Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 46
DAGBÓK 46 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag er Mermaid væntanlegt ásamt farþegaskipinu Delphin. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Eridanus vænt- anlegt. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og 13 vinnustofa, bað. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, handa- vinnustofan opin, bók- band og öskjugerð, kl. 9 leikfimi, almenn, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 smíðastofan og handa- vinnustofan opin. Kl. 13.30 gönguhópur, lengri ganga. Bingó er 2. og 4. föstudag í mán- uði. Púttvöllurinn er op- inn kl. 10–16 alla daga. Allar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 14–15 dans. Skoðunarferð um Þingvöll í dag, fimmtu- daginn 11. júlí. Lagt af stað frá Bólstaðarhlíð kl. 13. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við bað, kl. 9–16.45 er hárgreiðslustofan opin, kl. 11.15 hádegismatur, kl. 15 kaffiveitingar. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- snyrting, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Fótaaðgerð- arstofa: tímapantanir eftir samkomulagi, s. 899 4223. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Á morg- un, föstudag, verður púttað á Hrafnistuvelli kl. 14–16. Félagsheim- ilið Hraunsel verður lokað vegna sumarleyfis starfsfólks til 11. ágúst. Upplýsingar um orlofs- ferðir að Hrafnagili við Eyjafjörð 10.–13. ágúst og að Höfðabrekku 10.– 13. sept. eru gefnar í símum 555 1703, 555 2484 og 555 3220. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði í Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Athugið ekki verður spilað brids á fimmtu- dögum í júlí. Ferð í Galtalæk á úti- tónleika 14. júlí 2002 með Álftagerð- isbræðrum og Diddú. Örn Árna og Karl Ágúst slá á létta strengi. Lagt af stað kl. 15 frá Glæsibæ. Nánari upplýsingar á skrifstof- unni. Athugið! Sækið miðana í dag á skrif- stofu félagsins. Dagsferð 15. júlí. Flúð- ir-Tungufellsdalur (veg- ur liggur upp í gegnum dalinn sem er með skógi á báðar hendur)- Gullfoss-Geysir- Haukadalur-Laug- arvatn-Þingvellir. Kaffi- hlaðborð í Brattholti. Leiðsögn: Sigurður Kristinsson. Athugið! Sækið miðana í dag. Fyrirhugaðar eru ferðir til Portúgals og Tyrk- lands í haust fyrir fé- lagsmenn FEB, skrán- ing er hafin, takmarkaður fjöldi. Nánari upplýsingar á skrifstofu FEB. Silfurlínan er opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 f.h. í síma 588-2111. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12, sími 588-2111. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði í Glæsibæ. Upplýsingar á skrif- stofu FEB. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 er opin vinnustofa, m.a. glerskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 9–16 bað, kl. 14 myndbands- sýning. Gerðuberg, félagsstarf. Lokað vegna sum- arleyfa frá mánudeg- inum 1. júlí. Opnað aft- ur þriðjudaginn 13. ágúst. Á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs eru sund- og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug kl. 9.30 mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga. Umsjón Brynjólfur Björnsson íþróttakenn- ari. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin. Lagt verður af stað í ferðalag um Vestfirði mánudaginn 15. júlí kl. 8.15 frá Gullsmára og kl. 8.30 frá Gjábakka. Munið að taka með sæng, kodda og lak eða svefnpoka. Afgreiðsla Gjábakka verður lokuð 15.–19. júlí. Matarþjón- usta, kaffistofa, handa- vinnustofa og annar daglegur rekstur verður eins og venjulega. Hár- stofa Ragnheiðar í Gjá- bakka verður lokuð frá 15. júlí til 6. ágúst. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsheimilið Gull- smára 13 verður lokað frá 8. júlí til 6. ágúst. Fótaaðgerðarstofan verður opin, sími 564- 5298, hársnyrtistofan verður opin, sími 564- 5299. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 12 hádeg- ismatur, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 14 félagsvist. Fótaað- gerð, hársnyrting. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Vinnu- stofur lokaðar fram í ágúst. Ganga kl. 10. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 10 fótaað- gerðarstofan, kl. 9.30 morgunstund og hand- mennt, kl. 10 leikfimi, boccia kl. 10.45, kl. 13 brids, frjálst. Smiðjan og bókbandið í sum- arleyfi. Vesturgata 7. Kl. