Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Írskir dagar á Akranesi næstu daga
Bærinn mun
iða af lífi
AKRANES mun iðaaf fjöri frá degin-um í dag og fram
yfir helgi vegna írskra
daga. Þetta er í þriðja sinn
sem dagarnir eru haldnir í
bænum. Af því tilefni
ræddi Morgunblaðið við
Sigurð Sverrisson, for-
mann undirbúningsnefnd-
ar daganna, um aðdrag-
andann, söguna og
dagskrána, svo eitthvað sé
nefnt.
– Hvert er tilefni írskra
daga?
„Sagan á bak við þá er
sú að um og upp úr árinu
880 námu írskir bræður
hér land, þeir Þormóður
og Ketill Bresasynir. Að
því ég best veit er Akranes
eina bæjarfélagið sem get-
ur státað af írsku landnámi, og við
erum hæstánægðir með það. Þessi
ævafornu írsku tengsl urðu í raun
kveikjan að írsku dögunum fyrir
þremur árum.“
– Hefur hátíðin vaxið og dafnað
á þessum þremur árum?
„Já, mikil ósköp. Ég held að ég
halli ekki á neinn þótt ég haldi því
fram að dagskráin í ár sé sú viða-
mesta hingað til. Segja má að það
séu samfelld atriði frá eftirmið-
degi í dag þar til eftir hádegi á
sunnudag. Í dag mun Akraborgin
mæta til leiks á ný, réttum fjórum
árum frá því að hún fór sína síð-
ustu siglingu, daginn sem Hval-
fjarðargöng opnuðu.“
– Hvað gerist á Akraborginni?
„Nú er pláss fyrir um þrjú
hundruð manns í skipinu en það er
sem kunnugt er slysavarnaskóli
Landsbjargar. Vonandi verður
hver smuga nýtt til hins ýtrasta
um borð. Við bjóðum upp á tvær
siglingar með farþega, sú fyrri
verður ætluð yngri kynslóðinni en
sú síðari þeim eldri. Írska hljóm-
sveitin Ash Plant mun skemmta
um borð og ef til vill dansarar.
Með þessu er tóninn sleginn á há-
tíðinni.“
– Hvað geturðu nefnt okkur
fleira af dagskránni?
„Það er svo ótalmargt á dag-
skrá en ég get nefnt til dæmis tón-
leika í kvöld þar sem U2-Project
mun skemmta og svo kvöld-
skemmtun á Akratorgi á laugar-
dagskvöld þar sem Ash Plant og
dansararnir koma fram ásamt
fjölda annarra skemmtikrafta,
meðal annars Kaffibrúsakörlun-
um. Hljómsveitin mun svo flytja
sig yfir í Bíóhöllina seinna um
kvöldið. Götuleikhús verður á
ferðinni á föstudag og laugardag
og svo má nefna dorgveiðikeppni,
sæþotur, kajaka og körtubíla,
leiktæki, sandkastalakeppni,
markaðstjald, uppboð og fleira.“
– Svo er fleira á döfinni, ekki
satt, um leið og írsku dagarnir?
„Jú, um helgina er líka Lottó-
mótið í knattspyrnu, sem er
stærsta fótboltamótið sem haldið
er hér. Þar er von á um 2.000 gest-
um. Einnig verður Sumargolfmót
Bylgjunnar þessa helgi
á Garðavelli og mikil
skemmtidagskrá sem
fylgir því. Dansleikir
verða með Pöpunum og
Írafári og ekki má
gleyma „Tax Free“ dögum í
mörgum verslunum á Akranesi
þessa daga. Með því að stefna
saman mörgum ólíkum viðburð-
um vonumst við til að ná upp
sannkallaðri írskættaðri hátíðar-
stemningu í bænum.“
– Hvernig verður fyrir gesti að
koma til bæjarins?
„Við tökum á móti öllum sem
koma akandi til bæjarins með
ítarlegri dagskrá daganna svo að
allir geti frá upphafi fylgst vel
með. Einnig er kort af bænum,
svo að þeir sem ekki eru kunnugir
munu eiga auðvelt með að rata.
Svo er ætlunin að gleðja sérstak-
lega alla rauðhærða.“
– Hvers vegna eru rauðhærðir
boðnir sérstaklega velkomnir?
„Það er nú fátt írskara en rauða
hárið. Og oftar en ekki hafa rauð-
hærðir goldið háralitarins fremur
en hitt. Nú snúum við þeirri þróun
við.“
– Hátíð sem þessi hlýtur að
vera mikil lyftistöng fyrir bæjar-
félagið.
„Já, það má með sanni segja.
Við höfum til þessa dáðst að vel
heppnuðum sambærilegum hátíð-
um víðs vegar um landið. Það er
von okkar að írsku dagarnir verði
smám saman fremstir á meðal
jafningja en hefðin er óneitanlega
styttri hjá okkur. Til þess að gera
hátíðina sýnilegri höfum við valið
að efna til fjölmargra viðburða úti
undir beru lofti. Verði veðurguð-
irnir hagstæðir erum við með upp-
skrift að fjölskylduhátíð sumars-
ins.“
– Hafið þið kynnt dagana víða?
„Við höfum lagt sérstaka
áherslu á að kynna dagana fyrir
Akurnesingum, jafnt bæjarbúum
sem brottfluttum. Mér
heyrist góð stemning
ríkjandi. Ég veit að
fjölmargir brottfluttir
Skagamenn eru á leið-
inni í heimsókn og að
sjálfsögðu vonumst við til að sem
allra flestir landsmenn sæki okk-
ur heim. Til þess er leikurinn í og
með gerður.“
– Þið væntið fjölda manns.
„Já, við búumst við fjölmenni og
erum bjartsýnir á framhaldið.
Hér á tvímælalaust eftir að verða
ógleymanleg stemning, sem eng-
inn á að vera svikinn af að mæta á.
Allir eru velkomnir.“
Sigurður Sverrisson
Sigurður Sverrisson fæddist á
Akranesi árið 1957. Hann lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1978. Sig-
urður starfaði sem blaðamaður á
Tímanum, Dagblaðinu, DV og
Morgunblaðinu frá 1978–1984.
Hann hóf útgáfu Skagablaðsins
1984 og síðan Pésans 1993. Sig-
urður starfaði hjá Athygli og PR
almannatengslum árin 1998–
2000 en hefur undanfarin tvö ár
rekið Pennann-Bókabúð Andrés-
ar á Akranesi ásamt eiginkonu
sinni. Sigurður er formaður
nefndar um írska daga á Akra-
nesi. Hann er kvæntur Steinunni
Ólafsdóttur og eiga þau fjögur
börn; Ólaf Nils, Stefán Jóhann,
Sigurð Vigfús og Nönnu Guð-
rúnu.
Rauðhærðir
sérstaklega
velkomnir
Ég verð bara að biðja um rústabjörgun, hr. varðstjóri. Hann hefur bara
ekki skilað sér eftir HM.