Morgunblaðið - 11.07.2002, Side 29

Morgunblaðið - 11.07.2002, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 29 segir Helgi. Enn telji þó mjög margir að refsingar séu of vægar hér á landi. Helgi segir að menn verði að hafa í huga að skv. er- lendum rannsóknum telji almenn- ingur yfirleitt að refsingar séu of vægar og skiptir þá ekki máli hversu harðar þær eru í viðkom- andi landi. Þannig telji Banda- ríkjamenn að refsingar séu of vægar, þrátt fyrir að þar séu refs- ingar mun harðari en á öðrum Vesturlöndum og menn jafnvel dæmdir í margfalt lífstíðarfangelsi eða til dauða. Of vægar refsingar við kynferðisbrotum Þeir sem svöruðu því til að þeim þættu refsingar of vægar voru spurðir að því hvort þeir ættu við refsingar almennt eða ákveðinn málaflokk. Þá kom í ljós að flestir eða um 66% nefndu að refsingar væru of vægar vegna kynferðis- brota. Helgi segir greinilegt að fólk vilji þyngri dóma en hann tel- ur að fleira hangi á spýtunni. „Ég held að mörgum finnist sem máls- meðferð í kynferðisbrotamálum sé ekki í lagi. Mörg mál sem koma fram hjá lögreglu eða Neyðarmót- töku skila sér ekki inn í réttar- kerfið. Jafnvel mál sem skila sér inn í réttarkerfið falla niður þar,“ segir Helgi. Fólk telji að víða sé pottur brotinn varðandi kynferð- isbrotamál og það komi fram í könnuninni. Á hinn bóginn nefndu mjög fáir að þeim þættu dómar í fíkniefnamálum vera of vægir. Helgi segir skýringuna á því ein- faldlega vera þá að dómar hafi þyngst vegna fíkniefnamála síð- ustu árin, e.k. jafnvægi sé að nást á milli refsiþyngdar og viðhorfa almennings. Í ljósi þess að flestir telja refsingar of vægar er athygl- isvert að aðeins 2% töldu vægar refsingar mikilvægustu ástæðuna fyrir því að fólk leiðist út í glæpi en um 80% telja fíkniefnaneyslu og erfiðar heimilisaðstæður mik- ilvægustu ástæðuna. Hefur þetta hlutfall ekki breyst frá 1989. „Mér finnst þetta benda til þess að Ís- lendingar séu tilbúnir að taka með öðrum hætti á þessum málaflokki. Menn sjá að refsingar hafa tak- mörkuð áhrif til að draga úr tilurð afbrota,“ segir Helgi. Þeir telji vænlegt að leggja áherslu á að hjálpa fjölskyldum í vanda, koma fíkniefnaneytendum í meðferð o.s.frv. í stað þess að einblína ein- göngu á refsingar. Ekki vísbendingar um aukna fíkniefnaneyslu Samkvæmt könnuninni hafa um 20% þjóðarinnar prófað hass eða maríjúana sem er ívið lægra hlut- fall en árið 1997 þegar um 25% sögðust hafa prófað þessi efni. Flestir hafa prófað efnið nokkrum sinnum en aðeins um 6% sögðust hafa notað efnið oftar en 10 sinn- um. Einungis rúmlega 2% sögðust hafa notað efnið á síðustu sex mánuðum. Helgi segir að niður- stöðurnar bendi eindregið til þess að neysla kannabisefna sé yfirleitt tímabundin og tilraunakennd hjá þorra neytenda. Þetta komi heim og saman við erlendar mælingar sem sýna að neysla efnanna sé að mestu bundin við ákveðna fé- lagshópa og menn láti yfirleitt af henni eftir því sem ábyrgð þeirra eykst í lífinu. „Mjög margir hafa prófað þessi efni og telja að það hafi ekki haft nein alvarleg áhrif á þá. Í þeim hópi eru vafalaust ýms- ir málsmetandi borgarar,“ segir Helgi. „Hættan er að sjálfsögðu fyrir hendi en sá hópur sem fer mjög illa út úr fíkniefnaneyslu er samt hlutfallslega lítill í saman- burði við heildarfjölda þeirra sem prófa þessi efni. Þessir einstak- lingar geta hinn bóginn farið mjög illa með sig og það má alls ekki draga úr þeim vanda sem með- ferðarstofnanir stríða við. Við megum samt sem áður ekki gleyma því að áfengisneysla er ennþá mesti bölvaldurinn í vímu- efnaneyslu þjóðarinnar,“ segir Helgi. þetta og athuga hvort það sé hægt að breyta þessu. Við þurfum líka að kanna hvort það þurfi meira jafnvægi í fjölmiðlaumfjöllun eða hvort það sé raunveruleg ástæða fyrir því að fólki finnist það óör- uggt í borginni.“ Ertu öruggur einn á gangi um helgar í miðborginni að næturlagi? Í könnuninni var spurt: „Ertu öruggur einn á gangi um helgar í miðborginni að næturlagi?