Vísir - 06.09.1980, Blaðsíða 4
Laugardagur 6. september 1980.
I* :( *
HVAÐ ER SECURITAS SF.? HVAÐ ER SECURITAS SF.? HVAÐ ER SE
Höfuöborgarsvæðið með
stórborgarbrag:
99Nútíminn
kallar á vel
þjálfaða
öryggisverði
•99
ÞaO fer vist ekki á milli mála
aö Reykjavik stækkar ört og
ýmis einkenni margbreytilegs
' mannlifs f stórborgum skjóta
upp kollinum i vaxandi mæii.
Þannig rákumst viö á aug-
: lýsingu í einu dagblaöanna nú
nýveriö svoh1jóöandi :
„ÖRYGGISVÖRÐUR —
Sccuritas sf. vill ráöa i störf
öryggisvaröa. Hér er um hvort
tveggja full og hlutastörf að
ræöa. Unnið er á vöktum. Um-
sóknareyðublöö liggja frammí á
skrifstofu fyrirtækisins aö
Laugarvegi 116".
Forvitnin var vakin og i
huganum brá fyrir myndum af
rykfrakkaklæddum haröjöxl-
um, svipuöum þeiin og hér voru
á sveimi er Nixon gamli sótti
okkur heim. Þaö fór heldur ekki
hjá þvi, aö grunscmdir vöknuöu
um aö hér væri á fcröinni ævin-
týramennska i einhverri
mynd.Þvi var ákveöiö aö fara
á stúfana og kanna fyrirbrigðiö.
Hvaö er Securitas?
Viö lögöum leið okkar á skrif-
stofur fyrirtækisins þar sem víö
hittum fyrir Jóhann Guömunds-
Jóhann Guömundsson framkvæmdastjóri Securitas sf. á fundi meö nokkrum öryggisvöröum fyrirtækis-
ins.
son, framk væmdastjóra
Securitas sf og leiddi hann okk-
ur i allan sannleika um starf-
semi fyrirtækisins. í stuttu máli
má útskýra starfsemi þess á
eftirfarandi hátt:
Securitas sf. er verktaka-
fyrirtæki á sviöi mannaörar
öryggisgæslu, meöai annars
gagnvart eld-, ínnbrota- og
skemmdarverkahættu. Fyrir-
tækiö nýtur stuönings Eld-
varnareftirlits Reykjavikur,
lögrcgluyfirvalda I Reykjavfk
og Kópavogi, tryggingarfélaga
og dómsmálaráöuneytis, enda
rekiö samkvæmt kröfum þess-
ara aðila um öryggisgæslu sem
þcssa.
Securitas býður upp á tvenns
konar gæslu, — farandgæslu
annars vegar og staöbundna
gæslu hins vegar. Farandgæsl-
an byggist á þvi aö sami
öryggisvöröur hefur meö hönd-
um gæslu á fleiri stööum en ein-
um. Staöbundna gæslan fer
þannig fram, aö sami maður
hefur einungis með eina bygg-
ingu aö gera.
Einkennisklæddir
öryggisveröir
Til þessara starfa eru notaöir
sérþjálfaöir einkennisklæddir
öryggisverðir. Þeir vinna eftir
ýmsum kerfum, þannig aö
verkkauþandi getur ávallt séö
af úrvinnslu gagna hvernig
staöiö hefur veriö aö gæslu
hverja vakt fyrir sig.
1 kynningarbréfi frá fyrirtæk-
inu getur meöal annars aö lita
eftirfarandi klausu:
„Þaö er veröugt um-
hugsunarefni fyrir hiö opinbera
sem og einkafyrirtæki, hvort til
er einhver siöferöiieg réttlæting
á aö nota lasburöa fólk eöa
gamaimenni i þessi störf, ein-
ungis vegna þess hve ódýr sá
vinnukraftur er. Þessir menn
cru sjaldnast færir um að bcra
hcndur yfir höfuö sér þó á þyrfti
aö halda. Þeir eru hcföbundnir
vaktmenn sem heyra fortíöinni
til, cnda enga þjálfun fengiö
hvorki í sjálfsvörn eöa öðrum
viöbrögöum sem nauösynleg
cru gagnvart starfinu. Nútim-
inn kallar á vel þjálfaöa
öryggisveröi og markvissar
varnir gagnvart afbrotamönn-
um."
