Morgunblaðið - 25.07.2002, Síða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur verið dýravinurfrá unga aldri og kynntist því
snemma íslenskum húsdýrum. Hann
reið hestum í sveitinni, klappaði kis-
unum og gantaðist við hundana.
Hann gaf hænsnum, klóraði kusum í
fjósi og rak rollur. Svona liðu mörg
sumur og meira að segja átti Vík-
verji hest í höfuðborginni um nokk-
urra ára skeið. Nú er hins vegar svo
komið að samskipti Víkverja við dýr
eru nánast engin. Hesturinn hans
drapst einn góðan veðurdag og bú-
skapur hefur verið lagður af á bæn-
um þar sem Víkverji naut fé-
lagsskapar íslensku húsdýranna.
x x x
VÍKVERJI fór að rifja upp sumr-in í sveitinni og þá einkum sam-
skipti sín við kýrnar, þegar hann var
að horfa á spænska sjónvarpsstöð
um daginn. Þar var þáttur um nauta-
at, svona í stíl við fótboltakvöld í rík-
issjónvarpinu. Sýnd voru valin atriði
frá nautaötum liðinnar viku og viðtöl
tekin við nautabana í myndveri. Einn
var með höndina í fatla og talaði um
óhappið rétt eins og einhver knatt-
spyrnumaðurinn um byltu í síðasta
leik. Að sjálfsögðu var umrætt óhapp
sýnt nokkrum sinnum í hægri end-
ursýningu og þar sást hvernig bola
tókst að reka annað hornið í nauta-
banann sem féll á jörðina og þá gekk
tuddi á lagið og stangaði hann aftur.
En mikið eru þessi naut heimsk þeg-
ar nánar er að gáð. Þessi saman-
þjöppuðu vöðvabúnt eltu rauða tjald-
ið í hamslausri bræði en datt aldrei í
hug að stanga aðeins lengra til hliðar
og klára þannig leikinn á augnabliki.
Þá sjaldan sem nautabani var stang-
aður var það yfirleitt óvart og það
var ekki fyrr en hann var dottinn að
nautin uppgötvuðu loksins að reiðin
átti að snúast gegn honum, en ekki
tjaldinu. En það var ekki eins og þau
lærðu eitthvað af því þótt þau hefðu
betur í einni og einni lotu. Þegar búið
var að kippa nautabananum á hest-
bak og sleppa honum niður á örugg-
um stað á vellinum hugsaði nautið
sig um áður en það lagði undir sig
hausinn að nýju – og stangaði auðvit-
að tjaldið aftur. En auðvitað veljast
bara heimsk dýr í svona leiki þótt
sterk séu.
x x x
ÞESSIR stórhættulegu klauf-dýraleikir leiddu huga Víkverja
að atviki í sveitinni í gamla daga þeg-
ar eina hyrnda kýrin á bænum gerði
sig líklega til að stanga Víkverja sem
þá var um 10 ára gamall. Þótt hún
væri bæði gömul og horuð sannfærði
hún Víkverja að nú væru dagar hans
taldir með því að senn fengi hann
volg hornin milli rifjanna. Hann stóð
fyrir framan hana Grímu stirðnaður
af hræðslu og þorði ekki að flýja,
enda hvergi skjól að finna eða stóran
stein til að klifra upp á. Síðan lyfti
Gríma halanum og losaði sig við einn
skammt af rjúkandi húsdýraáburði
og hélt síðan áfram að háma í sig
grasið. Víkverji ætlar að enda þenn-
an þennan pistil á því að segja, að
þótt hann geti hlegið að heimsku
spænsku nautanna, myndi hann að
sjálfsögðu snarþagna ef hann stæði
andspænis 450 kg tudda á leikvang-
inum með öskrin frá 25 þúsund
manns í eyrunum. Væri þá ólíkt
betra að mæta íslenskri mjólkurkú í
haga.
Yndislegt ungt fólk
MIG langar að andmæla
orðum „Áhorfanda“ í
Velvakanda fyrr í vik-
unni um sjónvarpsþátt-
inn Hvernig sem viðrar.
Mér þykir þessi þáttur
mjög góður og aðstand-
endur þáttarins yndis-
legt ungt fólk. Ég vil alls
ekki missa af þáttunum,
bíð spennt eftir næsta
þætti og vil endilega sjá
meira af því sama.
Susie Bachmann.
Dýrahald
Ísak er týndur
ÍSAK, sem er grábrönd-
ótt fress, týndist frá
Miðtúni
sl. laugar-
dag.
Hann er
eyrna-
merktur
með
skræpótta
ól og sár
undir auga. Þeir sem
geta gefið upplýsingar
um ferðir hans vinsam-
lega hafi samband í síma
896 7855 eða 869 7589.
