að hírast á
strámottu úti á gangi á lög-
reglustöðinni ásamt öðrum konum
sem ættu það sameiginlegt að hafa
eignast börn utan hjónabands. Neil
Fotheringham sagði einnig að
ónefndir arabar hefðu hringt í
hann og tjáð honum að þeim hjón-
um hefðu orðið á alvarleg mistök.
Sarra ætti eftir að eyða ævinni í
fangelsi í Dubai. „Þótt ég hefði svo
sannarlega þráð að fá Tariq hingað
heim þá er það ekki ánægjulegur
endir að kona mín sé nú í fangelsi.
Ég hef alls enga trú á dómskerfi
þeirra og hef ekki heldur neina
ástæðu til að ætla að þeir sýni
minnstu sanngirni. Það hafa þeir
ekki gert til þessa,“ sagði Neil Fot-
heringham.
Hann kvaðst ekki hafa verið hrif-
inn af þessu tiltæki konu sinnar en
hún hefði haft mótmæli hans að
engu. „Hún er ákveðin kona og
elskar Tariq og önnur börn sín svo
heitt að hún ákvað að taka áhætt-
una í þeirri trú að réttlætið sigraði
að lokum.“
Reyndi
að ræna
syni sínum
AP
Sarra Fotheringham ásamt syni sínum Tariq.Bresk fjögurra barna móðir er nú í
haldi í Dubai eftir að hafa reynt að
hafa son sinn með sér úr landi
Lundúnum. AFP.
’ Hún er ekkiglæpamaður, aðeins
móðir sem þráir að
hitta son sinn ‘
BANDARÍKJASTJÓRN íhugar
nú hvort rétt sé að taka Moammar
Gaddafi, forseta Líbýu, í sátt og
afnema viðskiptabann á Líbýu sem
komið hefur í veg fyrir starfsemi
bandarískra olíufyrirtækja í land-
inu. Er fylgst grannt með fram-
ferði Gaddafis í Washington en
hann hefur undanfarin misseri lagt
mikla áherslu á að bæta ímynd
sína í augum stjórnvalda í Banda-
ríkjunum.
Fulltrúar Gaddafis hafa m.a.
veitt Bandaríkjamönnum upplýs-
ingar á undanförnum mánuðum
um starfsemi alþjóðlegra hryðju-
verkamanna í kjölfar árásanna á
Bandaríkin 11. september sl.
Þá er því einnig haldið fram að
verulega hafi mjakast í viðræðum
Líbýustjórnar og lögmanna ætt-
ingja fórnarlamba Lockerbie-
sprengjutilræðisins í Skotlandi ár-
ið 1988, en þar létust 270 manns,
um bætur til handa þeirra, sem og
um yfirlýsingu þess efnis að
stjórnin í Trípóli gengist við
ábyrgð á ódæðinu að hluta.
Hafa Líbýumenn þó fram að
þessu verið tregir til að viðurkenna
að ódæðismennirnir hefðu verið
undir verndarvæng stjórnvalda í
Líbýu.
Sú ákvörðun Gaddafis á sínum
tíma, að framselja tvo menn, sem
grunaðir voru um að hafa borið
ábyrgð á Lockerbie-tilræðinu, til
Hollands þar sem þeir undirgeng-
ust réttarhöld markaði hins vegar
þáttaskil og var til marks um að
Gaddafi vildi snúa við blaðinu.
Hann rauf einnig öll tengsl við rót-
tækar hreyfingar Palestínumanna
á svipuðum tíma og rak Abu Nidal-
hryðjuverkasamtökin frá Líbýu.
Fulltrúar Bandaríkjastjórnar
leggja áherslu á að engra breyt-
inga sé að vænta á stefnu stjórn-
valda gagnvart Líbýu. Sú skoðun
nýtur þó talsverðs fylgis í Wash-
ington að með því að snúa við
blaðinu í samskiptunum við Líbýu
væru gefin skýr skilaboð um það
til ríkja eins og Sýrlands og Írans,
sem Bandaríkjamenn gruna um að
hafa veitt alþjóðlegum hryðju-
verkamönnum liðsinni, að þau geti
vænst umbunar fyrir góða hegðun.
