Vísir - 06.09.1980, Qupperneq 12

Vísir - 06.09.1980, Qupperneq 12
Laugardagur 6. september 1980. t'i >" •' Any Trouble litu þó ekki hetjulega út þegar þeir þrömmuðu upp á sviðið um kvöldiö. Clive þótti litt fararbroddslegur og vinkonu blaðamannsins fannst hann lita út eins og landafræðikennari. Aðrir höfðu á oröi að hann gæti veriö frændi Elvis Costello. „Að hlýða á lög Any Trouble er eins og að afla vina meðal ókunnugra,” sagði blaöamaðurinn. „Þú hittir þau einu sinni og vilt ólmur fá þau með þér heim.” Flytja ABBA-lag Sérstaka athygli vakti útsetn- ing þeirra á einu lagi Abba „The Name Of The Game” og þvi eðli- legt að I viðtalinu viö Clive sé minnst á lagið. „Þaö er frábært lag,” segir Clive. „En margir hafa komiö til okkar eftir að við höfum flutt það og sagt: „Til hvers eruð þið að spila þetta?” — og ég svara hreint út: „Það er frábært lag og snautaðu svo.” Fólk verður bara hneykslað af þvl að það er Abba. En hvað er at- hugavert við það? Mér finnst siöasta plata Nolan-systra ágæt. Gott lag er gott lag.” Clive segir frá þvi hvernig hljómsveitin varö til i Stoke fyrir fjórum árum, þar sem þeir voru allir við nám. Fyrst I stað hefði hann sjálfur leikið á bassa og hljómsveitin hefði haft kvæntan söngvara og fjögurra barna föður. Þegar hann fór tók Clive við hljóðnemanum, en hann hafði lit- illega fengist við söng, einkum i þjóölagakrám á æskudögum I Manchester þar sem hún lék vlös vegar og haföi fjölbreytt lög á efnisskránni, einkum eftir aöra, svo sem Dylan, Who, Graham Parker, Elvis Costello og Dire Straits. „Einfaldasta leiðin að okkar áliti til þess að fá áheyr- endur til að leiðast er að leika glás af leiðinlegum frumsömdum lögum og margar hljómsveitir leika einungis lög af þeirri einu ástæðu aö þau eru frumsamin búrtséö frá þvl hvort þau eru boðleg eða ekki,” segir Clive. Taliö berst aö öðrum hljóm- sveitum og Clive segir aö hann hafi ávallt hrifist af hljómsveit- um sjötta áratugsins, Bitlunum, Who, „gömlu” Kinks og mörgum breskum R&B hljómsveitum. Þá nefnir hann Dylan af öðrum bandariskum tónlistarmönnum, Little Feat. Ennfremur segist hann hafa heillast mjög af breskri þjóðlagatónlist, sérstaklega Richard Thompson og Fairport Convention. Blaðamaður bendir á, að Any Trouble falli ekki alveg að tísku- linunni, Abbalag þeirra myndi vafalitiö ekki falla i kramiö hjá mörgum öðrum yngri hljómsveit- um. „Við erum ekki tiskusinnað- ir,” segir Clive. „Astæðan fyrir stofnun hljómsveitarinnar var einföldun: að leika góða tónlist. Og okkur skiptir þaö engu hvaöan hún kemur.” — Gsal. — Sagt frá bresku hljóm- sveitinni Any Trouble og þunnhærða fyrirliðanum Clive Gregson afla vina medal ókunn- ugra „Þetta er athyglisverö- asta nýja rokkhljómsveitin sem Melody Maker hefur séð síðan Pretenders kom fram. Hún er nefnd Any Trouble/ var sett á lagg- irnar fyrir fjórum árum í Stoke og skrifaði undir samning við Stiff-útgáf- una i febrúar. I þessari viku leit fyrsta piata þeirra dagsins Ijós, „Where Are All The Nice Girls?", besta Stiffplatan frá því „My Aim Is True" kom út með Elvis Cost- ello." Þannig hljóðaði upphaf forsiðuf réttar Melody Maker um miðjan júlí, þar sem Any Trouble