Morgunblaðið - 13.03.2002, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 13.03.2002, Qupperneq 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 35 SJÁLFVIRK verð- trygging á íbúðarlán- um er að mínu mati óeðlileg hvernig sem á hana er litið enda ber hún það með sér að fyrst og fremst sé verið að tryggja hags- muni lánardrottna, en hagsmunir almenn- ings fyrir borð bornir. Þessi sjálfvirka verðtrygging íbúðar- lána gerir þau að slæmum kosti og ill aðgöngu öllu venju- legu launafólki og miður góð reynsla al- mennings af henni í áratugi ætti að vera nægjanleg rök fyrir afnámi hennar. Vegna við- miðunar í verðbólgu eykst greiðslubyrði lána án tillits til þess hvort samsvarandi tekjuhækkun verði hjá lántakanda. Þetta skrum- skælir allar viðmiðanir og það greiðslumat sem miðað var við þegar lánið var tekið. Því fyrr sem verðtryggingin er afnumin því betra. Dauðadómur Mér virðist nokkurn veginn ljóst að forusta þeirra pólitísku flokka sem nú fara með völd í landinu vilji ekkert sporna gegn þessu lög- verndaða vaxtaokri og leggi bless- un sína yfir verðtryggingar á íbúð- arlán almennings og telji það eðlilegast af öllu að fólk sé féflett á kvikindislegasta hátt. Sömu flokkar virðast lítið hafa út á það að setja að íbúðir og heimili manna séu notuð til þess að skapa vaxta- gróða langt umfram það sem þekkist annars staðar í nálægum þjóðfélögum. Þessi okurstarfsemi er þungbær öllum almenningi en alls óbær og jafnvel fjárhagslegur dauðadómur yfir fjölskyldumanni, sem er með 100.000 krónur í dag- vinnulaun á mánuði. Langur vinnutími Þúsundir fjölskyldna eru í vand- ræðum með að greiða afborganir af þessum okurlánum og þarf fólk að vinna myrkrana á milli til þess eins að geta staðið í skilum með þau. Því miður eru margir sem ekki ná því markmiði og þurfa þess vegna að taka skyndilán til að borga íbúðarlánin. Þegar þannig er komið fyrir fjölskyldum fara skuldir að safnast fyrir og að lok- um dugar ekki vökutíminn til að afla tekna til að greiða þær og fólkið missir það litla sem það var búið að ná sér í og þræla sér út til að borga. Mikill er hroki og sam- viskuleysi þeirra manna sem vilja viðhalda þessu okur- vaxtakerfi og ætla ís- lenskum almenningi að greiða helmingi hærri vexti en tíðkast í flestum þeirra landa sem við miðum okkur við. 15% vextir Ráðherrar og þing- menn núverandi stjórnarflokkanna hæla sér mikið af því að hafa komið hér á frjálsum og opnum fjármála- og gengis- markaði og segja að nú tilheyri gamlar kreddur og kvaðir í viðskiptum fortíðinni til og langþráð frelsi manna í verslun og viðskiptum sé loksins orðin staðreynd. En ef svo er, hvernig stendur þá á því að sömu ráðherrar og þingmenn við- halda sjálfvirkri opinberri verð- bólgustýringu á íbúðarlán, sem undanfarið hefur leitt til 15% vaxta, þótt viðurkennt sé að hóf- legir vextir fyrir slík lán séu 5 til 6% eins og flestar V-Evrópuþjóðir hafa á húsnæðislánum sínum. Út úr skápnum Ég skora á þingmenn stjórn- arflokkanna að tjá sig um vextina og sjálfvirku verðtrygginguna og réttlæta fyrir almenningi þann mikla mun sem er á greiðslubyrði íbúðarlána hérlendis og í ná- grannalöndum okkar. Þið, þessir