Morgunblaðið - 11.07.2002, Side 10

Morgunblaðið - 11.07.2002, Side 10
FORSVARSMENN hátíðanna bæði á Skagaströnd og á Siglufirði segja að ekki sé um hefðbundnar útihá- tíðir að ræða heldur miklu frekar viðburði í bæjar- eða sveitarlífinu sem skili fyrirtækjum og þjónustu- aðilum heilmikilli veltu og skipti samfélögin á þessum stöðum miklu máli. Líkja megi þesum hátíðum við 17. júní í Reykjavík eða Menning- arnóttina en ekki sé innheimtur sér- stakur löggæslukostnaður vegna þeirra viðburða; færa megi rök fyrir því að hér sé um sérstakan skatt á landsbyggðina að ræða. Fjárframlög duga hvergi nærri til Forsaga málsins er sú að í fjár- lögum árið 1999 var ákveðið að veita 7,5 milljónir króna á ári til þess að greiða löggæslukostnað við stærri skipulagða viðburði eins og útihá- tíðir. Í lögreglulögum er engu að síður gert ráð fyrir að mótshaldarar greiði þennan kostnað og þannig má vissulega segja að Alþingi hafi kom- ið sérstaklega til móts við lands- byggðina með stofnun þessa sjóðs. Fjárupphæðin hefur hins vegar ekki breyst þótt verðlag hafi hækkað og nýir kjarasamningar hafi verið gerðir við lögreglumenn þannig að úthlutanir úr sjóðnum hafa ekki dugað til undanfarin ár. Því hefur þurft að takmarka úthlutanir úr honum. Að sögn Ingva Hrafns Óskars- sonar, aðstoðarmanns dóms- og kirkjumálaráðherra, var það fyrst gert árið 2000 með því að afnema al- veg úthlutanir vegna minni skemmtana, síðan aftur í fyrra með því að setja þak á úthlutun til hvers og eins, þ.e. við eina og hálfa millj- ón. „Í ár þurftum við enn að setja frekari takmarkanir og nú verður ekki greitt meira en sem nemur ein- um þriðja af löggæslukostnaði hverrar skemmtunar. Þannig hefur þetta þróast og þetta var óhjá- kvæmilegt til þess að gæta jafn- ræðis við úthlutun úr sjóðnum.“ Svíður undan að greiða bæði fyrir lög- og öryggisgæslu Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri í Höfðahreppi, sem heldur Kántrí- hátíðina á Skagaströnd, segir að löggæslukostnaður vegna hátíðar- innar hafi verið áætlaður um þrjár milljónir króna í ár og að hreppnum beri að borga tvo þriðju hluta af þeirri upphæð. „Sýslumaðurinn hef- ur eitthvað upp í þetta en við verð- um krafin um 1,3 milljónir króna. Þetta bætist við þann kostnað og áhættu sem við erum að taka. Okk- ur ber líka að skaffa fulla öryggis- gæslu og það má reikna með að kostnaður vegna björgunarsveita- manna sem vinna við hana fari í þessa tölu eða jafnvel meira því lög- reglan gerir kröfu um að við önn- umst allt almennt eftirlit. Við þurf- um því bæði að borga fyrir örygis- og löggæsluna og okkur svíður und- an því.“ Magnús segist þó vilja taka fram að sýslumaður hafi gert allt sem hann gat til þess að standa við það sem hann var búinn að segja áður. Þetta hafi komið í bakið á honum eins og á öðrum og hann hafi brugð- ist mjög drengilega við í málinu. „Við erum mjög ósátt við,“ segir Magnús, „að þessi löggæslukostn- aður skuli vera settur á vegna þess að hérna er um bæjarhátíð að ræða. Þetta er ekki hefðbundin útihátíð á borð við þá í Eldborg eða Húna- vershátíð heldur erum við að halda bæjarhátíð þar sem skemmtiatriðin fara fram í miðbæ sveitarfélagsins, hátíð sem er hliðstæða við t.d. 17. júní-hátíðarhöld í Reykjavík eða Menningarnótt en bara minni í snið- um.