Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 38
UMRÆÐAN
38 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÝLEGA átti sér
stað athyglisverð um-
ræða um það hvernig
túlka beri niðurstöðu
nýafstaðinna bæjar-
stjórnarkosninga á
Akureyri. Umræða
þessi, sem einskorðast
hefur við síður Morg-
unblaðsins, hófst
skömmu eftir að ljóst
varð að Sjálfstæðis-
flokkur og Framsókn-
arflokkur hygðust
hefja viðræður um
myndun nýs meiri-
hluta í bæjarstjórn.
Fyrstur til að hreyfa
andmælum við mynd-
un hins nýja meirihluta var Her-
mann Óskarsson, sem skipaði sæti
á framboðslista Samfylkingar.
Skömmu síðar tók Sverrir Leósson
útgerðarmaður undir málflutning
Hermanns. Kjarninn í orðræðu
þeirra er að lýðræðisleg vinnu-
brögð hafi ekki verið höfð að leið-
arljósi við myndun meirihlutans.
Sá eini sem haldið hefur uppi
vörnum fyrir hinn nýja meirihluta
bæjarstjórnar Akureyrar er Krist-
ján Þór Júlíusson, bæjarstjórinn á
Akureyri. Þar sem bæjarstjórinn
kemur úr röðum sjálfstæðismanna
tel ég bæði rétt og skylt að sjón-
armið ungra framsóknarmanna á
Akureyri komi einnig fram í þess-
ari umræðu. Gefst um leið kær-
komið tækifæri til að
svara ítrekuðum árás-
um Sverris Leóssonar
á Framsóknarflokk-
inn.
Niðurstöður
kosninganna
Fyrra atriðið, sem
ég vil gera að umtals-
efni, varðar mismun-
andi túlkun manna á
niðurstöðum kosning-
anna. Lesendum til
glöggvunar er rétt að
rifja upp hvernig fór.
Sjálfstæðisflokkurinn
hlaut fjóra bæjarfull-
trúa, Framsóknar-
flokkurinn þrjá, Listi fólksins tvo,
Samfylkingin einn og Vinstrihreyf-
ingin – grænt framboð einn. Séu
niðurstöðurnar bornar saman við
úrslit kosninganna 1998 kemur í
ljós að Sjálfstæðisflokkurinn tapar
3,2% og missir einn bæjarfulltrúa,
Framsóknarflokkurinn tapar 3%
og heldur sínum bæjarfulltrúum,
Listi fólksins bætir við sig 6,3% og
vinnur einn bæjarfulltrúa. Sam-
fylkingin og vinstri grænir fá ná-
kvæmlega sama hlutfall og síðast
en þá buðu flokkarnir fram sam-
eiginlega, undir merkjum Akureyr-
arlistans.
Hver er þá sigurvegari kosning-
anna? Skömmu eftir kjördag bentu
Hermann og Sverrir á Lista fólks-
ins sem augljósan sigurvegara og
sökuðu sjálfstæðismenn um að
virða vilja almennra kjósenda að
vettugi, með því að taka upp við-
ræður við framsóknarmenn. Bæj-
arstjórinn varði ákvörðun sína og
fullyrti að í kosningum væri „sá
einn sigurvegari sem fær flest at-
kvæði á kjördegi“. Þetta er auðvit-
að fráleit röksemdafærsla, enda
væri Sjálfstæðisflokkinn þá sigur-
vegari kosninganna, þrátt fyrir að
tapa fylgi og missa bæjarfulltrúa.
Listi fólksins er að sjálfsögðu ótví-
ræður sigurvegari kosninganna,
enda eina framboðið sem bætti við
sig bæjarfulltrúa. Oddur og hans
fólk ráku óvenjulega og árangurs-
ríka kosningabaráttu og eru vel að
sigrinum komin. Hitt er svo annað
mál að 17,8% atkvæða duga Oddi
engan veginn til að eiga heimtingu
á að mynda meirihluta í bæjar-
stjórn, enda er ekki sjálfgefið að
sigurvegarar kosninga myndi alltaf
meirihluta að þeim loknum.
