Morgunblaðið - 25.07.2002, Blaðsíða 40
UMRÆÐAN
40 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ vakti athygli
þegar hópur áhuga-
fólks um jarðganga-
gerð hittist í Mjóafirði
í lok júnímánaðar. Á
þessum fundi má segja
að endurvakin hafi
verið umræða, sem að
mestu hafði legið niðri
í tvo áratugi, um gerð
jarðganga á Mið-Aust-
urlandi, þ.e. frá Eski-
firði til Seyðisfjarðar
með viðkomu í Norð-
firði og Mjóafirði og
frá fjörðunum til Hér-
aðs.
Á sínum tíma var
höfuðáhersla lögð á að rjúfa vetr-
areinangrun, en nú er þetta ekki
síst spurningin um að færa okkur
inn í nútímann í samgöngumálum,
stytta vegalengdir milli byggðarlaga
og gera svæðið að einni atvinnu-
legri, félagslegri og menningarlegri
heild.
Ég verð að játa, að ég varð undr-
andi þegar ég sá það haft eftir sam-
gönguráðherra í Morgunblaðinu 3.
júlí sl. að þetta væri „ágæt hug-
mynd en óraunhæf“ eins og segir í
fyrirsögn og í lok greinarinnar er
haft orðrétt eftir ráðherra: „Ég tel
að það sé ekki rétt að vekja óraun-
hæfar vonir með fólki. Áður en
lengra er haldið skul-
um við ljúka þessum
framkvæmdum sem
næstar eru á dagskrá.“
Við þetta hef ég eitt
og annað að athuga.
Það er t.d. dálítið mót-
sagnakennt að telja
hugmynd í samgöngu-
málum hvorttveggja í
senn ágæta og óraun-
hæfa. Ég tel einmitt að
einn helsti kostur þess-
arar ágætu hugmynd-
ar sé hve raunhæf hún
er. Og hún var það
strax fyrir tuttugu ár-
um. Að því kem ég á
eftir. Ummæli ráðherra í lokin tel
ég byggð á misskilningi. Okkur er
það fyllilega ljóst – og við það höf-
um við lýst fullum stuðningi – að
gerð jarðganga milli Fáskrúðsfjarð-
ar og Reyðarfjarðar er fremst í röð-
inni. Fáskrúðsfjörður er hluti af
Mið-Austurlandi og við fögnum að
sjálfsögðu bættum tengslum í suð-
urátt. En þetta er bara eitt skref,
það fyrsta á mun lengri leið.
Fyrir tæpum áratug, nánar til-
tekið 1993, voru jarðgöng frá Norð-
firði til Seyðisfjarðar fremst í for-
gangsröðinni hjá jarðganganefnd,
en vegna aðstæðna á Vestfjörðum
ákváðu Austfirðingar að styðja það
að fyrst yrði ráðist í jarðgöng á
Vestfjörðum, göngin undir Botns-
og Breiðadalsheiðar.
Um þetta var gert heiðursmanna-
samkomulag, sem því miður hélt
ekki (ég tek fram að þar var ekki
við þingmenn Vestfirðinga að sak-
ast) og þess vegna er staðan í þess-
um málaflokki mun lakari hér en í
öðrum landshlutum. Við breytum
ekki orðnum hlut, en nú er komið að
okkur. Við ætlumst til þess að strax
að Fáskrúðsfjarðargöngunum lokn-
um verði hafist handa við göng frá
Eskifirði yfir í Fannardal í Norð-
firði, og síðan áfram norður eftir til
Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar.
Það er nauðsynlegt að hætt verði
að líta á jarðgangagerð sem sér-
verkefni, jafnvel dekur- eða lúxus-
verkefni, heldur sem sjálfsagðan
þátt í nútímavegagerð eins og hjá
öðrum þjóðum. Við lifum í fjöllóttu
landi og ef við ætlum að halda land-
inu í byggð, en um það virðast
landsmenn nokkuð sammála, verð-
um við að hætta að klifra með veg-
ina yfir fjöllin og bora í þess stað í
gegnum þau.
Það gengur heldur ekki að jarð-
gangagerð sé eins skrykkjótt og
verið hefur. Gerð hafa verið ein
göng og síðan pústað eins og lyft-
ingakappi að lokinni mikilli aflraun,
sem vill hvíla sig fyrir þá næstu.
