Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 14
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mælastöðvar
Við mælum með
Fiskislóð 26 · Sími: 551 4680 · Fax: 552 6331
www.sturlaugur.is
i i l í i
l i
iskislóð 26 Sími: 551 4680
www.sturlaugur.is
SKAUTBÚNINGI Laufeyjar
Bjarnadóttur hefur verið komið fyr-
ir í veglegum skáp í brúðarhúsi
Gamla bæjarins að Laufási í Eyja-
firði og verður hann þar til sýnis
fyrir gesti safnsins.
Laufey var fædd að Laufási 12.
júlí 1857, yngst fjögurra barna pró-
fastshjónanna þar, sr. Björns Hall-
dórssonar og frú Sigríðar Einars-
dóttur. Hún saumaði búninginn
þegar hún dvaldi að Laugalands-
skóla en honum ætlaði hún að klæð-
ast er hún gengi í hjónaband með sr.
Guðmundi Helgasyni sem vígst
hafði til aðstoðarþjónustu á Hrafna-
gili. Til stóð að þau gengju í hjóna-
band síðari hluta ársins 1881, en
nokkru áður fékk Laufey svæsna
lungnabólgu og lést af hennar völd-
um 17. nóvember það ár. Ekkert
varð því úr brúðkaupinu og fékk
Laufey aldrei tækifæri til að skarta
hinum fagra búningi sínum.
Laufey Stefánsdóttir færði Gamla
bænum í Laufási skautbúninginn
síðasta sumar til minningar um
móður sína, Þóru Vilhjálmsdóttur
frá Munkaþverá, en Þóra var bróð-
urdóttir Laufeyjar Bjarnardóttur.
Viðgerð stóð þá yfir á brúðarhúsi
Gamla bæjarins og var búningurinn
því geymdur í Minjasafninu á Ak-
ureyri.
Sannfærð um að búningurinn
muni draga að gesti
Nú er viðgerð lokið og búið að
smíða utan um skautbúninginn skáp
þannig að gestum gefst nú kostur á
að skoða búninginn. Ingibjörg Sig-
laugsdóttir, staðarhaldari í Gamla
bænum, sagði að fleiri hlutum yrði
komið þar fyrir, svo sem þvottaskál
og sápu, enda hefðu konur notað
brúðarhúsið til að skola af sér ferða-
rykið er þær komu ríðandi til brúð-
kaups síns í Laufási í eina tíð. „Ég
er sannfærð um að fólk hefur áhuga
á að skoða þennan fallega búning og
við erum stolt af því að geta haft
hann hér til sýnis,“ sagði Ingibjörg.
„Ég held að hann muni draga til
okkar gesti.“
Sparisjóður Höfðhverfinga gaf
skápinn, sem Kristján Pétursson
smíðaði. Svo skemmtilega vill til að
sparisjóðurinn var stofnaður í Lauf-
ási eftir messu á nýársdag 1819 og
er hann næstelsta starfandi pen-
ingastofnun landsins.
Mjög góð aðsókn
að safninu í sumar
Ingibjörg sagði að aðsókn að
Gamla bænum í Laufási hefði verið
mjög góð í sumar. „Þetta hefur verið
fjörugt og gott sumar og mér sýnist
sem aðsóknin muni verða meiri en í
fyrrasumar. Þó hefur aldrei verið
eins margt um manninn hjá okkur
og þá,“ sagði Ingibjörg. Útlendir
ferðamenn eru ríflega helmingur
gestanna og er mikið um að sérhóp-
ar af ýmsu tagi staldri við í Gamla
bænum. Safnið er opið til 15. sept-
ember næstkomandi og er opið dag-
lega frá kl. 10 til 18. Í þjónustuhúsi
er rekið veitingahús með þjóðlegum
veitingum og þar er einnig lítil
minjagripasala.
Um 120 ára gamall skautbúningur til sýnis í Laufási
Fékk aldrei tæki-
færi til að klæð-
ast búningnum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Laufey ætlaði að klæðast bún-
ingnum við brúðkaup sitt en hún
lést skömmu áður en að því kom
og fékk því aldrei tækifæri til að
skarta honum sjálf. Gestir í
Laufási geta nú virt búning
hennar fyrir sér í sýningarskáp í
brúðarhúsi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skautbúningur Laufeyjar Bjarnadóttir er nú til sýnis í brúðarhúsi
Gamla bæjarins í Laufási. Fyrsti gesturinn, Gunnar Þorvaldsson úr
Reykjavík, skoðar búninginn, sem saumaður var árið 1881.
RÓTARÝKLÚBBUR Akureyrar
hélt sinn þrjúþúsundasta fund fyrir
skömmu, en klúbburinn var stofn-
aður 4. september 1938 og er annar
elsti rótarýklúbbur landsins.
Á þessum tímamótum var dr. Þor-
steini Gunnarssyni, rektor Háskól-
ans á Akureyri, og rótarýfélögunum
Bernharð Haraldssyni, fyrrverandi
skólameistara Verkmenntaskólans á
Akureyri, og Hauki Haraldssyni
tæknifræðingi veitt Paul Harris
orðan. Haukur var vant við látinn
þennan dag og var honum afhent
viðurkenningin seinna.
„Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um þau jákvæðu áhrif sem Há-
skólinn á Akureyri hefur haft á Ak-
ureyri og landsbyggðina í heild.
Þorsteinn rektor og aðrir starfs-
menn HÁ hafa tíðum verið gestir á
fundum klúbbsins og greint félögum
frá uppbyggingu skólans og starf-
semi hans. Þá hefur það vakið at-
hygli hversu vel hefur tekist til við
að byggja upp alþjóðastarf háskól-
ans á skömmum tíma og þar er mik-
ill samhljómur við starf rótarýhreyf-
ingarinnar,“ segir í frétt frá
Rótarýklúbbnum.