Hvað varðar þá fullyrðingu Her-
manns „að álit almennra kjósenda
sé lítils metið þegar kemur að
myndun meirihluta“ vil ég benda á
að hinn nýi meirihluti sjálfstæðis-
og framsóknarmanna er sterkasti
tveggja flokka meirihlutinn sem
völ er á, með 7 bæjarfulltrúa af 11
og 59,7% atkvæða á bak við sig.
Hinn möguleikinn, meirihluti sjálf-
stæðismanna og Lista fólksins, hef-
ur hins vegar aðeins 6 bæjarfull-
trúa og 53,4% atkvæða á bak við
sig. Hvernig Hermann fær það út
að myndun hins nýja meirihluta
gangi gegn vilja kjósenda á Ak-
ureyri er mér því hulin ráðgáta.
Órökstuddar árásir
Síðara atriðið varðar þær full-
yrðingar Sverris Leóssonar að ráð-
herrar Framsóknarflokksins hafi,
með einhverjum hætti, kúgað sjálf-
stæðismenn á Akureyri til meiri-
hlutasamstarfs eftir kosningar.
Hinn 30. maí lýsti Sverrir þessari
skoðun sinni: „Sjálfstæðismenn
höfðu hins vegar ekki kjark til að
taka hann [Odd Halldórsson] með
sér í meirihluta, sennilega vegna
hræðslu við ráðherra Framsóknar-
flokksins, sem fara með mála-
flokka, sem vega þungt í framgangi
Akureyrar á næstu misserum.
Þessir ráðherrar létu berlega í ljós
fyrir kosningar, að þau bæjarfélög
nytu góðverka þeirra, þar sem
ríkjandi væru meirihlutar þeim
þóknanlegir.“
Við þennan málflutning er ým-
islegt að athuga. Í fyrsta lagi er
það rangt að ráðherrar Framsókn-
arflokksins hafi látið í það skína að
nýr meirihluti, með Odd innan-
borðs, væri þeim ekki þóknanleg-
ur. Slík ummæli féllu aldrei, enda
er það ekki þeirra að ákveða hvaða
flokkar mynda meirihluta í bæj-
arstjórn Akureyrar. Í öðru lagi
ætti útkoma Framsóknarflokksins
að taka af allan vafa í þessu efni.
Eða er líklegt að flokkurinn hefði
uppskorið þrjá bæjarfulltrúa, eftir
að hafa haft í hótunum við kjós-
endur? Þótt slíkt háttalag tíðkist í
öðrum stjórnmálaflokkum, þar sem
Sverrir þekkir betur til, er það
ekki háttur framsóknarmanna. Hér
er því um órökstuddar árásir að
ræða, dylgjur, sem ekki eiga við
nein rök að styðjast.
Að fremja
sjálfsgagnrýni
Gagnrýni Sverris í garð Krist-
jáns er athyglisverð, einkum þegar
haft er í huga að Sverrir lýsti sér-
staklega yfir stuðningi við bæjar-
stjórann skömmu fyrir kosningar.
Hinn 16. maí sagði Sverrir orðrétt:
„Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri hefur stýrt núverandi meiri-
hluta til margra góðra verka. …
Þess vegna er það mitt mat að það
verði farsælast fyrir Akureyringa
að treysta sjálfstæðismönnum fyrir
stjórn bæjarins næsta kjörtíma-
bil.“ Gagnrýni Sverris nú minnir
því mest á þann gamla sið ís-
lenskra kommúnista að gagnrýna
fyrri skoðanir sínar. Var það kallað
„að fremja sjálfsgagnrýni“ og þótti
eitt helsta aðalsmerki sannra
flokksmanna. Og þótt Sverrir sé
greinilega með móral yfir því að
hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn er
óþarfi að gera lítið úr samflokks-
mönnum sínum. Eða ætlast hann
virkilega til þess að Akureyringar
trúi því að ráðherrar Framsókn-
arflokksins hafi bæjarstjórann al-
gjörlega í rassvasanum? Ber ef til
vill að skilja gagnrýni hans þannig
að Valgerður Sverrisdóttir ráði
lögum og lofum meðal sjálfstæð-
ismanna á Akureyri? Og kaus
Sverrir Leósson þá kannski Fram-
sóknarflokkinn eftir allt saman?
