Morgunblaðið - 11.07.2002, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ gerð bílakjallara undir Tjörn-
inni er enn eitt skrefið stigið í átt
að eyðileggingu lífríkis Tjarnar-
svæðisins. Þetta segir Ólafur K.
Nielsen líffræðingur sem leggst
gegn framkvæmdunum enda njóti
svæðið borgarfriðunar.
Ólafur hefur í gegnum árin
stundað fjölmargar rannsóknir á líf-
ríki Tjarnarinnar fyrir borgina. Á
árunum 1973 til 1979 var hann
eftirlitsmaður með fuglalífinu þar
og í kringum Ráðhúsdeilurnar bar
hann ábyrgð á fuglarannsóknunum
sem sömuleiðis voru unnar fyrir
borgina. Þá var hann ritstjóri bók-
arinnar Tjörnin – saga og lífríki,
sem borgin gaf út.
Hann segir söguna sýna að stöð-
ugt sé gengið á hið svokallaða
Tjarnarsvæði. „Það er búið að fylla
upp í þriðjunginn af tjörninni og
raska botninum víðast hvar. Síðasta
stóra uppfyllingin var vegna Ráð-
hússins og síðan var rask á botni út
frá húsinu. Tjörnin og bakkar henn-
ar njóta borgarfriðunar og sömu-
leiðis sjö hektara svæði í Vatnsmýr-
inni. Ef við ætlum að halda þessu
svæði þá gerum við það ekki með
því að fylla stöðugt upp í eða um-
bylta öllu.“
Ólafur telur að Tjarnarkjallarinn
einn og sér muni í sjálfu sér ekki
skipta sköpum í þessu sambandi þó
að vissulega verði mikið rask á
botnlífi Tjarnarinnar meðan á fram-
kvæmdunum stendur. „Þetta er
bara enn einn naglinn í þessari lík-
kistu. Talningar sýna að fuglalífi
hefur hrakað þarna og það er búið
að rústa stórum hluta af vatnslönd-
unum í Vatnsmýrinni. Það er svona
hægt og bítandi verið að þrengja
að. Ef við ætlum að halda í þetta
svæði, og varðveita þá fjölbreytni
sem er þarna í lífríkinu, þá gerum
við það ekki með svona röð fram-
kvæmda. Mín skilaboð til borgaryf-
irvalda eru að láta Tjörnina í friði
og virða þær línur sem er búið að
draga með borgarfriðuninni.“
Árlega yfir 100 þúsund manns
sem gefa öndunum
Hann segir ekki að ástæðulausu
að borgin hafi ákveðið að friða
svæðið á sínum tíma. „Það er
ákveðinn rökstuðningur fyrir því.
Þetta er eins konar gluggi borg-
arbúa að móður náttúru – þarna er
fjölbreytt lífríki í miðri borg og
borgarbúar nota þetta svæði mjög
mikið. Það hefur verið mælt að
bara þeir sem koma til að gefa önd-
unum eru yfir 100 þúsund manns á
ári. Tjörnin hefur útivistar- og
fræðslugildi fyrir borgarana og
þetta er spurning um einhvers kon-
ar grundvallarafstöðu til lífsins, vilj-
um við halda í þetta svæði eða
ekki?“
Aðspurður segir hann að í borg-
arfriðun felist að borgaryfirvöld
ákveði að friða tiltekið svæði. „Á
hinn bóginn geta þau togað og
teygt þessi mörk ef þeim hentar.
Það er mitt sjónarmið að þarna sé
enn eitt skrefið stigið í átt að því að
skemma þetta svæði. Þetta skref
eitt og sér mun ekki rústa Tjörn-
inni en einhvers staðar verður að
draga mörkin.“
Sérfræðingur í lífríki Tjarnarinnar leggst gegn framkvæmdum við bílakjallara
Segir stefna í
eyðileggingu
Tjarnar-
svæðisins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ólafur segir að stöðugt hafi verið gengið á það svæði sem fuglar hafa til umráða við Tjörnina. Þessi litla anda-
fjölskylda, sem spígsporaði við Tjörnina í vikunni, virtist þó uppteknari af matarleit en fyrirhuguðum fram-
kvæmdum við bílakjallara undir botni Tjarnarinnar, sem nýverið voru kynntar.
Miðborg
BÆJARYFIRVÖLD í Mos-
fellsbæ hafa til athugunar hvort
ráðast eigi í hönnunarsam-
keppni á skipulagi og starfsemi
Hlégarðssvæðisins svonefnda.
