Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 41

Morgunblaðið - 25.06.2002, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 C 41HeimiliFasteignir E YJÓLFUR Ólafsson á Eyj- ólfsstöðum í Skuggahverfi fær útmælt erðafestuland fyrir norðan lóðina sem bær hans stendur á árið 1890. Björn Jónsson ritstjóri er orðinn eigandi landsins árið 1902, það ár lét hann hluta þess í makaskiptum við franska sjómálaráðuneytið fyrir lóð í Austurstræti. Á lóðinni stóðu frönsku húsin, sem síðan voru flutt á Eyjólfsstaðablett og endurreist þar og ætluð fyrir franska skipbrotsmenn. Laust fyrir aldamótin 1900 voru á þessum stað tveir bæir, Litlu-Miðhús og Eyjólfs- staðir. Fljótlega upp úr aldamótun- um virðist sem bæirnir hafi verið rifnir, að minnsta kosti Eyjólfsstað- ir. Stórhýsi þeirra tíma Franska spítalafélagið lét reisa á lóðinni stórhýsi þeirra tíma sem enn stendur, en félagið hafði það mark- mið að koma upp spítölum fyrir franska sjómenn sem veiktust eða slösuðust hér við land. Félagið reisti fjóra spítala á landinu. Franski spítalinn var teiknaður af Anton Bald og er fyrsta brunavirð- ingin á húsinu gerð 19. desember 1901 en þá var húsið ekki fullgert. Bygging Franska spítalans er frem- ur óvenjuleg því að hann er þrjú hús. Aðalhúsið snýr hliðum í norður og suður og við báða gafla þess eru byggð hús sem snúa stöfnum í norð- ur og suður. Í virðingunni segir m.a. að aðal- húsið sé byggt af bindingi klætt utan með tvöfaldri borðaklæðningu, með pappa og járni yfir á austurhlið og norðurgafli. Það er með járnþaki á súð með pappa í milli. Niðri í húsinu eru tvö herbergi, gangur og eldhús. Þar eru tveir ofnar og stór eldavél. Loftið er hólfað í tvö rými. Grunn- flötur hússins er 23 1/2 x 12 álnir. Þá er getið um geymsluskúr sem byggður er við vesturhlið (stafn) að- alhússins, byggður af bindingi og klæddur utan með járni á langbönd- um og með járnþaki á langböndum. Við suðurhlið hússins er skúr og einnig austan við það. Þann 20. september 1902 eru fengnir á staðinn virðingamenn en þá er spítalinn fullbyggður. Sú breyting hefur orðið á aðalbygging- unni (miðhúsinu) að niðri eru fimm herbergi, gangur eftir endilöngu húsinu og þrjú salerni, allt þiljað með panel og pappi innan á veggj- um, allt málað og fimm ofnar til upp- hitunar. Uppi á loftinu eru fimm herbergi og gangur, öll þiljuð með panel og pappa á veggjum og máluð. Þar eru fimm ofnar til upphitunar og nagl- fastur vatnskassi. Kjallari er undir þessum hluta hússins með stein- steypugólfi. Í honum eru tvö her- bergi, eldhús, búr og gangur, sumt þiljað og annað þéttað með steinlími. Þar er einn ofn, vatnsdæla, eldavél og einn rafmagnshitapottur. Við norðurhlið aðalhússins er út- bygging með eins utanáklæðningu og aðalhúsið. Niðri eru þrjú her- bergi, gangur og salerni, allt þiljað og málað og eitt herbergið með pappa innan á þiljum. Þar er einn baðofn, bað og tilheyrandi pípur. Uppi eru tvö herbergi, tveir geymsluklefar og gangur. Herbergin eru þiljuð með pappa innan á og máluð. Þar er einn ofn. Kjallari er undir þessari útbyggingu og í honum eru þrír geymsluklefar, gangur og salerni. Allir veggir eru sléttaðir að innan með steinlími. Við austurgafl aðalbyggingarinn- ar er bygging, byggð eins og aðal- húsið, að grunnfleti 13 3/4 x 9 1/2. Niðri er eitt herbergi þiljað með pappa innan á þiljum og málað. Þar er einn ofn. Uppi er