Morgunblaðið - 09.04.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MMC Pajero Sport President
2.5 díesel, f. skr.d. 06.02. 2000,
ek. 18 þ. km, 5 d., bsk., sóll.,
leðurinnrétting o.fl.
Verð 3.290.000.
Nánari upplýsingar hjá
Bílaþingi.
Opnunartímar: Mánud.-föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
HÉRAÐSDÓMUR Vestur-
lands hafnaði í gær kröfu
Verkalýðsfélags Akraness um
frávísun á dómsmáli sem Vil-
hjálmur Birgisson hefur höfð-
að gegn félaginu til að fá að-
gang að öllum bókhaldsgögn-
um þess frá 1997 til 1999.
Vilhjálmur situr í aðalstjórn
félagsins og var flutningsmað-
ur vantrauststillögu á meiri-
hluta stjórnar félagsins sem
samþykkt var á aðalfundi í
desember sl.
Að mati dómara var Vil-
hjálmur sem einstaklingur í
stjórn og fulltrúi félagsmanna
í henni talinn hafa lögvarða
hagsmuni af því að geta gert
sér glögga grein fyrir fjárreið-
um félagsins. Þeir hagsmunir
eru að mati dómara ekki
bundnir við þann tíma þegar
hann var kjörinn í stjórn eða
tók sæti í henni. Fjárhagur fé-
lagsins árið 2000 eigi sér ræt-
ur í meðferð fjármuna áranna
á undan. Málinu var því ekki
vísað frá dómi á þeirri for-
sendu að stefnandi ætti ekki
lögvarða hagsmuni af því að fá
efnisdóm um kröfu sína.
Finnur Torfi Hjörleifsson
dómstjóri kvað upp úrskurð-
inn.
Málinu hefur verið frestað
til 16. apríl til undirbúnings
aðalmeðferðar.
Ekki fallist
á frávís-
unarkröfu
verkalýðs-
félags
TOLLGÆSLAN á Keflavíkur-
flugvelli lagði á sunnudags-
kvöld hald á ríflega 300
skammta af anabólískum ster-
um. Sterarnir voru í spraut-
hylkjum sem íslenskur karl-
maður hafði falið innanklæða.
Skv. upplýsingum frá toll-
gæslunni var maðurinn stöðv-
aður við reglubundið eftirlit en
hann var að koma frá Kaup-
mannahöfn. Anabólískir sterar
hafa í gegnum tíðina verið not-
aðir af íþróttafólki til að auka
kraft sinn.
Með stera-
skammta
innanklæða
SKEMMDIR af völdum íkveikju við
hjólbarðaverkstæði og líkamsrækt-
arstöð á Seltjarnarnesi reyndust
minni en óttast var í fyrstu. Litlu
munaði að eldurinn bærist í
dekkjalager en við það hefði eld-
urinn magnast til muna. Víst þykir
að kveikt hafi verið í dekkjastæðu
í porti bak við hjólbarðaverkstæðið
Nesdekk sem jafnframt er smur-
stöð og leitar lögreglan í Reykja-
vík að sökudólgnum.
Tilkynning um eldinn barst á
fjórða tímanum aðfaranótt sunnu-
dags og var allt tiltækt lið Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðsins kallað
út. Mikill eldur logaði í dekkja-
stæðu í porti hjólbarðaverkstæð-
isins og barst þaðan þykkur reyk-
ur. Eldurinn hafði læst sig í vegg
og þak og varð að rjúfa hluta af
klæðningu til að komast að honum.
Hjólbarðaverkstæðið er við Suð-
urströnd en sambyggðar því eru
líkamsræktarstöðin Ræktin og
Bónus-verslun. Samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliðinu var talin
talsverð hætta á að eldurinn
breiddist út og litlu mátti muna að
eldurinn bærist í dekkjalager þar
sem er mikill eldsmatur.
Um klukkustund tók að ná tök-
um á eldinum en slökkvistarfi var
ekki lokið fyrr en um hálfsjö. Þá
var vakt á staðnum fram eftir
morgni.
Starfsemi raskast lítið
Jón Hauksson, rekstrarstjóri
Nesdekks, sagði í samtali við
Morgunblaðið að starfsemi verk-
stæðisins hafi ekki raskast af völd-
um brunans. Kveikt var í úrgangs-
dekkjum en Jón segir að framvegis
verði þess gætt að geyma þau ekki
utandyra, það sé greinilega ekki
þorandi lengur.
Samkvæmt upplýsingum frá lík-
amsræktarstöðinni Ræktinni urðu
miklar skemmdir á skvasssal
stöðvarinnar. Rjúfa þurfti þakið og
lak vatn þar inn. Þá barst reykur
inn í húsnæðið. Starfsfólk stöðv-
arinnar vann að þrifum í gær og
stefnt er að því að opna stöðina
aftur á morgun, miðvikudag.
Morgunblaðið/Júlíus
Þegar slökkviliðið kom á vettvang logaði mikill eldur í porti bak við hjólbarðaverkstæðið.
Munaði
litlu að eld-
ur bærist
í dekkja-
birgðir
Minni skemmdir en
óttast var í fyrstu
höfuð þeirra sem tókust á, þ.á m.
lögreglumanna sem voru að reyna
að stöðva átökin. Friðrik kom sjálf-
ur í veg fyrir þetta með því að fara
aftan að manninum og taka í borðið
en að öðrum kosti hefði verið hætta
á stórslysi.
