Morgunblaðið - 25.07.2002, Qupperneq 30
VERSLUNARMANNAHELGIN
30 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Álfaborgarsjens á Borgarfirði eystri
Ferðamálahópur Borgarfjarðar
eystri stendur fyrir fjölskylduhátíð-
inni Álfaborgarsjens 2002. Allir
fjölskyldumeðlimir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi, en af helstu
dagskrárliðum má nefna hið árlega
hagyrðingamót, dansleiki, leikritið
Gilligogg sem fjallar um Kjarval,
ævintýraferð fyrir börn, opið knatt-
spyrnumót, útimarkað, söngkeppni
fyrir börn, hið árlega Neshlaup,
grillveislu og margt fleira.
Tjaldstæði er við Álfaborg með
þjónustubyggingu, auk þess sem
hægt er að komast í gistiaðstöðu í
Veitingasölunni Fjarðarborg, á
Gistiheimilinu Borg og í heimagist-
ingu á Borg í Njarðvík.
Ókeypis er inn á svæðið en selt
verður á dansleiki.
Ein með öllu á Akureyri
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu
verður á Akureyri annað árið í röð.
Vinir Akureyrar standa fyrir hátíð-
inni, auk þess sem fjölmörg fyr-
irtæki og Akureyrarbær styðja
hana. Fólk á öllum aldri er velkom-
ið til bæjarins og að sjálfsögðu er
líka vonast eftir virkri þátttöku
bæjarbúa. Ekkert aldurstakmark
er inn á hátíðina.
Samkvæmt upplýsingum frá há-
tíðarhöldurum er sú afþreying sem
í boði skipulögð með það í huga að
allir finni eitthvað við sitt hæfi. Á
Ráðhústorgi verður blandað saman
skemmtiatriðum fyrir börn og tón-
leikum landsþekktra jafnt sem lítið
þekktra hljómsveita. Þá verður
unglingadansleikur með Sálinni
hans Jóns míns í KA-heimilinu á
laugardagskvöld. Síðan verða dans-
leikir á öldurhúsum bæjarins öll
kvöldin.
Hljómsveitirnar sem koma fram
á hátíðinni sjálfri eru Sálin hans
Jóns míns og Síðan skein sól, auk
tveggja hljómsveita frá Akureyri
sem eru Skytturnar og Best fyrir.
Hljómsveitin Gis & The Big City
frá Los Angeles mætir einnig á
svæðið. Þá var lagið „Ein með öllu“
samið sérstaklega af Vallash fyrir
hátíðina.
Fjölskylduhátíðinni lýkur form-
lega á sunnudagskvöld með hverfa-
hátíðum við verslanir Baugs, þar
sem boðið verður upp á grillaðar
pylsur og kók.
Á eftir verður farið í skrúðgöngu
frá verslununum að Akureyrarvelli
þar sem lokahátíðin verður haldin.
Þar verður brekkusöngur við lang-
eld og hljómsveitarundirspil en her-
legheitunum lýkur svo með flug-
eldasýningu.
Auk skipulagðrar dagskrár verð-
ur fjölbreytt afþreying um allan
bæ. Fólki gefst meðal annars tæki-
færi til að skemmta sér í tívolíi, á
rafmagnsbílum, körtubílum, sjóþot-
um og sjóskíðum.
Næg tjaldsvæði eru á Akureyri
og í nágrenni. Skátafélagið Klakkur
rekur tjaldsvæði við Þórunnar-
stræti og á Hömrum í suðurjaðri
bæjarins, rétt norðan Kjarnaskóg-
ar. Þá eru jafnframt tjaldsvæði í
nágrenni Akureyrar í Húsabrekku
á Svalbarðsströnd. Vegna hættu á
slysum eru glerflöskur bannaðar á
tjaldsvæðum.
Ekki þarf að greiða aðgangseyri
þegar komið er til Akureyrar eða á
Ráðhústorg.
Fjölskylduhátíð í Galtalækjarskógi
Á síðastliðnum 35 árum hefur
myndast sterk hefð fyrir útihátíð í
Galtalækjarskógi sem IOGT hefur
haldið. Þessi mót hafa hlotið við-
urkenningu landans fyrir það for-
varnarstarf sem þar hefur verið
unnið, segir í tilkynningu frá móts-
höldurum en mótið er vímulaust nú
eins og áður.
Stuðmenn hafa stigið fram og
munu, ásamt fjölda þekktra
skemmtikrafta, leiða útihátíðina. Að
fenginni reynslu meðlima Stuð-
manna sem um árabil hafa tekið
börn sín með sér á útihátíðir víðs
vegar um landið, er það nú yfirlýst
markmið þeirra og mótshaldara að
börn, unglingar, pabbi og mamma,
afi og amma geti sameinast í Galta-
lækjarskógi og notið samvista sem
aldrei fyrr.
