Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 36

Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 36
ALDARMINNING 36 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Steindór Stein- dórsson fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal í Eyja- firði 12. ágúst 1902. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 26. apríl 1997. Þegar Steindór Steindórsson setti punktinn aftan við tveggja binda sjálfs- ævisögu sína, Sól ég sá, í ársbyrjun 1982, var áratugur liðinn frá því hann lokaði dyrum Menntaskólans á Akureyri á eftir sér í hinsta sinn og gerðist eftirlaunamaður. Ekki settist hann þó í helgan stein því á þessum áratug komu út á prenti eftir hann – ekki síst fyrir atbeina Örlygs Hálf- dánarsonar bókaútgefanda – 18 bækur, frumsamdar, þýddar eða endursamdar, en fimm lágu í hand- riti. Má það teljast myndarlegur endahnútur á ævilöngum ritferli sem að lokum taldi hálft sjöunda hundrað titla. Ritstörfum sínum skipti Steindór í fimm meginflokka: 1. Grasafræði og önnur náttúrufræði. 2. Landafræði og ferðaþætti – meginritið er Landið þitt. 3. Blaðagreinar og ritstjórn. 4. STEINDÓR STEINDÓRSSON Þýðingar – hér má telja Ferðabók Eggerts Ólafssonar, Ferðabók Ólafs Olaviusar og Ferðabók Sveins Páls- sonar (ásamt Pálma Hannessyni og Jóni Eyþórssyni) auk ferða- og dagbóka fjölmargra Íslandsfara á 18. og 19. öld. 5. „Ýmislegt“ svo sem Ævisögu Stefáns Stefánssonar og Ís- lenska náttúrufræð- inga. Síðastnefnda bók- in spannar tímabilið frá 1600 til um 1930, hefst á æviágripum Skálholtsbiskupanna Odds Einarssonar og Gísla Oddsson- ar og endar á Guðmundi G. Bárðar- syni. Því miður entist Steindóri ekki heilsa til að skrifa annað bindi, um ævir næstu kynslóðar náttúrufræð- inga, og hafnaði meðal annars tilboði undirritaðs um aðstoð við það verk – sagði að enginn gæti gert það nema hann sjálfur, og nú væri það of seint. Steindór var fjölmenntaður í nátt- úrufræði. Sérgrein hans var þó grasafræði, og á því sviði voru vís- indarannsóknir hans og veigamikill hluti ritstarfa. Um upphaf þeirra og lærdómsrík ráð Guðmundar G. Bárðarsonar segir svo í ævisögunni (II, s. 205): „Fyrsta ritið um það efni [grasafræði] gaf Vísindafélag Íslend- inga út 1931, var það um rannsóknir á skógsvarðargróðri í Þjórsárdal, og ári síðar gaf það út ritgerð um Saf- armýri. Ég hefði tæplega byrjað að skýra svo fljótt frá gróðurrannsókn- um mínum, sem voru á byrjunarstigi, ef Guðmundur G. Bárðarson hefði ekki beinlínis rekið mig til þess. Hann var þá í stjórn Náttúrufræði- deildar Menningarsjóðs og áhrifa- mikill í Vísindafélaginu. Lét hann sér annt um að útvega ungum mönnum styrki til náttúrurannsókna, en eins og hann sagði, „þá verður róðurinn þar þungur, ef ekkert kemur fram um þessar rannsóknir. Það er því beinlínis skylda þín að skrifa um það sem þú kannar jafnóðum og þú hefir eitthvað að segja, svo að alþjóð sjái að eitthvað sé unnið, og fyrir sjálfan þig er það lífsnauðsyn að gefa eitt- hvað út á prent, svo að þú tryggir þér sess meðal náttúrufræðinga“. Þess- um rökum gat ég ekki mótmælt, vissi líka að ráð Guðmundar reyndust hverjum manni vel. Varð það því regla mín að skrifa sem mest um rannsóknir mínar.“ Steindór varð stúdent 1925 og haustið 1930, að loknu námi í Kaup- mannahöfn, var hann settur kennari við hinn nýstofnaða Menntaskóla á Akureyri. Þar var æ síðan megin- starfsvettvangur hans, síðustu árin sem skólameistari. Sumrin og aðrar tómstundir frá skyldustörfum notaði Steindór einkum til rannsókna og ritstarfa. Fyrsta rannsóknaverkefni hans var að kanna gróðurbreytingar af völdum Flóaáveitunnar, en fram- kvæmdirnar við hana stóðu milli 1920 og 1930. Tilgangurinn var að breyta áveitusvæðunum í gulstarar- engi. Sú hugsun byggðist þó fremur á óskhyggju en staðreyndum, og Guðmundur G. Bárðarson benti Steindóri á að það væri verðugt rannsóknarefni að fylgjast með áhrifum áveitunnar. Steindór hóf rannsóknirnar sumarið 1930 en hafði lagt