talsmenn „frjálsra viðskipta“ getið ekki lengur verið í felum, þið verð- ið að koma út úr skápnum og segja fólki af hverju þetta er nauðsyn- legt. Það eru þúsundir fjölskyldna sem bíða eftir svari ykkar og því miður eru sumar þeirra að komast í greiðsluþrot, einmitt vegna verð- tryggingarákvæða. Verðtrygging Sigurður T. Sigurðsson Hagsmunir Verðtrygging ber það með sér, segir Sigurður T. Sigurðsson, að fyrst og fremst sé verið að tryggja hagsmuni lán- ardrottna, en hags- munir almennings fyrir borð bornir. Höfundur er formaður Verkalýðs- félagsins Hlífar. ÁRIÐ 2002 verður viðburðaríkt fyrir Evrópu. Ekki einasta taka 12 ríki ESB upp sameiginlega mynt, evruna, heldur er gert ráð fyrir að á árinu muni aðildarsamning- um ljúka við 10 ný ríki. Ennfremur stendur Evrópusam- bandið nú fyrir um- fangsmikilli ráðstefnu um framtíð evrópskr- ar samvinnu sem mun áfram byggja á hug- sjónum um frið, vel- ferð og lýðræði. Að auki verður mikið um að vera á vettvangi stjórnmálanna innan ríkjanna sjálfra en á árinu fara fram kosningar í 5 aðildarríkjum ESB og í 3 umsóknarríkjanna. 10 ný ríki frá ársbyrjun 2004 Stefnt er að því að ríkin 10 verði fullgildir aðilar að ESB frá árs- byrjun 2004 og geti því tekið þátt í kosningum til Evrópuþingsins í júní sama ár. Til að svo geti orðið þurfa þjóðþingin og Evrópuþingið að hafa tíma til að staðfesta stækkunina og því þarf aðildarvið- ræðum að vera lokið á öllum kjarnasviðum, svo sem um land- búnaðarmál, byggðaþróunarmál og fjárframlög, fyrir leiðtogafund ESB í Kaupmannahöfn um mitt þetta ár. Aðildarviðræðurnar hafa að und- anförnu gengið mjög vel og jafnvel má segja að ESB hafi orðið fórn- arlamb eigin árangurs. Í fjárhags- rammanum sem samþykktur var fyrir stækkunarferlið á leiðtoga- fundi ESB í Berlín 1999 var aðeins gert ráð fyrir 6 nýjum aðildarríkj- um. Á leiðtogafundi ESB í Leken í desember sl. var hins vegar gert ráð fyrir 10 nýjum aðildaríkjum. Framkvæmdastjórn ESB hefur því þurft að aðlaga fjárhagsáætl- anir sínar og hefur nýlega lagt fram sanngjarna fjárhagstillögu fyrir stækkunarferlið fyrir árin 2004–6. Þar er þrætt heldur þröngt einstigi milli skuldbindinga ESB frá því í Berlín og væntinga nýju ríkjanna við fulla aðild. Sanngjarnar fjárhagstillögur Í Berlínartillögunum er á tíma- bilinu ekki ekki gert ráð fyrir beingreiðslum til bænda í nýju ríkjunum. Í nýju tillögunum er hinsvegar gert ráð fyrir að bænd- ur í umsóknarríkjunum fái í nokkr- um skrefum 35% af beingreiðlsum fram til ársins 2006. Ég geri ráð fyrir að regluleg styrkjaaukn- ing í smáum skrefum verði til að flýta fyrir nauðsynlegri endur- skipulagningu í land- búnaði umsóknarríkj- anna, en það er jafn- framt forsenda að- ildar. Ef umsóknar- löndin fá fulla styrki til landbúnaðar frá fyrsta degi gæti það hægt á umbótum og þar með stuðlað að lágri framleiðni, minnkandi sam- keppni og földu atvinnuleysi. Vert er að hafa í huga að stór hluti landbúnaðarframleiðslu í umsókn- arríkjunum er til einkaneyslu og fer ekki á markað. Beingreiðslur í slíka framleiðslu leiða ekki til ný- sköpunar og nýrra tækifæra til tekjuöflunar. Þvert á móti á miklu fremur að styrkja þá sem hafa