Morgunblaðið - 13.03.2002, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 13.03.2002, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 53 DAGBÓK einn lítri Málið er Pepsi Max í nýjum umbúðum 1L skiptir máli Rétta stærðin ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O LG 1 70 81 03 /2 00 2 Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 • og hjá umbo›smönnum um land allt www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n Dublin Ver›: 44.900 kr. VISA-fer› um páska Höfum bætt vi› herbergjum á hótel Camden Court, einu vinsælasta Íslendinga hótelinu í Dublin undanfarin ár. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 1 71 39 03 /2 00 2 28. mars - 1. apríl Innifali›; Flug, gisting m/morgun - ver›arhla›bor›i í 4 nætur, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Ekki innifali›: Föst aukagöld, 4.120 kr. Bóka›u fer›ina og fá›u nánari uppl‡singar á netinu! LJÓÐABROT STÖKUR Ofið er gulli eyjaband, eygló list þá kunni. Kankvís bára kaldan sand kyssir votum munni. Losið byrðing festum frá, farmenn austursveita! Gullreifið er gými hjá; gaman er þess að leita. Jón Hinriksson Illt er að sitja við ullartó uppi á palli kvenna, – betra er að láta í breiðan sjó blöðin ára renna. Ókunnur höfundur Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 13. mars, er sextugur Guð- mundur Ingi Guðmunds- son, húsasmiður, Háagerði 16, Reykjavík. Eiginkona hans er Elísabet Jónsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum á heimili sínu laug- ardaginn 16. mars kl. 16. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 29. desember sl. í Safnkirkju Árbæjar af sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur Hrafnhildur Kristinsdóttir og Kurt Schandorff. Heimili þeirra er í Danmörku. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4. O-O Rge7 5. b3 Rd4 6. Rxd4 cxd4 7. c3 a6 8. Bd3 Rc6 9. Bb2 Bc5 10. Dh5 d6 11. a4 O-O 12. b4 Ba7 13. Ra3 Re5 14. De2 Bd7 15. Rc2 dxc3 16. Bxc3 Hc8 17. Ha3 Dc7 18. Re3 Hfd8 19. Kh1 Rxd3 20. Dxd3 d5 21. exd5 Df4 22. De2 Bb8 23. g3 De4+ 24. f3 Dg6 25. Bd4 e5 26. Bc3 b5 27. a5 Bh3 28. Hg1 Bd7 29. Hf1 He8 30. Dg2 Ba7 31. De2 Hcd8 32. Rg2 Bf5 33. He1 Bd3 34. Dd1 e4 35. Rf4 Df5 36. He3 Bxe3 37. dxe3 exf3 38. Dxd3 Hxd5 39. Bd4 Staðan kom upp á Reykjavíkurskákmótinu sem stendur nú yfir í Ráð- húsi Reykjavíkur. Helgi Ólafsson (2474) hafði svart gegn Halldóri Brynjari Halldórssyni (2155). 39. Hxd4! og hvítur gafst upp enda stutt í mátið. 7. umferð Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 17.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Áhorfendur eru velkomnir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. LESANDINN er beðinn um að taka sér stöðu í austur í vörn gegn fimm hjörtum, en spilið er frá sýningarleikunum í Salt Lake City: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 10 ♥ DG95 ♦ D10532 ♣K105 Austur ♠ ÁDG842 ♥ 82 ♦ K8 ♣976 Vestur Norður Austur Suður Erhart Dhondy Terraneo Smith – – – 1 hjarta Pass 3 hjörtu 3 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar Pass Pass 5 hjörtu Pass Pass Pass Sagnirnar að ofan eru úr viðureign Breta og Austurríkismanna í kvennaflokki. Útspil vest- urs er spaðafimma – þriðja hæsta – og suður fylgir með sjöunni undir ásinn. Hverju á austur að spila til baka í öðrum slag? Það þarf mikla fram- sýni til að sjá hættuna sem steðjar að vörninni, en hún er þessi: Norður ♠ 10 ♥ DG95 ♦ D10532 ♣K105 Vestur Austur ♠ 9653 ♠ ÁDG842 ♥ Á ♥ 82 ♦ G976 ♦ K8 ♣8432 ♣976 Suður ♠ K7 ♥ K107643 ♦ Á4 ♣ÁDG Segjum að austur spili spaða í öðrum slag. Sagn- hafi hendir laufi úr borði í spaðakónginn, spilar svo laufi þrisvar (og trompar það þriðja hátt í öryggisskyni) og spilar þá loks hjarta. Vestur lendir inni á blönkum hjartaás og verður að spila svörtum lit í tvö- falda eyðu eða tígli frá gosanum. Þannig hverfur tapslagurinn í tígli. Eina vörnin sem virkar er að spila trompi til makkers á meðan hann á örugga útkomu í spaða eða laufi. Sylvia Terraneo fann þessa vörn við borð- ið og uppskar góða sveiflu, því á hinu borð- inu spilaði austur laufi í öðrum slag gegn sama samningi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudags- blað. Samþykki af- mælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Með morgunkaffinu Gleymum bara þessum bolta. Reynum heldur að finna golfvöllinn aftur. ef t i r Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þú telur að gjörðir þínar í fortíðinni hafi áhrif á nútíð- ina og framtíðina. