Morgunblaðið - 25.07.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.07.2002, Blaðsíða 31
VERSLUNARMANNAHELGIN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 31 MARBERT Reykjavík og nágrenni: Snyrtistofa Hönnu Kristínar, Skeifunni, Libia Mjódd, Laugarnes Apótek, Nana, Hólagarði, Snyrtivörudeildir Hagkaups, Kringlunni, Skeifunni, Spönginni Snyrtivörudeild Hagkaup, Smáralind, Kópavogi, Zitas, Firði Hafnarfiði. Landið: Árnes Apótek, Selfossi, Apótek Vestmannaeyja, Húsavíkurapótek. Snyrtivörudeild Hagkaups, Akureyri, Silfurtorg, Ísafirði Glæsilegur kaupauki fylgir þegar keyptir eru tveir hlutir frá MARBERT Snyrtibuddan inniheldur 3 hluti úr Effectiva líkamslínunni sem dekra við þig · Effectiva Wellness Extra-Benefit Leg Gel 30 ml Milt og frískandi gel fyrir bólgnar og þreyttar fætur. Um leið og gelið er borið á fæturna finnur þú þreytuna líða burt og þannig verða fæturnir „léttir“ á ný. · Effectiva Active Wellness Body Fresh Lotion 30 ml Mild og frískandi húðmjólk sem inniheldur náttúrulegar olíur og er einstaklega góð fyrir þurra húð. Húðmjólkin styrkir og stinnir húðina og gefur henni silkimjúka áferð. · Effectiva Wellness Active Body & Hair Shampoo 30 ml Sérstaklega létt og mild sturtusápa fyrir hár og líkama með frískandi citrus ilmi sem hressir bæði líkama og sál. www.forval.is jafnhliða fjölbreyttri dagskrá fyrir fullorðna, þar sem meðal annars er boðið upp á fræðslu um hjónaband- ið og fjölskylduna, er sérstök dag- skrá fyrir börn og unglinga. Börn halda til dæmis sitt eigið Barnamót og unglingar hæfileikakeppnina Kotvisjón. Í tilkynningu frá mótshöldurum segir að Kotmót hafi verið mjög vel sótt undanfarin ár og síðastliðið ár komu á þriðja þúsund manns. Næg tjaldstæði eru á mótssvæðinu og aðstaða fyrir tjaldvagna og húsbíla. Þá er svefnpokapláss fyrir einstak- linga. Á staðnum er skáli með svefnaðstöðu sem rúmar á annað hundrað manns. Gistiaðstaðan í skálanum er einkum ætluð öldr- uðum, veikum og fólki með ung börn. Hægt er að kaupa mat á staðnum, ýmist fullt fæði allan tím- ann eða stakar máltíðir. Frítt er inn á mótssvæðið en selt í tjald- stæði. Neistaflug í Neskaupstað Neistaflug er hátíð sem haldin hef- ur verið í Neskaupstað síðan 1993 og verður hún því haldin í 10. skipt- ið þetta árið. Það er Blús, rokk og djassklúbburinn á Nesi (B.R.J.Á.N.) sem stendur fyrir há- tíðinni. Fjölskyldan hefur ætíð verið í fyrirrúmi á Neistaflugi enda hafa skipuleggjendur hátíðarinnar það alltaf að leiðarljósi að fá skemmti- krafta fyrir fólk á öllum aldri. Meðal þeirra atriða sem í boði verða eru hljómsveitirnar Manna- korn, Írafár og Í svörtum fötum. Gunni og Felix munu leiða sem fyrr stórskemmtilega barnadagskrá sem samanstendur af skemmtilegum at- riðum með bæði þekktum og óþekktum skemmtikröftum á borð við Pétur pókus og Karíus og Bak- tus. Fleiri landsþekktir skemmti- kraftar muna einnig láta ljós sitt skína yfir helgina, til dæmis Val- geir Guðjónsson og Jóhannes eft- irherma svo fáir séu nefndir. Ekki má gleyma föstum liðum frá fyrri árum eins og Barðsneshlaupinu, blakmóti, golfmóti, útidansleikjum, leiktækjum fyrir börnin, dorgveiði- keppni, tour de Norðfjörður, brunaslöngufótbolta, varðeld, brekkusöng, flugeldasýningu og svo mætti lengi telja. Þá má nefna að útvarp verður starfrækt í allri Fjarðabyggð með- an á hátíðinni stendur og verður þar fylgst náið með gangi mála. Frír aðgangur er á svæðið og einnig frí tjaldstæði. Síldarævintýrið á Siglufirði Það verður margt um að vera á Síldarævintýrinu 2002 á Siglufirði. KS heldur útibingó á föstudeginum og verður með skemmtiatriði fram á kvöld. Hljómsveitirnar Von, Flauel og Plan halda síðan uppi fjörinu. Eftir miðnætti hefjast dansleikir í húsum staðarins sem standa langt fram á nótt. Á laugardag og sunnudag verður samfelld skemmtidagskrá á Torg- inu. Þar munu Glanni glæpur, Ei- ríkur Fjalar, Pálmi Gestsson og margir fleiri láta sjá sig. Á eftir verður barnaball. Skemmtiatriðin á kvöldin verða ekki síðri en þá skemmta meðal annarra Stefán Karl Stefánsson, Pálmi Gestsson, Jóhann Sigurðsson, Halldóra