Morgunblaðið - 11.07.2002, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
„ÉG var bara að veiða og tók einu skrefi of mikið
og missti fótanna. Ég þóttist vera búinn að sjá
botninn, og mér fannst þetta vera í lagi, “ sagði
Gunnar Egilsson stangveiðimaður sem lenti í
hrakningum í gærmorgun á veiðisvæðinu fyrir
Ásgarðslandi í Grímsnesi, á Ásgarðsbreiðunni.
Neyðarástand skapaðist er Gunnar lenti í Soginu
þegar hann missti fótanna, en hann var að vaða í
ánni við annan mann og barst áfram með
straumnum. Félagi hans komst í land og hringdi
í Neyðarlínuna sem kallaði út björgunarsveitar-
menn frá Árborg.
Gunnar barst um 300 metra niður ána og kom
að landi við Ásgarðslæk. Þá höfðu veiðimenn
fyrir Bíldsfellslandi kallað eftir hjálp og Árni á
Bíldsfelli kom Gunnari til hjálpar og líka félaga
hans sem óð heldur langt við að reyna að hjálpa
honum og komst í sjálfheldu.
„Ég fór strax á bakið og reyndi að svamla með
hendurnar út og koma mér þannig að landi. Ég
var búinn að ná tánum niður í botn en missti fót-
festuna og flaut niður þvert á strauminn. Það
greip mig örvænting um tíma og ég hélt að þetta
væri mitt síðasta þarna í ánni en mér tókst að
halda ró minni og svo kom hjálpin,“ sagði Gunn-
ar sem hélt veiðunum áfram síðdegis, sagðist
hafa farið í heita sturtu og gufubað og verið
fljótur að jafna sig en vöðlurnar sem hann var í
voru fullar af vatni.
Gunnar þakkar vitneskju sinni um rétt við-
brögð við þessar aðstæður að honum tókst að
halda ró sinni. „Ég kynntist þessum viðbrögðum
á námskeiði hjá Gylfa Pálssyni hér í Soginu en
Gylfi sýndi okkur þetta með því að skella sér í
ána. Ég hugsaði til þessa námskeiðs og það kom
sér vel. Svo er auðvitað vitleysa að vera hér að
vaða án þess að vera með björgunarvesti, “ sagði
Gunnar.
Stangveiðimaður hætt kominn í Soginu
„Hélt að þetta væri
mitt síðasta þarna í ánni“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gunnar Egilsson kominn á þurrt eftir hrakn-
ingana í Soginu, furðufljótur að jafna sig.
Morgunblaðið/RAX
.
ÞAÐ er bjart yfir bændum í góðri
tíð og það ætti Tryggvi Ólafsson á
Skeiðflöt í Mýrdal að geta vitnað
um þessa dagana. Heyskapur hefur
gengið nokkuð vel í Mýrdal í sumar
og eru margir bændur langt komn-
ir með fyrri slátt og sumir að verða
búnir. Grasspretta er reyndar ekki
eins mikil og í fyrra enda hafði
kuldakast í vor sitt að segja.
Fyrri
sláttur langt
kominn í
Mýrdal
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu hefur tilkynnt að á
næstunni verði auglýst eftir fjárfest-
um sem vilja kaupa að minnsta kosti
fjórðung í Landsbanka Íslands og
Búnaðarbanka Íslands og hafa þeir
frest til 25. júlí nk. til að skila til-
kynningum þess efnis.
Í auglýsingunni kemur fram að
framkvæmdanefndin, fyrir hönd við-
skiptaráðherra, leiti eftir innlendum
eða erlendum fjárfestum með það að
markmiði að efla bankana og sam-
keppni á íslenskum fjármálamark-
aði.
Gera skal grein fyrir fjárhags-
stöðu, þekkingu og reynslu
„Í tilkynningunni skal gera grein
fyrir fjárhagsstöðu, þekkingu og
reynslu á fjármálamarkaði, eignar-
hlut sem viðkomandi óskar eftir
kaupum á, hugmyndum um stað-
greiðsluverð og áformum varðandi
rekstur þess banka sem áhugi er á,“
segir m.a. í auglýsingunni.
