Morgunblaðið - 11.07.2002, Page 26
UMRÆÐAN
26 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BJARNI Þórðarson,
tryggingastærðfræð-
ingur, ritar ágæta grein
í Morgunblaðið þriðju-
daginn 9. júlí sl. í tilefni
af því að nú býður All-
ianz Íslendingum að
gera samning við þá um
ávöxtun viðbótarlífeyr-
issparnaðar. Samning-
urinn felst í því að við-
bótariðgjaldi viðskipta-
vinar er ráðstafað til
kaupa á lífeyristrygg-
ingu Allianz. Í upphafi
greinar sinnar bendir
Bjarni réttilega á að
Allianz er eitt öflugasta
tryggingafyrirtæki
heims og nýtur trausts bæði hjá við-
skiptavinum sem og hjá samkeppn-
isaðilum þess. Á þeim grundvelli
byggir alþjóðlegt kjörorð fyrirtækis-
ins: „Loforð er loforð“.
Rétt er að staldra við tvö meginat-
riði í grein Bjarna. Í fyrsta lagi gerir
hann athugasemd við að ekki komi
nægilega skýrt fram hjá forsvars-
mönnum Allianz Ísland hf. í nýlegu
viðtali við Morgunblað-
ið hver sé nákvæmlega
lágmarksávöxtun við-
bótarlífeyrissparnaðar-
ins. Í öðru lagi fullyrðir
hann að ekki sé um að
ræða þýska ríkisábyrgð
á lágmarksávöxtun
þýskra líftrygginga-
félaga.
Hér er vissulega um
mikilvægar ábendingar
að ræða og fagnar All-
ianz Ísland hf. því tæki-
færi sem nú gefst til að
skýra málið nánar.
Sjálfsagt má alltaf bæta
framsetningu og orða-
val í viðtölum af þessu
tagi þegar reynt er að útskýra til-
tölulega flókin atriði í stuttum texta.
Hvað fyrra atriðið snertir felur
samningur Allianz um viðbótarlífeyr-
issparnað í sér tryggingu fyrirtæk-
isins fyrir því að lágmarksávöxtun
muni ekki fara undir 3,25% af inn-
eigninni að frádregnum kostnaði.
Fyrir liggur að a.m.k. 70% af fjár-
festingum lífeyrissjóða Allianz eru í
verðbréfum með ríkisábyrgð á Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Þannig er
staðið undir lágmarkstryggingunni.
Afgangurinn skiptist milli annarra
tegunda verðbréfa, þ.á m. eru hluta-
bréf. Lögákveðið er í Þýskalandi að
a.m.k. 90% af ávöxtun sjóða líftrygg-
ingafélaga skuli ganga til viðskipta-
manna. Allianz gefur reglulega út
áætlun um ávöxtun sjóða sinna og er
hún endurskoðuð á eins til tveggja
ára fresti. Um nokkurt skeið tókst
Allianz að halda um 7,5% ávöxtun að
meðaltali á lífeyrissjóðum sínum en á
síðustu tveimur árum varð skyndi-
legt verðfall á hlutabréfamörkuðum.
Það hefur leitt til þess að félagið hef-
ur lækkað áætlun sína niður í 6,8%.
Þessi aðlögun nær til væntanlegrar
ávöxtunar en tryggðar greiðslur sem
og áunnin ávöxtun hingað til haldast
að fullu. Áætlun þessi verður endur-
skoðuð að ári og hugsanlegt er þá að
hún hækki eða lækki eftir ástandi
fjármálamarkaða, en viðskiptamað-
urinn heldur þeirri ávöxtun sem þá
verður áunnin. Með tilliti til langrar
reynslu mun óhætt að staðhæfa að
áætlanir Allianz séu áreiðanlegar.
Þess vegna treystir fyrirtækið sér til
að lofa ákveðnum árangri og gera
jafnvel betur en það. Hér verður að
hafa hugfast að loforðið tekur til lið-
ins tíma og næsta tímabils en fyr-
irtækið áskilur sér rétt til að endur-
skoða áætlanir sínar eins og fyrr
segir með eins til tveggja ára milli-
bili.