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 að- stoð við bað, kl. 9.15– 15.30 handavinna. Gjábakki. Kl. 20–21 gömlu dansarnir, kl. 21– 22 línudans. Minningarkort Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju, s. 520-1300, og í blóma- búðinni Holtablóminu, Langholtsvegi 126. Gíróþjónusta er í kirkj- unni. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju, sími 520 1300, og í blómabúðinni Holta- blóminu, Langholtsvegi 126. Gíróþjónusta er í kirkjunni Minningarkort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkju- húsinu v/Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn, s. 555 0104, og hjá Ernu, s. 565 0152 (gíróþjónusta). Minningarkort ABC- hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC-hjálparstarfs í Sól- túni 3, Reykjavík, í síma 561-6117. Minning- argjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslu- korti. Allur ágóði fer til hjálp- ar nauðstöddum börn- um. Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Lauga- vegi 7 eða í síma 561- 0545. Gíróþjónusta. Barnaspítali Hringsins. Upplýsingar um minn- ingarkort Barnaspít- alasjóðs Hringsins fást hjá Kvenfélagi Hrings- ins í síma 551-4080. Kortin fást í flestum apótekum á höfuðborg- arsvæðinu. Bergmál, líknar- og vinafélag. Minning- arkort til stuðnings or- lofsvikna fyrir krabba- meinssjúka og langveika fást í síma 587-5566, alla daga fyrir hádegi. Minningarkort barna- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu á Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, s. 551-3509. Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minningarkort Graf- arvogskirkju eru til sölu í kirkjunni í síma 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálg- ast kortin í Kirkjuhús- inu á Laugavegi 31 í Reykjavík. Líknasjóður Dómkirkj- unnar, minningarspjöld seld hjá kirkjuverði. Í dag er fimmtudagurinn 11. júlí, 192. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Og ég hef gefið þeim þá dýrð, sem þú gafst mér, svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt. (Jóh. 17,22.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 ójafna, 8 þrautir, 9 mannsnafn, 10 elska, 11 flýtinn, 13 yndi, 15 nagg, 18 afundið, 21 skaut, 22 bál, 23 svefnfarir, 24 hafsauga. LÓÐRÉTT: 2 jurt, 3 ákæruskjalið, 4 hljóminn, 5 munnbita, 6 sundfæris, 7 sigra, 12 kropp, 14 beita, 15 digur, 16 gamla, 17 mánuður, 18 bylgjur, 19 húsdýrin, 20 fá af sér. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: - 1 hreif, 4 fúnar, 7 elgur, 8 æfing, 9 nár, 11 púar, 13 bann, 14 efnir, 15 fisk, 17 áköf, 20 krá, 22 kíkja, 23 lúpan, 24 runni, 24 sárið. Lóðrétt: - 1 hrepp, 2 ergja, 3 forn, 4 flær, 5 neita, 6 reg- in, 10 árnar, 12 rek, 13 brá, 15 fákar, 16 sökin, 18 kopar, 19 fénað, 20 kati, 21 álfs. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur undanfariðreynt að bæta mataræði sitt. Upphafið er rakið til þess er hann tók þátt í afkomendarannsókn á vegum Hjartaverndar fyrir tveimur árum. Aldrei hefur hann gengist undir eins ítarlega heilbrigðisskoðun og þarna um árið. Í rannsókninni var mataræði meðal þess sem kannað var og þá gerði Víkverji sér grein fyrir því að hann var farinn að borða allt of lítið grænmeti og of mikið af sætindum. Eftir nokkra mánuði bætti Víkverji úr þessu og í kjölfarið tók hann annað mikilvægt skref þegar hann hætti að skófla í sig pasta og pizzum og síðar kökum og enn síðar sælgæti. Víkverji tekur fram að hann hefur aldrei haft áhyggjur af aukakílóum. Þetta voru bara einhver hreystikíló, ein 14 tals- ins, sem höfðu slegist í för með hon- um milli tvítugs og þrítugs. Og hurfu reyndar með pizzunum og hinu jukk- inu. Í síðustu viku tók Víkverji enn eitt framfaraskrefið þegar hann hætti að nota sykur út á morgunkornið. Það er hægara sagt en gert að losa sig við sykurinn sem leynist alveg ótrúlega víða í matvælum, jafnvel þeim sem Víkverji hélt að væru hollustuvörur. En það er öðru nær. Þær eru t.d. fáar mjólkurafurðirnar sem eru sykur- lausar. x x x EN ÞAÐ er mikið unnið þegar aðbaki eru kvöld, þar sem kók og Mars saddi sárasta „hungrið“ eftir kvöldmat. Furðulegt hungur það. Nær væri að tala um fíkn. Hún virðist blossa upp eins og hendi sé veifað en það er líka fljótlegt að fullnægja henni – þangað til hún blossar upp aftur. Víkverji hlýtur að vera haldinn sykurfíkn. „En það gekk vel í dag,“ segir hann nú á kvöldin dauðhræddur um að falla daginn eftir. Samt teljast svona neysluvenjur einhvernveginn ekki merki um neinn