,/Reynslan er góð"
Securitas hefur nú starfað i
rúmt ár og viröist starfsemin
ætla aö géfa góöa raun. Eitt
af-þeim svpeöum sem Öryggis-
veröir fyrirtækisins hafa haft til
umsjónar er iðnaðar- og
verslunarsvæöi i Kópavogi. Þar
var áður mikiö um innbrot og
skemmdarverk en siöan
öryggisverðir frá Securitas tóku
við gæslu þar hefur svæöiö veriö
svo til friðaö.
Yfirlögregluþjónn i Kópavogi
staðfesti þetta i samtali viö
Helgarbiaöiö og um starfsemi
öryggisvaröanna sagöi hann
m.a.:
„Það er ekki hægt að segja
annaö en aö þessi starfsemi hef-
ur reynst mjög vel hérna og
gæsla sem þessi veitir gott aö-
hald þannig að starfsemi sem
þessi á fyllilega rétt á sér”.
Aö fengnum þessum upp-
lýsingum og eftir aö hafa
kannaö starfsemi fyrirtækisins
varð okkur ljóst, að allar vanga-
veltur uin ævintýramennsku
voru óþarfar. —Sv.G.
t farandgæslunni er notast vlö bifreiöir merktar fyrirtækínu.
,,Gömul hús-
rád duga
ekki lengur”
— segir Jóhann Guðmundsson
framkvæmdastjóri Securitas sf.
„Hugmyndin aö stofnun fyrir-
tækisins varö aö sjálfsögöu til út
frá þeirri augljósu þörf sem er
fyrir rekstur sem þennan”, —
sagöi Jóhann Guömundsson,
framkvæmdastjóri Securitas sf.
en hann setti fyrirtækið á stofn
fyrir rúmu ári siöan.
„Þaö er augljóst, aö þaö sama
er aö gerast hérna og I nágranna-
löndum okkar, aö samhliöa
stækkandi þéttbýliskjörnum
fjölgar afbrotum og þau veröa
grófari og betur skipulögö. Þaö er
auöveldara aö leynast I umhverfi
sem veröur stööugt ópersónu-
legra. Þaö þarf ekki annaö en aö
fylgjast meö fréttum fjölmiðla
um innbrot, skemmdarverk og
þaöan af verri glæpi til aö sjá aö
þörfin er fyrir hendi hér á landi”,
— sagöi Jóhann ennfremur er viö
spuröum hann um hvernig hug-
myndin aö svona gæslu yröi til.
„Ég fdr af stað meö þetta I maf
I fyrra en þá var búiö aö vinna aö
undirbúningi í sex til átta mánuði.
Viðkynntum okkur ítarlega fyrir-
komulag og framkvæmd svona
starfsemi erlendis og vorum
meðal annars i sambandi við
Burns International i Bandarikj-
unum sem hefur um 36 þúsund
öryggisverði á sinum snærum og
er eitt háþróaöasta fyrirtæki
sinnar tegundar I heiminum”.
„íupphafi leitaðiég eftir stuön-
ingi yfirvalda og fékk góðar við-
tökur. En þeirgátu aö sjálfsögðu
ekki skrifað upp á okkar starf-
semi fyrr en viö vorum búnir aö
sanna að þarna væri full alvara á
ferðum. Ég held að óhætt sé að
fullyröa aö okkur hefur tekist vel
upp og að við njótum nú stuðnings
Eldvarnareftirlits, lögregluyfir-
valda og dómsmálaráöuneytis-
ins. Við höfum nú leitað eftir
samstarfi viðSecuritas á Norður-
löndum og að fenginni reynslu af
okkur og fenginni umsögn lög-
reglunnar I Reykjavik og Kópa-
vogi skrifaði dómsmálaráöu-
neytiö bréf til stuðnings þessari
samstarfsbeiöni okkar.
Okkur stendur einnig til boða að
gerast aöilar að alþjóðasamtök-
um Securitas og ég reikna fast-
lega meö að við göngum i þessi
samtök innan skamms. Það er
skilyröi til að fá aðgang að upp-
lýsingum um starfsaðferðir sem
hafa gefið góða raun vlða um lönd
undanfarna áratugi og við höfum
að sjálfsögöu áhuga á aö kynnast
hinum fullkomnustu aðferðum
sem best”.
