Morgunblaðið - 13.03.2002, Qupperneq 26
LISTIR
26 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTHLUTUNARNEFND lista-
mannalauna bárust 620 umsóknir að
þessu sinni og hefur þeim fjölgað frá
fyrra ári, en þá bárust nefndinni 557
umsóknir. Skipting umsókna milli
sjóða að þessu sinni var eftirfarandi:
Launasjóður rithöfunda 154 um-
sóknir, launasjóður myndlistar-
manna 230 umsóknir, tónskáldasjóð-
ur 31 umsókn og listasjóður 205
umsóknir, þar af 39 umsóknir frá
leikhópum.
Eftirtöldum listamönnum voru
veitt starfslaun:
Launasjóður
rithöfunda
Í þrjú ár: Bragi Ólafsson og Stein-
unn Sigurðardóttir .
Í tvö ár: Guðrún Eva Mínervudótt-
ir og Jón Viðar Jónsson.
Í eitt ár: Einar Kárason, Einar
Már Guðmundsson, Guðjón Friðriks-
son, Guðrún Helgadóttir, Hallgrímur
Helgason, Kristín Ómarsdóttir, Ólaf-
ur Gunnarsson, Ólafur Haukur Sím-
onarson og Þórarinn Eldjárn.
Í sex mánuði: Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson, Andri Snær Magnason,
Arnaldur Indriðason, Atli Magnús-
son, Auður Jónsdóttir, Áslaug Jóns-
dóttir, Árni Ibsen, Birgir Sigurðs-
son, Bjarni Bjarnason, Böðvar
Guðmundsson, Elísabet K. Jökuls-
dóttir, Erlingur E. Halldórsson, Ey-
vindur P. Eiríksson, Geirlaugur
Magnússon, Guðmundur Ólafsson,
Guðmundur Andri Thorsson, Gylfi
Gröndal, Hjörtur Pálsson, Hrafn-
hildur H. Guðmundsdóttir, Iðunn
Steinsdóttir, Ísak Harðarson, Jón
Atli Jónasson, Jón Kalmann Stefáns-
son, Kristín Marja Baldursdóttir,
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Kristín
Steinsdóttir, Kristján Þórður
Hrafnsson, Linda Vilhjálmsdóttir,
Mikael Torfason, Óskar Árni Ósk-
arsson, Ragnheiður Gestsdóttir,
Ragnheiður Sigurðardóttir, Rúnar
Helgi Vignisson, Sigfús Bjartmars-
son, Sigrún Eldjárn, Sigurbjörg
Þrastardóttir, Sigurður A. Magnús-
son, Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón),
Sindri Freysson, Steinunn Jóhann-
esdóttir, Vilborg Davíðsdóttir og
Þorvaldur Þorsteinsson.
Launasjóður
myndlistarmanna
Í tvö ár: Gabríela Friðriksdóttir,
Hannes Lárusson; Katrín Sigurðar-
dóttir og Ragnhildur Stefánsdóttir.
Í eitt ár: Anna Eyjólfsdóttir, Eygló
Harðardóttir, Harpa Björnsdóttir,
Helgi Gíslason, Inga Jónsdóttir,
Magnús Ó. Kjartansson, Margrét
Jónsdóttir og Ólafur Sveinn Gísla-
son.
Í sex mánuði: Elsa Dóróthea Gísla-
dóttir, Hildur Bjarnadóttir, Hlynur
Helgason, Ilmur María Stefánsdótt-
ir, Íris Elfa Friðriksdóttir, Kolbrún
Björgólfsdóttir, Magnús Sigurðsson,
Margrét Hlín Sveinsdóttir, Míreya
Samper, Ólöf Einarsdóttir, Ólöf Erla
Bjarnadóttir, Ólöf Oddgeirsdóttir,
Ragna Róbertsdóttir, Sigríður
Ágústsdóttir, Sigríður Erla Guð-
mundsdóttir, Sigrún Guðmundsdótt-
ir, Stefán Jónsson, Vignir Jóhanns-
son og Þóroddur Bjarnason.
Í þrjá mánuði: Erla S. Haralds-
dóttir og Inga Svala Þórsdóttir.
Ferðastyrki hlutu: Anna G. Torfa-
dóttir, Anna Jóa, Birgir Snæbjörn
Birgisson, Finna B. Steinsson, Hlyn-
ur Hallsson, Hrönn Vilhjálmsdóttir,
Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir
og Kjartan Ólason.
Listasjóður:
Í tvö ár: Camilla Söderberg og
Lára Stefánsdóttir.
Í eitt ár: Guðrún Sigríður Birgis-
dóttir, Hilmar Jensson, Kristín Jó-
hannesdóttir, Marta Guðrún Hall-
dórsdóttir og Miklós Dalmay.
