Vísir - 23.05.1980, Blaðsíða 11

Vísir - 23.05.1980, Blaðsíða 11
VÍSIR Föstudagur 23. mal 1980 Sigriður Atladóttir, 19 ára gömul og nemandi i menntaskólanum i Hamrahlið leikur aðalhlutverkið i mynd Ágústs Guðmundssonar „Litil þúfa” sem sjónvarpið sýnir nú um helgina. Myndin fjallar i stuttu máli um viðbrögð 15 ára stúlku,Stinu, sem verður ófrisk og afstöðu umhverfisins til þeirra tiðinda Ég rabbaöi' stuttlega viB Sigriöi á dögunum um hlutverk hennar I myndinni og spuröi hana fyrst hvort hún kviöi ekki syningu myndarinnar núna um hvita- sunnuna. „Ég er nú búin aö sjá mynd- ina þrisvar sinnum þannig að ég er búin að taka út þaö versta. Hins vegar kviöi ég dálitiö aö heyra hvaö þeim sem þekkja mig finnst um myndina. Þaö er lika frekar óþægileg tilhugsun ef fóik fer aö horfa á mann úti á götu og velta þvi fyrir sér hvar þaö hafi séö mann áöur.” — Nú hefur þú aldrei fengist viö aö leika áöur, en ert samt valin til þess aö leika stúlku sem er I mjög erfiöri aöstööu. Var þaö ekki erfitt? „Nei mér fannst þaö ekki beinlfnis erfitt. Þaö var fyrst og fremst gaman aö vinna aö myndinni enda var þaö gott fólk sem ég vann meö og Agúst var mjög góöur leikstjóri. Hann æsti sig aldrei en sagöi mér ósköp Sigriöur slappar af milli atriöa. rólega hvaö hann meinti ef ég geröi eitthvaö vitlaust. Annars fannst mér erfiöast aö leika þegar ég þurfti aö sýna til- finningar sem ég þekkti ekki sjálf. Eins og þegar Stina segir mömmu sinni frá þvi aö hún sé ófrisk.” Bara hvolpavitsást. — I myndinni er stelpan látin gera þaö upp viö sig hvort hún ætli aö eignast barniö eða ekki. Lætur hún eyöa fóstrinu? Og i framhaldi af þvi hvaöa skoðun hefur þú á fóstureyðingum? „Stina eignast barniö, en hún tekur ekki beina ákvöröun um þaö sjálf. Hún er frekar ósjálf- stæö og á erfitt meö aö átta sig á hlutunum, enda var engin alvara á bák viö þetta hjá henni og stráknum sem hún eignast barnið meö. Þetta var bara hvolpavitsást hjá þeim. Ég er sjálf alveg á móti fóstureyöingum nema i alveg sérstökum tilvikum. Nei ég held að myndin hafi ekkert breytt þeirri skoöun sem ég haföi á þeim áöur ef eitthvaö er þá styrktist hún eftir myndina.” Gefið hláturgas i fæðingunni. — Stúlkan eignast sem sagt barnið i myndinni. Er alveg sýnt frá fæðingunni? „Nei fæöingin sjálf var náttúrulega ekki synd. En ég sést þarna rembast meöan ég á aö vera aö fæöa og mér er gefið hláturgas. Agúst vildi fá hljóðið af gasgjöfinni inn á filmuna þannig aö ég fékk I raun og veru ektá hláturgas. Ég var nú hálf vönkuö lengi á eftir. En mér Rétt fyrir upptöku. Þau Gunnar Pálsson sem leikur vin Stfnu, Sigrlöur og Hrafnhildur Guöbjörnsdóttir, sem leikur vinkonu hennarhlusta meö athygli á leiöbeiningar Agústs Guömundssonar. Krakkarnir eru öll nemendur úr menntaskólanum I Hamrahllö. Sigrlöur Atladóttir meö köttinn sinn hann Pússl, sem vakti kurt eisislega athygli á viöurvist sinni og vildi vera meö á myndinni. Vlsismynd: B.G. Atriöi úr myndinni þegar Stina ráögast viö vinkonu slna um hvaö hún eigi aö gera. Róluvöllurinn er sjálfsagt ekki verri staöur en hver annar. Ljósmyndir frá kvikmyndatökunni tók Ari Guömundsson. finnst þetta atriöi samt einna skemmtilegasta atriöi myndar- innar. Ég vissu auövitaö ekkert um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á fæðingardeildinni og þvi siöur hvernig þaö er aö eignast barn. Ljósmæöurnar á fæöingar deildinni hjálpuöu mér alveg. Þær sögöu mér hvernig ég ætti að anda og rembast I fæöingunni og svo hvernig viöbrögöin eru hjá stelpum þegar þeim er sagt aö nú þurfi aö raka þær eöa gefa þeim stólpipu, en þær eru vist sjaldnast viöbúnar svoleiöis hlutum. —Ég hef heyrt aö þú standir þig mjög vel I myndinni. Heldur þú að þú eigir eftir aö leika i fleiri kvikmyndum? „Ég hef ekki hugmynd um þaö. Ég ætla aö halda áfram i skóla en hitt verður bara aö koma i ljós.” — ÞJH Hér sést þegar veriö er aö taka atriöi þegar Stlna kemur út úr heilsuverndarstööinni ásamt vinkonu sinni eftir aö hafa skilaö inn þvagprufu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.