Vænta má ákvörðunar þar að
lútandi á haustdögum.
Að sögn Ragnheiðar Rík-
harðsdóttur bæjarstjóra var í
vor unnið að forsögn að sam-
keppninni sem síðan var kynnt í
menningarmálanefnd bæjarins.
„Meiningin er að hún verði síð-
an send bæjarstjórn til umsagn-
ar þannig að bæjarstjórn taki
ákvörðun um hver næstu skref
verða, hvort farið verði í hönn-
unarsamkeppni á þessu svæði
eða ekki.“
Hún segir hugsanlega sam-
keppni eiga að ná yfir skipulag
svæðisins og það hvaða starf-
semi eigi að vera á því. „Þá þarf
að ákveða hvort og hvernig sú
starfsemi muni tengjast Hlé-
garði, sem á ákveðna sögu í
okkar bæ. Svo er annað hús
þarna líka, sem er sögulega
tengt skólamálum í Mosfellsbæ,
en það er Brúarlandshúsið og
það er verið að reyna að skoða
þetta allt í einni heild.“
Ákvörðunar bæjarstjórnar um
hvort ráðist verður í samkeppn-
ina er að sögn Ragnheiðar að
vænta á haustdögum.
Samkeppni um
Hlégarðssvæðið
í athugun
Mosfellsbær
KYLFINGAR á Seltjarnarnesi
brugðu á það ráð að vökva golf-
völlinn á Suðurnesi í fyrradag
enda kom ekki deigur dropi frá
heiðum himni.
Flötin græna þarf hins vegar
á vætunni að halda til að dafna
þannig að hún geti þjónað golf-
urum sem best og því var garð-
slangan dregin fram til að svala
þorsta grassins á vellinum.
Líklega er ágangurinn á völl-
inn með mesta móti þessa dag-
ana því margir nota góðviðrið til
útiveru á borð við golfiðkun.
Morgunblaðið/Arnaldur
Golfarar
vökva
völlinn
sinn
Seltjarnarnes
HAFNARFJARÐARBÆR hefur
boðið út framkvæmdir við fram-
lengingu Ásbrautar frá Goðalandi
að Kaldárselsvegi og gerð tveggja
hringtorga. Lausleg kostnaðar-
áætlun gerir ráð fyrir að verkið
allt muni kosta á bilinu 70–100
milljónir króna.
Að sögn Kristins Ó. Magnússon-
ar bæjarverkfræðings er um að
ræða tengingu frá hringtorginu í
öðrum áfanga Áslands að Kald-
árselsvegi þar sem komið verður
fyrir öðru hringtorgi. Þá verður
gert hringtorg á gatnamótum
Reykjanesbrautar og Öldugötu.
„Þannig á umferðin úr Áslandinu
að komast inn á Reykjanesbraut-
ina að norðanverðu í stað þess að
hún þurfi að fara suðurfyrir,“ seg-
ir Kristinn.
Hann segir framkvæmdina einn-
ig tengjast fyrsta hluta færslu
Reykjanesbrautarinnar og að
hringtorgið við Öldugötu sé að
hluta til á forræði Vegagerðarinn-
ar. Lausleg kostnaðaráætlun fyrir
verkið allt er 70–100 milljónir að
sögn Kristins og ber Vegagerðin
hluta þess kostnaðar vegna áður-
nefnds hringtorgs.
Verklok áætluð í nóvember
Athygli vekur að í fundargerð
bæjarráðs er bókað að ef kostn-
aðaráætlun fari fram úr fjárhags-
áætlun bæjarins verði að spara í
öðrum gatna- og holræsaverkum
Vegtenging frá Ás-
landi að Kaldár-
selsvegi boðin út
Hafnarfjörður
sem því nemur. Þegar hann er
spurður um þetta segir Kristinn
að fjárhagsáætlunin hafi verið
gerð í október á síðasta ári. „Þá
vissum við ekki hvað þetta myndi
kosta og þetta verður töluvert dýr-
ara en við gerðum ráð fyrir þá.“
Verkið var boðið út um síðustu
helgi og á allri framkvæmdinni að
vera lokið um miðjan nóvember.
Hringtorginu á Reykjanesbraut-
inni á þó að vera lokið fyrr, eða í
október.
Hönnun umferðarmannvirkj-
anna var í höndum verkfræðistof-
unnar Línuhönnunar.