Morgunblaðið - 11.07.2002, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 11.07.2002, Qupperneq 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 21 ANA de Palacio var í gær skipuð utanríkisráðherra Spánar. Er þetta í fyrsta skiptið í sögu rík- isins sem kona gegnir þessu emb- ætti. Jose Maria Aznar, forsætisráð- herra Spánar, ákvað á þriðjudag að gera róttækar breytingar á stjórn sinni. Sex ráðherrar misstu stöður sínar. Aznar hefur nokkuð átt undir högg að sækja undanfar- ið eftir mikla velgengni í spænsk- um stjórnmálum á síðustu árum. Þykja ráðherraskiptin heldur fallin til að styrkja stöðu stjórnarinnar á vettvangi innanríkismála. Mesta athygli vekur skipun Ana de Palacio sem er 53 ára að aldri. Hún er lögfræðingur að mennt og hóf afskipti af stjórnmálum seint, gekk í flokk Aznars árið 1994. Hún hefur setið á Evrópuþinginu og nýtur virðingar sem sérfræðingur á sviði alþjóðaréttar. Ana de Palacio þykir kraftmikil í framgöngu allri. Hún greindist með krabbamein í desembermán- uði árið 2000 og neitaði þá að draga úr störfum sínum á vett- vangi Evrópuþingsins þó svo hún þæði læknismeðferð. Ana de Palacio er eldri systir Loyola de Palacio sem var um skeið landbúnaðar- og sjávarút- vegsráðherra Spánar og situr nú í framkvæmdastjórn ESB. Kona skipuð í embætti ut- anríkisráðherra Spánar Madríd. AFP. SKOSKUR listfræðingur hefur fundið áður óþekkta teikningu eft- ir endurreisnarmálarann Michel- angelo þar sem hún lá gleymd í geymslu hönnunarsafns í New York í Bandaríkjunum. Maðurinn, sir Timothy Clifford, rakst á teikninguna þar sem hann var að fletta í gegnum kassa af teikningum sem Cooper-Hewitt- safnið keypti árið 1942 fyrir 65 dollara, eða um fimm þúsund ís- lenskar krónur. Verkið, sem er teikning af kertastjaka, er um 40x25 sentimetrar að stærð og er metið á um 12 milljónir dollara, eða um einn milljarð íslenskra króna. Clifford fann teikninguna í byrj- un apríl á þessu ári en safnið ákvað að gefa ekkert upp um fundinn fyrr en búið væri að ganga úr skugga um uppruna hennar. Hefur Clifford það orð á sér að vera nask- ur á að finna týnd eða áður óþekkt listaverk en hann segir að þessi síð- asta uppgötvun „slái öllu við“. Ótrúleg- ur fundur New York. AFP. Reuters Teikningin eftir Michelangelo. Þumalína fyrir mæður og börn Skólavörðustíg 41, s. 551 2136 Brúðargjafir Mörkinni 3, s: 588 0640 Opið mánudag-föstudags 11-18. Lokað á laugardögum í sumar Ísskálar frá Kr. 4.290

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.