Gera þarf áætlun til a.m.k. tíu ára í
senn og vinna eftir henni samfellt
svo íbúarnir sjái að eitthvað er að
gerast og að mál þokast í rétta átt.
Slíkt vekur fólki bjartsýni og bjart-
sýnin er einn helsti hvati fram-
kvæmda. Við blásum á allt tal um að
jarðgöng séu of dýr. Þau rök halda
ekki lengur og hafa hamlað eðlilegri
þróun byggðar á Íslandi um áratugi,
ýtt undir búferlaflutninga til Suð-
vesturlands og valdið þjóðarbúinu
ómældu tjóni. Þetta þjóðhagslega
tjón hefur aldrei verið tekið með í
arðsemiútreikningum.
Og það er svo margt fleira, sem
ekki er inni í þeim útreikningum.
Tökum eitt dæmi.
Þegar við ökum til Norðfjarðar
um Oddsskarð, til Mjóafjarðar um
Mjóafjarðarheiði og til Seyðisfjarð-
ar um Fjarðarheiði erum við að aka
inn í landsins lengstu „botnlanga“.
Vegurinn endar út við haf og við
verðum að aka sömu leið til baka.
Þetta hefur verið hamlandi í bæði
atvinnu- og félagslegu tilliti og að
mínu viti á þessi staða stærstan þátt
í fólksfækkun á þessum stöðum síð-
asta áratuginn. Verði ekkert að gert
mun þessi þróun halda áfram og án
jarðganga munu hin byggðarlegu
áhrif, sem stefnt er að með bygg-
ingu álvers í Reyðarfirði, ekki nást.
Svo einfalt er það.
Undanfarin ár hefur höfuðáhersla
verið lögð á greiðar samgöngur milli
landsbyggðar og höfuðborgar. Mörg
stórvirki hafa verið unnin í sam-
göngumálum, en tenging byggðanna
innan landsfjórðunganna hefur því
miður setið á hakanum. Úr því þarf
að bæta og við þurfum að byrja ekki
seinna en strax, því samgöngur,
góðar eða slæmar, eru meiri örlaga-
valdur í byggðaþróun nú en nokkru
sinni fyrr í sögu landsins.
Í þessu greinarkorni hefur aðeins
verið drepið á fátt eitt og ég vonast
til þess að fá til þess tækifæri síðar
að koma að öðrum þáttum. En ég
tel mig þó hafa sýnt fram á, að gerð
jarðganga milli þéttbýlisstaða á
Mið-Austurlandi er síður en svo
„óraunhæf hugmynd“, heldur raun-
hæf, nauðsynleg og löngu tímabær
framkvæmd.
Jarðgöng á Mið-Austurlandi
Kristinn V.
Jóhannsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samvinnufélags útgerðarmanna í
Neskaupstað (SÚN).
Framkvæmdir
Jarðgöng á Mið-Austur-
landi eru ekki bara ágæt
hugmynd, segir Krist-
inn V. Jóhannsson,
heldur líka raunhæf
og tímabær.
TIL SÖLU
Nátthagi garðplöntustöð,
Ölfusi, 45 mínútna akstur frá Reykjavík
Góðar plöntur á hagstæðu
verði t.d.:
Garðagullregn 2—2,5 m hátt 7.920.
Alparifs 50 cm í 2 l pottum 790.
Blátoppur 40 cm í 2 l potti 790.
Gljámispill 60 cm í 2 l potti 790.
Sunnukvistur „June Bride“ 890.
Koparreynir 50 cm í 2 l potti 790.
Bergsóley 3 blómlitir 1.485.
Bjarmasóley gul blóm 1.485.
„Antikkrósir“ 1.390.
Glótoppur í 2 l pottum 890.
Harðgert hengibirki 1—1,25 m 1.890.
Hélurifs í 2 l pottum 1.090.
Loðkvistur í 2 l pottum 1.485.
Stórkvistur í 2 l pottum 890.
Alaskaaspir 2—2,5 m m. hnaus 1.990
og margt, margt fleira, sjá vefsíðu:
www.natthagi.is — s. 483 4840.
