Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 52
DAGBÓK 52 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Vigri, Natacha, Laug- arnes, Richmond Park og Ice Lady koma í dag. Víðir fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Hamrasvanur, Polar Siglir og Ocean Tiger komu í gær. Florinda fór í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opinn alla miðvikud. kl. 14–17, flóamarkaður, fataút- hlutun og fatamóttaka sími 552 5277 eru opin annan og fjórða hvern miðvikud. kl. 14–17. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað í síma Krabba- meinsráðgjafarinnar, 800 4040 kl. 15–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa og postulínsmálning. Far- ið verður í Borgarleik- húsið laugardaginn 16. mars, að sjá Boðorðin níu. Ath. sýningin hefst kl. 17. Rútuferð frá Aflagranda 40 kl. 16.15. Skráning í afgreiðslu s. 562-2571. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Allar uppl. í síma 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladag- ur, kl. 13–16 vefnaður. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9– 16.45 hárgreiðslu-og handavinnustofur opn- ar, kl. 10–10.45 leik- fimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl 16.30–18. Bingó spilað í Gullsmára 13, föstu- daginn 15. mars kl 14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10– 12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. 14. mars fé- lagsvist á Álftanesi kl. 19.30 á vegum Kven- félags Bessastaðahr., 21. mars félagsvist á Garðaholti kl. 19. 30 á vegum Kvenfélags Garðabæjar. Mið. 13. mars kl. 11.15 og 12.15 leikfimi, kl. 13.05 róleg stólaleikfimi, kl. 13.30 handavinnuhornið, og vinnustofa, gler, kl. 16. trésmíði, nýtt og notað. Fimmtud. 14. mars kl, 9 vinnustofa, gler, kl. 12.15 spænska, kl. 13 postulínsmálun, kl. 14 málun og keramik. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Mynd- list kl 13, pílukast kl 13:30 á morgun pútt í Bæjarútgerð kl 10– 11:30, opið hús í boði Sjálfstæðisfélagsins í Hafnarfirði kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Leikfélagið Snúður og Snælda sýn- ir í Ásgarði í Glæsibæ, söng- og gamanleikinn „Í lífsins ólgusjó“ og “Fugl í búri“. Sýn- ingar: Miðviku- og föstudaga kl. 14 og sunnud. kl. 16. Miða- pantanir í s: 588-2111, 568-8092 og 551-2203. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði kl. 10. Söngfélag FEB kóræf- ing kl. 17. Línudans- kennsla fellur niður. Söngvaka kl. 20.45. Fimmtud: Brids kl. 13. Framsögn kl. 16.15, brids fyrir byrjendur kl. 19.30. Heilsa og hamingja fyrirlestrar laugard. 16. mars n.k. kl. 13.30 í Ásgarði Glæsibæ. Framtals- aðstoð frá Skattstofu Reykjavíkur verður þriðjud. 19. mars panta þarf tíma. Sparidagar á Örkinni 14.–19.apríl. Uppl. á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, postulín, mósaik og gifsafsteypur, kl. 9– 13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Opið alla sunnu- daga frá kl. 14–16 blöð- in og kaffi. Ath. sunnu- dagana 17., 24. og 31. mars er lokað Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá hádegi spilasalur op- inn, veitingar í veit- ingabúð. Aðstoð við skattframtal verður veitt miðvikud. 20. mars, skráning hafin. Fimmtud. 21. mars verður félagsvist í sam- starfi við Hólabrekku- skóla. Uppl. um starf- semina á staðnum og í s. 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10 handavinna, kl. 10. boccia, kl. 11 hæg leikfimi, kl. 13 fé- lagsvist FEBK og gler- list, kl. 15–16 viðtals- tími FEBK, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Handverksmark- aður verður fimtudag- inn 14. mars kl. 14–16. Margt góðra og eigu- legra muna verður á boðstólum. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 róleg stólaleikfimi, kl. 13 keramikmálun. Hraunbær 105. Kl. 9 opin vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9– 17 hárgreiðsla og fóta- aðgerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur- klippimyndir, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 15 teiknun og málun. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun 14. mars að Korpúlfs- stöðum kl. 10. Kaffi- stofan er opin. Allir velkomnir. Uppl. veitir Þráinn Hafsteinsson s. 5454-500. