Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.07.2002, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÚTSALAN BYR JAR Í DAGSM ASH Kringlunni, s. 553 1717 Opið til kl. 21.00 í kvöld DC skór Etnies skór Osiris skór Stussy bolir Fresh Jive skyrtur Carhartt buxur X-tra.is bolir 4.990 4.990 4.990 990 60% afsl. 3.990 990 Allt að 60 % afs láttu r Striga i til kl. 21.00 í kv l ÚTSALA HEFST Í DAG DÚND UR Allt að 60% afsláttur Kringlunni, s. 553 1718 Opið til kl. 21.00 í kvöld flauelsbuxur gallabuxur peysur skór bolir skór peysur skór 4.900 5.990 3.990 25% afsl. 990 50% afsl. 2.990 1.990 SKATEBOARDING ÞAÐ verður nóg að gerast hjá Björk á útgáfusviðinu á næstunni. Safnplata, sem mun einfaldlega heita Greatest Hits, kemur út 2. september næstkomandi, og mun innihalda 15 lög. Lögin voru valin af netverjum sem heimsóttu heima- síðu Bjarkar, www.bjork.com. Um svipað leyti kemur út kassi, sem mun heita Family Tree, og mun hann innihalda lög sem eru í uppáhaldi hjá Björk sjálfri og hafa sum hver aldrei verið gefin út áður. Safnplata með Björk Björk Guðmundsdóttir  AKOGES-SALURINN, Sóltúni: Jó- hann Örn kennir línudans fimmtu- dagskvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.  ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dansleikur öll sunnudagskvöld kl. 20 til 23.30. Caprí-tríó leikur fyrir dansi.  BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi: Dj Finnur Jónsson laugardagskvöld.  CAFÉ AMSTERDAM: Fjöllista- hópurinn Grautur spilar og syngur fimmtudagskvöld kl. 23 til 1. Tríóið Úlrik skemmtir fram á morgun föstu- dags- og laugardagskvöld.  CAFÉ CATALÍNA: Trúbadorinn Váfnir Sigurðarson spilar um helgina.  CHAMPIONS CAFÉ, Stórhöfða 17: Diskótek Sigvalda Búa föstudags- kvöld. Hljómsveitin Þotuliðið skemmtir laugardagskvöld. Frítt inn alla helgina.  EGILSBÚÐ, NESKAUPSTAÐ: Bjarni Tryggva í stúkunni. Frítt inn til miðnættis laugardagskvöld.  FÉLAGSHEIMILIÐ PATREKS- FIRÐI: Írafár föstudagskvöld. 16 ára aldurstakmark.  FJÖRUKRÁIN: Hljómsveitin KOS föstudags- og laugardagskvöld.  GAUKUR Á STÖNG: Sóldögg leik- ur föstudagskvöld. Buttercup laugar- dagskvöld.  GULLÖLDIN: Svensen og Hallfun- kel skemmta föstudags- og laugar- dagskvöld.  HREÐAVATNSSKÁLI: Sóldögg með stórdansleik ásamt Ding Dong laugardagskvöld.  HVERFISBARINN: Kiddi Bigfoot verður í búrinu um helgina.  IÐNÓ: Davíð Þór Jónsson með út- gáfutónleika í tilefni af plötu sinni Rask fimmtudagskvöld kl. 21.  JÓMFRÚIN: Andrea Gylfasóttir og Guðmundur Pétursson í sumartón- leikaröð Jómfrúarinnar laugardag kl. 16 til 18. Aðgangur ókeypis.  KAFFI RÓM, Hveragerði: Á móti sól leikur á Blómstrandi daga-balli í stóra salnum laugardagskvöld.  KERLINGARFJÖLL: Eyjólfur Kristjánsson og Íslands eina von með stórdansleik laugardagskvöld.  KRINGLUKRÁIN: Hljómsveit Rúnars Júlíussonar föstudagskvöld. Hljómsveit Rúnars Júlíussonar leikur á eftir Jazzvakningu laugardags- kvöld.  NASA VIÐ AUSTURVÖLL: 40 ára starfsafmæli Rolling Stones fagnað með tónleikum fimmtudagskvöld kl. 21.  O’BRIENS, Laugavegi 73: Moga- dons fimmtudags- og föstudagskvöld. Írski dúettinn De2 leikur írska tónlist laugardagskvöld. Gunnar Gíslason harmonikkuleikari sunnudagskvöld.  ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm- sveitin Bahoja skemmtir föstudags- og laugardagskvöld.  PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Kántrí- diskóbandið Buff skemmtir föstu- dags- og laugardagskvöld. 100 log- andi börn skemmta í hléi.  PLAYERS – SPORT BAR, Kópa- vogi: BSG föstudags- og laugardags- kvöld.  