Morgunblaðið - 25.07.2002, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SÆLL Árni Sigfússon.
Ég vil þakka þér og þínum
mönnum fyrir framúrskarandi
röggsemi við að leysa málið með
víkingaskipið svo snilldarlega og
með því bjarga þjóðarsálinni frá
algjörri niðurlægingu og hneisu.
Það var ekki hægt að hugsa þá
hugsun til enda, ef stjórnvöld ætl-
uðu að launa glæsilegt framlag
Gunnars Marels með þeim aum-
ingjaskap einum að missa skipið úr
landi og stefna jafnvel honum
sjálfum í stórfelld fjárhagsleg
vandræði.
Eftir allt sem á undan var geng-
ið var ég orðinn ansi smeykur um
að skammsýni og jafnvel áhuga-
leysi ráðamanna yrði til þess að
málinu yrði klúðrað. Ég vissi að
Reykjavíkurborg hafði samþykkt
að skoða málið með jákvæðum
huga ef ríkið kæmi að málinu. Því
beið ég eftir fréttum frá ríkinu og
ég vissi að sú bið gat oft orðið ansi
löng. En að Reykjanesbær kæmi
að málinu með slíkum glæsileik …
ja, ég verð að viðurkenna að á því
átti ég ekki von. Aðallega vegna
þess að ég taldi slíkt varla á færi
einstakra bæjarfélaga.
Það sem vekur sérstaka athygli
mína er hvernig staðið er að mál-
inu, hversu faglega er farið í málið.
Það er ekki bara seilst í sjóð bæj-
arins og greitt, heldur er farið í
það að semja niður skuldir sem
hvíla á skipinu og jafnframt leitað
stuðnings frá fyrirtækjum og
áhugasömum aðilum um að koma
að málinu. Auk þess er hugsað
lengra, um aðstöðu fyrir skipið og
hvernig skuli staðið að notkun þess
í nánustu framtíð. En það sem mér
fannst toppa þetta „pakkatilboð“ í
lausn málsins var sú snjalla hug-
mynd að fá Gunnar Marel í lið með
ykkur til að sjá um skipið og miðla
fróðleik og reynslu sinni til Íslend-
inga og erlendra ferðamanna. Það
er örugglega ekki hægt að fá betri
mann í það verkefni. Ef þetta er
ekki heildarlausn þá veit ég ekki
hvað á að kalla það. Mikið var
gaman að sjá ykkur saman að lok-
inni undirskrift svo glaða og sæl-
lega. Sérstaklega hvað Gunnar
Marel virtist ánægður með lyktir
málsins. Maður var kominn með
hálfgert samviskubit gagnvart
manninum eftir allar þessar fréttir
af erfiðum gangi málsins, því að
manni fannst að hann ætti betra
skilið eftir allt það erfiði og jafnvel
lífsháska sem áhöfnin lenti í við ís-
röndina á leiðinni til Grænlands.
Svona gjörning er ekki hægt að
toppa í bráð. Fyrir hann ber að
þakka. Með honum hefur uppruna
og sögu þjóðarinnar verið sýnd til-
hlýðileg virðing.
Því koma gleðifréttirnar af
Reykjanesinu sem himnasending
og þær gleðja mitt hógværa hjarta.
Ég tel að þetta framlag ykkar sé
unnið af mikilli framsýni og sanni
að bæjarmálapólitíkin þarf ekki
bara að snúast um holræsagjöld og
gatnagerð þótt það sé nauðsynlegt
með. Ég tel að ímynd Reykjanes-
bæjar hafi styrkst verulega við
þennan gjörning.
Að lokum vil ég óska þér til
hamingju með nýlegt kjör þitt sem
bæjarstjóri í Reykjanesbæ og óska
þér velfarnaðar í starfi. Það verður
tilhlökkunarefni að fylgjast með
störfum bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar í framtíðinni.
Megi Íslendingur ætíð fá góðan
byr.
ELÍAS SIGURÐSSON
teiknari,
Bræðraborgarstíg 10,
Reykjavík.
Frá Elíasi Sigurðssyni:
Morgunblaðið/Júlíus
Gunnar Marel og Árni Sigfússon handsala kaupin á Víkingaskipinu.
Takk fyrir
víkingaskipið…
Bréf til Árna Sigfússonar,
bæjarstjóra í Reykjanesbæ