Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 1
172. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 25. JÚLÍ 2002
SHIMON Peres, utanríkisráðherra
Ísraels, sagði í gær að Ísraelsher
hefðu orðið á mistök með því að
varpa sprengju á byggingu í Gaza-
borg til að ráða Hamas-leiðtoganum
Salah Shehade bana á mánudag.
Fjórtán aðrir féllu, þeirra á meðal
níu börn, þegar öflugri sprengju,
tonni að þyngd, var varpað á hús
Shehade í íbúðarhverfi í Gaza-borg.
Peres kvaðst harma árásina og sagði
að tildrög blóðsúthellinganna yrðu
rannsökuð.
Peres sagði í viðtali við CNN-sjón-
varpið að Ísraelsher hefði átta sinn-
um frestað því að gera loftárás á hús
Hamas-leiðtogans áður en látið var
til skarar skríða á mánudag. „Í þetta
sinn áttu sér stað mistök, því miður.“
Utanríkisráðherrann bætti við að
Shehade hefði staðið fyrir tugum
sprengjuárása á óbreytta borgara í
Ísrael. „Shehade var nokkurs konar
bin Laden Palestínu, bar ábyrgð á
dauða meira en 200 manna.“
Ráðamenn ríkja út um allan heim
hafa fordæmt sprengjuárásina.
Embættismenn í Ísrael sögðu að
ekkert væri hæft í fréttum um að
Hamas og fleiri herskáar hreyfingar
Palestínumanna hefðu léð máls á
vopnahléi nokkrum klukkustundum
fyrir blóðsúthellingarnar í Gaza-
borg. Embættismennirnir sögðu að
fyrirmælin um árásina hefðu byggst
á ónákvæmum upplýsingum frá
leyniþjónustunni. Herinn kvaðst
ætla að rannsaka málið.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, sagði skömmu eftir loftárás-
ina að hún væri „ein af best heppn-
uðu aðgerðum“ hersins en dagblað
hafði eftir honum í gær að hann hefði
frestað árásinni hefði hann vitað að
óbreyttir borgarar væru í bygging-
unni.
„Samkvæmt þeim upplýsingum
sem við höfðum voru engir óbreyttir
borgarar nálægt Shehade,“ sagði
Binyamin Ben-Eliezer, varnarmála-
ráðherra. Moshe Katsav, forseti
Ísraels, sagði að svo virtist sem her-
inn hefði fengið „ófullnægjandi upp-
lýsingar“ frá leyniþjónustunni en
stjórn landsins bæri samt ábyrgð á
„slysinu“.
Sharon, Ben-Eliezer og Peres
komu saman í gær til að ræða hvort
hefja ætti viðræður að nýju við pal-
estínska embættismenn um öryggis-
mál. Palestínska heimastjórnin
kvaðst ekki hafa ákveðið hvort hún
féllist á slíkar viðræður.
Heimastjórnin fær 10%
af skatttekjunum
Peres sagði eftir fundinn að Ísra-
elar hefðu enn í hyggju að flytja her-
sveitir sínar af svæðum í Hebron og
Betlehem, sem voru hernumin í síð-
asta mánuði, ef ekki kæmi til átaka
þar. Herinn léði einnig máls á því að
fara frá borginni Ramallah.
Utanríkisráðherrann kvaðst einn-
ig hafa skýrt heimastjórninni frá því
að hún fengi andvirði 3,6 milljarða
króna, eða 10% af þeim skatttekjum
sem Ísraelar hafa neitað að afhenda
henni frá því að átökin hófust fyrir
tæpum tveimur árum. Ísraelar hefðu
einnig gefið heimastjórninni upp
skuld að andvirði 2,6 milljarða króna
vegna efnahagslegra þrenginga Pal-
estínumanna.
Utanríkisráðherra Ísraels harmar blóðsúthellingarnar í Gaza-borg
Viðurkennir mistök hers-
ins og heitir rannsókn
AP
Ísraelskur hermaður fylgist með erlendri konu mótmæla loftárás Ísraelshers á íbúðarhús í Gaza-borg á
mánudagskvöld með því að úða málningu á ísraelskan brynvagn í borginni Ramallah á Vesturbakkanum.
Jerúsalem, Gaza-borg. AP, AFP.
Hvernig verður / 32-33
LÖGREGLUKONA heldur á sjö
ára stúlku, sem var rænt á götu í
Fíladelfíu í Bandaríkjunum á
mánudag en slapp af eigin ramm-
leik upp úr kjallara þar sem
mannræningjarnir höfðu skilið
hana eftir.
Stúlkan var bundin á höndum
og fótum með límbandi, auk þess
sem bundið var fyrir augu hennar
og munn. Lögreglan sagði að
stúlkan hefði bitið sundur lím-
bandið og brotið rúðu í kjall-
aranum til að gera vart við sig.
