Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 11 NÝSTÁRLEGUM aðferðum hefur verið beitt við gerð þáttanna Hvernig sem viðrar sem sýndir eru á fimmtu- dagskvöldum í Sjónvarpinu í sumar og má þar helst nefna að þættirnir eru klipptir í ferðatölvu á vettvangi og mun minna umfang er við vinnslu þeirra en vant er. Hjördís Unnur Másdóttir og Helgi Jóhannesson reka fyrirtækið 16:9 sem sér um fram- leiðslu þáttanna fyrir Sjónvarpið, en Ferðamálaráð er styrktaraðili þátt- anna. Hjördís og Helgi sjá um dagskrár- gerð og töku þáttanna og er Hjördís hljóðmaður en Helgi sér um kvik- myndatöku. Saman klippa þau svo þættina í ferðatölvu og ganga frá þeim til út- sendingar, en hver þáttur er sendur með flugi til Reykjavíkur. Þetta gerir að verkum að þau þurfa ekki að gera sér ferð til borgarinnar í því skyni að ganga frá hverjum þætti fyrir sig. Helgi og Hjördís segja að nýlunda sé að gengið sé frá þáttunum á vettvangi og að þau sjái sjálf um alla vinnuna, en séu ekki með fólk til að ganga frá þáttunum fyrir sig. „Það er dálítið öðruvísi að taka þáttinn og vita til þess að við eigum sjálf eftir að klippa efnið. Um leið og við tökum þáttinn upp erum við því að hugsa um hvern- ig hann verði klipptur,“ segir Helgi. Hjördís bætir við að áferð þáttanna verði öðruvísi þar sem þau vinni hann sjálf frá upphafi til enda, nálægð þeirra við allt sem viðkemur þættin- um sé meiri. Ferðast um á jeppa með allan búnað meðferðis Þau eru ánægð með hvernig til hef- ur tekist við gerð þáttanna í sumar. „Þetta er reyndar búið að vera nokk- ur keyrsla á milli staða en allt hefur gengið að óskum. Við ferðumst um á jeppa og erum með allt dótið okkar í honum. Við erum kannski á ferðalagi í fjóra til fimm daga og eyðum svo tveimur dögum í klippa þáttinn og ganga frá honum,“ segir Hjördís. „Það er líka þægilegt fyrir viðfangs- efni okkar hversu fá við erum, um- stangið og fyrirhöfnin er minni og allt verður sveigjanlegra,“ segir Helgi. Hjördís og Helgi hafa bæði starfað í nokkur ár við sjónvarp, og unnu að dagskrárgerð við þættina At í vetur. „Við prófuðum okkur heilmikið áfram í Atinu með því að klippa heima hjá okkur og vera ekki jafn bundin við Sjónvarpið. Upp úr þessu fékk ég hugmyndina að þáttunum Hvernig sem viðrar, en ég var þó búin að vera með hana í maganum nokkuð lengi. Ég fékk svo Helga með mér í þetta þar sem hann er mikill tæknisnilling- ur og svo fengum við Villa og Rósu, Vilhelm Anton Jónsson og Rósu Björk Brynjólfsdóttur, til að vera um- sjónarmenn þáttanna. Þau Villi og Rósa senda auk þess pistla til dæg- urmálaútvarps Rásar tvö tvisvar í viku og klippa þau þá og senda með tölvupósti í bæinn,“ segir Hjördís. Reynum að taka hvert atriði aðeins einu sinni Helgi og Hjördís segjast reyna að taka hvert atriði aðeins einu sinni í þáttunum, þótt það takist kannski ekki alveg alltaf. Það gangi þó kannski betur vegna þess hversu lítil pressa sé á þeim þar sem ekki sé fjöldi fólks við upptökuna. Þetta þýði að ef eitthvað mistakist sé minna mál að taka það atriði aftur sökum þess að þau eru aðeins fjögur