sjúkleika, svona almennt séð; að borða sykur út á morgunkornið, kökur og sykraðan djús um miðjan dag og síðan sælgæti á kvöldin (hádegis- og kvöldmatur innifalinn). Fagfólk á hinum ýmsu sviðum heilbrigðismála hefur haldið uppi áróðri gegn óhóflegri sykur- neyslu Íslendinga og óhollu mataræði og nú hafa eyru Víkverja loks opnast. Víkverji vissi t.d. ekki að hann væri að hesthúsa 18 kg af hreinum sykri ár- lega með því að fá sér eina kók á dag. Og þá er frátalin öll hin sykurneyslan í formi sælgætis og annars. Ástæða er til að þakka áróðurinn sem skilað hef- ur sér í betri matarvenjum Víkverja. Og Víkverji vill líka þakka starfsfólki Hjartaverndar fyrir góðar móttökur árið 2000. Nú hikar Víkverji ekki við að rífa í sig hertan steinbít fyrir 400 krónur í staðinn fyrir að kasta sömu upphæð í kók og prinspóló og smá- vegis bland í poka. Nokkuð hátt verð fyrir 35 sykurmola að mati Víkverja. Ekki samt svo að skilja að hollustu- vörur séu eitthvað ódýrar hérlendis. Í Kaliforníu er hægt að kaupa risasalat á stærð við sjónvarpstæki á 60 kr. x x x Í LOKIN ætlar Víkverji að getaþess að hann er hvergi nærri hættur að drekka kaffi, þótt hann hafi tekið ýmislegt vafasamt út af mat- seðlinum. Það eru víst fá vítamín í kaffinu ef nokkur, en það er oftast frábærlega gott á bragðið ef frá er talið vinnustaðaskólpið sem Víkverji drekkur samt mest af einhverra hluta vegna. Hungursneyð velferðarríkis VIÐ lifum í óhamingjuþjóð- félagi þar sem fjöldi fólks er afskiptur og öllum er sama. Sjálfsvígin segja sína sögu sem alltaf er jafnhörmuleg- ur endir á ómetanlegu lífi manns, sem foreldrar elsk- uðu daga og nætur. Hví er það að við horfum uppá fólk sem líður skort og þraut án þess að við aðhöfumst nokk- uð? Hví er okkur ekki kennt í skólum að hamingja allra er hamingja okkar, þín og mín? Er hægt að lifa sæll í himnaríki á meðan aðrir þjást í helvíti? Og hinum ríku líður oft ekkert skár en lágstéttinni, því þeir þekkja best hve djúpt hið andlega myrkur getur náð sem gátu hvergi keypt hamingjuna fyrir peninga sína. Af hverju er þjóðfélag okkar svona? Fólk er andlega vannært og hefur ekki lært að bjarga sér í vellystingafylleríinu. Það hungrar í offitunni og er fátækt í ríkidæmi sínu. Það sveiflast á milli oflætis og depurðar eins og blóðsykur sælkerans og skapofsi mis- lyndismannsins. Nútíma- manninn vantar allt jafn- vægi í líf sitt, langlundar- geð, nægjusemi, frið. Hann vantar andlega næringu og visku til að læra hið guðlega lögmál orsaka og afleiðinga og eitt af því er þetta: Menn verða fyrst auðugir þegar þeir læra að fórna sér fyrir aðra, gefa af sjálfum sér og lifa hvern dag í kærleika til alls sem lifir. Það er fjár- sjóður sem allir geta eignast en því miður fáir koma auga á. Er það ekki einmitt hin sanna viska, sanna þekking og sanna menntun sem við verðum að gefa betur gaum að í samfélagi okkar til að hér dafni góð og guðleg menning þar sem fólki líður vel, en er ekki á hraðferð til helvítis í lífsstíl fáviskunn- ar? Einar Ingvi Magnússon. Ábending til blaðbera ÉG hef oft verið að velta því fyrir mér þegar ég kem heim eftir að hafa farið út úr bænum hvað það er auðvelt fyrir innbrotsþjófa að sjá hverjir eru ekki heima því að Mogginn stendur alltaf hálfur út um bréfalúguna þegar ég kem heim. Ég vil koma með þá ábendingu til blaðburðarfólks að setja blaðið alla leið inn um bréfa- lúguna, þannig að það blasi ekki við þeim sem framhjá ganga. Sjálfsagt á þetta ekki við um alla blaðbera en ég bý á ofanverðum Álfhóls- vegi í Kópavogi. Með fyrir- fram þökk. E.J. Tapað/fundið Guess-leðurveski týndist LJÓST Guess-leðurveski, sem í var m.a. Nokia 3330 sími, debetkort og snyrti- vörur, týndist/eða var tekið í misgripum á Kaffibarnum aðfaranótt sunnudagsins síðastliðins. Finnandi vin- samlegast hafi samband í síma 565 6432. Dýrahald Hvítur og svartur kisi á flækingi KÖTTUR, sem er hvítur og svartflekkóttur, er á flæk- ingi við Bústaðaveg og Hólmgarð. Hann er svartur á öðru eyra niður undir auga og framan á nös, með svart skott og lítið hvítt á enda. Hann er með græna ól með rauðri plötu. Þeir sem kann- ast við kisa hafi samband í síma 568 9488. Mánudaginn 8. júlí hefur einhver tekið ól- ina af kisa og er sá beðinn að láta vita í símanúmerið sem gefið er upp á ólinni. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Arnaldur Nesti handa öllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.