Vísir - 06.09.1980, Page 25

Vísir - 06.09.1980, Page 25
Laugardagur 6. september 1980. Hln ellefu ára gamla Sandrine LeGoff hringdi tii móöur sinnar en neyöaróp hennar kom of seint. Ekki hvarflaöi aö eiginkonu hans þegar hún horföi á eftir hon- um aö hún ætti ekki eftir aö sjá hann aftur á lífi. Skömmu siöar kemur slökkvi- liöiö á vettvang. Coutrix er hvergi sjáanlegur og þvi fara þeir heim til hans og spyrja konu hans eftir honum. Eiginkonunni veröur svarafátt og slökkviliösmennirnir ákveöa aö brjótast inn i hús Le- Go.ff. Þaö veröur ekki hjá þvi komist. Eitthvað alvarlegt hefur átt sér staö og þvi fyrr sem brugöið veröur við þvi betra. Um leiö og dyrnar láta undan áhlaupi slökkviliösmannanna blasir viö þeim óhugnanleg sjón. Rétt fyrir innan dyrnar liggur blóöi drifiö lik Jacques Coutrix. Slökkviliösmennirnir ganga nú um húsið og finna fljótlega Sandrine þar sem hún liggur i blóði sinu. Hún er meðvitundar- laus. Það er þegar kallaö á sjúkrabifreiö sem flytur Sandrine samstundis á sjúkrahús. En þeg- ar þangaö er komið er Sandrine látin. Leitinni er haldiö áfram og hún ber þann árangur aö lik Gilles LeGoff finnst i bilskúrnum. Þegar Martine kemur heim og fær aö heyra alla málavöxtu liöur yfir hana. Hún er borin inn I stofu og lögö á bekk og þar kemst hún til meðvitundar. Viö hlið hennar situr miöaldra maöur. Hann kynnir sig, Berthot yfir- maöur rannsóknarlögreglunnar. Rannsóknin var komin i hendur lögreglunnar, en hana höföu slökkviliðsmennirnir kallaö til þegar þeir sáu aö hér var um morö aö ræöa. Þegar Martine hefur komist svo til sjálfrar sin aö hægt er aö yfirheyra hana segir hún frá sim- hringingu Sandrine. Berthot reynir aö gera sér I hugarlund hvaö hefur átt sér staö. Einhver, aö öllum likindum moröinginn hefur veriö staddur i húsinu. Einhver oröaskipti hafa átt sér staö. Þaö hefur kastast I kekki milli LeGoff og hins ókunna. Þeir hafa tekist á. Sandrine hefur heyrt ólætin,oröiö skelfingu lostin og hringt til La Pinede til aö tala viö móöur sina. Hún rétt nær aö segja: „Þaö er frændi René...” áöur en moröing- inn rifur simtóliö úr hendi hennar og leggur á. En hver er frændi René? Martine útskýrir fyrir lögregl- unni aö René sé vinur manns sins. Hann hafi aðstoðað þau þegar þau ákváöu aö flytjast búferlum til Hyeres. Þá hafi hjónin kynnst frænda René sem kallaður var Thomy en hét réttu nafni Joseph Rocco. Fórnarlömb morðingjans voru öll myrt á sama hátt, meö skoti I hnakkann. Berthot kemst aö þvi aö Rocco hefur hlotiö dóm fyrir morðtilraun og oftsinnis verið ákæröur fyrir llkamsárásir. Rocco viröist einnig hafa sérlega mikinn áhuga og dálæti á skot- vopnum. Þvi miður viröist lögreglan hafa farið húsavillt. Rocco hefur fullkomna fjarvistarsönnun. Föstudaginn 18. janúar 1980 þeg- ar moröin voru framin sat hann aö snæöingi heima hjá kunningj- um slnum. Enn koma nýjar upplýsingar fram I málinu. Sést haföi til tveggja flækingja i nágrenni húss LeGoff um þaö leyti sem moröin voru framin. Lögreglan hefur fljótlega upp á þeim og handtekur þá. Einn aöili er þó ekki ánægöur meö gang mála. Þaö er Berthot