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú finnur vel fyrir andlegu hlið þinni með nýju tungli. Þú gerir þér ljóst að peningar eru ekki lykillinn að hugarró. Naut (20. apríl - 20. maí)  Dagurinn í dag er vel til þess fallinn að ræða við vin um langtímaóskir og framtíðar- vonir þínar. Þú þarft að fá við- brögð annarra við hugmynd- um þínum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ertu viss um að þau markmið sem þú hefur sett þér séu þín eigin? Eða eru þetta markmið sem kennarar, foreldrar þínir og fólk sem þú lítur upp til hefur sett þér? Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Í dag skaltu leggja drög að því að bæta við menntun þína á einhvern hátt. Þetta getur verið á formlegan hátt með því að fara á námskeið og kynna þér eitthvað nýtt sem vekur áhuga þinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert oft hin mesta eyðslu- kló. Með nýju tungli gefst þér kjörið tækifæri til að meta skuldastöðuna og leggja drög að því að bæta hana. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Íhugaðu ástar- og vinasam- bönd þín í dag. Til þess að samband geti gengið vel verð- ur þú að vera eins góður fé- laga þínum og hann er þér. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Jafnvel smávægilegur ásetn- ingur þinn í dag um að bæta heilsuna mun hjálpa. Það er jú svo að þú verður aldrei aftur jafnung(ur) og þú ert í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Til að vera í jafnvægi þarf lífið að búa yfir leik alveg eins og vinnu. Hugleiddu hvernig þú getur tjáð skapandi hlið þína með listsköpun og öðrum at- höfnum sem auka á jafnvæg- iskennd þína. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þegar til lengri tíma er litið skapa náin sambönd, vinátta, trausta uppsprettu ánægju í lífi okkar. Hugleiddu á hvern hátt þú getur bætt samskiptin innan fjölskyldunnar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þetta er ekki rétti dagurinn til að sitja heima. Komdu þér út og njóttu þess að fara í stutta ökuferð, að versla, spjalla við vini og örvunarinnar við að sjá aðra staði en venjulega. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Fyrir tilstilli sjóvarpsins og auglýsinga erum við farin að leggja sjálfsmat okkar að jöfnu við eigur okkar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Gefðu þér tíma til að læra að meta þá manneskju sem þú ert og það sem þú hefur. Það er lykillinn að hamingjunni að kunna að meta hlutina. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. STJÖRNUSPÁ TÓNLEIKAR verða haldnir í Há- skólabíói fimmtudagskvöldið 14. mars kl. 20, til minningar um fórn- arlömb flugslyssins í Skerjafirði 7. ágúst 2000 og til styrktar söfnunar vegna óháðrar rannsóknar á orsök- um flugslyssins. Fram koma: Ný Dönsk, KK, XXX Rottweilerhundar, Páll Rósin- krans, GusGus, Þórunn Antonía, Gerpla og Vilborg Halldórsdóttir. Kynnir verður Óskar Jónasson. Miðaverð er kr. 2.000. Sala að- göngumiða hefst mánudaginn 11. mars á www.midasala.is og í Há- skólabíói. Það eru vinir æskufélaganna sál- ugu, Jóns Barkar Jónssonar og Sturlu Þórs Friðrikssonar, sem standa fyrir tónleikunum. Allir sem að tónleikunum koma gefa vinnu sína í þágu málefnisins. Ágóði tón- leikanna rennur til styrktar söfn- unar vegna óháðrar rannsóknar ensku flugslysasérfræðinganna Frank Taylor og Bernard Forward á orsökum flugslyssins í Skerjafirði. Þeim sem ekki komast á tón- leikana en vilja styrkja málefnið er bent á söfnunarreikninginn í Spari- sjóði vélstjóra 1175-05-409940, segir í fréttatilkynningu. Minningartónleikar um fórnarlömb flugslyss FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.