Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðleg knattspyrnuhátíð um helgina
Fótbolti og fjör
í Laugardal
KnattspyrnufélagiðÞróttur stendurfyrir alþjóðlegri
knattspyrnuhátíð í Laug-
ardal í samvinnu við ÍT-
ferðir, Visa og Reykjavík-
urborg. Mótið nefnist
VISA-Rey Cup og hefst í
dag, 25. júlí, og stendur yfir
helgina. Morgunblaðið
ræddi við Kristin Einars-
son, formann knattspyrnu-
félagsins Þróttar.
– Hvernig kom það til að
þið ákváðuð að halda al-
þjóðlegt mót?
„Þannig var mál með
vexti að nokkrir foreldrar
fóru að ræða um þær að-
stæður í keppnismálum
sem byðust unglingum,
þriðja og fjórða flokki, í
boltanum. Frá þeim aldri
er einungis um að ræða mót er-
lendis, og við veltum fyrir okkur
hvers vegna væri ekki stofnað til
sams konar móts hér heima. Í ljós
kom, að aðstaðan í Laugardal væri
tilvalin til mótshalds af þessu tagi.
Mikil vinna og tími hefur farið í að
byggja upp stórgóða aðstöðu í
Laugardalnum. Við höfum marga
velli, sundlaugina og Laugardals-
höllina. Framkvæmd knatt-
spyrnuhátíðarinnar byggist alger-
lega á fórnfúsu starfi foreldranna í
Þrótti og væri óhugsandi ef ekki
kæmi til stórkostlega öflugt ung-
linga- og foreldrastarf. Þannig
hefur mótsstjórinn okkar, Guð-
mundur Vignir Óskarsson, sem er
einn af frumkvöðlum hugmyndar-
innar, helgað sig undirbúningi há-
tíðarinnar vikum saman og hann
ásamt fjölda foreldra og starfsfólk
Þróttar leggja sig öll fram til að
gera þetta sem veglegast og
skemmtilegast fyrir alla. Fyrir
þetta er ég innilega þakklátur.“
– Er ætlunin að fleira verði gert
en að spila fótbolta?
„Já, svo sannarlega. Undirtitill
mótsins er „fótbolti og fjör“, og
með þau orð að leiðarljósi höfum
við lagt áherslu á að bjóða upp á
fjölbreytta skemmti- og afþrey-
ingardagskrá í tengslum við hátíð-
ina. Við teljum mjög mikilvægt að
leyfa krökkunum að skemmta sér
saman á heilbrigðan og góðan
máta, og leggjum mikla vinnu í
góða skemmtidagskrá.“
– Hefur mótið forvarnagildi að
ykkar mati?
„Já, tvímælalaust. Við teljum
mjög mikilvægt að boðið sé upp á
heilbrigðan vettvang fyrir ung-
lingaskemmtun af þessari stærð í
stað útihátíða með misjöfnum af-
leiðingum. Allir þeir sem við höf-
um leitað til hafa skynjað jákvætt
gildi mótsins og þörfina fyrir það.
Við höfum einnig fundið fyrir
stuðningi og velvilja margra knatt-
spyrnufélaga hér í borginni, til
dæmis Víkings og Fjölnis, sem
munu eflaust koma að framkvæmd
hátíðarinnar síðar.“
– Þið hafið leitað samstarfs við
Reykjavíkurborg.
„Já, eðlilega höfðum við sam-
band við Reykjavíkurborg vegna
undirbúnings og fram-
kvæmdar. Í einu orði
sagt hefur samstarfið
gengið stórkostlega, við
höfum fengið mjög góð
viðbrögð frá borginni.
Frítt verður í sund, strætó, á Ár-
bæjarsafn og í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn. Að sama skapi fáum
við afnot af aðstöðunni í Laugar-
dal. Borgin áttar sig á hve mik-
ilvægt er að styðja starf af þessu
tagi, því að ef rétt er á málum hald-
ið getur það orðið að stórmóti sum-
arsins með fjölda erlendra liða. Við
vitum að það tekur nokkur ár að
koma svona knattspyrnuhátíð af
stað, og erum vissir um að þegar
tilvist mótsins fréttist muni fjöldi
liða vilja vera með. Ferðaskrifstof-
an ÍT-ferðir hefur hjálpað okkur
með markaðssetningu og önnur
mál á þeirra sérsviði, og við leyfum
öllum að gista í grunnskólum í ná-
grenninu. Reykvískum þátttak-
endum er einnig boðið að gista í
skólunum, það skapar stemningu á
mótinu. Reykjavík hefur hlotið
mikla athygli í tengslum við kynn-
ingarstarf mótsins, sem eflaust á
eftir að skila sér þegar hátíðinni
hefur vaxið fiskur um hrygg.“
– Hvaða erlend lið eru með í ár?
„Í ár eigum við von á liði Bolton
og Stoke í heimsókn til okkar. Það
er mjög ánægjulegt að fá þessi lið
til landsins. Þess má einnig geta að
gengið hefur verið frá samstarfi
við eitt stærsta fótboltamót sum-
arsins, Graham Taylor Watford
London-fótboltamótið um að eitt
íslenskt lið verði dregið úr potti og
fari utan til þeirra, og að sama
skapi muni eitt lið úr þeirra móti
koma til okkar.“
– Hvernig verður keppni háttað
á mótinu?
„Við eigum von á um 30 liðum,
og verður leikinn 11 manna fót-
bolti, bæði karla og kvenna. Alls
verða því um 400–500 manns að
keppa. Fyrst er keppt í riðlum á
fimmtudag og föstudag, undanúr-
slit á laugardag og úrslitaleikirnir
verða á sunnudaginn. Þá verður
leikið á aðalleikvangin-
um í Laugardal.“
– En fjörið, af hvaða
toga verður það?
Það verður af öllu
tagi. Af atriðum má
nefna sundlaugarpartí í Laugar-
dalslaug á fimmtudagskvöld. Á
föstudagskvöldið er Rey Cup
diskótek í skautahöllinni, og á
laugardagssíðdegi verður grill-
veisla í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum. Eftir hana er lokahóf og
ball í Broadway. Við mótslok er
svo ferð í Bláa lónið.“ Allar nánari
upplýsingar má finna á
www.reycup.is.
Kristinn Einarsson
Kristinn Einarsson fæddist ár-
ið 1956 og ólst upp á Ísafirði.
Stúdent frá Menntaskólanum á
Ísafirði 1976. BA-próf í fé-
lagsfræði frá Háskóla Íslands.
Stundakennari í félagsfræði við
Menntaskólann í Reykjavík frá
1981. Sölu- og markaðsstjóri
Blómavals frá árinu 1987 og
framkvæmdarstjóri Blómavals
frá árinu 2001. Formaður ung-
lingaráðs Þróttar árið 1999 og
formaður félagsins árið 2001.
Kristinn er kvæntur Rögnu Dóru
Rúnarsdóttur hjúkrunarfræðingi
og eiga þau tvö börn, Heiði og
Rúnar. Fyrir átti Kristinn dótt-
urina Hrafnhildi.
Fótbolti og
skemmtun til
skiptis
Ekki meira, Palli minn, allt búið.