Morgunblaðið - 13.03.2002, Page 60

Morgunblaðið - 13.03.2002, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga ÚTSÝNIÐ yfir höfuðborgarsvæðið var fagurt í gær er þeir fóru undir kvöld á loft á mótorsvifdrekum sín- um Markús Jóhannsson og Árni Gunnarsson, félagar í Svifdreka- félagi Reykjavíkur. Markús er hér yfir Hafravatni á leið inn til lend- ingar á braut félagsins við rætur Úlfarsfells. Ljósmyndarinn fékk far með Árna, sem er Norðurlanda- meistari í drekaflugi, en þessir mót- orsvifdrekar eru tveggja manna og svífa létt um loftin blá árið um kring. Fáir farkostir af þessari gerð eru til hér á landi en þeim fljúga einkum svifdrekaflugmenn. Þess má geta að námskeið í svif- drekaflugi hefjast innan skamms hjá Svifdrekafélaginu þar sem allt áhugafólk um þessa íþrótt, sem fyrst og fremst er stunduð á sumr- in, er boðið velkomið. Á mótor- svifdreka yfir Hafra- vatni Morgunblaðið/Árni Sæberg DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir hækkun neysluverðsvísitölunn- ar um 0,4% frá fyrra mánuði ekki gefa tilefni til svartsýni um að mark- mið um þróun verðlags gangi eftir. Hækkunin stafi eingöngu af liðum sem hafi ekkert með almenna verð- lagsþróun að gera. Annars vegar sé um að ræða áhrif af því að vetrarút- sölum sé lokið og hins vegar séu hækkanir sem orðið hafi vegna þess að samningar séu ekki í gildi við sjúkraþjálfara. Hækkunin veldur forystumönnum samtaka vinnumarkaðarins miklum vonbrigðum og Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir tvísýnt hvort varð- bólgumarkmiðið í maí muni nást. Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í marsbyrjun var 221,8 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrra mán- uði. Ef vísitalan á að haldast innan rauða striksins í maí, sem er bundið við 222,5 stig, má hún ekki hækka um meira en 0,3% í næstu tveimur mæl- ingum í apríl og maí. Skv. upplýsingum Hagstofunnar er vetrarútsölum nú víðast lokið og leiddi það til 6,7% verðhækkunar á fötum og skóm, en áhrif þess á hækk- un vísitölunnar eru 0,31%. Gjöld vegna heilsugæslu hækkuðu um 6,0% (0,11% vísitöluáhrif), aðallega vegna mikillar hækkunar á hlut ein- staklinga í kostnaði við sjúkraþjálf- un. Hins vegar lækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 1,1% og vó þar þyngst 3,4% verðlækkun á kjöti. Forsætisráðherra segir ástæðu- laust að ætla að svona aðstæður verði uppi þegar næsta vísitölumæl- ing verður gerð. Ef búið verði að semja við sjúkraþjálfara lækki sú tala og hækkanir eftir að vetrarút- sölum lauk verði gengnar yfir. ASÍ og SA áttu ekki von á svona miklum hækkunum Davíð segir meginatriði málsins að verðbólgan sé á niðurleið. Þriggja mánaða verðbólga sé nú 4½% og menn muni væntanlega sjá eftir tvær vísitölumælingar til viðbótar að verð- bólgan á tólf mánaða tímabili hafi lækkað verulega. ,,Stöðugleikinn er kominn á aftur og það er að skapast kyrrð á markaðinum,“ segir Davíð. ,,Þetta er mun meiri hækkun en við áttum von á,“ segir Grétar Þor- steinsson. ,,Það jaðrar við að tala megi um áfall að sjá þetta,“ segir hann. ,,Þetta er meiri hækkun en við vorum að vonast eftir en ég held samt sem áður að það sé of snemmt að útiloka að markmiðið geti náðst. Það er þó augljóslega þörf á því að allir aðilar sem hafa áhrif á verðlag, stórir sem smáir, stuðli að þessu markmiði,“ segir Ari Edwald, fram- kvæmdastjóri SA. Forystumenn ASÍ hafa óskað eftir fundi með ríkisstjórninni og Samtök- um atvinnulífsins í dag til að fara yfir stöðu málsins. Forsætisráðherra segir hækkun vísitölu ekki gefa