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Fé- lagsstarfið er opið öll- um aldurshópum, allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13– 14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morg- unstund, bókband og bútasaumur, kl. 12.30 verslunarferð, kl. 13 handmennt og kóræf- ing, kl. 13.30 bókband, kl. 15.30 kóræfing. Laus pláss eru í fata- saum, körfugerð og bútasaumsnámskeið. Bústaðakirkja, starf aldraðra Spilað föndrað helgistund og gáta Gestur: Stefán Einar Matthíasson æða- skurðlæknir. Þeir sem vilja láta sækja sig í skráningu hjá kirkju- verði s. 533 8500 eða Sigrún s. 864 1448 Barðstrendingafélagið Félagsvist í Konnakoti, Hverfisgötu 105, kl. 20.30 í kvöld. Allir vel- komnir. Sjálfsbjörg, félags- heimilið Hátúni 12. Fé- lagsvist kl. 19.30 í kvöld. Félagsfundur verður í Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi (ekið inn hjá bens- ínstöðinni). Laugardag- inn 16. mars. Fund- arefni: Hver er stefna og viðhorf verkalýðs- hreyfingarinnar varð- andi öryrkja. Spurningakeppni átt- hagafélaga. 1. keppni af 4 verður í Breiðfirð- ingabúð Faxafeni 14 fimmtud. 14. mars kl. 20. Mætið stundvíslega. Hana-nú Kópavogi. Ekki er fundur í Bók- menntaklúbbi Hana-nú í kvöld. Næsti fundur er miðvikud. 20. mars kl.20 á Lesstofu Bóka- safns Kópavogs. Í dag er miðvikudagur 13. mars, 72. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. (Sálm. 86, 11.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 gjörfilegt, 8 spræna, 9 náðhús, 10 veiðarfæri, 11 þrældómur, 13 eldstæði, 15 rengla, 18 nurla sam- an, 21 orsök, 22 borgi, 23 ávöxtur, 24 rétta. LÓÐRÉTT: 2 bætir við, 3 gamalt, 4 ilma, 5 gemlingur, 6 asi, 7 spaug, 12 greinir, 14 sefa, 15 unaður, 16 skapilla, 17 spelahurð, 18 vísa, 19 fáni, 20 heimskingi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 pósts, 4 skrök, 7 kenna, 8 lemur, 9 pál, 11 róar, 13 hrós, 14 ómega, 15 farm, 17 ljót, 20 agn, 22 tuggu, 23 ættin, 24 kunna, 25 tæmdi. Lóðrétt: 1 pukur, 2 sunna, 3 skap, 4 soll, 5 rumur, 6 korns, 10 ágeng, 12 Róm, 13 hal, 15 fátæk, 16 Regin, 18 játum, 19 tonni, 20 auga, 21 nægt. Víkverji skrifar... NÝLEGA áskotnaðist Víkverjabókin Fólk á fjöllum, göngu- leiðir á 101 tind. Er hún eftir þá fjallamenn Ara Trausta Guðmunds- son og Pétur Þorleifsson. Þessir fjallamenn hafa langa reynslu af ferðalögum og miðla hér af þekk- ingu sinni á áhugaverðan og skýran hátt. Í bókinni er lýst göngu á 101 fjall. Tekin er opna í bókinni fyrir hvert fjall, leiðin sýnd á korti, helstu tölur birtar, svo sem um vegalengd, hæð, hækkun og göngutíma og í töflu er sett fram mat á erfiðleikum og hættu. Einnig er mynd af fjallinu og í hnitmiðuðum texta er leið og aðstæðum lýst. Víkverja sýnist þetta áhugaverð og hagnýt bók að öllu leyti. Þarna má fá nauðsynlega leiðarlýsingu sé ætlunin að halda á ókunna tinda. Einnig er hægt að skoða töflurnar á fljótlegan hátt og sjá hversu tind- arnir eru háir eða hversu hækkunin er mikil. Út frá því má velja fjall í samræmi við getuna. Þarna sér Víkverji einkum möguleika sína – að geta valið í fljótheitum álitlegt fjall út frá metrunum. Til dæmis Þóristind en á hann tekur upp- ganga aðeins 40 til 60 mínútur eða Vindbelgjarfjall sem má sigra á 40 til 50 mínútum. Auðvitað eru ýmis önnur álitleg fjöll þarna eins og Herðubreið eða Hekla en þá er líka verið að tala nánast um dagsferðir. En það er Víkverji búinn að af- greiða því hann stærir sig óhikað af því að hafa gengið á Heklu. En hann er líka jafnmontinn af því að hafa sigrað Grábrók sem tók reynd- ar ívið styttri tíma – og vel á minnst hennar er ekki getið í bókinni. Kannski kemur framhald. x x x ÞÓTT Víkverji segi sjálfur fráhefur hann sem sagt stöku sinnum lagt fyrir sig fjallgöngu um ævina, líklega fjórum til fimm sinn- um á jafnmörgum áratugum. Hefur hann jafnvel hugmyndir um að gera annað eins á næstunni og láta líða heldur styttri tíma milli fjalla. Þá ætti það nú að ganga áður en elli tekur völdin. Spurningin er hvaða garð skal ráðast á – þennan sem er hæstur eða einhvern annan. Hægt er að velja fjöll í óbyggðum eins og Tungnafellsjökul og Rauðkoll eða í alfaraleið einsog Búlandstind og Hafnarfjall, þekkt