Morgunblaðið - 13.03.2002, Page 45
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 45
Úrval fermingargjafa
Góð fermingartilboð
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
NÝ hestavöruverslun Hestar og
menn var nýlega opnuð að Lyng-
hálsi 4 í Reykjavík en eigendur
hennar eru hjónin Ásgeir Svan Her-
bertsson og Kollbrún Kolbeins-
dóttir. Að sögn Ásgeirs er meg-
instefnan að reka lágvöruverlsun
þar sem boðið er upp á helstu vöru-
flokka sem hestamenn þurfa og
nefndi hann þar reiðtygi og járn-
ingaáhöld. Einnig verða þar seldar
skeifur frá Kerckhart í Hollandi
sem er, að sögn Ásgeirs, stærsti
skeifnaframleiðandi í heimi. Einnig
verður seldur reiðfatnaður í versl-
uninni og svo að sjálfsögðu kambar,
pískar, fóðurbætir svo fátt eitt sé
nefnt.
Sagði Ásgeir það alveg á tæru að
álagning á hestavörur hafi verið
býsna mikil og benti hann á að hann
væri að flytja inn sömu vörumerki í
ýmsum vöruflokkum og fengjust í
öðrum verslunum og væri verðmun-
ur umtalsverður. Þá sagði hann að
það hefði tíðkast að kunnir útvaldir
hestamenn hafi fengið góð afslátt-
arkjör í hestavöruverslunum en í
Hestar og menn fá allir þessi góðu
kjör. Með lítilli rekstrareiningu og
hóflega mörgum vöruflokkum telur
Ásgeir að þau geti boðið lægra verð
á ýmsum vöruflokkum en verið hef-
ur á markaðnum. „Ætli megi ekki
segja að við séum Davíð á móti Golí-
at í samkeppninni á markaðnum og
með þessu framtaki tökum við þátt í
að halda verðbólgunni fyrir neðan
rauða strikið,“ sagði Ásgeir bjart-
sýnn á gengi verslunarinnar.
Verslunin er afar skemmtilega
innréttuð á tveimur hæðum. Mest
áhersla er lögð á reiðtygi frá Top
Reiter en einnig verða önnur merki
á boðstólum. Starfsmenn í versl-
uninni auk eigenda eru þeir Óli
Herbertsson bróðir Ásgeirs og
Bjarni Þór Sigurðsson.
Kolbrún og Ásgeir voru að von-
um ánægð með nýju versluninni þar
sem markmiðið er að bjóða upp á
lægra vöruverð á ýmsum vöru-
flokkum en verið hefur á mark-
aðnum undanfarið.
Morgunblaðið/Valdimar
Hestar og menn
opnuð á Lynghálsi
LÍTILSHÁTTTAR breytingar
hafa verið gerðar á ýmsum atriðum
varðandi kynbótasýningar eða
skerping á ýmsum atriðum eins og
Ágúst Sigurðsson hrossaræktar-
ráðunautur kaus að kalla það.
Er hér að hluta um að ræða að-
lögun að ýmsu í reglum FEIF (Al-
þjóðasamband eigenda íslenskra
hesta) varðandi kynbótadóma en
stefnt er að sameiginlegu dómkerfi
við kynbótadóma í öllum aðildar-
löndum sambandsins. Er þar til
dæmis um að ræða reglur um fóta-
búnað, en FEIF-reglurnar eru
mjög líkar þeim íslensku eins og
þær hafa verið. Það sem kemur
nýtt inn er til dæmis að nú verður
halli hófs að vera samsvarandi við
halla kjúkunnar. Oft hefur viljað
brenna við að of langt er gengið í
söfnun framhófa í því augnamiði að
fá hærri fótaburð, hreinna tölt eða
sporna við styttingi á skeiði. Þá
gerist það oft að halli hófsins verð-
ur meiri en halli kjúkunnar og fer
þá að mæða meira á sinum og lið-
böndum. Þá er hámarkslengd hófa
leyfð 9,0 sm í stað 9,5 sm. Heimilt
verður þó að gera undantekningu ef
hrossið mælist yfir 137 sm á stang-
armáli á herðakamb. Í þeim tilvik-
um má lengdin vera allt að 9,5 sm.
Nú sem fyrr má ekki muna meira
en tveimur sentimetrum á lengd
fram- og afturhófa.
Þá er tekið fram í reglunum að
hámarksþykkt skeifna sé 8 mm og
hámarksbreidd 22 mm og engin frá-
vik leyfð frá því. Einnig er tekið
fram að skeifurnar séu af hæfilegri
stærð miðað við stærð hófa, en
komið hefur fyrir að hross séu járn-
uð á mun stærri skeifur en þau í
raun ættu að bera, þá sérstaklega á
framhófum. Heimilt er að nota
skafla að stærð 15x15mm og 12 mm
á hæð.
Þá er tekið fram að afbrigðilegar
járningar séu bannaðar, s.s. upp-
steyptir hófar. Þá er tekið fram að
óheimilt sé að nota pottaðar skeifur
og þykir mörgum sú breyting vel
tímabær.
Að sögn Ágústs þótti ótækt að
taka óbreyttar FEIF-reglur um
beislabúnað upp, því þar virtist
vanta alla rökhugsun að baki því
hvað væri leyft og hvað bannað.