Í sex mánuði: Finnur Bjarnason,
Hávarður Tryggvason, Laufey Sig-
urðardóttir, Margrét Bóasdóttir,
María Kristjánsdóttir, Ólöf Ingólfs-
dóttir, Pétur Tryggvi Hjálmarsson,
Sif Margét Tulinius, Skúli Sverris-
son, Sunna Gunnlaugsdóttir, Sverrir
Guðjónsson og Valgerður Tinna
Gunnarsdóttir, Valgerður Þórsdótt-
ir.
Í þrjá mánuði: Ásgerður Júníus-
dóttir og Charlotte Böving.
Ferðastyrk hlutu: Felix Bergsson,
Filippía I. Elísdóttir, Gísli Örn Garð-
arsson, Helga Rakel Rafnsdóttir,
Sigrún Sól Ólafsdóttir, Sveinbjörg
Þórhallsdóttir, Valgerður Rúnars-
dóttir og Þórarinn Eyfjörð.
Úthlutað var starfslaunum til leik-
hópa sem einvörðungu er ætlað til
greiðslu starfslauna til einstakra
leikhúslistamanna.
Í 14 mánuði: Leynileikhúsið og
S.Þ. Dansverkstæði.
Í 12 mánuði: Hermóður og Háð-
vör, Möguleikhúsið, Lab Loki og
Leikhúskór LA, Akureyri.
Í átta mánuði: Dansleikhús með
Ekka og Leikhópurinn „Á senunni“.
Í sex mánuði: Skjallbandalagið og í
tvo mánuði: Kómedíuleikhúsið.
Tónskáldasjóður:
Í tvö ár: Karólína Eiríksdóttir og
Snorri Sigfús Birgisson.
Í eitt ár: Áskell Másson og Bára
Grímsdóttir.
Í sex mánuði: Erik Júlíus Mogen-
sen, Finnur Torfi Stefánsson, Hilmar
Örn Hilmarsson og Óliver Kentish.
Í fjóra mánuði: Hildigunnur Rún-
arsdóttir.
60 ára og eldri
Listasjóður veitti einnig sérstök
framlög til eftirtalinna listamanna
sem fengu listamannalaun áður fyrr
og voru 60 ára og jafngildir starfs-
launum í einn mánuð: Agnar Þórð-
arson, Benedikt Gunnarsson, Bragi
Ásgeirsson, Einar G. Baldvinsson,
Einar Bragi, Eiríkur Smith, Elías B.
Halldórsson, Gísli J. Ástþórsson,
Gísli Sigurðsson, Guðmunda Andrés-
dóttir, Guðmundur L. Friðfinnsson,
Guðmundur Jónsson, Guðmundur
Ingi Kristjánsson, Gunnar Dal, Helgi
Sæmundsson, Hjörleifur Sigurðsson,
Hrólfur Sigurðsson, Hörður Ágústs-
son, Jóhannes Geir Jónsson, Jón Ás-
geirsson, Jón Þórarinsson, Kjartan
Guðjónsson, Kristinn Hallsson,
Magnús Blöndal Jóhannsson, Magn-
ús Jónsson, Ólöf Pálsdóttir, Pjetur
Friðrik Sigurðsson, Rögnvaldur Sig-
urjónsson, Sigurður Hallmarsson,
Skúli Halldórsson, Svava Jakobs-
dóttir, Veturliði Gunnarsson, Vilborg
Dagbjartsdóttir og Örlygur Sigurðs-
son.
Úthlutunarnefndina skipa: Guð-
rún Nordal, formaður, samkvæmt
tilnefningu Bandalags íslenskra
listamanna, Hjálmar H. Ragnarsson,
tilnefndur af Listaháskóla Íslands og
Baldur Símonarson, skipaður án til-
nefningar.
Úthlutunarnefnd listamannalauna búin að úthluta starfslaunum fyrir árið 2002
Umsóknum fjölg-
ar um 63 milli ára
SÍMON H. Ívarsson heldur gít-
artónleika í félagsheimilinu
Heimalandi í Rangárvallasýslu
í kvöld kl. 20.30. Jafnframt
munu gítarnemendur Tónlist-
arskóla Rangárvallasýlu undir
handleiðslu kennara sinna,
Helga E. Kristjánssonar og
Jens Sigurðssonar, koma fram
með Símoni.
Símon leikur suður-amerísk
gítarverk eftir H. V. Lobos, L.
Brouwer, A. Lauro, R, Dayens,
J. Morel og R. Borges og ís-
lensk þjóðlög í útsetningu
Gunnars R. Sveinssonar og
Jóns Ásgeirssonar. Símon mun
einnig leika tvö verk eftir
Gunnar Reyni Sveinsson, hon-
um til heiðurs, en hann verður
sjötugur á næsta ári.
