Vísir - 02.09.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 02.09.1980, Blaðsíða 4
Þriðjudagur 2. scptember 1980. Blaðburðarfólk óskast Þórsgata Baldursgata Freyjug<ata Sjafnargata Múlar Ármúli Síðumúli Suðurlandsbraut £~7 Lindargata Klapparstígur Skúlagata Rauðárholt I Háteigsvegur Meðalholt Laugavegur Bankastræti Nauðungaruppboð sem auglýst var I 37., 39. og 41. tbl. LögbirtingablaOs 1980 á flugvél TF. OAA-DC-6, þingl. eign Iscargo h.f. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 4. september 1980 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið i Reykjavik Nauðungaruppboð sem auglýst var i 37., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta i Hjarðarhaga 56, þingl. eign Páls Jónssonar fer fram eftir kröfu Tryggingast. rikisins á eigninni sjálfri fimmtudag 4. september 1980 kl. 15.45. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik Nauðungaruppboð sem auglýst var i 37., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta i Fornhaga 20, talinni eign Mikaels Ragnarssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eign- inni sjálfri fimmtudag 4. september 1980 kl. 16.00 Borgarfógetaembættiö i Reykjavik Nauðungaruppboð sem auglýst var i 37., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hlusta i Meistaravöilum 15, þingi. eign Guðjóns Andrés- sonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 4. september 1980 kl. 15.15. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik Nauðungaruppboð sem auglýst var 137., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta i Drápuhlið 31, þingl. eign Gunnlaugs Mikaelssonar o.fL, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudag 4. september 1980 kl. 13.30. Borgarfógetaembættiö I Reykjavik Nauðungaruppboð sem auglýst var I 37., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaös 1980 á hluta I Hrisateig 3, þingl. eign Jensinu Arnadóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni sjálfri fimmtudag 4. september 1980 kl. 11.30. Borgarfógetaembættiö i Revkjavik Nauðungaruppboð sem auglýst var 137., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á hluta i Njálsgötu 22, þingl. eign Kristmundar Sörlasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eign- inni sjálfri fimmtudag 4. september 1980 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Sætún, Kjalarneshreppi, þingl. eign Stefáns Guðbjartssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 5.9. 1980 kl. 16.30. Sýslumaöurinn I Kjósarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var I 34., 36. og 40. tölublaöi Lögbirtingablaös- ins 1980 á eigninni Reykjabyggð 6 Mosfellshreppi, þingl. eign Helgu Högnadóttur, fer fram eftir kröfu ólafs Axels- sonar, hdl., og Einars Viöar hrl., á eigninni sjálfri föstu- daginn 5. sept. 1980 kl. 14.30. Sýsiumaöurinn í Kjósarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var 134., 36. og 40. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1980 á eigninni Arnartangi 9, Mosfellshreppi þingl. eign Sveins Gislasonar fer fram eftir kröfu Innheimtu rikis- sjóös, og Landsbanka lslands á eigninni sjálfri föstudag- inn 5. sept. 1980 kl. 14.00. Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu ,t * •* * * 4 \ 1 * » 'f- # «♦ I • » 4 /» *# . 4 Stlórnarskrár- máiið I Kanada Pierre Trudeau finnur að sér þrengt úr flestum i skrármálinu, en kappkostar að hraða þvi. Enn einu sinni býr Kanada sig undir uppgjör milli fylkisstjórna og landstjórnar um, hvernig þær skuli deila meö sér pólitiskum völdum. Pierre Trudeau, forsætisráð- herra Kanada, mun hitta aö máli forsætisráðherra fylkjanna tiu þann 8. september, en sá fundur mun standa vikutima. Ræða þeir, hvernig breyta megi aldargam- alli stjórnarskrá Kanada til nú- timalegri hátta, en hún er sú sama og Kanadamenn fengu á heimsveldistima Stóra-Bret- lands. viija stjórnarskrána helm frá Bretlandi Undir venjulegum kringum- stæöum hefði svoleiöis grúsk i skjölum hinnar bresku Norður- Ameriku frá þvi 1867 fremur komiö mönnum til að geispa en til að sperra eyrun. En átökin milli þessara tveggja stjórnunarsviöa Kanada um náttúruauðlindir, verslun og önnur þjóðfélagsmál hafa borist inn á þennan vett- vang. Inn i það blandast einnig þjóðarmetnaður, og sýnist full- vist, að stjórn Trudeaus muni stiga þau skrefin þetta árið eða næsta, sem binda muni enda á aö Bretland veröi geymslustaöur þessa skjals, sem knúði Kanada á sinum tima til stofnunar