Dæmi nú hver fyrir sig.
Að fremja sjálfsgagnrýni
Skafti
Ingimarsson
Kosningar
Ætlast Sverrir virkilega
til þess, spyr Skafti
Ingimarsson, að Ak-
ureyringar trúi því að
ráðherrar Framsókn-
arflokksins hafi bæj-
arstjórann algjörlega í
rassvasanum?
Höfundur er formaður
Félags ungra framsóknarmanna,
Akureyri og nágrenni.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I Fosshótel
Starfskraft vantar í almenn störf tímabundið,
á sumarhótel á landsbyggðinni.
Upplýsingar í síma 562 4000 eða biðjið um um-
sóknarblöð á renato@fosshotel.is .
Sölu- og markaðsfulltrúi
Verksmiðjan vinnandi fólk óskar eftir að ráða
sölu- og markaðsfulltrúa í fullt starf. Um er að
ræða skemmtilegt og spennandi starf með
mikla framtíðar- og tekjumöguleika. Æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist á honnun@vinnandifolk.is .
Kennarar
Starfsbraut (sérdeild) FB óskar eftir kennurum
(2 stöður). Kennslugreinar m.a. íþróttir, tölvur
og umsjón með starfsnámi.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöð-
um. Umsóknum skal skila í Fjölbrautaskólann
í Breiðholti, Austurbergi 5.
Upplýsingar veitir Guðrún Hallgrímsdóttir í
síma 699 7642.
ⓦ í Holtsbúð
í Garðabæ
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skeifan — til leigu
Eitt glæsilegasta og best staðsetta 800 m²
verslunarhúsnæðið í Skeifunni til leigu.
Upplýsingar í síma 894 7997.
Til leigu
atvinnuhúsnæði
1. Tvö góð skrifstofuherb. í miðbænum.
2. 400 fm skrifstofuherbergi í góðu húsi
við Austurvöll.
3. 1.500 fm skrifstofu/þjónustuhúsnæði
neðst við Borgartún. Mjög góð stað-
setning. Malbikuð bílastæði.
4. 600 fm lagerhúsnæði, þar af 100 fm
skrifstofur við Garðatorg, Garðabæ.
5. 500 fm húsnæði fyrir matvælaiðnað
með kælum og frystum í Hagkaups-
húsinu Garðatorgi, Garðabæ. Næg
bílastæði, góð gámaaðstaða.
6. Til leigu 10 bílastæði við Tryggva-
götu, v/Naustið.
Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll ehf.
Upplýsingar gefur Karl í síma
892 0160.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Skrifstofuhúsnæði
Hef kaupanda eða leigjanda að 350—500 fm
úrvalsgóðu skrifstofuhúsnæði, miðsvæðis í
Reykjavík.
Ragnar Tómasson, sími 896 2222.
Húsnæði óskast fyrir
erlent fyrirtæki
Virt fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum vill kaupa
húsnæði á Íslandi. Um er að ræða vandað íbúð-
arhúsnæði, íbúðir eða sérbýli, einnig skrifstofu-
húsnæði 3—400 m² og lagerhúsnæði.
Áhugasamir leggið inn grunnupplýsingar á
auglýsingadeild Mbl. eða á box@mbl.is merkt-
ar: „90061“. Farið verður með allar upplýsingar
sem algjört trúnaðarmál.