“ Yfir 75% þjóðarinnar töldu sig óörugg og hefur þetta hlutfall ekki breyst mikið frá 1997. Þó hefur heldur dregið úr fjölda þeirra sem töldu sig mjög óörugga. „Það er athygl- isvert að þeir sem búa í miðbæn- um hafa meiri öryggiskennd en þeir sem búa annars staðar. Þeir sem búa úti á landsbyggðinni eru síðan mun óöruggari í miðborginni en þeir sem búa í Reykjavík eða nágrenni,“ segir Helgi. Svo virðist sem fólk telji sig óöruggara, því lengra sem það býr frá borginni. „Þeir sem búa fjærst miðborginni þekkja hana líklegast fyrst og fremst af fjölmiðlaum- fjöllun en þeir sem búa þar sjálfir telja öryggi sínu betur borgið,“ segir Helgi en nefnir að þetta geti bent til þess að ekki gæti jafn- vægis í fréttaflutningi af miðborg- inni og vísar til neikvæðrar um- fjöllunar um miðborgina fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Það sé þó alls ekki hægt að líta fram hjá því að alvarleg afbrot eru framin í miðborginni og friðsamir borgarar hafi orðið þar fyrir fyr- irvaralausum árásum. „Það hefur þessi áhrif. Við óttumst miðborg- ina að næturlagi um helgar og mér finnst sjálfsagt að það verði tekið á því. Það er auðvitað ekki algjörlega að ósekju sem fólk tel- ur sig óöruggt því þarna hafa komið upp alvarleg mál. Þessi mál þarf að ræða af yfirvegun og þurfa jafnt borgaryfirvöld sem lögregla að koma að því,“ segir Helgi. Almenningur telur refsingar almennt of vægar Um það bil 75% telja refsingar við afbrotum helst til vægar eða allt of vægar í samanburði við nær 90% árið 1997. Hverja telur þú vera skýringuna á þessu? „Ég held að ástæðan sé einfaldlega sú að refsingar hafa verið að þyngj- ast. Við sjáum það greinilega í fíkniefnamálum en þess sjást líka merki í öðrum málaflokkum,“ landsbyggðinni telja sig mun öruggari en íbúar á höfuðborg- arsvæðinu. Um 72% hinna fyrr- nefndu töldu sig mjög örugg en einungis um 33% þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Helgi segir líklegustu skýringuna á aukinni öryggiskennd einfaldlega vera þá að um leið og það dragi úr áhyggj- um fólks af afbrotum aukist ör- yggiskennd þeirra. Hvernig kemur Reykjavík út í samanburði við borgir af sam- bærilegri stærð? „Það er erfitt að finna hentugan samanburð en miðað við mælingar á öryggiskennd í öðrum sambæri- legum borgum er hlutfallið hér á landi að minnsta kosti ekki hærra,“ segir Helgi. „Það er nauð- synlegt fyrir okkur að staldra við stu könn- fallið hins Aðspurður hafi mikil Hafskips- gar menn menn ekki glæpi og ndi og er- gar menn il afbrota fíkniefna- ferðisbrot nnd fram að a á gangi ið heimili g en árið Íbúar á ur fjórum sinnum staðið fyrir mælingu á viðhorfum Íslendinga til afbrota ómsdagsum- í fjölmiðlum Morgunblaðið/Sverrir ekki hægt að skýra breytt viðhorf með fækkun afbrota eða að þau séu ekki jafn sem ég staldra við er breytingin á umfjöllun í samfélaginu um afbrot,“ segir Helgi ugsson, afbrotafræðingur og dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. runarp@mbl.is   6  >? @AA@   !"#$%&' !" !(   4G-   4   G   ? G  1    ;  =  > @A A@  =   3  "  1 "    !   6  ;<=<>? @AA@  > @A A@ #  *" '#&$%&' 3   3  5 1 5  @AA@    "  %      ,H !     +,- .+,-( ("#$*# ! /* J?  6  ?  LOKIÐ er viðræðum stjórn-valda á Möltu og Evrópu-sambandsins (ESB) umfiskveiðikaflann í aðildar- viðræðum eyjarskeggja. Stjórnvöld á Möltu hafa á stefnu- skrá að bætast í hóp aðildarríkja ESB í næstu lotu stækkunar þess. Á heimasíðu upplýsingamiðstöðvar Möltu vegna aðildarviðræðna við ESB kemur fram að samningavið- ræðum um fiskveiðikaflann hafi lokið 28. júní. Undanfarin 30 ár hefur Malta stjórnað veiðum innan 25 mílna lög- sögu. Í lögum ESB segir að aðild- arríki megi takmarka veiðar innan 12 sjómílna á þann veg að þar megi erlendir sjómenn ekki athafna sig. Utan 12 mílna kveða lög ESB á um að ekki beri að gera greinarmun á þjóðerni sjómanna frá aðildarríkj- um sambandsins. Í tilfelli Möltu þurfti því að semja um stjórn og