Morgunblaðið - 25.07.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.07.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Kvikmyndasjóðs mun á föstudag taka afstöðu til þess hvort Þorfinnur Ómarsson, sem var vikið tímabundið úr starfi framkvæmda- stjóra sjóðsins á þriðjudag, skuli áfram sitja í úthlutunarnefnd sjóðs- ins. Á mánudag á úthlutarnefnd að kynna stjórn sjóðsins hvaða verkefni hún leggur til að verði styrkt við end- urúthlutun úr sjóðinum. Til stendur að úthluta 75 milljónum króna í endurúthlutun úr Kvik- myndasjóði en styrkupphæð til þriggja mynda verður úthlutað aftur, þar sem aðstandendum þeirra tókst ekki að finna grundvöll fyrir fjár- mögnun þeirra innan ákveðins tíma. Þorfinnur segir að aðstandendur myndarinnar Kaldaljós, sem fékk á sínum tíma 40 milljónir, hafi áfrýjað þeirri niðurstöðu að þeir hafi fyrir- gert rétti sínum til styrks og því gæti heildarstyrkupphæðin farið niður í 35 milljónir. Þorfinnur segist búast við því að hann sitji áfram í úthlutnarnefnd, þar sem setan í nefndinni sé óskyld störf- um hans sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Litið sé á nefndarstarfið sem aukastarf, hann hafi verið kosinn til setu í nefndinni til eins árs og sam- kvæmt því eigi hann að sitja í henni til 1. október næstkomandi. Hann segir að annars myndi endurúthlutun úr sjóðnum tefjast þó nokkuð, líklega yrði ekkert af henni. Þorfinnur segir að nefndin hafi enn ekki komist að niðurstöðu um tillögur um hvernig verði úthlutað. Það verði líklega klárað á föstudag eða um helgina. Hann segir að umsóknir sem bárust fyrir 1. október sl. verði teknar fyrir við endurúthlutun úr sjóðnum. Vilhjálmur Egilsson, formaður stjórnar Kvikmyndasjóðs, segir að seta Þorfinns í nefndinni verði rædd á stjórnarfundinum auk þess sem stjórnin þurfi að finna einhvern til að gegna stöðu framkvæmdastjóra með- an á tímabundinni brottvikningu Þor- finns stendur. Eigi hann að hætta í út- hlutunarnefndinni sé ekki seinna vænna en að það verði ákveðið á föstudag. Hann tekur undir það að endurúthlutun myndi dragast yrði Þorfinni vikið úr nefndinni. Aðspurð- ur um hvaða skoðun hann hafi á mál- inu segist Vilhjálmur ekki vilja ræða hana við fjölmiðla áður en hann hefur fundað með stjórn sjóðsins. Framkvæmdastjóri ákveður styrkveitingar í nýjum lögum Ný kvikmyndalög voru samþykkt á Alþingi í lok síðasta árs sem öðlast gildi um næstu áramót. Samkvæmt 7. grein laganna tekur forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, sem verður arftaki Kvikmyndasjóðs, end- anlega ákvörðun um veitingu fjár- stuðnings úr Kvikmyndasjóði til und- irbúnings, framleiðslu og/eða dreifingar íslenskra kvikmynda. Seg- ir Þorfinnur að í reglugerð, sem eftir eigi að semja, verði nýjar úthlutnar- reglur útlistaðar, forstöðumaðurinn eigi að hafa úthlutunarráðgjafa með í ráðum sem einnig verði nánar kveðið á um í reglugerð. Í greinargerð sem Ríkisendurskoð- un gerði fyrir menntamálaráðuneytið segir, að ekki hafi fundist reikningar fyrir 363 þúsund krónum í ársreikn- ingum fyrir árin 2000 og 2001. Verður að mati Ríkisendurskoðunar ekki komist hjá því að gera forstöðumann- inum að endurgreiða umræddan kostnað þar sem fullnægjandi fylgi- skjöl hafi ekki komið fram. Komi þau í leitirnar síðar beri að taka tillit til þeirra, „enda ekki um það deilt að