Morgunblaðið - 11.08.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KONA sem var farþegi í Flugleiða-
vél sem átti að fljúga frá Baltimore
í Bandaríkjunum til Keflavíkur
þriðjudaginn 6. ágúst segir að flug-
ferðin, sem átti að taka fimm stund-
ir, hafi orðið að um sólarhrings-
langri ferð, en bilun í búnaði
vélarinnar olli því að miklar tafir
urðu á fluginu.
Áætlað var að konan flygi með
Flugleiðum til Íslands klukkan
20.40 að staðartíma í Baltimore 6.
ágúst. Þegar vélin var komin út á
flugbrautina segir konan að flug-
stjórinn hafi tilkynnt að tæknilegir
örðugleikar væru fyrir hendi og
vélinni yrði snúið aftur að brottfar-
arhliðinu til viðgerðar. Eftir
tveggja tíma bið í vélinni, án þess
að fá vitneskju um hvað væri að,
hafi farþegar fengið kvöldverð og
klukkutíma síðar hafi flugstjórinn
tilkynnt að þar sem skortur væri á
tæknimönnum og varahlutum
vegna bilunarinnar yrðu farþegar
að bíða klukkutíma og 45 mínútur í
viðbót og að auki yrði millilent á
Nýfundnalandi á leiðinni til Íslands
til að taka eldsneyti þar sem vara-
hlutur vegna bilunarinnar væri ófá-
anlegur.
Konan sagðist að þessu loknu
hafa krafist þess að fá að yfirgefa
flugvélina en starfsmaður Flugleiða
í flugstöðinnni hafi gert henni ljóst
að hún mætti ekki yfirgefa vélina,
enda gætu þá aðrir farþegar óskað
þess að gera slíkt hið sama. Skildist
konunni á starfsmanninum að Flug-
leiðir þyrftu að greiða sérstaklega
fyrir hvern farþega sem yfirgæfi
vélina. Á sama tíma hafi lögreglu-
menn birst við vélina og gert sig
líklega til að handtaka hvern þann
farþega sem stæði utan við vélina
til að teygja úr sér.
Fjórum tímum eftir að konan fór
um borð í vélina, eftir mikið þjark
og þref, fékk hún ásamt tveimur
öðrum farþegum að yfirgefa vélina
og var þeim að hennar sögn hótað
fangelsisvist ef þær héldu til í flug-
stöðinni. Einnig var þeim tjáð að
ekki væri víst að þær kæmust til
Íslands á næstunni þar sem allar
vélar næstu daga væru yfirbókaðar
og þá var farþegunum sagt að þeir
gætu þurft að greiða aukalega fyrir
að láta breyta flugmiða sínum.
Lagði sig í flugstöðinni
og þaðan á hótel
Konan segist eftir þetta hafa lagt
sig í flugstöðinni og um það bil
tveimur klukkustundum eftir að
hún fór frá borði hafi aðrir farþegar
vélarinnar tekið að birtast, en þá
var búið að taka þá ákvörðun að
reyna ekki að fljúga til Íslands
þetta kvöldið. Fólkið hafði þá verið
í vélinni í fimm og hálfa klukku-
stund. Hafi farþegar verið sendir á
hótel og sagt að hafa samband við
Flugleiðir eftir klukkan 12.00 á há-
degi til að athuga með frekara flug.
Um 10.30 um morguninn hafi sam-
ferðamaður látið hana vita að far-
þegar ættu að vera mættir á flug-
völlinn klukkan 11.15, þrátt fyrir að
Flugleiðir hefðu sagt fólkinu að
hafa ekki samband fyrr en eftir
klukkan tólf. Hafi fólk því flýtt sér
út á flugvöll og þar kom í ljós að
vélin átti að fara í loftið klukkan
13.45.
Vélinni hafi hins vegar seinkað
enn frekar og kl. 16.00, eftir að
nokkur óvissa hafði ríkt um við
hvaða brottfararhlið farþegar ættu
að bíða, hafi farþegar farið um borð
í vélina. Þá hafi komið í ljós að við-
gerðin á vélinni var eingöngu til
bráðabirgða og millilenda þurfti í
Goose Bay í Kanada og lengdi það
flugferðina um tvo tíma.
Segir konan að farþegar hafi ver-
ið örmagna, pirraðir og svangir.
Kvöldið áður hafi verið á boðstólum
þurr, bragðvondur kjúklingur og
hafi fólk því hlakkað til að fá ljúf-
fenga máltíð eftir hrakningana, en
því hafi hins vegar verið boðið upp
á sama réttinn og kvöldið áður.