Mannræningjarnir höfðu krafist
lausnargjalds að andvirði tæpra
13 milljóna króna. Tveggja manna
á þrítugsaldri er nú leitað vegna
málsins.
Þremur ungum stúlkum hefur
verið rænt í Bandaríkjunum á
undanförnum mánuðum og hafa
tvær þeirra fundist látnar.
Slapp úr
klóm mann-
ræningja
AP
DOW Jones-hlutabréfavísitalan
bandaríska hækkaði í gær um 480
stig, eða 6,4%, og er það næstmesta
hækkun í stigum á einum degi í sögu
vísitölunnar. Nasdaq-vísitalan
hækkaði um 4,96%.
Hlutabréf lækkuðu nokkuð í verði
eftir að kauphallarviðskiptin hófust í
New York en gengi þeirra tók að
hækka síðar um daginn, meðal ann-
ars vegna frétta um að samkomulag
hefði náðst á Bandaríkjaþingi um
lagafrumvarp sem á að herða eftirlit
með reikningsskilum fyrirtækja.
Sérfræðingar í verðbréfaviðskipt-
um voru þó efins um að batinn héld-
ist og bentu á að dæmi eru um að
hlutabréfavísitölurnar hafi snar-
hækkað en lækkað svo aftur.
Gengi hlutabréfa í tveimur af
stærstu bönkum Bandaríkjanna, JP
Morgan Chase og Citigroup, hækk-
aði nokkuð í gær eftir að hafa snar-
lækkað daginn áður vegna frétta um
að bankarnir hefðu hjálpað banda-
ríska miðlunarfyrirtækinu Enron að
fela versnandi fjárhag þess.
Verðfall í norrænum
kauphöllum
Mikið umrót var á hlutabréfa-
mörkuðum í Evrópu í gær, einkum í
kauphöllunum í Stokkhólmi, Kaup-
mannahöfn og Ósló.
Sax-vísitalan í Stokkhólmi lækk-
aði um 4,6% en skömmu fyrir lokun
var hún tæpum 7% lægri en daginn
áður.
KFX-vísitalan í Kaupmannahöfn
lækkaði um 5,4% og var það þriðja
mesta verðfall á einum degi í sögu
hennar, 2,4 prósentustigum meira en
eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum
11. september.
Aðalvísitala kauphallarinnar í
Ósló lækkaði um 5,49% og hefur ekki
lækkað jafnmikið á einum degi frá
21. september í fyrra þegar hún
lækkaði um 6,31%.
Helstu vísitölur í öðrum kauphöll-
um Evrópu lækkuðu um 0,6–2,1% en
um tíma var útlit fyrir að þær yrðu
rúmum 5% lægri en daginn áður.
Dow Jones-vísitalan
hækkar um 6,4%
Sagðir hafa aðstoðað / 24
RÍKISSTJÓRN Albertos Fuji-
moris, fyrrverandi forseta í
Perú, fékk yfir 200 þúsund
manns í sveitum Perú, m.a.
með hótunum, til að gangast
undir ófrjósemisaðgerðir á síð-
asta áratug að því er kemur
fram í nýrri skýrslu sem nú-
verandi stjórnvöld í Perú hafa
birt. Fernando Carbone heil-
brigðisráðherra segir að þáver-
andi ríkisstjórn hafi bæði boðið
ýmis fríðindi, svo sem matar-
gjafir, og hótað að sekta karla
og konur ef þau eignuðust fleiri
börn.
Sagt er frá skýrslunni á
fréttasíðu BBC. Er þar rakið
að aðgerðunum hafi einkum
verið beint gegn fólki af frum-
byggjaættum í sveitahéruðum
þar sem fátækt er mikil. Áætl-
uninni var hætt þegar Fuji-
mori flúði í hittiðfyrra til Jap-
ans undan vaxandi ásökunum
um víðtæka spillingu.
Í skýrslunni kemur fram að
læknar gerðu 215.227 ófrjó-
semisaðgerðir á konum og
16.547 á körlum á árunum 1996
til 2000. Til marks um fjölgun
aðgerðanna er nefnt að samtals
hafi 83 þúsund slíkar aðgerðir
verið framkvæmdar frá 1993 til
1996. Afleiðingin hefur orðið sú
að á sumum svæðum í landinu
er þegar fyrirsjáanlegt að
vinnuafl mun skorta í framtíð-
inni.
Carbone heilbrigðisráðherra
sagði ljóst að Fujimori og aðrir
háttsettir embættismenn bæru
ábyrgð á þeim mannréttinda-
brotum sem þarna hefðu verið
framin. Hann sagði að rann-
saka þyrfi málið betur og þeim
sem ábyrgð bæru yrði refsað.
Neyddu
200.000
manns í
ófrjósem-
isaðgerðir