UPPBOÐ Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Vanefndaruppboð:
Breiðamörk 25, Hveragerði, salur sunnanmegin, ásamt sviði og
geymslu undir sviði, 196,1 fm, auk rekstrartengds búnaðar og tækja
skv. samningsveðlögum, þingl. eig. Sigríður Helga Sveinsdóttir,
gerðarbeiðendur Ferðamálasjóður, Hekla hf. og Húsasmiðjan hf.,
þriðjudaginn 30. júlí 2002 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
24. júlí 2002.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 30. júlí 2002 kl. 10.00 á eftirfarandi
eignum:
Auðsholt, Ölfusi. Landnr. 171670, þingl. eig. Sæmundur Skúli Gíslason,
Magnús Gíslason, Margrét Gísladóttir, María Gísladóttir, Hannes
Gíslason, Kristín Gísladóttir, Runólfur Björn Gíslason, Guðbjörg J.
Runólfsdóttir og Steinunn Gísladóttir, gerðarbeiðendur Lánasjóður
landbúnaðarins og Verkfræðistofa Suðurlands ehf.
Austurvegur 46, Selfossi. Fastanr. 218-5465 og 218-5466, þingl. eig.
Fossnesti hf., umferðarmiðstöð, gerðarbeiðendur Ferðamálasjóður,
Íslandsbanki hf., Landssími Íslands hf., innheimta og Sveitarfélagið
Árborg.
Austurvegur 69, Selfossi, skv. þingl. kaupsamningi. Fastanr. 218-5519,
224-5061, 224-5062 224-5063, 224-5064, 224- 5065- 224-5066, 224-5067,
224-5068, 224-5069, þingl. eig. Austurvegur 69 ehf., gerðarbeiðandi
Landsbanki Íslands hf., útibú.
Álftarimi 10, Selfossi. Fastanr. 218-5295, þingl. eig. Þóra Sumarlína
Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf.
Bára ÁR 201. Skipaskrárnr. 1053, þingl. eig. Höfðahóll ehf., gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóður sjómanna.
Bláskógar 2, Hveragerði. Fastanr. 220-9855, þingl. eig. Brynhildur
Áslaug Egilson, gerðarbeiðendur Bílvogur ehf. og Tryggingamiðstöð-
in hf.
Borgarheiði 22, Hveragerði. Fastanr. 220-9946, þingl. eig. Sólveig
Elíasdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Framsýn.
Brautarholt 10B, Skeiðahreppi. Fastanr. 220-1796, þingl. eig. Jóhanna
Lilja Arnardóttir og Jónas Yngvi Ásgrímsson, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður.
Breiðamörk 25, Hveragerði. Fastanr. 224-7022, þingl. eig. Brynja Helga-
dóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Breiðamörk 8, Hveragerði, skv. þingl. kaupsamningi. Fastanr. 221-0078,
þingl. eig. Sigrún Helgadóttir, gerðarbeiðandi Kreditkort hf.
Búðarstígur 19C, Eyrarbakka. Landnr. 189605, þingl. eig. Þórir Erlings-
son, gerðarbeiðendur Kaupás hf. og Sveitarfélagið Árborg.
Eyrarbraut 47, Stokkseyri. Fastanr. 219-9620, þingl. eig. Ragnhildur
Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Árvirkinn ehf. og Sveitarfélagið Árborg.
Fossheiði 52, Selfossi. Fastanr. 218-6025, þingl. eig. Sigurveig M.
Andersen, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf.
Grashagi 5, Selfossi. Fastanr. 218-6163, þingl. eig. Guðlaug Ásgeirs-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sveitarfélagið Árborg og
sýslumaðurinn á Selfossi.
Grundartjörn 11, Selfossi. Fastanr. 218-6212, þingl. eig. Björn Heiðrek-
ur Eiríksson og Arnheiður Húnbjörg Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður.
Háahlíð 29, Grímsnes- og Grafningshreppi, talin eign gerðarþ. Fastanr.
224-9627, þingl. eig. Stefán Birgir Guðfinnsson, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraembættið.
Heiðmörk 63, Hveragerði. Fastanr. 221-0494, þingl. eig. Viktor Jón
Sigurvinsson og Ólína Berglind Sverrisdótttir, gerðarbeiðendur Líf-
eyrissjóðurinn Framsýn og Sameinaði lífeyrissjóðurinn.
Hrísmýri 2B, Selfossi. Fastanr. 218-6458, þingl. eig. Vigfús Andrés
Guðmundsson, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., útibú.
Hveramörk 2, Hveragerði. Fastanr. 221-0530, þingl. eig Ólöf Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur Hveragerðisbær og Íbúðalánasjóður.