SJALLINN, Akureyri: SSSól laug- ardagskvöld.  SPOTLIGHT: DJ Cesar laugar- dagskvöld kl. 21 til 6. 20 ára aldurs- takmark.  VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM: Húsavíkurdeild Dudda Run og djan- gótríóið Hrafnaspark fimmtudags- kvöld kl. 21. Guðmundarvaka föstu- dagskvöld kl. 21. Hollenski píanóleikarinn Hans Kwaakernaat ásamt Tríói Björns Thoroddsen. Sænski barítónsaxófónleikarinn Ce- cilia Wenneström ásamt einvalaliði laugardagskvöld kl. 21.  VIÐ POLLINN, Akureyri: Pétur Kristjánsson og hljómsveit föstu- dags- og laugardagskvöld.  VÍDALÍN VIÐ INGÓLFSTORG: Bjórbandið leikur laugardagskvöld. FráAtilÖ Sóldögg halda stórdansleik með Ding Dong laugardagskvöld. HLJÓMSVEITIN Rolling Stones fagnar um þessar mundir 40 ára starfsafmæli sínu en það var 12. júlí árið 1962 á Marquee-klúbbnum í London sem þeir Brian Jones, Ian „Stu“ Stewart, Mick Jagger, Keith Richards, Dick Taylor og Mick Avory komu fyrst saman fram undir for- merkjum Steinanna. Aðdáendur sveitarinnar um heim allan keppast nú við að minnast þess- ara tímamóta og er Ísland þar engin undantekning. Í kvöld ætlar nefni- lega „landsliðið í Rolling Stones- fræðum“, eins og segir í fréttatil- kynningu, að halda tónleika á Nasa til heiðurs hljómsveitinni. Einar Bárðarson er annar skipu- leggjenda tónleikanna en hann segir meðframleiðanda sinn Óttar Felix Hauksson eiga hugmyndina að tón- leikunum. „Hann fékk þessa hugmynd í vetur og við höfum hreinlega bara verið að bíða eftir að afmælið rynni upp. Við erum að sjá það á Netinu að menn eru að efna til sams konar viðburðar um allan heim sem sýnir bara að góðar hugmyndir kvikna víða,“ sagði Einar. Einar segist halda mest upp á blús- tónlist Rolling Stones og sagði jafn- framt lagið „Mix- ed Emotions“ vera í uppáhaldi hjá sér. „Ég hef hlustað á Rolling Stones síðan ég var tveggja, þriggja ára og má segja að ég hafi bara fengið þá beint í æð með móðurmjólkinni. Ég fékk strax mikinn áhuga á plötu- spilaranum og plötum foreldra minna og spilaði Stones mikið,“ sagði Einar. Á allar plöturnar Á tónleikunum treður upp fjöldi landsfrægra söngvara og munu þeir að sögn Einars taka nokkur af sínum uppáhalds Stones-lögum. Einn þess- ara söngvara er Rúnar Júlíusson. „Ég held mest upp á fyrstu lög sveitarinnar en það er erfitt að nefna eitthvað eitt uppáhalds. Þau eru svo mörg,“ sagði Rúnar. „Í kvöld ætla ég að flytja nokkur af þeim blúslögum sem þeir fluttu í upphafi ferilsins.“ Rúnar segir Rolling Stones eitt merkasta band sem uppi hafi verið og segir að fáir komist með tærnar þar sem þeir hafa hælana í áhrifum á tón- listarsöguna. Hann hefur tvisvar bar- ið hljómsveitina augum á tónleikum í Bandaríkjunum árið 1975 og var að eigin sögn mjög hrifinn. „Ég hef alltaf haldið mikið upp á Stones og hef fylgst með þeim frá upphafi,“ sagði Rúnar. „Ég fjárfesti í fyrstu plötu þeirra strax og hún kom út og hef eignast allar þeirra plötur síðan.“ Hljómsveit kvöldsins skipa þeir Ásgeir Óskarsson, Haraldur Þor- steinsson, Tryggvi Hübner, Vilhjálm- ur Guðjónsson og Þórir Ólafsson en auk Rúnars munu eftirfarandi söngv- arar bregða sér í skó Jaggers: Björg- vin Halldórsson, Pétur Kristjánsson, Óttar Felix Hauksson, Arnar Sigur- björnsson úr Brimkló og þeir Pol- lock-bræður Danny og Mike. Húsið verður opnað klukkan 21. 40 ára starfsafmæli Rolling Stones fagnað í kvöld Rolling Stones á sokkabandsárum sínum. Steina- veisla á Nasa birta@mbl.is Rúnar Júlíusson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.