Geir- harðsdóttir, Þórunn Lárusdóttir og Laddi. Hljómsveitirnar Von, Flauel og Íslendingar koma einnig fram. Dansleikir hefjast síðar í húsum bæjarins eftir skipulagða dagskrá á Torginu. Á sunnudeginum verður helgi- stund. Annað sem verður í boði á Síld- arævintýrinu 2002 eru Síldarminja- safnið, söltunarsýningar, söngur, dans og fleira. Þá mun Halla Har listakona, standa fyrir gler- og myndlistarsýningu. Sprellleiktæki verða á Torginu, hestaleiga í hest- húsahverfinu verður opin fram á kvöld, hægt verður að fara í báts- ferðir um fjörðinn og sundlaugin verður opin. Frír aðgangur er á svæðið en hóflegt gjald er fyrir gistingu á tjaldstæðum. Staðarfellshátíðin Á Staðarfelli verður haldin Mjólk- urgleði SÁÁ og Dalamanna um verslunarmannahelgina, en hátíðin er mikil fjölskylduhátíð. Eins og fyrri ár verður ýmislegt við að vera alla dagana. Hljóm- sveitin Bikkebane leikur fyrir dansi á föstudags- og laugardagskvöld en hljómsveitin Plast á sunnudags- kvöld. Ingveldur Ýr, Ómar Ragn- arsson, Pétur pókus og Bjarni töframaður koma fram á kvöldvök- unni á laugardag. Á kvöldvökunni á sunnudagskvöld mæta hins vegar á svæðið South River Band og Nikkólína, auk þess sem það verður sungið við varðeld og flugeldasýn- ing verður í boði. Flestir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi á hátíðinni, því að auki verður boðið upp á línudans- kennslu, loftkastala, hestaferðir, íþróttamót, skemmtiskokk, báts- ferðir, leikjamót, andlitsmálun, rat- leik, fjársjóðsleit, dansleiki, söngv- arakeppni og brekkusöng. Á svæðinu er veitingasala. Að- gangseyrir á hátíðina er 3.500 krónur en það er frítt fyrir 13 ára og yngri. Sæludagar í Vatnaskógi Um verslunarmannahelgina verða haldnir Sæludagar í Vatnaskógi fyrir alla fjölskylduna. Að Sæludög- um standa Skógarmenn KFUM og samkvæmt upplýsingum frá þeim er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Hátíðin er haldin í 11. skiptið en í fyrra sóttu rúmlega 1.400 manns hátíðina. Sæludagar í Vatnaskógi eru styrkt- ir af Forvarnarsjóði og er hátíðin með öllu vímulaus og neysla áfengis er óheimil. Aðstandendur hátíðar- innar leggja sig fram um það að fólk sem á engan hátt er tengt Vatnaskógi eða öðru kristilegu starfi finni sig velkomið. Í Vatnaskógi verður boðið upp á bátsferðir, leiktæki af ýmsum gerð- um, ásamt fullbúnu íþróttasvæði. Dagskráin er þéttskipuð alla dag- ana. Á laugardagskvöldinu verða tónleikar með hljómsveitinni Rut og KK og Ellen Kristjánsdóttur. Þá verður einnig harmónikkudansleik- ur. Á sunnudeginum verða Vatna- skógaleikarnir haldnir, þá verður grillveisla, kvöldvaka, varðeldur, brekkusöngur og bænastundir. Verð er 3.000 krónur en há- marksverð fyrir fjölskyldu er 7.000 krónur. Dagsheimsókn er 2.000 krónur. Innifalið í verði er tjald- stæði og aðgangur að allri dagskrá. Hægt er að fá gistingu í svefn- skálum og greiðist fyrir það sér- staklega. Veitingasala og kaffihús verða á Sæludögum og þar verður hægt að snæða nesti innandyra. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Að sögn forsvarsmanna þjóðhátíðar stefnir í þrusuþjóðhátíð þar sem hljómsveitirnar Á móti sól, Land og synir, Hljómar, Í svörtum fötum og Írafár munu spila á stóra sviðinu og Hljómsveit Birgis Gunnlaugs- sonar á litla sviðinu. Síðan eru há- punktarnir að vanda brennan, flug- eldasýningin og brekkusöngurinn. Vönduð barnadagskrá er á daginn og glæsileg kvöldvaka. Þeir sem vilja meiri gleði geta svo að sjálf- sögðu mætt á fimmtudeginum en þá fer hið frábæra húkkaraball fram í Týsheimilinu en þar munu Land og synir spila fyrir dansi. Þjóðhátíð Vestmannaeyja hefur í gegnum árin verið stærsta úthá- tíðin um verslunarmannahelgina og segja forsvarsmenn hátíðarinnar að þar sé hægt að ganga að gæðunum og fjörinu vísu. Verð inn á hátíðina í ár er 8.500 krónur. Verð í forsölu er 7.500 krónur og gildir það til 26. júlí. Börn yngri en 14 ára og ellilífeyr- isþegar fá ókeypis aðgang. Á sunnudeginum kostar 3.500 kr. inn á svæðið.                           !    " !" #"       $ %"  ' ( '        !          
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.