Fjórir hundar sakna
eigenda sinna
FJÓRIR hundar á
Hundahótelinu Leirum
auglýsa eftir eigendum
sínum. Hundarnir eru
svartur labrador-blend-
ingur, brúnn, svartur og
hvítur langhunds-blend-
ingur, hvítur íslenskur
fjárhundur og border-
collie hvolpur. Þeir vilja
gjarna að eigendurnir
gefi sig fram strax í
síma 566 8366 eða
698 4976
Veist þú um Daníel?
HÖGNINN Daníel
týndist frá Brattholti í
Mosfellsbæ. Daníel er
kolsvart-
ur með
glansandi
feld en ól-
arlaus.
Finnandi
hafi sam-
band við
Frímann í
síma 566 7323 og
690 9038
Týnd kisa
DRÍFA, sem er svört og
hvít læða, týndist frá
Melalind
í Kópa-
vogi fyr-
ir viku.
Hún er
smávax-
in, kelin,
með
köflótta
ól og gegnir nafni. Þeir
sem vita af ferðum
hennar vinsamlega hafi
samband við Jóhann í
síma 899 6284 eða Huldu
í síma 899 6274.
Í GREIN sem birtist í Vel-
vakanda 5. júlí sl. var far-
ið fram á svör við tveim-
ur spurningum varðandi
þrif við Breiðholtslaug.
Annars vegar um vatns-
hreinsun og hins vegar
um ræstingu á húsakynn-
um og aðstöðu.
Hreinsun laugarvatns-
ins fer fram með sandsí-
um og er sérstakur síu-
búnaður fyrir hvert
vatnskerfi þannig að
vatni úr hinum ýmsu
kerfum, t.d. sundlaug,
pottum, kennslulaug eða
vaðlaug er ekki blandað
saman og er þessi bún-
aður í samræmi við
reglugerð umhverf-
isráðuneytisins nr. 457/
1998. Til sótthreinsunar á
vatninu er síðan notað
„natríumhypoklórit“ og
er því miðlað sjálfvirkt í
hin mismunandi vatns-
kerfi eftir því sem fyrr-
nefnd reglugerð segir til
um.
Í megindráttum fer
ræsting húsakynna og að-
stöðu þannig fram að
vakthafandi starfsfólk
sér um dagleg síþrif.
Starfsfólk á kvöldvakt
annast hreingerningar á
sínu vinnusvæði eftir lok-
un. Síðan ræsta næt-
urverðir þau svæði sem
falla á þá samkvæmt
þrifnaðaráætlunum og
verklagsreglum. Má þar
t.d. nefna botnfalls-
hreinsun í laug tvisvar í
viku.
Öll ræsting í Breið-
holtslaug, sem og á öðr-
um opinberum sund-
stöðum í Reykjavík, er
samkvæmt hreingerning-
aráætlunum áðurnefndr-
ar reglugerðar.
Það skal tekið fram að
öll hreinsun vatns, miðlun
sótthreinsiefna og ræst-
ing húsakynna er sam-
kvæmt lögum háð eftirliti
Umhverfis- og heilbrigð-
isstofu Reykjavíkur.
Að lokum má geta þess
að gert er ráð fyrir að
loka Breiðholtslaug
vegna viðhalds, viðgerða
og hreingerninga í 2–3
daga, eins og tíðkast hef-
ur á öðrum sundstöðum í
Reykjavík undanfarin ár,
og er sú lokun áætluð í
lok ágústmánaðar.
Gunnar Hauksson,
forstöðumaður Íþrótta-
miðstöðvarinnar
Austurbergi.
Þrif í sundlaugum
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skagi á Íslandi, 8 gösli í
vatni, 9 fiskar, 10 þegar,
11 skriftamál, 13 líffærin,
15 kaldi, 18 herbergi, 21
gætni, 22 barin, 23 kven-
dýrið, 24 verkfæris.
LÓÐRÉTT:
2 skriðdýr, 3 skáld, 4
ávöxtur, 5 styrkir, 6
skaði, 7 fall, 12 reyfi, 14
fiskur, 15 málmur, 16
trylltum, 17 beitan, 18
skammt, 19 óveruleg, 20
vitlaus.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 klífa, 4 kámug, 7 kauði, 8 langa, 9 net, 11 apar,
13 orka, 14 angur, 15 bálk, 17 fnæs, 20 man, 22 fokka, 23
aldin, 24 ruður, 25 teina.