Hún segir að á meðan fyllt var á
eldsneytisgeyma vélarinnar í Kan-
ada hafi farþegar verið beðnir að
halda kyrru fyrir í sætum sínum og
hafi þeim verið tjáð að eld- og
sprengihætta væri fyrir hendi með-
an eldsneyti væri sett á vélina.
Sagt að farþegar fengju engar
bætur vegna ferðarinnar
Vélin hafi svo lent í Keflavík
klukkan 5.30 að staðartíma, meira
en 30 klukkustundum eftir að ferð
konunnar hófst upphaflega. Segist
hún hafa hringt í Flugleiðir daginn
eftir að hún kom til Íslands og þá
komist að því að farþegar fengju
engar bætur vegna ferðarinnar.
Hafi hún óskað eftir því að fá að
ræða við framkvæmdastjóra félags-
ins en því hafi verið neitað og henni
bent á að senda Flugleiðum at-
hugasemdir sínar skriflega.
Er konan verulega ósátt við þjón-
ustu Flugleiða og segist hún telja
að einokunaraðstaða sú sem Flug-
leiðir búa við á hinum íslenska flug-
markaði sé of áhættusöm fyrir al-
menning, en skortur á samkeppni
leiði til þess að gæði minnki. Segist
hún undrast að Flugleiðir hafi hlot-
ið verðlaun fyrir markaðssetningu á
þessu ári.
Bjartsýni um að hægt væri
að leysa málið á stuttum tíma
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að við
brottför flugs 643 frá Baltimore
klukkan 20.40 að staðartíma hafi
komið fram í mælitækjum tilkynn-
ing um bilun. Strax hafi verið kallað
á flugvirkja og eftir um klukku-
stund kom í ljós hvert vandamálið
var, sem var bilun í eldsneytisdælu.
Bjartsýni hafi ríkt um að hægt væri
að leysa vandamálið á stuttum tíma
og því hafi ekki verið talin ástæða
til að farþegar færu frá borði.
Það hafi hins vegar dregist og á
sama tíma var verið að loka allri að-
stöðu fyrir farþega í flugstöðvar-
byggingunni, enda liðið á kvöldið.
Guðjón segir að áhöfnin hafi allan
tímann verið í farþegarýminu og
lagt sig fram við að veita sem besta
þjónustu, fólkið hafi fengið mat og
drykk og kvikmyndir verið sýndar.
Nokkrir hafi ákveðið að hætta við
að fara í flugið og þeir hafi farið úr
vélinni. „Eftir fimm og hálfa
klukkustund varð loks ljóst að
vandinn yrði ekki leystur og því var
ákveðið að fresta fluginu þar til
daginn eftir og útvega farþegum
gistingu á hóteli. Allnokkrum far-
þegum var útvegað flug með öðrum
flugfélögum til ákvörðunarstaða í
Evrópu. Síðan var flogið heim dag-
inn eftir með viðkomu í Goose Bay í
Kanada og kom vélin til Íslands
tæpum sólarhring á eftir áætlun
eða klukkan 4 að morgni,“ segir
Guðjón.
Um að ræða röð óheppilegra
aðstæðna og atvika
Hann segir að eftir á að hyggja
sé ljóst að þarna hafi röð óheppi-
legra aðstæðna og atvika orðið til
þess að farþegarnir voru langtum
lengur um borð en æskilegt er.
Þetta hafi valdið þeim töfum og
óþægindum og það beri að harma
og félagið muni draga sinn lærdóm
af þessu.
„Nokkrir farþeganna í þessu
flugi hafa haft samband við okkur
eftir að þeir komust á leiðarenda og
við höfum að sjálfsögðu aðstoðað þá
eins og best við getum, breytt far-
seðlum, framlengt ferðir og svo
framvegis. Í alþjóðafarþegaflugi
eru ekki greiddar bætur vegna tafa
sem verða vegna vélarbilana og
ráða þar einkum þau öryggissjón-
armið að koma í veg fyrir að ótti
við bótagreiðslur setji óeðlilegan
þrýsting á starfsmenn flugfélag-
anna að koma vélum í loftið,“ segir
Guðjón.
Hann segir að nokkur töf hafi
orðið á öðrum flugum Flugleiða
daginn eftir seinkunina en áætlun
sé nú komin í eðlilegt horf.
Mikil töf á brottför vélar Flugleiða frá Baltimore í Bandaríkjunum síðastliðinn þriðjudag
Farþegar látnir bíða 5½
klukkustund í vélinni
SIGRÍÐUR Guð-
mundsdóttir, fyrrver-
andi skrifstofumaður á
Morgunblaðinu, er lát-
in, 74 ára að aldri.
Sigríður fæddist 20.
september 1927 að
Arabæjarhjáleigu í
Gaulverjabæjarhreppi.