eitt herbergi, óþiljað með einum ofni. Við vestur- gafl aðalhússins er þverbygging að öllu leyti byggð eins og þverbygg- ingin við austurgaflinn með sama grunnfleti. Austan við spítalann er byggt lítið hús af bindingi, klætt að utan með járni og með járnþaki á súð. Það er hólfað í þrjú rými og með stein- steypugólfi. Þar er einn ofn. Grunn- flötur þessa húss er 10 x 6 1/4 álnir. Á meðan Franska spítalafélagið rak þarna sjúkrahús var ekki mikill rekstur í húsinu. Eftir að heims- styrjöldin skall á 1914 fékk bærinn stundum afnot af spítalanum. Árið 1907 kom upp taugaveikifaraldur í Reykjavík og voru sjúklingar þá lagðir þar inn. Þegar spánska veikin herjaði á landsmenn 1918 kom sér vel fyrir borgarbúa að hafa afnot af spítalan- um. Árið 1920 tók bærinn Franska spítalann á leigu en Frakkar fengu afnot af honum ef þurfti. Þá voru veiðar þeirra við Ísland að leggjast af. Árið 1929 keypti bærinn húsin og í nokkur ár voru þau notuð til íbúðar, þar var einnig mötuneyti fyrir al- menning, barnaheimili o.fl. Ingimarsskóli Árið 1935 fékk Gagnfræðaskólinn þar inni. Skólinn var oftast kenndur við fyrsta skólastjóra sinn, Ingimar Jónsson, og kallaður Ingimarsskóli. Í húsinu var gagnfræðaskóli til árs- ins 1976. Ingimar Jónsson var fæddur í Hörgsholti í Hrunamannahreppi, Árn. 15. febrúar 1891. Foreldrar hans voru hjónin Jón Jónsson bóndi og barnakennari og Sesselja Guð- mundsdóttir. Ingimar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1916 og útskrifaðist úr guð- fræði við Háskóla Íslands vorið 1920. Á námsárum sínum kenndi hann bæði við Kvennaskólann og Iðnskól- ann. Hann var heimiliskennari á Höfn á Hornafirði veturinn 1914 til 1915. Ingimar stundaði skrifstofu- störf í tvö ár eftir nám í háskólanum. Hann var prestur á Mosfelli í Gríms- nesi frá 1922 til 1928 þar til hann tók við embætti skólastjóra Ungmenna- skólans frá stofnun hans árið 1928. Gagnfræðaskólinn við Lindargötu tók til starfa árið 1935 og þar gegndi Ingimar stöðu skólastjóra. Kona Ingimars var Elínborg Lár- usdóttir, fædd 12. nóvember 1891. Elínborg var dóttir Lárusar Þor- steinssonar bónda á Tunguhálsi í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði og konu hans, Þóreyjar Bjarnadóttur. Elínborg Lárusdóttir var mjög ást- sæll rithöfundur, hún skrifaði bæði skáldsögur og ýmiss konar fræðslu- efni. Sumar af bókum hennar snerust um líf eftir dauðann, frásagnir af miðilsfundum og er bókin Leit mín að framlífi þekktasta bók hennar um dulræn efni. Þegar bókin Stranda- kirkja, skáldsaga með sannsögulegu ívafi, kom út vakti hún mikla athygli. Ingimar Jónsson skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit. Hann skrif- aði félagsfræði handa gagnfræða- skólum og þýddi bækur eins og Yoga og Kom ríki þitt. Hann sat í ótal nefndum og var í framkvæmdanefnd Stórstúku Íslands. Hér hefur aðeins fátt verið talið upp sem þessi heiðurshjón létu eftir sig liggja kom- andi kynslóðum til gagns og ánægju. Árið 1960 er húsið tekið til virð- ingar eftir gagngerðar endurbætur. Í kjallara voru undirstöður lagfærð- ar, fyllt var með grjótmulningi undir gólfið og það steypt og einangrað með 5 cm vikurplötum. Þá voru út- veggir í kjallara einangraðir með 5 cm vikurplötum og síðan múrhúðað- ir. Skilveggir endurbyggðir aðallega úr timbri og klæddir spónaplötum. Loftin klædd með gibsonitplötum og loft og veggir máluð. Þá var gert