Jafnframt yrði arabaríkjum
þannig gert ljóst að þau þurfi ekki
að örvænta þó að þau hafi tíma-
bundið komið sér í ónáð hjá
Bandaríkjamönnum – hugsanlegt
sé við réttar aðstæður að slík af-
staða verði endurskoðuð.
Kæmi sér vel
fyrir olíufélögin
Þá myndi endurskoðun á stefn-
unni gagnvart Líbýu þjóna hags-
munum bandarískra olíufyrirtækja
sem Ronald Reagan, þáverandi
Bandaríkjaforseti, skipaði að hafa
sig á brott frá Líbýu árið 1986 á
sama tíma og hann fyrirskipaði
loftárásir á Trípólí. Fyrirtækin –
Marathon, Conoco, Amerada Hess
og Occidental – segjast hafa glatað
milljörðum króna á skyndilegu
brotthvarfi sínu frá Líbýu.
Ákvörðun um að snúa við
blaðinu mun hins vegar án efa
tengjast endanlegri niðurstöðu
sakamáls sem snýr að Lockerbie-
tilræðinu en á morgun er að vænta
úrskurðar vegna áfrýjunar fyrr-
verandi starfsmanns lýbísku leyni-
þjónustunnar sem í fyrra var fund-
inn sekur um að hafa staðið fyrir
ódæðinu.
Verði sá úrskurður staðfestur er
vonast til að ráða megi til lykta
samningaviðræðum Bandaríkja-
manna, Líbýustjórnar og Breta um
afnám viðskiptaþvingana Samein-
uðu þjóðanna, en afnám þess er
forsenda þess að Bandaríkjamenn
aflétti því viðskiptabanni sem þeir
settu einhliða á Líbýu árið 1986,
tveimur árum fyrir Lockerbie-til-
ræðið.
Grannt fylgst með
Gaddafi í Washington
Hugsanlegt að
viðskiptabann
á Líbýu verði
senn afnumið
Reuters
Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu.
The Washington Post.
Gagnrýnir
fjölmiðla-
tök Berl-
usconis
Vín. AFP.
ÖSE, Öryggis- og samvinnustofn-
un Evrópu, hefur gagnrýnt mjög
harðleg víðtæk tök Silvios Berlus-
conis, forsætisráðherra Ítalíu, á
fjölmiðlum í landinu. Skorar hún
jafnframt á Evrópusambandið,
ESB, að tryggja,
að lög þess séu
ekki brotin.
Freimut Duve,
sem fer málefni
er varða frelsi
fjölmiðla innan
ÖSE, gerir þessi
mál að umtals-
efni í bréfi, sem
hann sendi Va-
lery Giscard
d’Estaing en hann stýrir ráðstefnu
framtíðarskipa ESB og hugsanlega
stjórnarskrá fyrir það.
„Frelsi fjölmiðla á Ítalíu hefur
verið stefnt í mikla tvísýnu vegna
þess, að yfirráð yfir fjölmiðlunum,
jafnt einkarekinna sem opinberra,
hafa safnast á eina hendi,“ segir
Duve. Hvatti hann Giscaed d’Esta-
ing til að tryggja, að farið yrði eftir
Mannréttindaskrá Evrópu en í
henni er kveðið á um frjálsa fjöl-
miðlun. Hafa allir leiðtogar ESB-
ríkjanna undirritað hana en hún
hefur þó ekki verið lögleidd innan
sambandsins.
Berlusconi, ríkasti maður á Ítal-
íu, á þrjár sjónvarpsstöðvar og ný-
lega skipaði hann nýja stjórn í rík-
isútvarpinu, RAI, og er hún nú
aðallega skipuð kunnum hægri-
mönnum. Segja má að nú ráði hann
að mestu yfir sjónvarpi og útvarpi í
landinu og mörgum öðrum fjöl-
miðlum.
Ávallt hefur verið um að ræða
pólitíska skipan í útvarpsráðið en
vegna mikilla hagsmuna og ítaka
Berlusconis á fjölmiðlamarkaði
þykja yfirráð hans yfir ríkisútvarp-
inu að auki gera ástandið á Ítalíu
líkt því sem tíðkast í alræðisríkj-
um.
Berlusconi