Morgunblaðið - 09.04.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vonandi upplýsa skeleggir borgarstjórnarfulltrúar í leiðinni um samninga
og verktakagreiðslur til hreinsitæknis R-listans.
Bætt skilyrði til náms
Menntun án
aðgreiningar
NK. LAUGARDAG,13. apríl, gengstskólaþróunarsvið
Háskólans á Akureyri fyr-
ir ráðstefnu sem ber yfir-
skriftina „Bætt skilyrði til
náms“. Þar verður svokall-
að ETAI-verkefni kynnt,
en þar er á ferðinni fjöl-
þjóðlegt rannsóknar- og
þróunarverkefni. Í for-
svari er Trausti Þorsteins-
son forstöðumaður skóla-
þróunarsviðs kennara-
deildar HA.
Hvert verður helsta efni
ráðstefnunnar?
„Á ráðstefnunni „Bætt
skilyrði til náms“ verður
fjallað um menntun án að-
greiningar. Kynnt verður
rannsóknar- og þróunar-
verkefnið ETAI en það er
fjölþjóðlegt verkefni sem Íslend-
ingar höfðu forystu um. ETAI
stendur fyrir „Enhanching teach-
ers ability in inclusion“.“
Getur þú sagt okkur eitthvað
um framkvæmd, tilgang og
áherslur hinnar alþjóðlegu rann-
sóknar?
„Megintilgangur verkefnisins
var að læra af þeim skólum og
þeim kennurum sem náð hafa
góðum árangri á sviði heiltæks
skólastarfs. Árið 1996 hlutu kenn-
arar í Lundarskóla á Akureyri
gullverðlaun frá HELIOS 2, evr-
ópsku samstarfsáætluninni um
málefni fatlaðra, fyrir framúr-
skarandi starf á sviði menntunar
án aðgreiningar. Nokkrum ís-
lenskum sérfræðingum þótti mik-
ilvægt að afla þekkingar á þessu
starfi sem miðla mætti til annarra
skólamanna til starfsþróunar og
starfsmögnunar. Sóst var eftir
samstarfi við fleiri þjóðir sem
höfðu náð langt á þessu sviði.
Samverkamenn okkar í ETAI
voru sérfræðingar frá Austurríki,
Portúgal og Spáni.
Gögnum var safnað með vett-
vangsathugunum, skoðun skrif-
legra gagna í skólunum og viðtöl-
um. Löndin fjögur fylgdust að í
tíma og beittu sams konar aðferð-
um við gagnasöfnun. Hver þjóð
skrifaði samantektarskýrslu úr
sinni rannsókn. Samanburður og
túlkun þeirra skýrslna leiddi til
meginniðurstaðna rannsóknar-
innar. Fram komu níu þættir er
þóttu sérstaklega athyglisverðir.
Þeir vörðuðu undirbúning fyrir
skólagöngu, áætlanagerð, nám og
kennslu, samstarf og samhæf-
ingu, félagsleg tengsl, samstarf
heimila og skóla, mat og ígrund-
un, stoðþjónustu og starfsþróun.“
Kom eitthvað gagnlegt út úr
rannsókninni?
„Já, ég hygg að afrakstur rann-
sóknarinnar eigi eftir að reynast
skólafólki haldgóður. Hin síðari ár
hefur í æ ríkari mæli verið litið til
virkrar blöndunar (inclusion) sem
leiðar til að efla jafnrétti til náms.
Í upphafi tengdist þessi högun
fyrst og fremst hagsmunum hópa
með sérstaklega skilgreindar
þarfir. Tíminn virðist
þó vera að leiða í ljós að
þessi skipan kennslu er
tengd auknum árangri
nemenda almennt.
Niðurstöður rannsókn-
arinnar benda til þess að almennir
kennarar geta kennt öllum nem-
endum með árangursríkum hætti
fái þeir til þess stuðning. Þá sýna
niðurstöður að mikilvægt er að
undirbúa skólagöngu fatlaðs nem-
anda tímanlega og af kostgæfni.
Einnig leiðir rannsóknin í ljós það
lykilatriði að starfsfólk skóla líti á
það sem sameiginlegt viðfangs-
efni sitt að mæta þörfum allra
nemenda í almennu skólastarfi.“
Eru skilyrði til náms hér á landi
í bærilegum farvegi?
„Um langan tíma hefur áhersla
laga um grunnskóla verið sú að í
öllu námi skólans skuli komið í
veg fyrir mismunun sökum fötl-
unar. Fáum skólum hefur tekist
að framkvæma hina opinberu
stefnu um menntun án aðgrein-
ingar þannig að komið sé til móts
við fjölbreyttar þarfir nemenda-
hópsins á heildstæðan hátt. Þróun
þessi hefur mátt glíma við ýmsan
viðhorfsvanda og um langt skeið
hafa skólar talið það vanda nem-
andans að mæta kröfum skólans
fremur en skólans að mæta kröf-
um nemandans og því e.t.v. miðað
hægar en ella til umbóta.“
Eru í rannsókninni atriði sem
blátt áfram nauðsynlegt er að inn-
leiða hér á landi?
„Niðurstöðurnar lúta fyrst og
fremst að nýjum og breyttum
áherslum þar sem einstaklingur-
inn er í fyrirrúmi. Viðfangsefnið
að mæta fjölbreyttum þörfum
nemenda snýst um viðhorf, vinnu-
brögð og skipulag í starfi skól-
anna. Það er einmitt þetta skuld-
bundna viðhorf sem mest er um
vert að festa í sessi í skólasam-
félaginu. Ef viðhorfin eru í lagi, þá
reynist eftirleikurinn svo miklu
auðveldari.“
Hvernig verða niðurstöðurnar
nýttar hér á landi?
„Einn megintilgangur ETAI
verkefnisins var að setja saman
hagnýtt starfsþróunar-
efni fyrir skóla og
kennara sem byggt
væri á þekkingu sem fá
mætti af framúrskar-
andi blöndunarstarfi í
skólum. Þetta efni kemur út hjá
Rannsóknarstofnun Kennarahá-
skóla Íslands 13. apríl og verður
til kynningar sama dag á ráð-
stefnunni. Ég er þess fullviss að
skólar muni geta sótt þangað leið-
sögn og stuðning við endurmennt-
un kennara og þróun starfshátta
enda er það byggt á raunhæfu
starfi í skólum sem hlotið hefur
viðurkenningu og athygli.“
Trausti Þorsteinsson
Trausti Þorsteinsson er fædd-
ur á Selfossi 1949. Kennari frá
KÍ 1970, BA í sérkennslu frá KHÍ
1993 og M.Ed. frá KHÍ 2001.
Kenndi v/grunnskóla á Norður-
landi 1970–1977, skólastjóri á
Dalvík 1977–1989, fræðslustjóri í
Norðurlandi eystra 1989-1996 og
framkvæmdastjóri RHA 1997–
2001. Er nú forstöðumaður
skólaþróunarsviðs kennara-
deildar Háskólans á Akureyri.
Maki er Anna Bára Hjaltadóttir,
forstöðumaður bæjarbókasafns
Dalvíkur.
Viðhorf í lagi
auðvelda
eftirleikinn