Morgunblaðið - 11.08.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Norskir dagar á Seyðisfirði
Listviðburðir
og hólmavipp
NORSKIR dagarverða haldnir áSeyðisfirði dag-
ana 13. til 17. ágúst nk.
„Þetta er liður í lista-
hátíðinni „Á seyði“ sem
hófst 14. júní sl. og lýkur
31. ágúst,“ sagði Aðalheið-
ur Borgþórsdóttir, ferða-
og menningarfulltrúi á
Seyðisfirði.
– Hvað er gert á Norsk-
um dögum?
„Það er mjög margt.
Norskir dagar eru fyrst
og fremst haldnir til þess
að minna okkur Seyðfirð-
inga á þau menningar-
tengsl sem voru milli
Seyðisfjarðar og Noregs
fyrr á tímum.
Við byrjum á að heiðra
minningu Norðmannsins
Ottos Wathne sem oft er nefndur
„faðir Seyðisfjarðar“. En hann
fæddist einmitt 13. ágúst 1843.
Í Húsasögu Seyðisfjarðar sem
Þóra Guðmundsdóttir skráði seg-
ir: „Otto Wathne var, að öðrum
norskum síldarspekúlöntum
ólöstuðum, heilladrýgstur byggð-
arlaginu og reyndar íslensku
efnahagslífi öllu. Umsvif hans
voru svo fjölþætt að þótt hin
slóttuga síld gæfi sig ekki misseri
og misseri á ákveðnum miðum þá
stefndi það ekki velferð hans í
voða. En Otto Wathne var búsett-
ur á Seyðisfirði í nærfellt tuttugu
ár og má segja að saga bæjarins á
því tímabili sé saga hans.“
Í öðru lagi verður sett upp sút-
unarverkstæði og sýning tveggja
norskra kvenna, Lenu og Beötu.
Þær búa á Íslandi á bænum Dæli
í Dalvíkurbyggð. Umrætt verk-
stæði verður sett upp á Norður-
götu 2 og verður opið alla norsku
dagana. Konurnar sýna þar list-
muni unna úr hrosshári og einnig
sútun á skinnum. Í Norðurgötu
verður einnig boðið upp á ýmsan
fróðleik um Noreg, norskt hand-
verk, rósamálningu og fleira.
Tónleikar verða í Bláu kirkj-
unni á miðvikudagskvöldið 14.
ágúst. Þá mun Sigmund Saether
leika á harmóniku.“
– Hvenær verður mest um að
vera á svæðinu?
„Hápunktur Norskra daga er
laugardagurinn 17. ágúst sem
byrjar með ratleik um slóðir
Norðmanna á Seyðisfirði. Síðan
verður hólmavipp, golfklúbbur
Seyðisfjarðar stendur fyrir vipp-
keppni – þ.e. að vippa kúlunni á
milli lands og hólma sem er í
miðju Lóninu í miðbæ Seyðis-
fjarðar. Glæsileg verðlaun eru í
boði fyrir þann sem vippar kúl-
unni næst holunni í hólmanum.
Þá verður opnuð sýning sem heit-
ir Ferðafuða og er samsýning
fjölda listamanna. Í sýningunni
taka þátt nokkrir listamenn á
Austurlandi. Harmónikuball
verður um kvöldið í Skaftfelli,
menningarmiðstöð Seyðisfjarðar
sem áður fyrr var norskt sjó-
mannaheimili. Seinna um kvöldið
munu Magnús Einars-
son tónlistarmaður og
Tena Palmer söngkona
leika og syngja í Skaft-
felli.
Verslanir ætla að
draga fram norskar vörur og hafa
í heiðurssessi og veitingahúsin
bjóða sérstaklega upp á veitingar
að norskum sið. Einstaka íbúar
staðarins munu reyna að tala
norsku að gömlum sið – að
minnsta kosti reyna það.“
– Hve oft hafa Norskir dagar
verið haldnir á Seyðisfirði?
„Þetta er í sjötta sinn sem
norskir dagar eru haldnir hér og
þátttaka hefur verið góð, einkum
af hálfu bæjarbúa. Norskir dagar
eru haldnir ekki síst til þess að
minna okkur sem fyrr sagði á
tengsl okkar við Noreg og sögu
staðarins en auðvitað eru allir
velkomnir sem áhuga hafa á
þessu efni.“
– Hefur verið mikill ferða-
mannastraumur til Seyðisfjarðar
í sumar?
„Það hefur verið þónokkuð
mikið um að fólk komi hingað og
skoði bæinn. Við erum með list-
viðburði í gangi allt sumarið, tón-
leikar eru t.d. í Bláu kirkjunni á
hverju miðvikudagskvöldi frá
júní til ágústloka. Einnig erum
við með Listahátíð ungs fólks
sem raunar er nýafstaðin og gekk
mjög vel. Þangað komu ung-
menni alls staðar að á landinu og
tóku þátt í listasmiðjum undir
leiðsögn listamanna. Við erum og
með sýningar í Skaftfelli menn-
ingarmiðstöð og Seyðisfjarðar-
skóla. Boðið er og upp á leiðsögn
um gamla bæinn en á Seyðisfirði
er einn samstæðasti byggða-
kjarni á landinu frá því um alda-
mótin. Hann vekur gjarnan at-
hygli.“
– Eru menn duglegir að gera
upp gömul hús í upprunalegri
mynd á Seyðisfirði?