nýtt stigahús og vegg- ir og stigabak múrhúð- að. Veggir upp með stigum klæddir veggjaplasti og tröpp- ur lagðar plastgólfdúk. Á hæðinni voru allar kennslustofur lag- færðar og einnig gang- ar. Veggir í stofum lagðir spónaplötum neðan til en gibson- itplötum í loftum og á efri hluta veggja. Á hæðinni eru fjórar kennslustofur, skrif- stofa skólastjóra, kennarastofa, snyrti- herbergi, gangur, ræstiklefi og stigahús. Í þakhæð er íbúð hús- varðar, tvö herbergi og eldhús, bað og forstofa. Í risi er einnig sam- komusalur, tvær kennslustofur og gangur. Í kjallara er handavinnu- stofa, tvær snyrtingar, tvær fata- geymslur, fjögur geymsluherbergi, þvottahús, vinnuherbergi kennara, gangur og stigahús. Tónmenntaskóli Reykjavíkur frá 1977 Tónmenntaskóli Reykjavíkur hef- ur haft starfsemi sína í húsinu frá árinu 1977. Skólinn var stofnaður ár- ið 1952 af Heinz Edelstein og var fyrst til húsa á ýmsum stöðum í bæn- um þar til hann fékk hús Franska spítalans við Lindargötu, en lengst af hafði Tónmenntaskóli Reykjavík- ur húsnæði í Iðnskólanum á Skóla- vörðuholti. Árið 1988 var húsið endurgert að utan nema aðaldyr á suðurhlið. Skipt var um alla glugga í húsinu og reynt að gera þá sem næst upphaflegum gluggum. Kvistirnir eru með frönsk- um gluggum, einnig eru slíkir gluggar á aðalhæðinni. Tólf rúður eru í gluggum í risi nema í mið- glugga yfir aðaldyrum í suður en sá gluggi telur tuttugu og fjórar rúður. Á hæðinni eru gluggarnir með tuttugu rúðum. Yfir aðalinngangi eru svalir með renndu handriði, út á þær er gengið um dyr með frönsku sniði. Í hurðunum eru tuttugu og átta rúður. Aðaldyr hússins eru í sama stíl. Í kjallara eru gluggar átta faga. Þá var skipt um járn bæði á veggjum og þaki og sett ný einangrun. Öll vinna við viðgerð á húsinu er sérstaklega vönduð og það er eitt af fegurstu húsum í Reykjavík. Verk- inu stjórnaði Leifur Blumenstein og Hörður Ágústsson valdi litina sem húsið er málað með. Innanhúss er unnið að því að minna á þann tíma þegar Franski spítalinn var reistur. Skemmtilegar myndir prýða veggi skólans eins og mynd af mönnum og hestum er staldra við á Vitatorgi. Skólastjóri Tónmenntaskóla Reykjavíkur er Stefán Edelstein, sonur Heinz Edel- stein, fyrsta skólastjóra Tónmennta- skólans. Helstu heimildir eru frá Borgarskjalasafni, B-skjöl og brunavirðingar og Húsadeild Ár- bæjarsafns. Lindargata 51, Franski spítalinn Öll vinna við viðgerð á húsinu er sérstaklega vönduð og það er eitt af fegurstu húsum Reykja- víkur, segir Freyja Jóns- dóttir. Innanhúss er unn- ið að því að minna á þann tíma sem Franski spít- alinn var reistur. Byggingin er einlyft timburhús með risi og reist á hlöðnum steinkjallara. Það var teiknað af Anton Bald og er fyrsta brunavirðingin á húsinu gerð 19. desember 1901 en þá var húsið ekki fullgert. Árið 1958 voru gerðir kvistir á ris hússins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Byggingin er í rauninni þrjú sambyggð hús. Aðalhúsið snýr hliðum í norð- ur og suður og við báða gafla þess eru byggð hús sem snúa stöfnum í norður og suður. Húsið stendur við Lindargötu 51. Það hefur gegnt mörgum mikilvægum hlut- verkum, en undanfarna áratugi hefur Tónmenntaskólinn í Reykjavík haft þar aðsetur. Elínborg Lárusdóttir rithöfundur lést 5. nóvember 1976, en Ingimar Jónsson skólastjóri 6. janúar 1981.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.