Hefði meðal annars margt af því
sem hér á landi þykir sjálfsagður
skaðlaus búnaður verið bannaður.
Var Eyjólfur Ísólfsson fenginn til
að semja reglur sem byggjast bæði
á íslensku og alþjóða reglunum.
Taldi Ágúst mjög líklegt að sótt
yrði á breytingar um reglur um
beislabúnað á vettvangi FEIF.
Heimilt er að nota mél án liðamóta,
með einum eða tveimur liðum. Há-
marksþykkt bitans skal vera 10 sm,
hann má ekki vera með hrjúft yf-
irborð eða gróft. Mélin mega ekki
vera snúin, grófkorna eða ásoðin.
Mél sem uppfylla þessi skilyrði
má nota við allar tegundir hringa-
méla, íslenskar stangir, hálfstangir
og tvítaumsstangir (pelam).
Þá er skerpt á dómsaðferðum við
dóma á stökki. Nú verður gefin sér-
stök einkunn fyrir hægt stökk.
Áfram verður gefin ein einkunn
fyrir stökk og sú einkunn skilyrt,
því sé ekkert hægt stökk sýnt er
hámarkseinkunn fyrir stökk 8,5. Ef
einungis er sýnt hægt stökk verður
hámarkseinkunn fyrir stökk 8,0. Þá
verður gefin einkunn 5,0 ef einungis
er sýnt kýrstökk. Þessar áherslu-
breytingar á stökkinu eru nokkuð
hliðstæðar því sem gert var á tölt-
inu fyrir nokkrum árum.
Þá er einnig skerpt á fetinu í
dómum. Þar segir að ríða skuli fet í
miðri sýningu en ekki í fyrstu um-
ferð eða síðustu þegar hrossið er í
dómi. Skal fetið riðið beint fyrir
framan dómarana og eiga sýning-
arhaldarar að merkja greinilega 50
metra kafla þar sem fetið skal sýnt
á, en í reglunum segir að ríða skuli
30 til 50 metra. Þá segir að geri
knapi enga tilraun til að sýna fet
dæmist sýningin ógild og hrossið
fær engan dóm. Það er því eins gott
fyrir knapa að gleyma ekki fetinu.
Skerpt á reglum um
kynbótasýningar
BOÐIÐ var upp á tvær sýningar í
fyrsta skipti í ár og veitti svo sann-
arlega ekki af, því færri komust að en
vildu og spurðist meðal annars út að
tvær rútur hefðu mætt á staðinn full-
ar af fólki en því miður hefði orðið að
vísa þeim frá því húsrúm leyfði ekki
fleiri áhorfendur. Eins og ávallt áður
var unga fólkið í miklum meirihluta á
sýningargesta og sýningaratriðin að
venju með örfáum undantekningum
borin uppi af ungum hestamönnum.
Mikil vinna og fyrirhöfn hefur ver-
ið lögð í sýningaratriðin og komu þar
margir að. Árangurinn var líka eftir
því, hvert atriðið öðru betra, skraut
og munsturreiðar ýmiskonar, söng-
ur, dans og hljóðfæraleikur ungra
hestamanna og hunda og svo hestur
lagður til svefns.
Fyrir utan skemmtanagildi sýn-
ingarinnar sem er mikið ef marka má
þessa miklu aðsókn má hiklaust telja
hana hafa skapað sér mikilvægan
sess í kynningu á hestum og hesta-
mennsku. Þarna kemur mikill fjöldi
barna og unglinga sem stunda hesta-
mennsku í litlum eða engum mæli og
má mikið vera ef enginn þeirra laðast
að þessari áhugaverðu frístundaiðju
sem verður síðar meir atvinna
margra. Þá virðist sem Æskan og
hesturinn sé orðin vinsælasta reið-
hallarsýning sem haldin er á landinu
en taka verður með í reikninginn í
slíkum samanburði að ókeypis er inn
á þessa sýningu.
Pollar sem er tiltölulega nýr ald-
ursflokkur í hestamennskunni fékk
heldur betur að njóta sín að þessu
sinni en 40 börn í þessum flokki riðu
um sal hallarinnar við mikla kátínu
sýningargesta. Eftir 10 til 15 ár má
gera ráð fyrir að einhverjir þeirra
muni fara um sali hallarinnar í alvar-
legri erindagjörðum á gæðingum í
fremstu röð.
Mikil ánægja ríkti með sýninguna
að þessu sinni enda samkoman ein-
staklega vel heppnuð.
Morgunblaðið/Valdimar
Hvítt og svart var atriði unglinga úr Herði kallað þar sem voru einungis svartir og hvítir hestar og knaparnir klæddir til samræmis við það.
Parareið var eitt af atriðum sýningarinnar og hér fara tvær stúlkur á
gráum gæðingum, önnur þeirra er reyndar í hlutverki herrans.
Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni í Víðidal
Fjölsóttasta reið-
hallarsýning ársins
Sýningunni Æskan og hesturinn hefur vaxið fiskur um hrygg. Allt
frá fyrstu sýningu fyrir sex árum hefur aðsókn farið ört vaxandi og
nú er talið að sýningargestir hafi verið um fimm þúsund og meðal
þeirra var Valdimar Kristinsson sem skemmti sér prýðilega.