var kynnt á forsíðunni allri með stórri mynd og stóru letri. Liðsmenn hinnar vandræða- lausu hljómsveitar eru eftirtald- ir: Chris Parks (sólógltar), Mel Harley (Trommur), Clive Greg- son (gritar og söngur), og Phil Barnes (bassagltar). Höfuöpaurinn er Clive Gregson. Hann semur öll lög og alla texta hljómsveitarinnar og hefur nú þegar veriö llkt við Graham Parker og Elvis Costello. „Ég kýs fremur að vera llkt við þá, en bölvaöa Whitesnake,” segir hann ákveðiö. Clive segir það ekki mikilvæg- ast hvort hljómsveitin selji plötur I milljónatali, mikilsverðast sé að stemma stigu viö tónlist svuntu- þeysa og vélmenna. „Eflaust er nauðsynlegt aö segja fólki, að tónlist áttunda áratugsins verði öll af sama toga: 20 svuntuþeysar og vélmenni sem syngur. En svo lengi sem einhver náungi kemur fram með gltar og nokkrar Bruce Springsteen plötur eöa plötu með Graham Parker, mun rokktón- listin lifa. Ég segi það satt: þurrkaöu Gary Numan út og segöu Brian Eno fréttirnar.” La nda f ræðikenna r i? 1 opnukynningu Melody Maker á Any Trouble byrjar blaðamað- urinn frásögn slna á hljómleikum þar sem Any Trouble komu fram ásamt öðrum og yfirgáfu sviðið sem hetjur kvöldsins. Piltarnir I helgarpopp Poul Simon — One-Trick Pony Warner Bros. K56846 Einhver indælasti tónlistar- maður poppaldar er Paul Simon og „ljúfur” er lýsingar- orð sem hæfir honum best. Frá þvf Paul Simon og Art Garfunkei slitu samstarfi sinu hafa þeir hvor I sfnu lagi og með sinu nefi gefið út nokkrar sólópiötur. Sérstaklega hafa plötur Paul Simon bragðast vel. Nú um nokkurra ára skeið hefur hann haft hljótt um sig á plötusviðinu, en gutlað eitt- hvað viö kvikmyndaleik og raunar er það svo, að þessi nýja plata hans er samin við eigin kvikmynd hans sam- nefnda: „One-Trick Pony”. Þrátt fyrir ýmsar breytingar I poppheimi er Paul Simon samur við sig, hann er sérlega Ijóðrænn og textar hans bregða einatt upp sterkum myndum úr llfi hans og annarra, sem fáir geta betur gert. Þegar svo við bætist einvalalið til hljóðfæraleiks getur útkoman ekki oröið annaö en mjög góð. Þetta er ekki besta plata Paul Simon, en næsta númer við. The Dirt Band — Make A Little Magic United Artist LT-1042 Einstakasinnum gerist það, aö fyrir eyrun bregður tónlist, sem liöur framhjá eins og i draumi. Og þegar þú vaknar minnistu þess ekki að hafa neitt dreymt. Þannig finnst mér tónlist The Dirt Band vera, hvorki góð né slæm, bara þægileg og ekki neitt neitt. Hún skilur litiö eftir, vekur litla athygli ef undan eru skilin tvö lög, titillagiö „Make A Little Magic” og „MENSAS Farwell To America”, sem er lokalag plötunnar og ólikt öllum öðrum lögum hennar. The Dirt Band er bandarlsk hljómsveit, sprottin upp úr rústum The Nitty Gritty Dirt Band og tónlist hennar er fyrst og slðast popp, en áhrifa kántrirokks gætir þó viöa. Hljómsveitin vakti nokkra at- hygli I fyrra, meö lagi um ameriska drauminn og titil- lagið á þessari plötu hefur komist inn fyrir topp tuttugu á bandariska listanum. En eitt- hvað verða hljómlistarmenn að taka sig saman I andlitinu, eigi þeir von um böðun I frægöarljóma. Gunnar Salvarsson skrifar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.