Morgunblaðið - 11.07.2002, Síða 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 15
FÉLAG myndlistarmanna í
Reykjanesbæ stendur fyrir mynd-
listarnámskeiði fyrir börn á aldr-
inum 7 til 14 ára. Námskeiðin
hófust mánudaginn 1. júlí og
standa í tvær vikur. Börnin munu
svo sýna afraksturinn á myndlist-
arsýningu í Svarta pakkhúsinu
um helgina, frá 12. til 14. júlí.
Félag myndlistarmanna byrjaði
að bjóða upp á myndlistar-
námskeið í fyrrasumar og sýnt
þótti að full þörf væri fyrir slík
námskeið. Aðsókn þá var góð en
hún er enn betri nú. Um 40
krakkar sitja námskeiðin og er
þeim skipt niður í þrjá hópa eftir
aldri. Námskeiðin eru í umsjón
systkinanna Írisar og Vignis Jóns-
barna. Íris er myndlistarmaður
en Vignir er myndmenntakennari.
Blaðamaður Morgunblaðsins
leit við í Svarta pakkhúsinu þegar
elsti hópurinn sat námskeið og
voru þau mjög einbeitt við iðju
sína. Þau voru að vinna grafík-
myndir og þótti þetta mjög
spennandi. Þó verður enn
skemmtilegra að sjá myndirnar
fullunnar og geta litið stoltur á
verk sitt. „Yngsti hópurinn er að
gera hljóðfæri og sá í miðjunni er
að búa til stórar grímur. Þau
vinna í tvær klukkustundir á dag,
þannig að þau bæta við verkið á
hverjum degi,“ sagði Íris. Hún
sagði jafnfram að börnin væru
látin vinna markvisst með ákveðið
þema. „Fordómar eru mikið í um-
ræðunni þessa dagana og við
ákváðum að velta þeim svolítið
fyrir okkur. Í þeim tilgangi
fannst okkur kjörið að tengja
þetta við heimsálfubrúna á
Reykjanesi sem nýverið er búið
að koma upp á milli Evrópuflek-
ans og Ameríkuflekans. Í fram-
haldi veltu börnin svo fyrir sér
atriðum sem tengjast þessu, eins
og vináttu og friði og þau hafa
hugleitt þetta mikið.“
Afraksturinn á sýningu
Námskeiðunum lýkur föstudag-
inn 12. júlí og ætla börnin þá að
opna sýningu í Svarta pakkhús-
inu, sem stendur yfir til sunnu-
dagsins 14. júlí.
Félag myndlistarmanna í
Reykjanesbæ starfrækir einnig
sumargallerí í Svarta pakkhúsinu
sem opnað var 3. maí sl. Sumar-
galleríið verður opið út ágúst-
mánuð og eru þar til sýnis og
sölu verk eftir félagsmenn, sem
ýmist hafa setið námskeið á veg-
um félagsins eða Baðhússins.
Að sögn Guðrúnar Greips-
dóttur, starfsmanns gallerísins,
hefur aðsókn verið með ágætum
og nokkuð um að fólk komi langt
að. „Hér hafa bæði verið að koma
erlendir ferðamenn og gestir úr
öðrum landshlutum og svo heima-
menn og íbúar í nágrannasveitar-
félögunum. Auðvitað eru dag-
arnir misjafnir en þegar á
heildina er litið hefur aðsókn ver-
ið vel viðunandi.“ Galleríið er op-
ið alla daga vikunnar milli kl. 13
og 17.
Listamenn framtíðarinnar sækja myndlistarnámskeið í Svarta pakkhúsinu
Hugleiða
fordóma, vin-
áttu og frið
Nokkur börn í elsta hópnum vinna áhugasöm að verkefnum sínum.
Reykjanesbær
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Íris Jónsdóttir leiðbeinir börnum á myndlistarnámskeiðinu í Svarta pakkhúsinu í Keflavík.