Morgunblaðið - 11.07.2002, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 25
TÓNLEIKARÖÐIN Sumarkvöld
við orgelið er í fullum gangi í Hall-
grímskirkju. Að venju er boðið upp á
hálftíma langa hádegistónleika á
fimmtudögum og laugardögum, auk
tónleika á sunnudagskvöldum.
Í dag, fimmtudag, kl. 12 er komið
að Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur.
Hún mun leika þýskar barokkperlur
eftir Buxtehude og Bach og franska
orgeltónlist eftir Langlais og Vierne.
Verkin sem leikin verða eru:
Prelúdía í fís-moll, BuxWV 146
eftir Dietrich Buxtehude, Am Wass-
erflüssen Babylon, BWV 653 eftir
Johann Sebastian Bach, Mors et re-
surrectio op. 5 nr. 1 úr Trois para-
phrases grégoriennes eftir Jean
Langlais og Prélude úr Sinfóníu nr.
1, op. 14 eftir Louis Vierne.
Sigrún Magna stundaði kirkjutón-
listarnám við Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar og þaðan lauk hún kantors-
prófi vorið 2000. Orgelkennarar
hennar voru Kári Þormar og Hörður
Áskelsson. Hún stundar nú nám til
einleikaraprófs frá skólanum og
starfar sem organisti Breiðholts-
kirkju.
Hallgrímskirkja
Sigrún
Magna við
orgelið
Aðstandendur
undirbúnings-
nefndar um
stofnun Þór-
bergsseturs, til-
einkað ævi og
störfum Þór-
bergs Þórðar-
sonar, munu
hittast næstkom-
andi laugardag
og halda kynn-
ingu auk þess að ganga um heima-
slóðir Þórbergs.
Dagskráin nefnist Söguferð með
Þórbergi og hefst kl. 14 við minn-
isvarðann á Hala í Suðursveit,
skammt frá Jökulsárlóni. Þar
verður kynningin haldin, þá boðið
upp á stutta göngu og ratleik fyrir
alla fjölskylduna.
Loks verður boðið upp á kaffi-
veitingar.
Á slóðum
Þórbergs
Þórbergur
Þórðarson
♦ ♦ ♦
Meðgöngubelti
brjóstahöld, nærfatnaður
Þumalína, Skólavörðustíg 41