Fram kemur að kaupendur skulu
uppfylla skilyrði um hæfi eigenda
virkra eignarhluta og tekið fram að
umræddur hlutur verði aðeins seld-
ur í öðrum bankanum nú, fáist við-
unandi verð og viðræður leiði til sölu,
en stefnt að því að hlutur í hinum
bankanum verði seldur síðar á árinu.
Landsbanki
og Búnaðarbanki
Auglýst
eftir fjár-
festum
HINN
heimsfrægi
breski tón-
listarmaður
Eric Clap-
ton er
staddur hér
á landi við
laxveiðar í
Laxá á Ás-
um í Austur-Húnavatnssýslu.
Hann gistir á Hótel Blöndu og
er án fjölskyldu sinnar og verð-
ur á landinu til fimmtánda júlí.
Clapton brá sér í verslunarferð
í Kaupfélag Húnvetninga í
fyrradag og mun samkvæmt
fréttum www.huna.is hafa gefið
nokkrum ungum Blönduósbú-
um eiginhandaráritun sína
handa „mömmu og pabba“ að
sögn þeirra.
Eric Clap-
ton í Laxá
á Ásum
SEÐLABANKINN mun huga að
vaxtabreytingum í tengslum við
næstu verðbólguspá sem gefin verð-
ur út 1. ágúst nk. Birgir Ísleifur
Gunnarsson, seðlabankastjóri, segir
í samtali við Morgunblaðið, að það sé
í samræmi við það sem lýst var yfir
af hálfu Seðlabankans við síðustu
vaxtalækkun, að óháð því hvernig
mælingin nú myndi koma út, myndi
Seðlabankinn huga að vaxtalækkun
síðar.
Vísitala neysluverðs miðuð við
verðlag í júlíbyrjun var 223 stig og
hækkaði um 0,09% frá fyrra mánuði.
Hækkunin var minni en búist hafði
verið við en fjármálafyrirtækin
höfðu spáð 0,2–0,3% hækkun vísitöl-
unnar á milli júní og júlí. Tólf mán-
aða verðbólga er 4,1% og er komin
niður fyrir þolmörk verðbólgumark-
miðs Seðlabanka Íslands sem eru
4,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
0,5% sem jafngildir 2% verðbólgu á
ári, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir að þessi
litla hækkun nú komi ekki á óvart.
Gústaf Adolf Skúlason, forstöðu-
maður hjá Samtökum atvinnulífsins,
segir það mat SA að afleiðingar
gengislækkunar krónunnar á síðasta
ári séu að fullu komnar fram og verð-
bólgukúfurinn sé afstaðinn.
Í Morgunpunktum Kaupþings í
gær segir m.a. að vaxtalækkun hljóti
að vera á næsta leiti þar sem raun-
stýrivextir séu komnir í um 4,4%.
„Snöggur viðsnúningur hlýtur að
kalla eftir snöggum viðbrögðum frá
Seðlabankanum, en það tekur
nokkra mánuði fyrir vaxtalækkanir
að hafa áhrif á hagkerfið,“ segir
meðal annars í punktunum.
Hugað að vaxta-
breytingum 1. ágúst
Vísitalan/B1
TVEIR vatnamælingamenn fengu
brennisteinseitrun við Skaftá í gær
og fyrrinótt, en reyndust ekki alvar-
lega skaðaðir og voru útskrifaðir að
lokinni skoðun á slysadeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi í gær.
Mennirnir voru að vinna við
Skaftá og sváfu í skála nálægt ánni
en talið er að eitrun úr ánni hafi verið
meiri en ella vegna mikils logns.
Þegar þeir vöknuðu fundu þeir fyrir
sviða í augum og öndunaróþægind-
um. Þeir voru fluttir með þyrlu til
Reykjavíkur og að sögn læknis á
slysadeild reyndust þeir ekki alvar-
lega skaðaðir. Um væri að ræða
skaða á hornhimnu sem ætti að gróa
á nokkrum dögum.
Með brenni-
steinseitrun