tilefni til svartsýni Meginatriði að verð- bólgan er á niðurleið  Má ekki/30 LÆKNAR í ákveðnum sérgrein- um á Landspítala – háskólasjúkra- húsi hafa síðustu misserin safnað rétti til töku á fríi vegna langra vakta. Myndast þessi réttur þegar lögboðinn hvíldartími skerðist og fá læknar 1,5 klst. í frí fyrir hverja klukkustund sem hvíldartíminn skerðist. Dæmi eru um lækna sem eiga allt að einu ári í óteknu fríi vegna þessa, margir eiga margar vikur eða mánuði en ekki hefur verið unnt að veita þessi frí vegna manneklu. Hulda Hjartardóttir kvensjúk- dómalæknir gerir þessi mál að um- talsefni í grein í nýjasta hefti Læknablaðsins þar sem hún segir að vaktafyrirkomulag Landspítala sé í uppnámi. Frítökurétturinn hefur myndast frá haustinu 1997 þegar vinnutímatilskipun EES var tekin upp í kjarasamningum lækna sem og margra annarra stétta. Hulda sagði í samtali við Morg- unblaðið að þessi réttur kæmi ekki síst til hjá sérfræðingum sem stæðu sólarhringsvaktir, t.d. barnalæknum, fæðingarlæknum og svæfingarlæknum. Hann mynd- aðist ekki vegna bakvakta, heldur vegna staðarvakta eða bundinna vakta. Hún sagði því mjög mis- jafnt hversu mikill frítökuréttur hefði safnast upp hjá einstökum læknum, allt frá nokkrum vikum upp í ár hjá þeim sem mestan rétt ættu. Heimilt er að greiða út þriðjung af fríinu en tvo þriðju verða menn að taka. Frí sem þannig safnast upp fyrnist ekki. Sagði hún úti- lokað að læknar gætu tekið út þetta frí nema með breyttu fyr- irkomulagi og með fjölgun í stétt- inni. Þá segir hún í greininni í Læknablaðinu að yfirstjórn spít- alans leiti leiða til að draga úr þessum frítökurétti. Hulda segir breytingar á vaktafyrirkomulagi augljóslega kalla á mikinn fjölda lækna. Samkvæmt útreikningum sínum geti reynst nauðsynlegt að fjölga læknum um 20–30% á deild- um þar sem staðarvaktir eru nauð- synlegar til að leysa af lækna í fríi. Uppsafnað frí lækna vegna vakta veldur vanda á Landspítala Dæmi eru um að læknar eigi inni frí í heilt ár TÆPLEGA 8.000 manna hverfi verður á Garðaholti á sunnanverðu Álftanesi samkvæmt nýju ramma- skipulagi svæðisins sem kynnt var almenningi í gær. Gert er ráð fyrir 2.400–2.440 íbúðum á svæðinu, sem tilheyrir Garðabæ, en í dag eru íbúar bæjarins um 8.500 talsins. Skipulagssvæðið er á þeim hluta Álftaness sem hefur verið nefnt Garðahverfi og tekur rammaskipu- lagið til vestari hluta Garðahverfis eða þess svæðis sem oftast er kallað Garðaholt. Rammaskipulagið nær til um 170 hektara lands en því til við- bótar eru strand- og jaðarsvæði við hraunbrún um 25 hektarar. Byggðin mun mynda sjálfstæðan afmarkaðan bæjarhluta í Garðabæ og munu Garðakirkja og gamla sam- komuhúsið á Garðaholti marka mið- kjarna svæðisins en á milli þessara bygginga verður þungamiðja hverf- isins. Umhverfis hverfiskjarnann verður blönduð byggð einbýlis-, rað- og fjölbýlishúsa sem verða allt að fimm hæðir. Þá er áformað að við ströndina verði reist smábátahöfn. Þrír grunnskólar, fjórir leikskólar og einn framhaldsskóli verða á svæð- inu auk íþróttasvæðis. Íbúafjöldi Garða- bæjar tvö- faldast  Um 8.000/14 Nýtt hverfi í bígerð ÞEGAR röntgenmynd var tekin af nefi Jónatans Magnússonar, hand- knattleiksmanns hjá KA, á mánu- dag kom í ljós brot úr tönn sem fast var í nefinu. Um var að ræða brot úr tönn Þorvarðar Tjörva Ólafs- sonar, leikmanns Hauka, en þeir lentu í miklu samstuði í kappleik liðanna í fyrravor. Jónatan nef- brotnaði en Þorvarður slapp með brotna tönn. Tönn í nefi  Haukatönn/B1 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.