Morgunblaðið - 11.08.2002, Side 21

Morgunblaðið - 11.08.2002, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 21 Verð kr. 39.865 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára. Flug, gisting, skattar, 22. ágúst, viku- ferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860. Ekki innifalið: Forfallatrygging full- orðnir kr. 1.800, börn kr. 900. Akstur til og frá flugvelli erlendis kr. 1.800. Verð kr. 49.950 M.v. 2 í stúdíó/íbúð/herb. Flug, gisting, skattar, 22. ágúst, vikuferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450. Ekki innifalið: Forfallatrygging full- orðnir kr. 1.800, börn kr. 900. Akstur til og frá flugvelli erlendis kr. 1.800. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Nú bjóðum við síðustu sætin í ágúst til Mallorca á ótrúlegu tilboði þann 22. ágúst í eina eða tvær vikur. Beint flug með Heimsferðum á þennan einstaka áfangastað. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin, og þremur dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Síðustu sætin í ágúst Síðustu sætin til Mallorca 22. ágúst frá 39.865 STÓR ÚTSALAN hefst í fyrramálið. Mikill afsláttur! hygli þegar það kom í ljós að árið 2000 voru æðstu stjórnendur að meðaltali farnir að bera úr býtum 531-föld verkamannalaun á mán- uði. Já. Töluvert meira en fimm- hundruðföld verkamannalaun. Það kom líka í ljós að 75 af hundr- aði þeirra hlutabréfa sem dreift var til starfsmanna rötuðu jafnan í hendur fimm æðstu stjórnenda þeirra. En núna er veröldin breytt hér í vatíkani hinnar kapítalísku kirkju. Stór og virt fyrirtæki (virðing er jú hvers dollara virði) hafa hvert af öðru verið staðin að glæpsamlegu bókhaldssvindli til að viðhalda verðinu á hlutabréf- unum og stjórnendurnir, sem nokkrum vikum áður voru goðumlíkar hetjur gróðahafsins, færandi skínandi og skrjáfandi aflann að landi, eru nú jafnvel handteknir og járnaðir að al- menningi ásjáandi. tundra@vortex.is TRÚIN flyturfjöll ogskilur eft-ir ber-angur. Um daginn fór ég í óop- inbera heimsókn til lands þar sem allt er fullkomið og ham- ingjan ekki bara eitt- hvað til að sækjast eftir, heldur hreinlega eina stefnumið stjórnvalda og yf- irlýst ástand íbúanna. Þetta land heitir Disneyland og er um klukkutíma hérna suður af Los Angeles. Mér leið vel þar. Dálítið eins og að koma heim. En að lok- inni heimsókninni tóku hin al- mennu Bandaríki Norður-Ameríku við. Þau eru ekki alveg jafn full- komin. Þegar ég var nýfluttur til Los Angeles til fimm ára dvalar upp úr miðjum níunda áratug síðustu aldar kynntist ég ungri konu sem var félagi í kommúnistaflokki og sagðist reikna með að innan skamms yrði þjóðfélagsbylting í Bandaríkj- unum, því bilið milli ríkra og fá- tækra væri orðið svo ógnarstórt að brýrnar sem héldu þjóðfélag- inu saman hlytu að hrynja hvað úr hverju. Þetta var á miðju síðara kjör- tímabili Reagans, sem áður hafði verið minni háttar leikari og upp- ljóstrari fyrir Alríkislögregluna FBI á McCarthy-tímanum. Reag- an boðaði af þrautþjálfaðri ein- lægni trúna á hið frjálsa mark- aðskerfi og hafði yfir möntruna um dásemdir samkeppni og einkavæðingar án afláts. Það má segja að hann hafi fundið upp góðærið, sem trúarhugtak. Skoðanir vinkonu minnar hljómuðu hálfkjánalega við þær aðstæður sem þá ríktu. Gríðarleg uppsveifla var í efnahagslífinu, fólk hafði bjargfasta trú á kom- andi gróða nýrra