fyrirkomulag veiða á svæðinu 12 til 25 mílur frá eyjunum. Varanleg yfirstjórn Samið hefur verið um að Malta haldi 25 mílna fiskveiðilögsögu sinni og að stjórnvöld þar stjórni veiðum innan hennar. Sem fyrr sagði hafði þessi verið krafa stjórnvalda á Möltu sem jafn- framt settu á oddinn að innan lög- sögunnar yrðu einungis leyfðar veiðar smábáta. Á þessa kröfu hefur ESB nú fall- ist og kemur fram á heimasíðu upp- lýsingamiðstöðvar Möltu vegna ESB-viðræðna, http:// www.mic.org.mt, að hér sé ekki um tímabundna undanþágu eða ráð- stöfun að ræða. Ákvæði um fisk- veiðilögsöguna og yfirstjórn stjórn- valda á Möltu innan hennar verði sett í lög Evrópusambandsins. Þetta er gert á grundvelli þess meginssjónarmiðs að aðild Möltu að Evrópusambandinu verði ekki til þess að dragi úr verndaraðgerð- um innan 25 mílnanna en lögsagan er einnig nefnd „verndarsvæði“. Innan lögsögunnar munu, með undantekningum þó, einungis fá að veiða bátar sem eru minni en 12 metrar að lengd. Þetta útilokar ekki að erlendir bátar minni en 12 metr- ar veiði innan lögsögunnar en á heimasíðunni segir að þetta fyrir- komulag muni í raun þýða að þar verði einungis maltneskir bátar að veiðum. Kostnaður við að sigla er- lendum bátum slíka vegalengd til að stunda veiðar innan 25 mílna lög- sögunnar við Möltu geri að verkum að slíkur útvegur geti aldrei orðið arðbær. Togurum ekki fjölgað Almenna reglan verður sú að maltneskir sjómenn sem ráða yfir bátum sem eru lengri en 12 metrar munu ekki fá að stunda veiðar innan lögsögunnar. Þar ræðir um 50 báta og verða eigendur þeirra styrktir til að þeir geti haldið áfram útgerð ut- an lögsögunnar. Þó er í samningnum að finna ákvæði er kveða á um undantekn- ingar frá 12 metra reglunni. Tog- arar minni en 24 metrar munu geta stundað veiðar á afmörkuðum svæðum. Önnur takmarkandi ákvæði, m.a. um dýpt sjávar og vél- arstærð fiskveiðiskipa, hafa í för með sér að togurum innan lögsög- unnar mun ekki fjölga umfram þá sem þar stunda nú veiðar. Gildir það jafnt um innlend sem erlend skip. Fjöldi skipa af þessari stærð innan svæðisins verður því sá sami og áður eftir að Malta hefur gengið í ESB. Flökkustofnar undanþegnir Samningurinn tekur ekki til flökkustofna innan lögsögunnar. Evrópusambandið viðurkennir að maltneski fiskiskipaflotinn stundi ekki veiðar sem gangi nærri stofn- um á svæðinu og sammælast stjórn- völd á Möltu og ESB um að tryggja sjálfbærar veiðar innan lögsögunn- ar. Í kafla um eftirlit kemur fram að innan 25 mílna lögsögunnar hafi stjórnvöld á Möltu fullt vald til að fylgjast með veiðum hvers þess skips sem er 12 metrar eða lengra. Verður það gert með sérstökum búnaði um borð sem sendir upplýs- ingar um hvers kyns veiðar viðkom- andi fiskiskip stundar og hvar þær fara fram. Þá er í samningnum fjallað um aðgang Maltverja að sérstökum sjóðum ESB vegna sjómanna þar sem sérstök áhersla er lögð á svo- nefnt „sjálfbært jafnvægi“ í nýtingu auðlindarinnar. Að auki kveður samningurinn á um að tollar á eld- isfisk frá Möltu falli niður árið 2003. Þeir eru nú 7,5% en voru 15% fram til ársins 2001. Í byrjun þessa árs lækkuðu þeir síðan um helming. Sjávarútvegur er heldur lítill um- fangs á Möltu. Alls eru 370 menn skráðir sjómenn að atvinnu og ráða þeir yfir 314 bátum. Margir þeirra eru mjög litlir. Áhugamenn og sjó- menn í hlutastarfi ráða samtals yfir um 1.500 bátum af margvíslegum stærðum og gerðum. Meirihluti þess afla sem landað er á Möltu er fenginn á alþjóðlegum hafsvæðum. Ákvæði um yfirstjórn sett í lög ESB Malta og ESB semja um fiskveiðar Morgunblaðið/Sigmundur O. Steinarsson Smábátar í höfn á Möltu. Eitt helsta markmið eyjarskeggja í aðild- arviðræðum við ESB var að tryggja að útgerð smábáta mætti áfram þrífast innan þeirrar 25 sjómílna lögsögu sem Malta hefur markað. ’ Malta heldur 25mílna fiskveiði- lögsögu sinni og stjórnvöld þar stjórna veiðum inn- an hennar ‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.