Áheyrendur geta búist við að
fá að taka virkan þátt í tónleik-
unum.
Félag íslenskra tónlistar-
manna styrkir tónleikana.
Gítartón-
leikar í
Heimalandi
Símon H. Ívarsson
ÁRATUGUR er að verða liðinn
frá borgarastyrjöldinni í Sómalíu
þar sem hundruð þúsunda voru
drepin í baráttu sómalísku stríðs-
herranna, kynþáttaátökum sem
flokkast undir þjóðarmorð. Samein-
uðu þjóðirnar mættu með friðar-
sveitir sínar til landsins og Banda-
ríkin sendu hundruð
úrvalssveitarmanna til hjálpar við
að koma matvælasendingum á rétta
áfangastaði og hlutuðust einnig til
um innanríkismálin.
Black Hawk Down (nafnið höfðar
til þyrlutegundarinnar sem kemur
mikið við sögu), segir af sólar-
hringslangri hernaðaraðgerð
Bandaríkjamanna í hinni stríðs-
hrjáðu borg, Mogadishu. Lyf og
matvæli lentu ósjaldan í höndum
erkóvinarins, stríðsherrans Aidids
og manna hans. Er bandaríska setu-
liðið fær upplýsingar um hvar hann
heldur sig er blásið til sóknar, úr-
valslið leggur í leifturárás inn í
borgina til að handsama Aidid. Þeg-
ar til kemur reynast upplýsingarnar
rangar og mótstaðan mikil. Banda-
rískir hermenn eru drepnir unn-
vörpum, tvær svarthaukaþyrlur
skotnar niður af inn-
fæddum sem Penta-
gon-haukum á óvart,
reynast sterkari aðil-
inn. Aðeins hluti her-
mannanna nær við ill-
an leik aftur til baka.
Aðgerð sem átti að
taka nokkra stundar-
fjórðunga verður að
óendanlegri sólar-
hringsmartröð. Fljót-
lega eftir þetta af-
hroð kallaði Clinton
menn sína heim.
Hávaðasöm mynd í
meira lagi. Ofan á
linnulausa skothríð og
þrumugný spreng-
inga, glymur tónlist í
anda Bruckheimer og
myndin öll ber því miður fullmikinn
keim af markmiðum þessa farsæla
hasarmyndaframleiðanda. Hann
fær til liðs við sig Ridley Scott, sem
er manna færastur í að hanna
átakaatriði, skipuleggja og sviðsetja
margflókna kóreógrafíu miskunnar-
lauss djöfladans hinna stríðandi að-
ila. Meinið er að myndin kafnar í
ósköpunum. Persónurnar eru leikn-
ar af lítt kunnum leikurum sem
aukinheldur verða fljótlega eins litir
af skít, svita og blóði. Darraðar-
dansinn er í fyrirrúmi, herflokkur-
inn, þær hetjur allar, ná ekki vel til
manns. Hálfheyrnarlaus af djöfla-
ganginum, lamaður af tilgangsleys-
inu, fær maður ákaflega takmark-
aða samúð með aðgerðinni sem
smám saman endar í andlegri
þreytu, sem sjálfsagt á skylt við
stríðsþreytu.
Það fer þó ekki á milli mála að
endurgerð atburðanna er trúverðug
og sjálfsagt raunsæ. Kvikmynda-
takan skiptir sköpum, að mestu í
guggnum og sannfærandi grátón-
um. Klippingar eru hraðar og mark-
vissar þannig að auðvelt er að fylgj-
ast með gangi máli hjá hinum
mörgu söguhetjum myndarinnar –
eftir að maður fer að þekkja þær.
Þar standa upp úr Jason Isaacs og
William Fichtner, jafnvel Tom Size-
more. Allir með rétta útlitið og
framkomuna til að gera persónur
sínar trúverðugar. Shepard er óvart
atkvæðalítill sem hershöfðinginn,
heilinn á bak við aðgerðirnar. Josh
Hartnett (Pearl Harbor), getur gert
betur en hann fær tækifæri til að
sýna. Mikilúðleg, yfirþyrmandi upp-
lifun fyrir stríðsmyndafíkla.
Martröð í stríðshrjáðri Mogadishu
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó á Akureyri
Leikstjóri Ridley Scott. Handritshöf-
undur: Ken Nolan. Kvikmyndatökustjóri:
Slavomir Idziak. Tónlist: Hans Zimmer.
Framleiðandi: Jerry Bruckheimer. Aðal-
leikendur: Josh Hartnett, Eric Bana, Tom
Sizemore, Ewan McGregor, William
Fichtner, Jason Isaacs, Sam Shepard.