fyrirtækja í upplýsingabransanum og reyndar hvaða bransa sem var. Hið op- inbera var ígildi hinnar dauðu handar, frjáls samkeppni og markaður var Eldorado, Shangri la og ameríski draumurinn, allt í einum pakka. Meðal afleiðinganna af þessum trúarbríma var að forstjórar voru nánast teknir í guðatölu. Laun æðstu stjórnenda hækkuðu úr því að vera að meðaltali 42 sinnum hærri en laun verkamanns árið 1980, í það að vera 85 sinnum hærri árið 1990. Og blessað góð- ærið hélt áfram undir stjórn Stóra-Bush og meira að segja verkamennirnir nutu dálítils ágóða, eignuðust fáein hlutabréf og sáu þau hækka í verði með hverjum degi. Lífeyrissjóðirnir þeirra döfn- uðu með sama hætti. Þess vegna veitti fólk því eiginlega ekki at- Frá Disneylandi til lands veruleikans HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson Og viti menn, allt í einu er al- menningur í þessu landi ekki lengur tilbúinn til að falla fram og tilbiðja þessar vellríku hetjur, hvað þá að taka þær trúanlegar. Ýmsir rekja þessa breytingu á afstöðu fólks til árásarinnar á tvíburaturnana. Hún leiddi í ljós að sannleikurinn um ým- islegt er varðaði öryggi og hag almennings reyndist annar en sá sem haldið hafði verið fram. Það má glöggt greina það af umræðum í alvöru fjölmiðlum hér, að margir álíta að hin blinda trú á einkaframtakið og markaðsöflin sem guðsblessun hafi beðið hnekki, sumir nefna skip- brot. Verðbréfadeild Bank of America hefur reiknað út að á þessum síðustu og verstu vikum og mán- uðum hafi jafvirði sex þúsund og sjö hundruð milljarða bandaríkjadala hreinlega glatast á verð- bréfamarkaðnum. Enda þótt hvorki ég né lesendur geti í raun áttað sig á þessari upphæð má vera ljóst að hér er um ofboðsleg verðmæti að ræða. Og nú skilja þau ekkert eftir sig nema óþægi- legar spurningar. Hver átti þetta? Hver tapaði þessu? Hverju er um að kenna? Ef þetta gat horfið svona snarlega, á hverju var það eiginlega byggt? Og þetta spurningafár er ógnvekjandi fyr- ir hann Litla-Bush í Hvíta hús- inu og flokksmenn hans. Fólk er nefnilega að átta sig á því að þeir sem fylltu hinn eitt sinn goðumlíka hóp forstjóra hafa ekki bara verið við stýrið á stórfyrirtækjunum sem nú riða á stöllum sínum, heldur stjórna þeir líka mörgum helstu ráðuneytunum. Dick „Aðkenning“ Cheney var for- stjóri Halliburton; Paul O’Neill fjármálaráðherra var forstjóri Íslandsvinar númer eitt á Austurlandi og í Arn- arhváli, Alcoa; viðskiptaráðherr- ann Don Evans var forstjóri olíu- fyrirtækis; varnarmálatröllið með klettabeltistannstæðið, Don Rumsfeld, var forstjóri hjá G.D. Searle og General Instrument. Og nú eru þeir allir dálítið stressaðir, stjórarnir, því skoð- anakannanir hafa leitt í ljós að mikill meirihluti kjósenda ber nú lítið eða ekkert traust til stórfyr- irtækja og hátt í tveir þriðju telja að ríkisstjórnin taki hag fyr- irtækjanna fram yfir hag almenn- ings. Kemur okkur þetta eitthvað við uppi á Íslandi? Hljómar nokkuð af þessu kunnuglega? Er trú okk- ar á heiðarleika og forsjá mark- aðspostulanna nokkuð að veikj- ast? Eða erum við öll ennþá alsæl í okkar eigin Disneylandi? Tekið er við tímapöntunum og skilaboðum alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 511 8040 Ólafur Þór Ævarsson, dr. med., geðlæknir Hef flutt starfsemi mína í læknastofuna Skipholti 50B

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.