“ Magnús segist vera þeirrar skoð- unar að löggæslukostnaður vegna slíkra hátíða eigi að vera sameig- inlegur og inntur af hendi af ríkinu: „Þarna eru einfaldlega Íslendingar að koma saman og ef þeir eru ekki heima hjá sér að skemmta sér eru þeir einhvers staðar annars staðar. Og það eiga allir rétt á að hafa lög- gæslu í kringum sig.“ Umsókn vegna Menningarnætur hafnað Ingvi Hrafn segir að upphaflega hugmyndin með löggæslusjóðnum hafi m.a. verið sú að styðja við skemmtanahald úti á landi, sérstak- lega í fámennum embættum. Í ljósi þess hafi umsókn lögreglustjórans í Reykjavík um greiðslu úr þessum sjóði vegna löggæslu við Menning- arnótt verið hafnað og bent á hlut- verk sjóðsins og eins á hitt að lög- regluliðið í Reykjavík væri það fjölmennt að það ætti mun auðveld- ara með en litlu embættin úti á landi að skipuleggja sig þannig að það ráði við aukaálag. Ingvi Hrafn telur því að það skjóti nokkuð skökku við þegar menn halda því fram að um sérstakan skatt á landsbyggðina sé að ræða. Ingvi segir að sumir hafi orðið til þess að gagnrýna að upplýsingum, um hvernig staðið verði að úthlutun, sé komið seint á framfæri. „En menn hafa í sjálfu sér ekki getað átt von á öðru en að þurfa að standa undir þessum kostnaði að einhverju eða verulegu leyti og það á ekki að koma á óvart. Það er ákvörðun hvers embættis fyrir sig hvort það innheimtir eins og heimild er til í lögreglulögum, þ.e. allan beinan kostnað vegna löggæslu af svona skemmtunum eða hvort embættið ætlar að einhverju leyti að bera þennan kostnað sjálft. Raunar held ég að það sé reyndin í mörgum til- vikum.“ Aðspurður segir Ingvi að það sé mat lögreglunnar á hverjum stað hvort mótshaldari geti sjálfur séð um gæslu og ráðið til þess menn. „En auðvitað er það svo að þeir sem ráðnir eru í öryggisgæslu, eins og t.d. menn úr björgunarsveitunum, hafa ekki sömu heimildir og lög- reglumenn til þess að halda uppi lögum og reglu, s.s. til þess að hand- taka menn o.s.fr.v.“ Gera mjög strangar kröfur um öryggis- og löggæslu Karl Steinar Valsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, segir það rangt sem heyrst hafi í þessari umræðu að þeir sem haldi hátíðir eða tónleika á höf- uðborgarsvæðinu þurfi aldrei leggja neitt fram vegna kostnaðar við lög- gæslu. „Þetta er á misskilningi byggt. Útihátíðir hér á höfuðborg- arsvæðinu eru að vísu að mörgu leyti ólíkar þeim sem haldnar eru úti á landi. Það sem líkist þeim einna helst er til dæmis tónleikahald og í þeim tilvikum höfum við gert mjög strangar kröfur um öryggis- gæslu, eins og um fjölda gæsluliða, annarra en lögreglumanna, sem tón- leikahaldari þarf að greiða fyrir úr eigin vasa. Þessi skilyrði þarf hann að uppfylla áður en hann fær leyfi hjá okkur og ef okkur finnast að- stæður kalla á það krefjumst við þess einnig að hann kaupi ákveðna löggæslu af lögreglunni.“ Karl Steinar bendir á að tónleika- haldarar þekki þessi skilyrði orðið mjög vel: „Þannig að það er orðið frekar sjaldgæft að við þurfum að gera kröfu um slíkt, þ.e. löggæslu í viðbót við kannski 60 til 80 manna gæslulið. Það er hins vegar ljóst að viðkomandi þarf að leggja í mikinn kostnað vegna þessarar öryggis- gæslu. En ég tek jafnframt fram að það eru mörg dæmi þess að við krefjumst líka löggæslu sem móts- haldarinn þarf að greiða fyrir.