Sýningartími 145 mín. Bandaríkin. Col-
umbia. 2001.
BLACK HAWK DOWN
Sæbjörn Valdimarsson
„Það fer þó ekki á milli mála að endurgerð at-
burðanna er trúverðug og sjálfsagt raunsæ.
Kvikmyndatakan skiptir sköpum, að mestu í
guggnum og sannfærandi grátónum.“
ÞAÐ er ekki laust við að efasemd-
ir láti á sér kræla í huga manns þeg-
ar sest er niður í salnum á Melum.
Er virkilega svigrúm til að sviðsetja
nostalgíumósaík Ólafs Hauks
þarna? En það hefur tekist merki-
lega vel í snyrtilegri sviðsetningu
Sögu Jónsdóttur.
Þrek og tár segir frá tónelskri
kaupmannsfjölskyldu á sjöunda ára-
tugnum í Reykjavík og fólkinu í
kringum hana, vel blandaður kokkt-
eill af tónlist og tali, gríni og gráti.
Mörgum sögum vindur fram, ótal
örlög ráðast. Þungamiðjan eru þó
ólík örlög þeirra systrasona Davíðs
og Gunna Gæ og glíma föður Davíðs
við sjálfan sig og framtíðardrauma
sína. Yfir öllu vakir síðan Jóhann
kaupmaður, sem situr á völtum frið-
arstóli í ellinni eftir umbrotasamt líf.
Fortíðardraugar hans eru ekki eins
vel niðurkveðnir og hann vildi vera
láta og gera jafnan vart við sig þeg-
ar tilfinningahitinn hækkar.
Verk af þessu tagi reynir á fjöl-
marga þætti í hæfileikasafni eins
leikfélags. Það þarf sterka leikara
sem einnig geta sungið og dansað,
tónlistarmenn til að annast undir-
leikinn, útsjónarsamt búninga- og
leikmunafólk til að endurskapa for-
tíðina og svo náttúrulega leikstjóra
sem megnar að halda í alla þræði í
senn og vefa litríkt tjald úr öllu sam-
an.
Saga Jónsdóttir hefur valið þá
leið að undirstrika húmorinn sem
nóg er af í verkinu og nýta þannig
hæfileika leikaranna á því sviði.
Enda er sýningin hin mesta
skemmtun þegar léttast er yfir
henni. Á hinn bóginn verður óneit-
anlega dálítil slagsíða á henni fyrir
vikið, fortíðarskuggarnir og hörm-
ungar sem yfir dynja ná ekki áhrifa-
mætti sínum þegar illa gengur að
hemja galgopaskapinn. Það er við-
kvæmur línudans að skila báðum
hliðum verksins, og hér hverfa tárin
nokkuð í skugga þreklegra skop-
takta.
Undantekning þessa vanda eru
tveir aðalleikendanna, þau Ívar Örn
Björnsson sem leikur Davíð og
Fanney Valsdóttir sem Helga móðir
hans.
Þau ná að hvíla fallega í sínum
hlutverkum og gera með því örlög
sín aðgengileg áhorfendum. Auðvit-
að nýtast síðan skoptaktar og -hæfi-
leikar margra dáindisvel. Nefna
mætti Þórð Steindórsson sem var
kostulegur sem fálkaorðuriddarinn
Hallur Fengel og Sigurð B. Sverr-
isson í hlutverki Gunna Gæ, tugt-
hússlims, kanakróga og ógæfu-
manns. Sigurður fór síðan, ásamt
Ingu Berglindi Birgisdóttur,
fremstur í flokki lipurra dansara, en
dansatriði voru ágætlega heppnuð.
Reyndar kemur fram í leikskrá að
félagið hefur staðið fyrir dansnám-
skeiðum undanfarið, sem ég veit
ekki til að leikfélög geri mikið af en
er til fyrirmyndar og skilar auðsjá-
anlega árangri.
Þrek og tár hjá Leikfélagi Hörg-
dæla er prýðisskemmtun, kraftmikil
uppfærsla á skemmtilegu verki. Það
næst oft að kitla hláturtaugarnar á
Melum, þó vasaklúturinn hefði að
ósekju mátt vökna oftar og meira.
Meira þrek en tár LEIKLIST Leikfélag Hörgdæla
Höfundur: Ólafur Haukur Símonarson.
Leikstjóri: Saga Jónsdóttir. Félagsheim-
ilið Melar, Hörgárdal. Laugardagurinn 9.
mars, 2002.
ÞREK OG TÁR
Þorgeir Tryggvason
TÓNLEIKUM Contrasti-hópsins,
sem vera áttu í Salnum í kvöld, er
frestað til miðvikudags 10. apríl.
Tónleikum
frestað