lögregluforingi. „Ég er ekki i nokkrum vafa um aö Rocco er morðinginn en ég get bara ekki sannað þaö”, segir harin viö yfirmann sinn Lambiert lögreglustjóra. „Ekki list mér nú beint vel á þessa skoðun þina. Getur þaö ekki verið aö fyrri ferill Rocco, dómurinn sem kveöinn var upp yfir honum og þaö orö sem fer af árásarhneigð hans geti hafa haft áhrif I þá átt aö móta afstööu þina?” spyr lögreglustjórinn. „Nei, það er aðallega vegna þess sem Sandrine sagöi I sim- ann...” byrjar Berthot en yfir- maöur hans gripur fram I fyrir honum. „Guö minn góöur barninu getur hafa skjátlast. Haföu þaö hugfast aö þaö er ekkert sem bendir til þess aö hún hafi séö banamann sinn. Eins og þú hefur sjálfur haldiö fram má gera ráð fyrir þvi aö hún hafi aöeins heyrt til hans og getur alveg hafa haft rangt fyrir sér þegar hún hélt aö hún heyrði rödd Roccos. Moröinginn hefur áttaö sig á þvi hvaö hún var aö aöhafast og eins og stefna byssukúlunnar sýnir ljóslega, hefur komiö aftan aö henni viö simann. Þar á ofan getum viö ekki hnekkt fjarvistarsönnun Roccos”. Berthot tók ræöu lögreglustjór- ans sem ákúrur fyrir slælega frammistööu viö meöferö málsins og ákvaö að reyna aö fara ofan i kjölinn á fjarvistarsönnun Roccos. Rocco haföi snætt kvöld- verö heima hjá öldruöum hjónum herra og frú Binari. Berthot heimsótti nú Binari hjónin einu sinni enn og fékk þau til þess aö fara meö sér lið fyrir liö yfir allt þaö sem gerst haföi um föstu- dagskvöldiö frá þvi aö Rocco gekk inn um dyrnar á heimili þeirra og þar til hann yfirgaf hús- ið. Hann grennslaöist einnig fyrir um hvaö heföi veriö á borðum. „Viöbyrjuöum á forrétti og svo fengum viö þetta lika indælis nautakjöt á eftir”, sagöi herra Binari. „Hvaöa bull er þetta I þér pápi minn” svaraði frúin. Ég sem bjó einmitt til uppáhaldsréttinn þinn Spaghetti a la mare”. „Nei, það var á fimmtudegin- um”, sagöi bóndinn. A meðan Berthot hlýddi fullur áhuga á samræður hjónanna héldu þau áfram aö deila um þaö hvort þaö heföi veriö á fimmtu- degi eöa föstudegi sem þau heföu neytt nautakjötsins. Að lokum læddi hann spurningu inn I umræðurnar. „Hvaö boröaöi Rocco?” Loks kom aö þvi aö hjónin gátu verið sammálá. Hann haföi boröaö jgpagfiétti a^la mare. „Manstu ekki hvað hann var yfir sig hrifinn af matseldinni þinni”, sagði Binari. „Jú, jú hann hæidi mér svo mér þótti alveg nóg um” svaraöi frú- in. Frá heimili Binari hjónanna lá leið Berthots til kjötvörukaup- mannsins I hverfinu. Aöspuröur sagöist kaupmaöurinn vera viss I sinni sök aö þaö heföi verið á föstudeginum sem hann heföi selt frú Binari nautakjöt. Honum var þaö sérstaklega minnisstætt vegna þess að sama dag tók hann dálitiö af þessari sömu nautasteik heim til þess aö hafa til kvöld- verðar. Nautasteik á föstudagskvöldi. Þaö var þá á fimmtudeginum sem Rocco haföi komiö til kvöld- veröar og veriö boriö Spaghetti a la mare. Heldur var nú fjar- vistarsönnunin farin aö láta á sjá. Berthot var nú búinn aö veröa sér úti um þaö sem hann þurfti á ab halda. Hann hóf að yfirheyra Rocco á nýjan leik. En Rocco gat ómögulega munaö hvaö þaö var sem frú Binari haföi