“ Karl Steinar viðurkennir að að- stæður úti á landi séu nokkuð ólíkar að því leyti að lögregluliðið í Reykjavík sé miklu fjölmennara en önnur lögreglulið. „Álagsþol okkar er auðvitað meira en í minni lög- regluembættum. Þá dreifist fólk, sem sækir hátíðir eða viðburði, á veitingastaði í Reykjavík en safnast ekki saman á einum stað og til þess að sitja þar að drykkju langt fram eftir nóttu. Almennt má segja,“ ítrekar Karl Steinar, „að við höfum farið þá leið að setja mjög ströng skilyrði fyrir öllum uppákomum og menn fá ekki leyfi nema þeir uppfylli þau. Til þess að gera það þurfa mótshaldarar að taka á sig töluverð útgjöld sem renna að vísu ekki til lögreglunnar í Reykjavík.“ Innheimta á löggæslukostnaði vegna hátíða um verslunarmannahelgina Ósáttir við að greiða tvo þriðju hluta Höfðahreppur heldur Kántríhátíð á Skagaströnd og heimamenn segja hana skipta bæjarfélagið allt miklu máli. NOKKURRAR óánægju hefur gætt vegna löggæslukostnaðar sem greiða þarf vegna hátíða um verslunarmannahelgina, ekki síst hjá þeim sem standa að hátíðum sem tengj- ast ákveðnum sveitarfélögum, s.s. Kántrí- hátíðin á Skagaströnd, Síldarævintýrið á Siglufirði og Neistaflug í Neskaupstað. FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ „NEI, NEI, það tekur enginn leigubíl í þessu veðri, þetta ligg- ur allt í sundlaugunum. Við bara bíðum í rólegheitum. Það kemur ekkert líf í þetta fyrr en um helgina“, segja þeir Þorvaldur og Egill leigubílstjórar, léttir í lund í blíðviðrinu í Laugarásnum þrátt fyrir tímabundið aðgerðaleysi. „Það er ekki hægt að bóna bíl- ana í svona veðri, það er allt of heitt, maður getur varla þvegið því járnið er svo heitt að maður myndi draga allt bónið til. Við tökum þessu því bara með ró.“ Þorvaldur segist sjálfur hafa verið að koma úr laugunum: „Það er fastur punktur í hádeginu hjá mér að fara í þær og hlaupa síð- an í gegnum Laugardalinn að Álfheimum og til baka, það eru um fjórir kílómetrar.“ Þorvaldur er sex til sex maður að eigin sögn: „ég byrja að vinna sex á morgnana og hætti klukkan sex. Það er mitt prógramm. Þeg- ar maður byrjar að vinna svona snemma er nauðsynlegt að brjóta upp daginn og það geri ég með sundlaugarferðinni og hlaup- unum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Ekkert stress var á þeim Agli og Þorvaldi á meðan þeir biðu eftir uppkalli. Beðið í blíðunni STARFSMANNARÁÐ Landspít- ala – háskólasjúkrahúss hefur sent frá sér ályktun þar sem er lýst þungum áhyggjum af starfsemi spítalans í sumar. „Fjölmargir sjúklingar eiga þess ekki kost að liggja við sæmandi aðstæður vegna þess að yfirfullt er á deildum. Þar eð spítalann skortir rekstrarfé er ítrekað gripið til þess ráðs að leggja sjúklinga á ganga. Það eyk- ur álag á starfsfólkið og vinnuað- stæður verða óviðunandi. Það er landsmönnum ljóst, a.m.k. þeim sem á suðvesturhorn- inu búa, að Landspítali – háskóla- sjúkrahús er opið alla daga ársins, allan sólarhringinn. Á þetta treysta nærliggjandi sjúkrahús og meira en ella á sumrin. Þar eru einnig kvöld- og helgarlokanir og sjúklingar því sendir til Reykjavík- ur. Þess má loks geta að Landspítali – háskólasjúkrahús er bráðaspítali fyrir allt landið. Starfsmannaráð LSH telur fjár- magn til rekstrar spítalans vera of naumt skammtað og hvetur stjórn- völd til úrbóta.“ Ályktun starfsmannaráðs Landspítala – háskólasjúkrahúss Fjármagn til spítalans of naumt skammtað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.