sam- bandslýðveldis. Flutningur á stjórnarskránni frá Bretlandi heim til Kanada hefur orðið Trudeau mikið hjartans mál, siöan sjálfstæöishugs jón Quebekkinga beið ósigur i þjóðar- atkvæöi i mai siðasta vor. — Hann sagði i siöasta mánuði, aö það væri þjóðarskömm, aö Kanada ,,væri eina sjálfstæða landiö i heiminum, sem ekki hefði eigin stjórnarskrá”. Hans hægri hönd i stjórnarskrán.málinu, Jean Chretien, dómsmáláráöherra, hefur skoraö á breska þingið að afgreiöa hið fyrsta nauðsynlegar lagabreytingar til þess aö flytja megi stjórnarskrána vestur um haf. Sagði Chretien, að um þetta leyti næsta ár „höfum viö farið okkar siðustu ferð til London” til þess að sækja stjórnarskrána þá væntanlega. óttast yfirgang otlawa En það bregður svo við, aö hugmyndin hefur fremur orðið tilefni gremju i höfuöborgum fylkjanna tiu en hrifningar. Menn kviöa þvi, aö Trudeau muni beita sér fyrir stjórnlagabreytingum, eins og sambandstjórnin hefur raunar á stefnuskrá sinni, og það án þess aö taka tillit til kröfu- gerða fylkjanna. Þvi þykir mikið undir fundinum 8. september komið. Hefur Trudeau lýst hinum væntanlegu viðræðum sem „mjög knýjandi” og varað viö þvi, að lýöveldinu gæti verið stofnaö i mikla hættu, ef þær beriekki árangur. — Chretien dómsmálaráöherra segir, að fundurinn sé siöasti möguleikinn til einhvers umtals- verös árangurs I þessari umræðu. Boðar hann, að Ottawa-stjórnin muni strax biöja Bretland að breyta stjórnarskránni, ef sam- komulag næst á fundinum um þau tólf stjórnlagaatriði, sem mest þykir velta á. Fylkisstjórnirnar túlkuðu ummæli dómsmálaráðherrans sem merki um, aö Ottawastjórn- in ætlaði sinu fram, hvað sem tautaö væri og raulað meðal fylkisstjórnanna. Undirbúnings- viðræður i siðustu viku fyrir sjálfan fundinn 8. september fóru þvi fram i tortryggni. Vilja engan asa Forsætisráðherrar fylkjanna tiu eru ekki sama sinnis og Trudeau um að flýta beri þess- um breytingum og eru algerlega andvigir einhliða ákvörðunum sambandsstjórnarinnar. Richard Hatfield, forsætisráðherra Nýju Brunswick sagði slikar aðfarir mundu þýða „endalok þess Kan- ada, sem ég vildi hafa”. Allan Blakeney forsætisráðherra Saskatchewan sagði, að sérhverjar aðgerðir i Ottawa, sem ekki væru studdar sam- komulagi við fylkisstjórnirnar, væru brot á öllum venjum i stjórnun Kanada. Fylkisstjórnirnar vilja að full- komið samkomulag um öll tólf stjórnlagaatriðin veröi fengiö, áður en nokkuð veröi aðhafst til þessaðfá stjórnarskrána héim. A þessari öld hafa verið haldnar þrettán ráöstefnur i þessu augn- miði, en aldrei náðst einróma samkomulag, og þykir þvi ekki mikil von til þess að slikt náist á einum fundi eins og 8. september. Mikið DrætubóKarefni Kanadamenn eru raunar i sinu sinni vissir um, að það sé borin von. Frekar ætla þeir, að gamall ágreiningur milli Ottawa og fylkjanna um skattumboð, nátt- úrlegar auðlindir og yfirstjórn verslunar o.fl. verði jafnvel enn djúpstæðari eftir fundinn. Hvert málefni um sig er hið besta fallið til þess að verða mikil þrætubók, og þvi hugsanlegt, aö stjórnar- skrármálið geti orðið einingu fylkjanna i sambandslýöveldinu hættulegra en jafnvel aðskiln aðarhreyfingin i Quebec þótti vera. Sem dæmi um, hve alvarlegur ágreiningurinn getur verið milli Ottawastjórnarinnar og ein- stakra fylkisstjórna mætti nefna deilur hennar við oliufylkið Alberta um oliuverðið. Þrefað er um, hversu ört skuli hækka þessa meginframleiöslu Alberta, en með tilskipunum frá Ottawa er veröi á kanadiskri oliu stillt i svo mikið hóf, að það er aöeins hálft heimsmarkaðsverð- Alberta- stjórnin vill örari hækkanir og i óþolinmæði sinni hækkaði hún einhliða ákvörðun oliuna i siðasta mánuði um tvo dollara tunnuna. Úr þeirri deilu hefur ekki enn verið leyst. Misskipt áhrlfum f landsstjórn Undir niðri ólgar svo óánægian með hlutdeild hvers fylkis i völd um landsins. Þau sem meira þykja leggja til þjóðarbúsins vegna auölinda sinna, eins Al- berta, Saskatchewan og Breska Kólombia þykjast lengi hafa verið afskipt i þeim efnum, og aö hlutur þeirra i rikisstjórn Kanada sé i öfugu hlutfalli við framlag þeirra. I Ottawa ber meir hins- vegar á áhrifum fólksflestu og stærstu fylkjanna, Ontario og Quebec. Þessi óánægja braust fram eftir þingkosningarnar i febrúar siðasta vetur, þegar frjálslyndi flokkur Trudeaus komst aftur til valda með miklu fylgi i Quebec og Ontario, en án eins einasta þingmanns i vesturhluta Kanada.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.