að meðtöldum umsjónarmönnum þáttanna. Hjördís og Helgi segjast eiga von á því að vinna fleiri þætti í svipuðum dúr, enda hafi tekist vel upp í sumar og mjög gaman hafi verið að vinna að þáttunum. Ganga frá þáttunum á staðn- um með aðstoð ferðatölvu Morgunblaðið/Arnaldur Helgi Jóhannesson og Hjördís Unnur Másdóttir eru framleiðendur ferðaþáttanna Hvernig sem viðrar sem sýndir eru í Ríkissjónvarpinu. RAGNAR Aðalsteinsson hæstarétt- arlögmaður, sem fer með mál Falun Gong-iðkenda og fleiri sem telja hafa verið brotið á sér í tengslum við Íslandsheimsókn Kínaforseta í síðasta mánuði, hefur að nýju krafið dómsmálaráðuneytið um gögn sem varða fyrirmæli íslenskra yfirvalda til Flugleiða þess efnis að meina til- teknum hópi fólks að fljúga með vélum félagsins til landsins á meðan heimsókn Kínaforseta stóð yfir í júní sl. Ragnari var synjað um gögnin um miðjan síðasta mánuð þar sem þau væru trúnaðamál og hefur hann nú ítrekað beiðni sína á grundvelli upplýsingalaga miðað við breyttar forsendur, með því að gögnin séu ekki lengur trúnaðar- mál, enda forsetaheimsókninni löngu lokið. Hann hefur einnig ósk- að eftir svokallaðri skaðleysisyfir- lýsingu, þ.e. þeirri yfirlýsingu yf- irvalda til Flugleiða um að ríkissjóður muni bera allan skaða sem Flugleiðir hefðu af því að hlýða fyrirmælum yfirvalda. Þá hefur hann krafið ráðuneytið öðru sinni um áhættumat ríkislögreglustjóra vegna forsetaheimsóknarinnar. Hjá Persónuvernd liggur beiðni Ragnars um rannsókn á því hvort farið hafi verið að lögum um per- sónuvernd við gerð lista stjórnvalda með óæskilegum útlendingum í tengslum við forsetaheimsóknina. Ítrekar beiðni um gögn vegna Fal- un Gong NÝLEGA lauk ís- lenskur læknir, Þorbjörn Guð- jónsson, sérnámi í hjartalækningum frá Háskóla- sjúkrahúsinu í Madison, Wis- consin. Þorbjörn út- skrifaðist frá læknadeild Há- skóla Íslands 1992. Hann starfaði sem deildarlæknir í þrjú ár á sjúkra- húsum Reykjavíkur. Árið 1995 flutti hann með fjölskyldu sinni til Madis- on, höfuðborgar Wisconsin-ríkis í Bandaríkjunum, þar sem hann hóf sérnám í lyflækningum. Að loknu þriggja ára námi í almennum lyf- lækningum, tók við fjögurra ára nám í hjarta- og æðasjúkdómum. Síðast- liðin tvö ár hefur Þorbjörn verið að sérhæfa sig í æðavíkkunum, bæði kransæða og annarra slagæða. Sam- hliða námi hefur Þorbjörn stundað rannsóknir og birtist m.a. grein eftir hann í maíhefti ameríska hjarta- læknatímaritsins „The American Jo- urnal of Cardiology“. Þar greinir hann frá niðurstöðum rannsókna á tengslum áreynsluþols og starfsemi hjartavöðvans hjá sjúklingum með hjartabilun. Þorbjörn starfar nú sem hjartasérfræðingur við Háskóla- sjúkrahúsið í Madison og á sjúkra- húsinu í Monroe, Wisconsin. Hann stefnir að heimkomu eftir þrjú ár. Þorbjörn er kvæntur Þórdísi Braga- dóttur skólasálfræðingi og eiga þau tvö börn, Hebu Björk og Tómas. For- eldrar Þorbjarnar eru Guðjón Yngvi Stefánsson verkfræðingur og Guðrún Broddadóttir hjúkrunarfæðingur. Nýr íslensk- ur hjarta- læknir Þorbjörn Guð- jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.