kostnað þennan á sjóðurinn að bera ef fullnægjandi fylgiskjöl eru lögð fram,“ eins og segir í skýrslunni. Þorfinnur segist skilja þetta sem svo að hann hafi tækifæri til að reyna að finna reikningana sem töpuðust þegar stofnunin flutti fyrir rúmu ári. „Ég á eftir að ræða við þá en ég geri það sem mér er sagt að gera. Þó ekk- ert af þessu hafi verið fyrir mig get ég ekkert annað gert ef það er þeirra niðurstaða. Á móti kemur að ég á ýmsa hluti í inneign sjálfur sem ég geri ráð fyrir að komi á móti,“ segir Þorfinnur. Gjörbreyting til batnaðar Vilhjálmur segir að Ríkisendur- skoðun hljóti að gera þær kröfur til meðferðar fjármuna ríkisins að fylgi- skjöl fylgi greiðslum. Það gangi ekki upp að ekki séu til reikningar fyrir út- gjöldum. „En hann hefur gefið trú- verðugar skýringar á þessum út- gjöldum og það er enginn sem telur að það sé einhver óheiðarleiki þarna á ferðinni,“ segir Vilhjálmur. Í greinargerð Ríkisendurskoðunar til ráðuneytisins er tekið fram að gjörbreyting hafi orðið til batnaðar á bókhaldi, afstemmingu og vörslu á síðustu misserum en fyrir nokkru hafi skrifstofustjóra Kvikmyndasjóðs ver- ið falið að annast í mjög auknum mæli þá þætti í rekstri sjóðsins. Stjórn Kvikmyndasjóðs fundar um hvort Þorfinnur Ómarsson skuli sitja áfram í úthlutunarnefnd Myndi tefja fyrir úthlutun úr sjóðnum VEGAFRAMKVÆMDIR standa nú sem hæst á Reyðarfirði og auk- in eftirspurn er eftir húsnæði í Fjarðabyggð, hvort tveggja í beinu sambandi við fyrirhugað álver Alcoa í landi Sómastaða á Reyðarfirði. Að auki hefur landi verið úthlutað til nýbygginga á Reyðarfirði og stefnt að því að byggja þar átta nýjar íbúðir – ef álvershugmyndirnar verða að veru- leika, sem fáir virðast reyndar efast um. Byrjað að spyrja um húsnæði „Það vantar húsnæði hérna og það hefur komið hingað fólk til að spyrjast fyrir um húsnæði,“ segir Einar Dalberg Einarsson trésmið- ur, sem hyggst auglýsa teikningar að 92 fermetra íbúðum við Stekkjagrund og byggja þær síðan í framhaldinu fái hann kaupendur. „Fólk kemur pottþétt ef álverið kemur, en menn vilja sjá það í hendi sér áður en farið er að fjár- festa í eignum hér. Ef álverið kem- ur ekki, þá er útséð með að það kemur aldrei og þá er engin glóra í að eiga einhverja eign hér,“ segir hann. Ljóst er því af orðum hans að hugmyndir hans eru algjörlega háðar álverinu, en um sjö ár eru síðan nýtt íbúðarhúsnæði var byggt á Reyðarfirði. Ásmundur Ásmundsson, umboðs- maður hjá Hóli, fasteignasölu fyrir Fjarðabyggð og Suðurfirði, segir bjart yfir fasteignamarkaðinum enda sé fólk hvaðanæva af landinu að spyrjast fyrir um húsnæði. „Fólk er að forvitnast um verðið en svo er annað mál hvort því líkar húsin,“ segir hann. Meirihlutinn af húsnæðinu sem er til sölu hérna er byggður milli 1960 og 1970. Bygg- ingarform og -skipulag þess tíma hentar e.t.v ekki ungu fólki og það kann að verða erfitt að selja slíkt húsnæði fyrst um sinn. En ef ál- vershugmyndin verður að veruleika með vaxandi eftirspurn eftir hús- næði, þá held ég að fólk geti alveg hugsað sér að kaupa slíkt húsnæði á 20 til 25% lægra verði en ný- byggingar.