borið á borö fyrir hann, en þaö var lika auka- atriði. Hann haföi ekki komið sem kvöldveröargestur heldur til þess aö festa kaup á nokkrum notuðum haglabyssum sem Binari vildi selja. „Frúin sagöi mér aö hún heföi útbúið sérstakan rétt I tilefni af heimsókninni, Spaghetti a la mare”, sagöi Berthot. „Þá hlýtur þaö aö vera rétt, jú nú man ég þaö, virkilega góm- sætt”. „Þú ert viss um að þú neyttir ekki neins annars t.d. nauta- kjöts?” „Nei ég man þaö alveg greini- lega aö ég borðaði spaghetti og svo segir frú Binari þaö lika”. „Það er alveg rétt” svaraöi Berthot,,á þvi leikur ekki nokkur vafi aö þú boröaöir spaghetti hjá Binari hjónunum fimmtudaginn 17. janúar. Daginn áöur en morö- in voru framin. Rocco geröi sér nú ljóst a ð hann hafði beðið ósigur, gafst alveg upp og játaöi. Honum sagöist svo frá að hann og LeGoff hefðu rifist heiftarlega. Þaö hefði verið vegna umboöslauna sem Rocco vildi fá greidd vegna verks sem hann heföi útvegað LeGoff. LeGoff heföi aftur á móti ekki tal- iö sig skulda Rocco eitt eða neitt. Þá heföi Rocco dregiö upp skam- byssu til þess að ógna LeGoff. Framhaldið var, eftir lýsingu morðingjans á þá leiö að LeGoff heföi skipaö sér aö hypja sig á braut og gengið aö útidyrunum og haldið þeim opnum. Þá hleypti Rocco fyrsta skotinu af. Hann heyrði þá aö Sandrine var aö hringja eftir aöstoö og þá skaut hann hana einnig. Siöan bar hann lik LeGoffs út i bilskúr og haföi i hyggju aö gera slíkt hiö sama viö Sandrine sem hann hélt aö væri látin. Þaö var innangengt úr hús- inu út I bilskúrinn. Hann haföi verið á leiö frá bllskúrnum til þess aö kanna hvort hann.hefði skiliö nokkur vegsummerki eftir um veru sina i húsinu þegar hringt var á dyrabjölluna. Þaö var fyrri ferö Coutrix. Þegar Coutrix fór burt án þess aö hafast meira aö gekk Rocco úr skugga um aö á moröstaönum væri ekkert það sem bendlaö gæti hann við morðin ákvaö siöan aö skilja Sandrine eftir þar sem hún var komin opn'aði útidyrnar og ætlaði aö flýta sér burt. 1 sama mund bar Coutrix að I annað sinn. „Ég varö skelfingu lostinn og hleypti honum inn i húsiö. Hann var ekki fyrr kominn inn úr dyr- unum en hann rak augun I Sandrine þar sem hún lá i blóði sinu. Hann hrópaði upp yfir sig.ég skaut hann og lagði á flótta. Játning moröingjans kom heim og saman viö þá mynd sem rann- sóknarlögreglumennirnir höfðu gert sér af atburðarásinni. Bert- hot var þó enn ekki fullkomlega sáttur við játningu Roccos. Hann var þeirrar skoöunar aö Rocco hefði fyrirfram veriö búinn að ákveða aö myröa LeGoff og þvi tekið skammbyssuna meö sér. Við réttarhöldin i málinu kom i ljós aö Berthot haföi haft á réttu aö standa. Rocco og Martine LeGoff höföu lengi átt i ástarsam- bandi. LeGoff haföi komist aö framhjáhaldi konu sinnar og boðaö Rocco á sinn fund. Þar haföi hinn kokkálaði eiginmaöur ætlaö aö gera upp sakirnar við elskhuga konu sinnar i eitt skipti fyrir öll en þaö fór ööru visi en ætlab var. Sérstæð sakamál Myndin er tekin viö jaröarför Sandrine LeGoff. Viö hliö kistunnar stendur besta vinkona hennar og grætur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.