tök á að koma vöru sinni á erlenda markaði. Í Berlín var gert ráð fyrir byggðastyrkjum til 6 nýrra aðild- arríkja fram til 2006. Í tillögum framkvæmdastjórnarinnar er gert ráð fyrir að sama upphæð deilist nú á ríkin 10 á tímabilinu. Að auki er lagt til að nýju löndin fái sér- stakar aukagreiðslur til verkefna á sviði umhverfisverndar og upp- byggingar innviða. Við fyrri stækkanir hafa nýju löndin jafnan fengið aðlögunartíma að ýmsum samstarfsþáttum og öll hafa þau fengið nettó fjárframlög frá ESB meðan á aðlögunartím- anum stóð. Reiknað er með að um- sóknarríkin nú greiði fullt gjald til sjóða ESB strax við aðild, en þau munu þrátt fyrir það fá um 200 milljarða evra í nettógreiðslur á fyrstu þremur árum aðildar. Framkvæmdastjórn ESB hefur orðið fyrir nokkurri gagnrýni, bæði frá núverandi aðildarríkjum og umsóknarríkjunum vegna fjár- hagstillagnanna. Líklega merkir það að tillögurnar eru sanngjarnar og að tekist hefur að þræða hið þrönga einstigi milli ólíkra hags- muna. Áhrif á EES Eftir stækkun verður ekki leng- ur hægt að kalla ESB ríkra manna klúbb. Með nýju aðildarríkjunum mun meðal efnahagsstig sam- bandsins lækka til muna, en stækkun mun samt sem áður verða öllum ríkjunum til góðs. Aðlögun að ESB-aðild felur í sér umtals- verðar pólitískar, efnahagslegar og stofnanalegar umbætur í umsókn- arríkjunum og hefur þróunin þeg- ar leitt af sér 5% meðaltalshagvöxt á ári í umsóknarríkjum. Viðskipti milli ESB og umsóknarríkjanna hafa einnig snaraukist, og mikil- vægir markaðir hafa um leið opn- ast fyrir ESB – og raunar öll EES-ríkin. Stækkun ESB þýðir einnig stækkun EES og mikilvægt er að það gerist samhliða. Núverandi stækkunarferli er stærsta verkefni sem ESB hefur nokkru sinni stað- ið frammi fyrir og um þessar mundir er einmitt verið að takast á við erfiðustu áskoranirnar í við- ræðunum. Á þessum tímapunkti er efnisleg uppfærsla EES-samnings- ins því ekki á dagskrá ESB. Stækkunin mun ennfremur búa til glænýtt Evrópusamband með 25 eða 27 meðlimi og því munu líka fylgja nýjar áskoranir fyrir EFTA-/EES-ríkin. 2002 – tímamótaár í sögu ESB Gerhard Sabathil Höfundur er sendiherra fasta- nefndar framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg. ESB Stækkun ESB þýðir einnig stækkun EES , segir Gerhard Sabathil, og mikilvægt að það gerist samhliða. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari ótrúlegu borg og bjóða einstakt tilboð á síðustu sætunum þann 21. mars. Í boði eru góð 3 og 4 stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um kastalann og gamla bæinn, eða til hins einstaklega fagra heilsubæjar Karlovy Vary, með íslenskum fararstjórum Heimsferða. Það er engin tilviljun að þeir sem einu sinni fara til Prag, kjósa að fara þangað aftur og aftur, enda er borgin ógleymanleg þeim sem henni kynnast og engin borg Evrópu kemur ferðamanninum eins á óvart með fegurð sinni og einstöku andrúmlofti. Helgarferð til Prag 21. mars kr. 39.950 Verð kr. 39.950 Flug og hótel í 3 nætur m.v. 2 í herbergi á Quality Hotel, 21. mars, 4 nætur, flug, gisting og skattar. Flug fimmtudaga og mánudaga í mars og apríl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.