“ Ásmundur segir aðspurður hvort seljendur sitji á húsnæði í von um að fá hærra verð fyrir það síðar, að til séu þeir sem vilji bíða, enda þegar búnir að bíða í 2–3 ár og telja skaðlaust að bíða í nokkra mánuði til viðbótar í von um að hagnast um nokkrar milljónir króna fyrir vikið. Það er ekki eingöngu á fast- eignasviðinu sem merkja má nánd álvers, því ekki þarf að líta lengra en rétt út fyrir byggðina á Reyð- arfirði til að sjá vegavinnumenn hamast við lagningu nýs fjögurra kílómetra vegar út að Framnesi, sem er skammt frá Sómastöðum, en þar er gert ráð fyrir að álverið sjálft rísi. Verktakafyrirtækið Myll- an ehf. á Egilsstöðum annast fram- kvæmdina fyrir Vegagerðina og segir Unnar Elísson, fram- kvæmdastjóri Myllunnar, að vega- lagningin taki mið af þyngri um- ferð en á hefðbundnum vegum og því verði vegurinn sérstyrktur og hafður breiðari en gengur og ger- ist, eða 8,5 metrar. „Vinnan hefur gengið ágætlega. Það hefur reyndar verið mjög úrkomusamt í vor og blautt sumar, sem hefur tafið svolítið,“ segir Unnar. Milli 10 og 15 manns vinna við vegagerðina og fyrir þeim fer Viðar Hauksson verkstjóri, sem staðfesti rækilega orð Unnars um vætutíðina um leið og hann fór inn í rammgerðan gám fullan af dína- míti sem notað er í malarnám fyrir nýja veginn. „Þetta hefur gengið þokkalega en við höfum tafist töluvert vegna breytinga sem urðu á verkinu.“ Breytingarnar sem hann á við eru frestun á lagningu síðasta kíló- metrans, milli Framness og Sóma- staða. Fram kom í samtali við Unnar Elísson að Myllan hefði orð- ið fyrir óþægindum af þessum sök- um. Alcoa-menn vildu fá veginn færðan Tildrögin eru að hans sögn þau að Alcoa taldi síðasta kaflann fara of nærri álverslóðinni og því hefði Alcoa farið fram á að vegurinn yrði færður nokkru vestar, ofar í hlíðina. „Þeir töldu að nýi veg- urinn, sem er verið að leggja núna, væri of nálægt lóðinni og fóru fram á það við Vegagerðina að vega- framkvæmdinni yrði frestað um einn mánuð og Vegagerðin varð við þeirri beiðni. Alcoa vildi fá allt að 100 metrum stærra svæði.“ Unnar segist hafa beðið í mánuð með framkvæmd á þessum hluta vegarins og af því hafi skapast óþægindi. „Ég var einmitt búinn að vinna skipulag vegarins næst lóðinni í vetur og það hafði óþæg- indi í för með sér að þurfa að hætta þar.“ Spurður út í þetta segir Sveinn Sveinsson tæknifræðingur hjá Vegagerðinni að engin ákvörðun liggi fyrir um hvort vegurinn verði færður að beiðni Alcoa. Hann segir gerlegt að færa vegstæðið ofar í hlíðina þótt það sé verri og dýrari kostur. Hann segir málið á frum- stigi eftir óformlega fyrirspurn frá Alcoa í vor. Af öðrum samgöngumálum sem standa í tengslum við stór- framkvæmdir má nefna opnun út- boða þann 6. ágúst í Kára- hnjúkaveg, um 25 km langan veg milli Laugafells og Kárahnjúka, auk 18 km langs vegar milli Atla- víkur og Valþjófsstaðar sem lokið var við í sumar með tilkomu fjög- urra nýrra brúa, þar af einnar yfir Jökulsá í Fljótsdal. Fyrstu ný- byggingarn- ar í sjö ár Morgunblaðið/Kristinn Aukinnar bjartsýni gætir hjá verktökum á Austurlandi í kjölfar undirritunar yfirlýsingar um byggingu álvers. Á Egilsstöðum er verið að byggja hús þessa dagana og á Reyðarfirði eru menn að undirbúa framkvæmdir. Farið er að spyrjast fyrir um húsnæði í Fjarðabyggð og stefnt er að byggingu nýrra íbúða á Reyðarfirði í fyrsta sinn í áraraðir vegna fyrirhugaðs álvers í landi Sómastaða, eins og Kristinn Ingvarsson og Örlygur Steinn Sigurjónsson rekja í máli og myndum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.