Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 53
Bankastræti 14, sími 552 1555
Fallegur danskur
gallafatnaður frá Micha
Gott verð
þakkar íslensku þjóðinni fyrir hlýjar móttökur sem hún hlaut
á ferð sinni til Íslands fyrr í þessum mánuði. Við viljum þakka öllum þeim
einstaklingum og fyrirtækjum sem komu og sýndu málstað okkar áhuga.
Þrátt fyrir ýmsar uppákomur sem áttu sér stað meðan á dvöl okkar stóð
erum við þakklát fyrir að hafa komið skilaboðum okkar áfram:
„Ferðaþjónustan boðar frið og skilning“.
Ferðamálaskrifstofa
ríkisstjórnar Ísraels
RÝMINGARSALA
Laugavegi 101, sími 552 8222.
Opið mánudag-laugardags frá kl. 11-18
á ANTIK
Verslunin flytur
Allt að
50% afsláttur
UM helgina voru 11
ökumenn grunaðir um
ölvun við akstur og 34
um of hraðan akstur.
Þá var tilkynnt til lögreglu um 31
umferðaróhapp með eignatjóni.
Síðdegis á föstudag varð fjögurra
bíla árekstur á Bústaðavegi gegnt
Veðurstofu Íslands. Tveir farþegar
kvörtuðu yfir eymslum í hálsi og
ætluðu að fara á slysadeild. Flytja
þurfti þrjár bifreiðar á brott með
kranabifreið. Þá var bifreið ekið á
vegg á framhlið verslunar í Skeif-
unni. Bifreiðin skemmdi vegginn og
búðarrekka þar fyrir innan. Um
kvöldmatarleytið var tilkynnt um
bílveltu á gatnamótum Njarðargötu
og Vatnsmýrarvegs. Ökumaður
missti vald á bifreið sinni sem hafn-
aði utan vegar og lenti á girðingu
við flugvöllinn. Þá varð þriggja bíla
árekstur á gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar.
Meiðsli voru lítil en miklar
skemmdir á bifreiðum.
Verðmæti á glámbekk
Síðdegis á föstudag var tilkynnt
um þjófnað í fyrirtæki við Suður-
landsbraut. Þar höfðu tveir starfs-
menn orðið fyrir því að peninga-
veskjum þeirra var stolið frá þeim.
Veskin voru í starfsaðstöðu starfs-
mannanna. Í báðum veskjunum
voru greiðslukort, auk skilríkja og
peninga. Svona þjófnaðir eru frem-
ur algengir og þurfa starfsmenn að
geyma verðmæti sín á öruggum
stöðum en ekki á glámbekk. Þá var
tilkynnt um innbrot í hús í Selja-
hverfi. Hurð var spennt upp. Verð-
mætum tækjum var stolið, mynda-
vélum og tölvubúnaði.
Fátt fólk var í miðborginni að-
faranótt laugardags og ástand
þokkalegt. Einn var handtekinn
vegna líkamsmeiðinga, annar vegna
ölvunar og tveir vegna óspekta.
Fyrir hádegi á laugardag var til-
kynnt um innbrot og þjófnað í Mos-
fellsbæ. Þar hafði verið stolið tals-
verðu af peningum. Málið er
upplýst.
Síðdegis á laugardag var tilkynnt
um innbrot í íbúðarhús í Vestur-
bænum. Þar hafði verið farið inn
um glugga á herbergi og stolið
hljómtækjum, myndbandsupptöku-
vél og fleiru. Ákveðinn maður er
grunaður í málinu. Mikill erill var
vegna ölvaðs fólks um þetta leyti og
hafði lögreglan á tímabili ekki und-
an að sinna slíkum málum.
Á laugardagskvöld var tilkynnt
um innbrot í kjallaraherbergi í
Hlíðunum. Þar var stolið ýmsum
tölvubúnaði og er talið líklegt að
farið hafi verið inn um glugga á
þvottahúsi.
Fremur fátt var í miðborginni að-
faranótt sunnudags. Ölvun var rétt
í meðallagi og ástandið þokkalegt.
Enginn var handtekinn, en tals-
verður erill. Einn var fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið og
annar með lögreglubifreið.
Handtekinn þegar
hann kom aftur
Aðfaranótt sunnudags var óskað
eftir skjótri aðstoð lögreglu á Lind-
arbraut vegna tveggja manna sem
slógust úti á götunni. Annar reynd-
ist farinn af staðnum á bifreið.
Hann kom aftur og var þá handtek-
inn grunaður um ölvun við akstur.
Um nóttina og fram á dag var
mikill erill hjá lögreglu vegna
drukkins fólks, slagsmála og há-
vaða.
Um morguninn var tilkynnt um
innbrot í bifreið. Hafði hliðarrúða
verið brotin með steini og dýrri
myndbandsupptökuvél stolið. Þegar
dýr tæki eru skilin eftir í bifreiðum
er verið að bjóða þjófunum tækin.
Síðdegis á sunnudag var tilkynnt
um innbrot í verkfæraskúr, báta-
skýli og sumarbústað við Meðal-
fellsvatn. Stolið var verkfærum,
áfengi og tveimur utanborðsmótor-
um.
Úr dagbók lögreglunnar 5.–8. apríl
Slagsmál og hávaði frá ölvuðu fólki
Fyrirlestur
um skipalíkön
í kirkjum
HALLDÓR Baldursson dr.med.
heldur fyrirlestur í Sjóminjasafni
Íslands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði,
fimmtudaginn 11. apríl kl. 20.30.
Fyrirlesturinn fjallar um skipalíkön
í kirkjum og er hann í boði Rann-
sóknarseturs í sjávarútvegssögu og
Sjóminjasafns Íslands. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Í fyrirlestrinum fjallar Halldór
um skipalíkön í íslenskum kirkjum
fyrr á öldum. Sérstaklega verður
rætt um skipslíkan sem var í
Bessastaðakirkju árið 1789, upp-
runa þess og afdrif, segir í frétta-
tilkynningu.
GRÆNMETIS- og ávaxtadagur
verður í félagsheimilinu Gullsmára,
Gullsmára 13, Kópavogi, miðviku-
daginn 10. apríl kl. 14.
Guðrún Lóa Jónsdóttir syngur
einsöng, undirleikari Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir. Anna Sigríður
Ólafsdóttir matvæla- og næring-
arfræðingur flytur erindi um fæðu-
val.
Fólk á öllum aldri er velkomið.
Boðið verður upp á hlaðborð, þar
sem uppistaðan er grænmeti og
ávextir og kostar það 600 kr., segir
í fréttatilkynningu.
Grænmetis-
og ávaxtadagur
í Gullsmára