fjöll einsog Keili eða Vífilsfell, og minna þekkt eins- og Blámannshatt eða Jörundarfell. x x x AÐ LOKUM má kannski bendaþeim fjallamönnum á eitt at- riði. Þeir tilgreina nefnilega upp- göngutíma á tindana og segja að ofangangan taki oftast 50–60% af þeim tíma. Hins vegar láta þeir al- veg hjá líða að benda á þá stað- reynd að þá reynir nú fyrst á lærin! Ætli uppgangan reyni nema 50– 60% á lærin en niðurferðin 100%? Þetta hlýtur að geta orðið rann- sóknarefni fyrir næstu bók. Og alveg að lokum: Það er engin þörf á að vera göngufíkill til að lesa Fólk á fjöllum. Hún stendur alveg fyrir sínu sem fróðleg lesning og landafræði með bráðlaglegum myndum. Og í þriðja lagi að lokum: Nestið er náttúrlega eitt aðalatriðið. Fyrir utan það sem þeir benda á í bókinni að menn hafi drykk og létt nesti er rétt að muna að ekki er síður mik- ilvægt að eiga eitthvað gott þegar komið er á leiðarenda. Þá er tilefni til að verðlauna sig með einhverju girnilegu. Er það ekki einn aðal- tilgangur fjallgöngu? 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Hárlitur án kemískra efna? Í DESEMBERHEFTI Neytendablaðsins var grein „Kemískir kokteil- ar“ og fjallaði hún um hárliti. Í framhaldi af lestri þessarar greinar var ég að velta því fyrir mér hvort ekki væru fá- anlegir hárlitir í verslun- um eða apótekum sem væru án kemískra efna? Þeir sem gætu gefið upp- lýsingar vinsamlega hafið samband í síma 564-1928. Söng- og danskennsla fyrir 3 ára KONA hafði samband við Velvakanda og sagðist hún vera að leita sér upp- lýsinga um hvar hægt sé að fá söng- og/eða dans- kennslu fyrir 3 ára börn. Þeir sem geta gefið upp- lýsingar um þetta hafi samband í síma 864-4259. Bókar leitað ÉG er að leita að bók sem heitir Þjóð bjarnarins mikla eftir Jean M. Auel. Þessi bók er úr þriggja bóka flokki og er sú fyrsta í röðinni. Þessi bók virðist hvergi fást og væri vel þegið að fá upplýsingar um hvar hægt sé að nálg- ast hana. Þeir sem vita hvar hægt er að nálgast bókina vinsamlega hafið samband við Sigurlaugu í síma 482-1719. Myndir í óskilum ÞESSI mynd var í myndabunka sem fannst í plastpoka sl. fimmtudag. Myndirnar virðast hafa verið teknar bæði hér- lendis og erlendis. Upp- lýsingar í síma 697 5833. Tapað/fundið Gleraugu týndust GLERAUGU, brún með litlum glerjum, týndust líklega á Snorrabraut sl. föstudag. Skilvís finnandi hafi samband í síma 552- 6818. Framhlið af bíla- útvarpi í óskilum FRAMHLIÐ á bílaút- varpi fannst í Lautasmára í Kópavogi. Upplýsingar í síma 554 6937 eftir kl. 17. Úr týndist ÚR tapaðist miðvikudag- inn 6. mars fyrir utan verslunina Epal. Þetta er kvenúr, stállitað með gyll- ingu. Ef einhver hefur fundið úrið mitt vinsam- legast hringið í Ásdísi í síma 699 0924 eða skilið því í Epal. Dýrahald Vigfús er enn týndur VIGFÚS er merktur og sést hefur til hans í Efra- Breiðholti. Þeir sem geta hjálpað honum að rata heim í Hólaberg 28 og/eða gefið upplýsingar, vin- samlega hringið í síma 557 2491, 898 6423 eða 899 7929. Vigfús er eldri og stærri en myndin sýn- ir. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is ÉG vil lýsa yfir undrun minni á þeirri umræðu um aðbúnað fanga sem átt hefur sér stað und- anfarið hjá Stöð 2 og Fréttablaðinu. Þessir menn eru með kröfur á hendur samfélaginu en hvað hafa þeir sjálfir lagt af mörkum til samfélags- ins? Atli Helgason, tals- maður fanga, gagnrýnir harðlega að langtíma fangar skuli ekki fá dag- leyfi fyrr en eftir fimm ár. En er ekki ástæða fyrir því að þessir menn eru lokaðir inni? Ég mundi ekki vilja mæta dæmdum morðingja úti á götu skömmu eftir að hann hefur framið sinn glæp og verið dæmdur til refsingar. Finnst mér með ólíkindum að verið sé að gera þessa menn að píslarvottum. Hvað með aðstandendur þeirra sem þessir afbrotamenn hafa skaðað – og jafnvel vald- ið dauða? Ekki fá þeir að- stoð frá samfélaginu, hvorki ókeypis sál- fræðiþjónustu né fjár- hagsstuðning. Það er ástæða fyrir því að þessir menn sitja þarna inni og taka út sína refsingu – þeir hafa brotið af sér og ættu að skammast sín. Það eru tvær hliðar á þessum málum. Sigurður Þórðarson. Tvær hliðar á hverju máli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.