Þorsteinn þakkaði fyrir þann
heiður sem sér og starfsmönnum
skólans væri sýndur með þessari
viðurkenningu og eins þann áhuga
og stuðning sem klúbburinn hefði
sýnt skólanum.
Bernharð Haraldsson gerðist fé-
lagi í Rótarýklúbbi Akureyrar árið
1984 og hann var forseti klúbbsins
starfsárið 1990–91. Haukur Har-
aldsson gerðist félagi í Rótarýklúbbi
Akureyrar árið 1985 og var forseti
klúbbsins starfsárið 1999–2000.
„Bernharð og Haukur eru öflugir og
virkir rótarýfélagar og hafa þannig
sýnt öðrum rótarýfélögum gott for-
dæmi,“ segir í tilkynningunni.
Að loknum hefðbundnum fundi
var síðan bæjarbúum boðið til opins
fundar þar sem prófessor Bragi
Árnason fjallaði um framtíðarvetn-
issamfélagið og dr. Steinar Þór Guð-
laugsson, sérfræðingur á Orkustofn-
un, greindi frá rannsóknum á
setlögum undan Norðurlandi og
hugsanlegum möguleikum á olíu-
vinnslu á svæðinu. „Fundurinn var
fróðlegur og urðu miklar umræður í
kjölfar erinda þessara ágætu vís-
indamanna enda fundurinn fjölsótt-
ur.“
Félagar í Rótarýklúbbi Akureyr-
ar eru 39 og þar af þrjár konur, en
klúbburinn varð með fyrstu rótarý-
klúbbum landsins til að veita konum
inngöngu. Alþjóðahreyfing Rótarý
leggur mikla fjármuni til mannúðar-
starfa um heim allan, en þar ber
hæst vinnu við að útrýma lömunar-
veiki og vonast menn til þess að því
marki verði náð árið 2005 á 100 ára
afmæli hreyfingarinnar. Rótarý-
klúbbur Akureyrar leggur þessu al-
þjóðastarfi lið auk þess sem verk-
efnasjóður klúbbsins styrkir ýmis
þörf málefni í heimabyggð.
Þrjúþúsundasti fundur Rótarýklúbbs Akureyrar haldinn á dögunum
Viðurkenn-
ingar veittar
Morgunblaðið/Kristján
Ólafur Jónsson, forseti Rótarýklúbbs Akureyrar, Bernharð Haraldsson,
fyrrverandi skólameistari VMA, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA.
BÖRN í Borgarsíðunni ráku upp
stór augu á þriðjudaginn þegar
við þeim blasti skreytt jólatré,
jólakort í röðum og fjöldi pakka.
Er farið að halda jólin í júlí?
varð einhverju þeirra að orði, en
svo reyndist ekki vera. Ástæðan
var að húsfreyjan, Sigríður B.
Albertsdóttir, varð fertug á
þriðjudaginn og vinkonur henn-
ar úr saumaklúbbnum höfðu
skreytt jólatréð, vakið afmæl-
isbarnið eldsnemma og sungið
fyrir það.
Sigríður segir konurnar í
saumaklúbbnum, sem eru fimm,
iðulega fara óhefðbundnar leiðir
þegar mikið stendur til, t.d. á af-
mælum. „Ein okkar varð fertug
fyrir tæpum fimm árum og þá
tókum við okkur til og skreytt-
um bílinn hennar með borðum
og settum síðan sellófan utan um
allt saman.“ Vagninn varð sem
sagt eins og innpakkaður brúð-
arbíll. „Hún var reyndar þegar
gift en okkur fannst hugmyndin
bara svo góð. Svo ákváðum við
að skreyta svolítið vel hjá henni;
hún býr á þriðju hæð og við fyllt-
um stigaganginn í húsinu af alls
kyns upplýsingum um hana. Svo
þegar hún hélt upp á afmælið
nokkrum dögum seinna sendum
við henni gjafir í nokkrum pítsu-
kössum. Hún hugsaði með sér
hvort andsk... stelpurnar héldu
að hún yrði ekki með neitt að
borða handa þeim, og neitaði að
taka á móti kössunum. Hún hefði
ekki pantað neinar pítsur. Send-
illinn – sem við þekktum en hún
ekki, sagði að því miður væru
pítsurnar líklega orðnar kaldar
því sprungið hefði á bílnum.“
Afmælisbarnið tók á endanum
við kössunum og þá komu gjaf-
irnar í ljós.
Jólahald
líka í júlí?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
AÐALSTEINN Vestmann verður
með málverkasýninu í Brekkuskóla
(gamla Barnaskólahúsinu) dagana 27.
og 28. júlí og verður hún opin þessa
daga frá kl. 14 til 18.
Aðalsteinn sýndi fyrst fyrir hálfri
öld í húsnæði Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar og hefur síðan tekið þátt í fjölda
samsýninga auk nokkurra einkasýn-
inga á Akureyri og í Reykjavík.
Aðalsteinn
Vestmann
sýnir
DJASS verður á heitum fimmtudegi
í Deiglunni í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 25. júlí, og hefjast tónleik-
arnir kl. 21.30. Samnorræna hljóm-
sveitin „Jónsson/Gröndal Quintet“
leikur, en hana skipa Ólafur Jónsson,
Haukur Gröndal, Kjartan Valdi-
marsson og Morten Lundsby.
Djass í kvöld