Að öllu jöfnu er aðeins einn lög-
reglumaður á vakt á slysadeildinni
að kvöld- og næturlagi. Tveir aðrir
lögreglumenn höfðu nýlega komið
með sjúkling á deildina og voru því
staddir á slysadeildinni þegar átök-
in brutust út. Friðrik segir að þeir
hafi átt við ofurefli að etja og því
hafi þegar verið óskað eftir liðs-
auka. Fjórir voru handteknir og öll-
um hópnum vísað út, þ.m.t. þeim
tveimur sem töldu sig þurfa á lækn-
isaðstoð að halda. Friðrik segir ljóst
að þegar menn geti tekið þátt í
átökum þurfi þeir ekki á bráðaþjón-
ustu læknis að halda. Hann hafi
hins vegar fregnað að þeir hafi leit-
að á slysadeild síðar um daginn.
Þegar átökin brutust út voru tveir
sjúklingar, sem ekki tengdust hóp-
unum, teknir inn á deildina enda
talin hætta á að þeir yrðu fyrir
barðinu á ofbeldismönnunum. Allt
var á rúi og stúi eftir átökin, blöð
voru á dreif um gólf, borð lágu á
hliðinni og plaststólar höfðu brotn-
að.
Ógnar öryggi starfsfólks
og sjúklinga
Friðrik segir að átök sem þessi
séu mikil ógnun við öryggi starfs-
fólks og sjúklinga og sjálfur hefur
hann lent í því að þurfa að verjast
árás. Endrum og sinnum hefur
komið til átaka í biðstofunni og
raunar líka inni á deildinni sjálfri en
þetta séu „verstu óeirðir“ sem hann
muni eftir í starfi á slysadeild. „Of-
beldið er að verða grimmara,“ segir
Friðrik og segir líkurnar á alvar-
legum átökum á slysadeild hafa
aukist ár frá ári. Tímabært sé að
dyr slysadeildarinnar verði hafðar
læstar frá miðnætti fram undir
morgun.
Hann mun leggja til að við dyrn-
ar verði dyrasími og öryggismynda-
vél og engum verði hleypt inn fyrr
en eftir athugun starfsfólks. Með
þessu móti verði hægt að koma í
veg fyrir að ofbeldismenn komist
inn á biðstofuna. Eftir sem áður
geti fólk fylgt sjúklingum inn á bið-
stofuna og hann segir að þjónusta
við borgara þurfi alls ekki að skerð-
ast við þetta. Slíkt fyrirkomulag sé
vel þekkt í Evrópu og reyndar
þekki hann þess engin dæmi að
hver sem er geti óhindrað komist
inn á biðstofu slysadeilda í Evrópu.
Tíu líkamsárásir voru tilkynntar
til lögreglunnar í Reykjavík um
helgina sem er ekki óvenjulegt mið-
að við venjulega helgi að sögn Geir
Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns.
Í flestum tilvikum var um að ræða
átök á milli drukkinna manna.
FJÓRIR voru handteknir eftir
slagsmál í biðstofu slysadeildar
Landspítala – háskólasjúkrahúss á
sunnudagsmorgun en að sögn lög-
reglu „logaði þar allt í slagsmálum“.
Sérfræðingur á slysadeild segir að
átökin hafi verið þau verstu um ára-
bil og hann telur tímabært að dyr-
um slysadeildarinnar verði læst að
næturlagi og óæskilegum mönnum
ekki hleypt inn á biðstofuna.
Slagsmálin brutust út undir
morgun, að því að talið er þegar
tveimur hópum manna laust saman
en þeir munu hafa fylgt slösuðum
félögum sínum á slysadeildina.
Friðrik Sigurbergsson, sérfræðing-
ur á slysadeild, sagði í samtali við
Morgunblaðið að um fimm til sex
þeirra hefðu gengið harðast fram.
Átökin hefðu verið harkaleg og
ósvífin en einn þeirra tekið upp
borð í biðstofunni og reitt það upp
fyrir höfuð sér. Hann gerði sig síð-
an líklegan til að láta það ganga í
Vill læsa dyrum slysa-
deildarinnar að næturlagi
VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, hefur boðið Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands, í opinbera
heimsókn 18.–24. apríl. Er þetta í
fyrsta skipti sem forseta Íslands er
boðið í slíka heimsókn. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra verður í
fylgd með forsetanum auk embættis-
manna og forustumanna úr íslensku
mennta- og atvinnulífi.
Ólafur Ragnar fer fyrst til Moskvu
og á þar viðræður við Pútín, Mikhaíl
Kasjanov forsætisráðherra og Alexei
II patríarka, leiðtoga rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar. Í Moskvu mun
forseti, utanríkisráðherra og fylgdar-
lið taka þátt í mörgum viðburðum
sem skipulagðir hafa verið af íslensk-
um fyrirtækjum og rússneskum sam-
starfsaðilum þeirra.
Í St. Pétursborg mun Ólafur Ragn-
ar taka þátt í málþingi um lífskjör og
mannlíf á norðurslóðum ásamt vís-
indamönnum og héraðsstjórum í
norðanverðu Rússlandi, svo og at-
burðum tengdum viðskiptum ís-
lenskra og rússneskra fyrirtækja. Þá
opnar forsetinn sýningu um líf og list
Halldórs Laxness, á fæðingardegi
skáldsins 23. apríl, í háskóla borgar-
innar auk þess að flytja þar fyrirlest-
ur. Forseti Íslands mun einnig heim-
sækja borgina Salekhard í Síberíu og
kynna sér vandamál og viðfangsefni
tengd búsetu á norðursvæðum.
Heimsókninni lýkur í Novgorod,
þar sem Ólafur Ragnar skoðar minjar
frá tímum víkinga og flytur fyrirlest-
ur um sameiginlega arfleifð nor-
rænna manna og Rússa.
Fyrsta opinbera
heimsókn forseta
Íslands til Rússlands
INNLENT