Auk Stuðmanna skemmta Jón
Gnarr, Helga Braga, Í svörtum föt-
um, XXX Rottweilerhundar,
Spaugstofumenn, Álftagerðisbræð-
ur, Diddú, Botnleðja og tíu ung-
lingahljómsveitir. Þá verður í boði
Hekluganga, barnadansleikir, popp-
messa, harmonikkuböll, flugelda-
sýningar, varðeldur, trúðar og
furðuveður. Hægt verður að fara á
hestbak, í siglingar, gönguferðir og
margt fleira.
Í tilkynningunni segir að flestir
séu sammála um að farsælast sé að
halda fjölskylduútihátíð um versl-
unarmannahelgina án vímuefna og
Galtalækur verði áfram í farar-
broddi í þessum efnum.
Börn 12 ára og yngri fá frítt inn,
13–15 ára greiða 5.000 krónur í for-
sölu og 16 ára og eldri greiða 5.800
í forsölu. Almennt verð er 5.500
krónur fyrir 13–15 og 6.500 krónur
fyrir 16 ára og eldri.
Kántríhátíð á Skagaströnd
Fjölskylduskemmtunin Kántríhátíð
2002 verður haldin á Skagaströnd.
Á síðasta ári varð hátíðin óvænt
fjölsóttasta skemmtun ársins.
Skemmtidagskrá verður á útipalli
um miðjan dag og fram á kvöld,
tónleikar, barnadagskrá, kántrí-
dansar, gospelmessa og fleira.
Hljómleikar verða á útisviði föstu-
dag til sunnudags, þá verða dans-
leikir einnig í félagsheimilinu Fells-
borg og í Kántríbæ.
Fjöldi hljómsveita og tónlistar-
manna kemur fram á Kántríhátíð
2002. Meðal þeirra eru hljómsveitin
Ber, Big City frá Bandaríkjunum,
hljómsveit Geirmundar Valtýsson-
ar, hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar, 17 vélar og hljómsveit Harð-
ar G. Ólafssonar. Einnig koma fram
landsþekktir skemmtikraftar á
borð við Björgvin Halldórsson, Val-
geir Skagfjörð, Guðrúnu Gunnars-
dóttur, Helgu Möller, Hallbjörn
Hjartarson, Óskar Einarsson ásamt
gospelkór, hinar íslensku Suprimes
og fjöldi annarra.
Dagskráin mun eins og áður ein-
kennast af fjölbreytni. Varðeldur
og flugeldasýning verður á sunnu-
dagskvöldið.
Aðgangseyrir á Kántríhátíð 2002
er 3.900 krónur fyrir fullorðna, en
ókeypis er fyrir börn yngri en 12
ára. Aðgöngumiðasalan fer fram við
innkeyrsluna í bæinn. Tjaldsvæði
eru á nokkrum stöðum í bænum og
einnig er nægt pláss fyrir tjald-
vagna og húsbíla.
Lögregla og björgunarsveitir
verða með gæslu allan sólarhring-
inn á Kántríhátíð 2002. Læknir og
hjúkrunarfræðingur verða á heilsu-
gæslustöð Skagastrandar á þeim
tíma sem líklegt er að þörf fyrir að-
stoð þeirra verði mest.
Kotmót 2002 í Kirkjulækjarkoti
Kotmót 2002, landsmót hvítasunnu-
manna, er kristileg fjölskylduhátíð
sem haldin verður í Kirkjulækj-
arkoti í Fljótshlíð. Kotmót hefur
verið haldið á hverju ári síðan 1950
og telst því til eldri útihátíða lands-
ins. Samkvæmt upplýsingum frá
mótshöldurum er fjölskyldan í fyr-
irrúmi á Kotmóti og dagskrá miðuð
við alla aldurshópa. Á Kotmóti er
lögð áhersla á bindindi og reglu-
semi.
Meðal þess sem í boði er eru fjöl-
skyldusamverustundir, útivistar- og
gönguhópar og varðeldur með söng
Fjölmargar skipulagðar útihátíðir verða um verslunarmannahelgina í ár
Fjölbreytt há-
tíðarhöld í boði
Frá Kántríhátíð á Skagaströnd en sú hátíð var fjölsótt í fyrra. Það verður eitthvað í boði fyrir alla á hátíðum í ár og verður fjölskyldan í fyrirrúmi á flestum stöðum.
Mesta ferðamannahelgi ársins, verslunarmannahelgin, nálgast óð-
fluga. Líkt og fyrri ár verða skipulögð hátíðarhöld víða á landinu.
Óhætt er að segja að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi en
fjölskyldan verður í fyrirrúmi á flestum hátíðunum. Hér á eftir
verða nefndir helstu staðir þar sem dagskrár verður að vænta og
þeir sem enn hafa ekki gert upp hug sinn hvert skal halda ættu að
geta fengið einhverjar hugmyndir við lesturinn.