„Já, það er talsvert um það og
það er alltaf að aukast. Merkileg-
ustu húsin hér, byggingarsögu-
lega séð, eru líklega barnaskóla-
húsið og gamla sjúkrahúsið. Bæði
þessi hús voru flutt inn tilhöggvin
frá Noregi. Þau eru af svokallaðri
„timburklassíkgerð“ en einungis
16 slík hús munu vera
til á landinu. Þessi hús
eru vel varðveitt og
gamla skólahúsið er
enn í fullri notkun og
stendur vel fyrir sínu.
Gamla sjúkrahúsið fær væntan-
lega nýtt hlutverk bráðlega því
að til stendur að nýta það sem
hótel. Þá má nefna bryggjuhúsin
sem voru byggð 1881 og 1882 sem
eru afar merkilegar minjar sem
þarf að varðveita en eru nú í
nokkurri niðurníðslu. Að lokum
langar mig að nefna Vélsmiðju
Seyðisfjarðar sem er elsta vél-
smiðja á landinu.“
Aðalheiður Borgþórsdóttir
Aðalheiður Borgþórsdóttir
fæddist 1. júlí 1958 í Vest-
mannaeyjum. Hún stundaði nám
við gagnfræðaskóla Seyðis-
fjarðar og tónlistarnám við Tón-
skóla Sigursveins á Seyðisfirði.
Hún hefur starfað sem tónlistar-
kennari við sama tónlistarskóla á
Seyðisfirði en er nú ferða- og
menningarmálafulltrúi á Seyðis-
firði. Aðalheiður er gift Sigfinni
Mikaelssyni, framkvæmdastjóra
Austlax, og eiga þau þrjú börn.
Minna á fyrri
tíma tengsl
við Noreg
Nei, Emma mín, ekki núna, ég er með svo hræðilegan höfuðverk.
GUÐMUNDUR Hauksson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis, SPRON, segir að-
spurður að stofnfjáreigendur njóti
sérstakra viðskiptakjara hjá spari-
sjóðnum. „Stofnfjáreigendurnir eru
flestir hverjir mjög góðir viðskipta-
vinir og á þeim grundvelli hafa þeim
verið boðin sérstök kjör, þau sömu og
okkar bestu viðskiptavinir fá.“ Guð-
mundur segir að þeir njóti t.d. sér-
stakra kjara við meðferð á krítar-
kortum og enn fremur í vaxtakjörum.
Inntur eftir því hvort þessir stofn-
fjáreigendur myndu halda sínum sér-
kjörum áfram yrði sparisjóðnum
breytt í hlutafélag segir Guðmundur
að svo myndi verða. „Það yrði haldið
með svipuðum hætti utan um hlutina
og áður,“ segir hann, enda yrðu
stofnfjáreigendurnir áfram meðal
traustustu viðskiptavina sparisjóðs-
ins. „Þeir fengju því áfram meðhöndl-
un samkvæmt því.“
Stofnfjáreig-
endur njóta
sérkjara
MENGUNARVARNIR norska rík-
isins, SFT, hafa gert útgerð Guðrún-
ar Gísladóttur KE-15, Festi hf., að
fjarlægja alla olíu úr skipinu, um 300
tonn, í allra síðasta lagi í lok sept-
ember. Festi hafði áður boðist til að
fjarlægja um 90% olíunnar um borð í
skipinu, sem sökk við strendur
Lófóten um miðjan júní, en SFT vill
að öll olían verði fjarlægð.
Þá hefur útgerðin fengið frest þar
til í lok næstu viku til að gefa skýrslu
um það hvort skipskrokkurinn geti
staðið af sér vetrarveðrið á Lófóten.
Björn Bratfoss, yfirverkfræðingur
SFT, segir að sú skýrsla muni hafa
áhrif á það hvort norsk yfirvöld muni
krefjast þess að farmur í lest skips-
ins, um 900 tonn af síld, verði einnig
fjarlægður. Í byrjun mánaðarins
skilaði lögfræðifyrirtæki íslensku út-
gerðarinnar skýrslu um hugsanleg
umhverfisáhrif af völdum skipsins,
sem einkafyrirtæki í Tromsö, sem
sérhæfir sig í athugunum á umhverf-
isáhrifum, gerði. Þar var mælt með
því að olían yrði fjarlægð sem fyrst
en töldu skýrsluhöfundar að engin
hætta stafaði af farmi skipsins.
Segir Bratfoss að ef útgerðin verði
ekki búin að gera ráðstafanir til að
fjarlægja olíuna í lok september
muni SFT að öllum líkindum ráðast í
þær framkvæmdir og senda íslensku
útgerðinni reikninginn.
Gunnar Felixson, forstjóri Trygg-
ingamiðstöðvarinnar, segir aðspurð-
ur að eitt tilboð hafi borist frá norsk-
um aðila í skipsflakið. Trygginga-
mistöðin hafi á hinn bógin ekki tekið
afstöðu til tilboðsins.
Útgerð Guðrúnar Gísladóttur KE-15
Öll olían verði fjarlægð
fyrir lok september
♦ ♦ ♦