Lóðrétt: 1 kokka, 2 íhuga, 3 alin, 4 kalt, 5 mánar, 6
grafa, 10 eigra, 12 rak, 13 orf, 15 bifur, 16 lokað, 18
næddi, 19 sunna, 20 maur, 21 naut.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Astoria og Dettifoss
koma og fara í dag.
Skandia kemur í dag.
Skógafoss, Helgafell,
Salmo og Canigo (skúta)
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Stella Pollux og Flor-
inda koma í dag. Vyso-
kovsk fer í dag
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa, bað.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9 leik-
fimi, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 11 boccia, kl.
13.30 gönguhópur, lengri
ganga. Bingó verður
næst spilað 9. ágúst kl.
13.30. Púttvöllurinn er
opin kl. 10–16 alla daga.
Allar upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerðir.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerðir, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un, föstudag, púttað á
Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Félagsheimilið Hraunsel
verður lokað vegna sum-
arleyfis starfsfólks til 11.
ágúst. Orlofsferðir að
Hrafnagili við Eyjafjörð
19.–23. ágúst, greiða
þarf gíróseðla sem fyrst.
Orlofsferð að Höfða-
brekku 10.–13. sept.
Skráning og upplýsingar
kl. 19–21. í s. 555 1703,
555 2484 og 555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in virka daga frá kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og mat-
ur í hádegi. Félagið hef-
ur opnað heimasíðu
www.feb.is. Ekki verður
spilað brids í dag vegna
sumarleyfa. Hringferð
um Norðausturland 17.–
24. ágúst. Uppselt. Farið
verður í Land-
mannalaugar 6. ágúst
nk. Ekið inn Dómadal
niður hjá Signu. Leið-
sögumaður Tómas Ein-
arsson. Skráning hafin.
Fyrirhugaðar eru ferðir
til Portúgals 10. sept-
ember í 3 vikur og til
Tyrklands 1. október í 10
daga fyrir félagsmenn
FEB, skráning er hafin,
takmarkaður fjöldi.
Skráning hafin á skrif-
stofunni í síma 588 2111.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
í s. 588 2111. Skrifstofa
félagsins er flutt í Faxa-
fen 12, sama símanúmer
og áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9–16 böðun.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa, opnað aftur
þriðjudaginn 13. ágúst.
Á vegum Íþrótta- og
tómstundaráðs eru
sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug
kl. 9.30 mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga.
Umsjón Brynjólfur
Björnsson íþróttakenn-
ari.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 10
boccia, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
14 félagsvist. Fótaað-
gerðir, hársnyrting. All-
ir velkomnir.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun. Handa-
vinnustofan opin án leið-
beinanda fram í miðjan
ágúst.
Vitatorg. Kl. 9.30 morg-
unstund og handmennt,
kl. 10 leikfimi, boccia kl.
10.45, kl. 13 brids,
frjálst.
Minningarkort
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552 4440 frá kl. 13–17.
Eftir kl. 17 s. 698 4426
Jón, 552 2862 Óskar eða
563 5304 Nína.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562 5605, bréfsími
562 5715.
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar (K.H.),
er hægt að fá í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565 1630
og á skrifstofu K.H.,
Suðurgötu 44, II. hæð,
sími á skrifstofu
544 5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma
551 7868 á skrifstofu-
tíma og í öllum helstu
apótekum. Gíró- og
kreditkortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560 2700 og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551 5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565 5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin Þroska-
hjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í síma
588 9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560 1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16. Ut-
an dagvinnutíma er tekið
á móti minningargjöfum
á deild 11-E í síma
560 1225.
Hrafnkelssjóður (stofn-
aður 1931) minning-
arkort afgreidd í símum
551 4156 og 864 0427.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561 4307/fax
561 4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s.
557 3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s.
552 2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu hjá
Þórði Tómassyni, s.
487 8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Ólafssyni, Skeið-
flöt, s. 487 1299, í
Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Laufás-
vegi 2, s. 551 1814 og hjá
Jóni Aðalsteini Jónssyni,
Geitastekk 9, s.
557 4977.
Minningarkort, Félags
eldri borgara Selfossi
eru afgreidd á skrifstof-
unni Grænumörk 5, mið-
vikudaga kl. 13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482 1134, og versl-
uninni Íris í Miðgarði.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S.
570 5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is.
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvennadeild-
ar RRKÍ á sjúkrahúsum
og á skrifstofu Reykja-
víkurdeildar, Fákafeni
11, s. 568 8188.
Í dag er fimmtudagur 25. júlí, 206.
dagur ársins 2002. Jakobsmessa.
Orð dagsins: Sérhver af oss hugsi
um náungann og það sem honum er
gott og til uppbyggingar.
(Rómv. 15, 2.)