Foreldrar hennar voru
Guðmundur Jónasson
bóndi og verkamaður í
Reykjavík og Jóhanna
Helgadóttir.
Sigríður flutti til
Reykjavíkur 1938. Þar
gekk hún í Kvenna-
skólann í Reykjavík.
Eftir það starfaði
hún í nær fimmtíu ár
á skrifstofu Morgun-
blaðsins. Hún hóf þar
störf 1. mars 1948 og
starfaði þar allt til
ársloka 1997. Þá lét
hún af störfum fyrir
aldurs sakir.
Morgunblaðið
þakkar Sigríði far-
sælt samstarf um
áratuga skeið og
sendir ástvinum
hennar innilegar
samúðarkveðjur.
SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
Andlát
MJÖG gott fiskirí hefur verið hjá
trillunum, sem gerðar eru út frá
Skagaströnd, í sumar. Nú landa um
35 trillur hjá fiskmarkaðnum og eru
allir að fiska vel.
Undanfarið hefur fiskmarkaður-
inn tekið á móti 55-60 tonnum á dag
af trillunum þó að aldrei séu þær all-
ar á sjó í einu. Sérstaklega hefur
fiskiríið verið gott á Hornbankanum
en þaðan hafa trillurnar verið að
koma með 4,5-6,3 tonn úr hverjum
róðri af jöfnum og fallegum fiski.
50-70 mílur eru frá Skagaströnd út á
miðin á Hornbanka og eru trillurnar
um þrjá tíma á miðin. Þar hafa þær
fyllt sig á nokkrum klukkutímum og
síðan tekur við 8-9 tíma stím heim.
Mörgum blöskrar að sjá hleðsluna
á þessum litlu bátum þegar þeir eru
að koma í land svona langa leið því
þá eru þeir svo signir á sjónum að
ekki er óhætt að drepa á vélinni. Sé
það gert getur sjór farið inn á vél-
ina. Trillukarlarnir segja að það sé í
lagi að róa á Hornbanka meðan best
er og blíðast enda rói menn ekki
þangað nema í góðri spá.
Ekki róa þó allir út á Banka enda
er gott fiskirí í Húnaflóa og nánast
sama hvert bátarnir fara, alls staðar
er fiskur. Fiskurinn er misstór eftir
því hvert er róið þannig að nú hefur
Fiskistofa lokað ákveðnu svæði við
Skallarif á Skaga þar sem of hátt
hlutfall af smáfiski var í aflanum.
Á flestum bátanna eru tveir í
áhöfn, sérstaklega á dagabátunum.
Kvótakarlarnir taka lífinu með
meiri ró og reyna frekar að halda
sig þar sem hægt er fá stóran fisk þó
að minna sé af honum. Karlarnir
sem fréttaritari spjallaði við voru
ánægðir með fiskiríið og aðbúnað og
þjónustu sem þeir fá á Skagaströnd.
Trillur mokfiska
á Hornbanka
Hallgrímur Hjaltason sést hér landa fiski við höfnina á Skagaströnd en mokfiskirí hefur verið þar að undanförnu.
Skagaströnd. Morgunblaðið.
UMFANGSMIKLAR fram-
kvæmdir standa nú yfir í þurrk-
unarverksmiðju Laugafisks í
Reykjadal, en þar eru fyrst og
fremst þurrkaðir hausar og
hryggir fyrir Nígeríumarkað. Á
vefsíðu Útgerðarfélags Akureyr-
inga kemur fram að verið sé að
stórauka afkastagestu verksmiðj-
unnar og bæta vinnslutæknina
með nýrri vélasamstæðu. Um er
að ræða framkvæmdir upp á tugi
milljóna króna.
Fyrir nokkrum mánuðum var
ný þurrkunarlína sett niður í
þurrkunarverksmiðju dótturfyr-
irtækis Laugafisks í Færeyjum
og í framhaldinu var samið við
Skagann hf. um að smíða svipaða
vinnslulínu fyrir verksmiðjuna á
Laugum. Þeirri smíði er nú lokið
og er þessa dagana unnið að því
að koma vinnslulínunni fyrir á
Laugum.
Húsnæði stækkað og
þurrkklefi endurbættur
Lúðvík Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Laugafisks, segir
að nýja vinnslulínan sé raunar
aðeins hluti þeirra breytinga sem
unnið sé að á Laugum því einnig
sé verið að stækka húsnæðið og
endurbæta þurrkklefa. Þá er
ætlunin að byggja yfir nýja
starfsmannaaðstöðu, en sá verk-
þáttur hefur ekki verið boðinn
út.
Tugmilljóna
framkvæmdir
hjá Laugafiski