„Nauðsynlegt að setja
lög um svona rekstur”
„Það er afar mikið atriði að
starfsemi sem þessi hvili á
traustum grunni og augljóst mál,
að á svona viökvæmu sviöi er ekki
hægtaðstarfa nema I samráði við
yfirvöld. Það er þvi ljóst, að
nauðsynlegt er að setja lög og
reglugeröir um svona rekstur
þannig aö á þetta sviö sæki ekki
alls konar ævintýramenn.
Þetta segi ég meðal annars
vegna þess, að nú aö undanförnu
hafa verið aö spretta upp ýmis
fyrirtæki af þessari gerð og mér
finnst rétt að undirstrika nauðsyn
þess, að menn fari varlega i við-
skiptum við slika aðila þar sem
allt virðist benda til að hér séu
hreinir ævintýramenn á ferö. Mér
finnst því nauösynlegt, að for-
ráöamenn fyrirtækja kynni sér
vandlega hjá yfirvöldum hverjir
njóta stuðnings þeirra, áður en
þeir ráða menn til gæslustarfa”.
„Starfsemin er fyrir-
byggjandi”
„Starfsemi okkar er fyrir-
byggjandi og miðar að þvl, aö
koma i veg fyrir skaöann áður en
hann er oröinn staöreynd. Er-
lendis þykir þessi starfsemi nauð-
synleg og viö .stofnun fyrirtækja
er gert ráö fyrir þessum lið rétt
eins og ræstingu.
Hér á landi hefur mannfæðin og
Jóhann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Securitas sf. á skrifstofu
fyrirtækisins. (Visismynd: Sv.G.).
glópalániö hins vegar gert menn
sinnulausa gagnvart þeim hætt-
um sem fyrir hendi eru og menn
ranka ekki við sér fyrr en röðin
kemur að þeim.
1 þessu sambandi má geta þess,
aö dagblöð og aörir fjölmiðlar
sem I fréttum sinum fjalla um
innbrot, eldsvoða og skemmdar-
verk gera oftast of litiö úr tjóninu
sem af þessu hlýst. Meö gleggri
upplýsingum af þeim skaða sem
oft hlýst af þessu myndu menn
áreiðanlega ranka betur við sér
oghugsa sig um tvisvaráður þeir
láta þaö viðgangast að eigur
þeirra liggja svo til óvarðar fyrir
hverjum sem er. Ég gæti nefnt
ótaldæmi um þetta allt I kringum
okkur. En eins og ég sagöi, bygg-
ist okkar starf fyrst og fremst á
þvi aö koma i veg fyrir að svona
hlutir gerist”.
„Svona starfsemi hefur
þjóðfélagslegt gildi”
Við spyrjum Jóhann að lokum,
hvers vegna orðið Securitas sé
notað á fyrirtækið en ekki fundið
orð Ur ástkæra ylhýra móðurmál-
inu:
„Þetta orð securitas er latneskt
orö sem orðið er alþjóðlegt yfir
þessa starfsemi. Orðiðerekki til i
beinni þýöingu I skandinaviskum
málum og er þvi notað þar
óbreytt. Það hefur fengið á sig
ákveðinn gæðastimpil, þannig aö
bara hugtakið „securitas” þýöir
orðið ákveðið fyrirbrigöi I hugum
fólks.
Orðið securitas fær enginn að
nota nema að hafa sannaö aö
hann er fær um að starfa eftir
þeim starfsaöferðum og að þeim
starfsmarkmiðum sem önnur
fyrirtæki I heiminum með þessu
nafni starfa að. Þetta þýöir ekki
aö Securitas sf. sé háð einhverj-
um aöilum úti i heimi. Viö störf-
um algjörlega sjálfstætt en þó i
ákveönum tengslum við yfirvöld
hér og samsvarandi fyrirtæki er-
lendis sem hafa reynslu.
Ég held að öllum sé að veröa
ljóst að svona starfsemi hefur
samfélagslegt gildi. Okkar þjóð-
félag er að verða þannig að það
þýöir ekkert lengur að taka á
málum með gömlum húsráðum.
Hér þarf sérhæfðar starfsaöferðir
og starfsfólk til að takast á við
þetta ört vaxandi þjöðfélags-
vandamál sem skemmdarverk og
innbrot eru”, — sagði Jóhann að
lokum. —Sv.G.