Að því er varðar ríkisábyrgðina er
þetta að segja: Eins og áður er
minnst á tryggir Allianz 3,25% lág-
marksávöxtun. Þýska ríkið heldur
uppi mjög virku eftirliti með því að
líftryggingafélög starfi eftir þeim
skilyrðum sem sett eru í lögum. Með-
al annars eru tilnefndir sérstakir til-
sjónarmenn sem fylgjast með fjár-
vörslu og ávöxtun sjóða viðkomandi
líftryggingafélags. Með skömmum
fyrirvara er unnt að grípa inn í at-
burðarásina ef líftryggingafélag fer
ekki að lögum. Á þennan hátt leggur
þýska ríkið sitt af mörkum til að
tryggja það að líftryggingafélögin
geti staðið við skuldbindingu sína um
lágmarksávöxtun. Rétt er að undir-
strika að þó að talað hafi verið um
„ríkisábyrgð“ að þessu leyti þá felst
hún í virku eftirliti með því að laga-
ákvæðum sé fylgt fremur en því að
um sérstaka ábyrgðaryfirlýsingu sé
að ræða. Ábending Bjarna að þessu
leyti er rétt, þ.e.a.s. unnt er að mis-
skilja notkun orðsins „ríkisábyrgð“ í
viðtali forsvarsmanna Allianz Ísland
hf. við Morgunblaðið og er nánari út-
skýringu hér með komið á framfæri.
Á móti kemur að Allianz í Þýskaland
er metið með mjög trausta lánsfjár-
hæfni eða AA+ (var AAA fyrir kaup-
in á Dresdner-banka sl. sumar) þann-
ig að hér er öðru fremur um
„fræðilega“ spurningu að ræða.
Taka ber undir hvatningu Bjarna
til þeirra sem hyggjast notfæra sér
möguleika á viðbótarlífeyrissparnaði
að fá upplýsingar hjá nokkrum að-
ilum um kjör sem í boði eru. Í þeim
samanburði stendur Allianz vel að
vígi, enda hefur Allianz ætíð lagt sig
fram um að veita viðskiptavinum sín-
um nákvæmar og ítarlegar upplýs-
ingar og þá ekki hvað síst um kostn-
að.
Já, loforð frá
Allianz er loforð!
Árni Gunnar
Vigfússon
Tryggingar
Taka ber undir hvatn-
ingu Bjarna, segir Árni
Gunnar Vigfússon, til
þeirra sem hyggjast
notfæra sér möguleika á
viðbótarlífeyrissparnaði
að fá upplýsingar hjá
nokkrum aðilum um
kjör sem í boði eru.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Allianz Ísland hf.
Mælastöðvar
Við mælum með
Fiskislóð 26 · Sími: 551 4680 · Fax: 552 6331
www.sturlaugur.is
i i l í i
l i
iskislóð 26 Sími: 551 4680
www.sturlaugur.is
Velkomin á Leifshátíð 2002 –
Eiríksstaðanefnd og Dalabyggð
Dansleikir föstudags- og laugardagskvöld!
Hljómsveitir: Viðar Jónsson og Anna Vilhjálms.
Unglingahljómsveitin Ábrestir.
Leifshátíð
Eiríksstöðum í Haukadal 12.-14. júlí
Aðgangseyrir: 2000 kr. fyrir fullorðna
1000 kr. fyrir 13 til 16 ára og lífeyrisþega
Ókeypis fyrir 12 ára og yngri
Svæðið opnar kl. 16 á föstudag en hátíðin hefst kl. 19.
Hátíðardagskrá kl. 13 á laugardag.
Góð aðstaða fyrir tjöld, húsbíla og fellihýsi. Veitingar.
Fjölbreytt og þjóðleg fjölskylduskemmtun
• Víkingabúðir, 30 norrænir
víkingar endurskapa fortíðina
Leikir, vefnaður, járnsmíði, útskurður,
matargerð, markaður¸ bogfimi,
bardagar, sögur, tónlist o.fl.
• Handverks- og smíðabúðir
fyrir börn
• Rústir Eiríksstaða og
tilgátubær Eiríks rauða
og Þjóðhildar
• Kappar og kvenskörungar
Kappræður, Halla Steinólfsdóttir
og Arthúr Björgvin Bollason.
• Einar Kárason rithöfundur
• KvennakórinnVox Feminae
• Brúðkaup
• Íþróttakappleikar með
þátttöku gesta
• Heyskapur að fornum hætti
• Fornleifauppgröftur
• Sögugöngur og ratleikir
• Veiði í Haukadalsvatni
• Sagnir og söngvar
• Bálköstur
Reykjavík
Eiríksstaðir
Búðardalur
150 km
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Stretchbuxur kr. 2.90
Konubux r frá kr. 1.790
ragtir, kjólar,
blús ur og pils.
Ódýr nát fatna