Hveramörk 8, Hveragerði. Fastanr. 221-0537, þingl. eig. Erla Jennadótt-
ir Wiium, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., útibú.
Kirkjuhvoll, Eyrarbakka. Fastanr. 220-0391, þingl. eig. Ingunn Guðna-
dóttir, gerðarbeiðendur Kreditkort hf. og Þorsteinn Pálsson.
Laufskógar 39, Hveragerði. Fastanr. 221-0708, þingl. eig. Birgir Steinn
Birgisson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á
Selfossi.
Laugagerði, Biskupstungnahreppi, eignarhl. gerðarþ. Landnr. 167146,
þingl. eig. Jakob Narfi Hjaltason, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn
á Selfossi.
Miðtún 22, Selfossi, 50% eignarhluti. Fastanr. 218-6891, þingl. eig.
Soffía M. Gústafsdóttir, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf.
Reykjamörk 2, Hveragerði. Fastanr. 221-0784, þingl. eig. Einar Páll
Mímisson og Tinna Rán Sölvadóttir, gerðarbeiðendur Hveragerðis-
bær, Kaupás hf., Landssími Íslands hf., innheimta og Tryggingamið-
stöðin hf.
Reynivellir 5A, Selfossi. Fastanr. 218-6905, þingl. eig. Skúli B. Árnason,
gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og Sveitarfélagið Árborg.
Sigtún 27, Selfossi. Fastanr. 218-7049, þingl. eig. Guðni Elíasson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Kaupás hf. og Vátryggingafélag
Íslands hf.
Smáratún 13, Selfossi. Fastanr. 218-7165, þingl. eig. Þóra Valdís Val-
geirsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar.
Sólvellir 10, Stokkseyri. Fastanr. 219-9481, þingl. eig. Jóhann Óli Hilm-
arsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið.
Syðri-Brú, lóð nr. 25, Grímsnes- og Grafningshreppi. Landnr. 169628,
þingl. eig. Db. Eðvald Vilberg Marelsson, gerðarbeiðandi Grímsnes-
og Grafningshreppur.
Syðri-Reykir, lóð 167449, Biskupstungnahreppi, eignarhl. gerðarþ.
Fastanr. 220-5635, þingl. eig. Linda Hrönn Gylfadóttir, gerðarbeiðandi
Sparisjóður Hafnarfjarðar.
Varmahlíð 14, Hveragerði. Fastanr. 221-0850, þingl. eig. Guttormur
Þorfinnsson, gerðarbeiðendur Hveragerðisbær og Íbúðalánasjóður.
Vesturbyggð 6, Biskupstungnahreppi. Fastanr. 220-5565, þingl. eig.
Jakob Narfi Hjaltason, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi.
Víðigerði, Biskupstungnahreppi. Landnr. 167188, þingl. eig. Ólafur
Ásbjörnsson, gerðarbeiðendur Hitaveita Reykholts, Landsbanki Íslands
hf., útibú og sýslumaðurinn á Selfossi.
Víðistekkur 1, Þingvallahreppi, eignarhl. gerðarþ. Fastanr. 220-9275,
þingl. eig. Ólafur Björn Blöndal, gerðarbeiðendur Kredidkort hf. og
Tollstjóraembættið.
Þelamörk 60, Hveragerði. Fastanr. 221-0969, þingl. eig. Eystrasaltsvið-
skipti ehf., gerðarbeiðandi Íspan ehf.
Þórisstaðir, Grímsnes- og Grafningshreppi. Fastanr. 220-8443, þingl.
eig. Þb. Ólafur Ágúst Ægisson b/t. Ragnar H. Hall, hrl., gerðarbeiðend-
ur Grímsnes- og Grafningshreppur og Íslandsbanki FBA hf.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
24. júlí 2002.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Almenn samkoma í Þríbúð-
um, Hverfisgötu 42, kl. 20.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Ræðumaður: Björg Lárusdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is .
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Bænastund kl. 19.30
Samkoma kl. 20.00, Högni Vals-
son predikar, lofgjörð, fyrirbænir
og samfélag, barnastarf fyrir 4—
10 ára á sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Munið „Opið hús“ sunnudag-
inn kl. 20.
„Vegur Guðs er lýtalaus, orð
Drottins er skýrt. Skjöldur er
hann öllum þeim, sem leita hæl-
is hjá honum“.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
mbl.is
ATVINNA