Vísir - 12.07.1980, Blaðsíða 20
VtSIR
Laugardagur 12. júli 1980.
hœ kiakkar!
Vid fórum á
minkaveidar
Þröstur Rúnar
Jóhannsson, 8 ára, sat
uppi á röri og horföi á
heiminn.
— Mér finnst gaman að
horfa í kringum mig,
sagði Þröstur Rúnar, það
er tii dæmis gaman að
horfa á hestana, sem eru
þarna og gróðurinn. Þeg-
ar bjart er yfir, sjást líka
fjöllin i suðri.
Þröstur Rúnar er ný-
lega kominn úr sveitinni.
Hann var í sveit á Syðstu-
Fossum i Borgarfirði og
þetta segir hann Þröstur
um dvölina þar: Það var
gaman að vera á Syðstu-
Fossum. Ég hafði aldrei
komið þar áður, en var
þar í þrjár vikur. Fyrst
ætlaði ég bara að vera í
tvær vikur. Þarna voru 6
krakkar, held ég, fyrir
utan heimí lisfólkið. Ég
hjálpaði til við að reka
beljurnar og moka f jósið.
Mér fannst mest gaman
að fara á hestbak. Einu
sinni vorum við að fara
að girða og þá sáum við
mink og fórum á minka-
veiðar. Við náðum i einn
mink, en næsta dag var
hann dáinn.
Kannske fer ég aftur
næsta sumar upp í sveit á
sama stað. Það er svo
gaman í sveitinni.
Þröstur Rúnar Jóhannsson, 8 ára.
(Mynd: Anna)
Nýja húsið
hans Gísla
Gísla þótti gaman að
vera f luttur í nýtt hús. Nú
hafði hann stærra og
fallegra herbergi heldur
en hann hafði haft í
gamla húsinu. Nú hafði
hann lóð til að leika sér á
og þaðvar nýr bílskúr hjá
húsinu. Honum Ifkaði líka
vel við nágrannana. En
þó að þeir væru margir,
þá var enginn þeirra á
líkum aldri og Gísli — og
það fannst honum leiðin-
legt.
Dag nokkurn kom
skurðgrafa upp hæðina
og stansaði hinum megin
við götuna, þar sem var
óbyggt svæði. Grafan
byrjaði að grafa holu.
Gísli fylgdist með gröf-
unni. Hann tók ekki eftir
því, að það kom bíll upp
hæðina og hann tók held-
ur ekki eftir þvi að ein-
hver kom út úr bílnum og
kom til hans.
Hann tók fyrst eftir
því, þegar hann heyrði að
einhver sagði: „Sjáðu
stóru gröfuna, hún er að
grafa grunn fyrir húsið
okkar".
Gisli leit við og sá lítinn
dreng á aldur við Gísla
sjálfan.
— „Það er fínt", sagði
Gísli, „húsið þitt verður
þá á móti mínu húsi — og
við getum leikið okkur
saman á hverjum degi".
„Já, það getum við",
sagði litli drengurinn.
Vinirnir tveir stóðu hlið
við hlið og horfðu á gröf-
una og voru báðir að
hugsa um það, að það
væri bara reglulega
skemmtilegt að f lytja í ný
hús.
Þið sjáið að á myndinni eru grís, hundur og gíraf f i, en
i þeim og i kringum þá eru faldar tölur. Þetta eru 15
tölur- og þegar þið hafið fundið allar tölurnar leggið
þær þá saman—og hvaða summu fáiðþið?
(Svar Á bk 27)
Hvaða drengur finnur kofann i skóginum?
(Svar á bls. 22)