rannsóknaráætlun ásamt styrk- umsókn fyrir Búnaðarfélagið 1928. Auk Flóans skyldi hann skoða gróð- ur á nokkrum sáðsléttum sem gerðar höfðu verið í tilraunaskyni með fræ- blöndur. Þegar hér var komið voru fjögur ár síðan áveitunni hafði verið hleypt á fyrstu svæðin, þannig að þar höfðu gróðurbreytingar þegar orðið. Önnur svæði voru hins vegar enn ósnortin af áhrifum áveitunnar og þau gat hann notað til að skilgreina hina upphaflegu gróðursamsetn- ingu. Þegar Steindór leit til baka hálfri öld síðar virtist honum hann hafa verið heldur illa búinn undir þetta starf, nýskriðinn frá prófborð- inu. Hann þekkti að vísu meginþorra íslenskra plantna og hafði kynnt sér allvel kerfi Chr. Raunkiærs til að skilgreina gróðursamfélög tölfræði- lega, auk þess sem vinur hans H. Mölholm-Hansen hafði skrifað dokt- orsritgerð (Kbh. 1930) um gróðurfar á Íslandi þar sem þessari aðferð var beitt. Aðferðin er í stuttu máli fólgin í því að hringur, sem er 0,1 fermetri að flatarmáli, er settur niður 10 sinnum af handahófi á tilteknu svæði og allar plöntutegundir innan hans greindar. Hlutföll tegunda eru síðan metin út frá því í hve mörgum hinna 10 sýna hún kemur fram. Aðferðin er auðvit- að sérlega heppileg til að skilgreina breytingar sem verða á tilteknu svæði, en einnig er hún notuð til að skilgreina gróðursamfélög, svo sem valllendisgróður, mólendisgróður, mosaþembur, melagróður, mýra- gróður o.s.frv. Með rannsóknum þessa fyrsta sumars, í Flóa, Skeiðum og Þjórsárdal, lagði Steindór grund- völl að því kerfi eða flokkunarlykli sem hann beitti æ síðan og nýttist einnig við undirbúning gróðurkorta af Íslandi og Grænlandi sem hann var síðar aðili að. Steindóri varð snemma ljóst að Flóaáveitan mundi ekki hafa tilætluð áhrif og að fram- tíðin lægi fremur í framræslu vot- lendisins. Lokaskýrsla um áhrif áveitunnar birtist 1943: Gróðurrann- sóknir á Flóaáveitusvæðinu. Sumarið 1931 kannaði Steindór Safarmýri ofan við Þykkvabæ, en nokkru fyrr (1923) hafði verið lokið fyrirhleðslu um Djúpós og var mýrin farin að þorna. Um þá könnun skrif- aði hann aðra vísindaritgerð sína, sem Vísindafélagið birti 1932 – hin fyrsta var um skógsvarðargróður í Þjórsárdal eins og áður sagði. Mýri þessi var um 1600 hektarar að stærð og talin eitt grösugasta starengi landsins, með mörgum tegundum stara. Hún var mjög blaut og störin svo stórvaxin að hægt var að halda saman blaðoddunum yfir hrygg á hesti og þegar stórgripir fóru þar um sá aðeins á bak þeirra. Sagt var sauð- kindur ættu til að týnast í þessu mikla grasi og vera þar á þvælingi vikum saman (Landið þitt). Þegar Steindór kom þarna aftur 1947 var mýrin horfin og þar er nú ræktar- land komið í staðinn. Síðsumars 1931 hófst nýr þáttur í rannsóknastarfi Steindórs: könnun hálendisgróðurs á Íslandi. Hann slóst þá í för með Pálma Hannessyni um Landmannaleið og umhverfis Torfajökul, en Pálmi var þá að leggja drög að ritun árbókar Ferðafélags- ins um þetta svæði. Næstu sumur ferðuðust þeir um Brúaröræfi, suð- austuröræfi og Síðumannaafrétt, Pálmi jarðfræðingur og Steindór grasafræðingur ásamt Magnúsi Björnssyni dýrafræðingi, en auk þess voru með í för Finnur Jónsson málari og ýmsir aðrir. Árangur þess- ara ferða, og annarra styttri næstu árin, var ritið Studies on the Veget- ation of the Central Highland of Ice- land (1945) og framhald þess Um há- lendisgróður Íslands í tímaritinu Flóru 1966–68. Hálendisritgerðirnar tvær, ásamt Skrá um gróðurhverfi (1974), urðu hinn fræðilegi grundvöllur að gróð- urkortagerð Íslands, en jafnframt voru þær fyrsta yfirlit sem gert var um hálendisgróður landsins. Á sama hátt var ritið um mýragróður á Ís- landi, Studies in the Mirevegetation of Iceland (1975), fyrsta yfirlit yfir mýragróður á Íslandi, og raunar fyrsta plöntuvistfræðilega rannsókn á mýragróðri norðurhjarans. Upp- haf þeirrar vinnu var auðvitað rann- sóknirnar á svæði Flóaáveitunnar, en ritið sjálft vann Steindór að miklu leyti í kennsluleyfi í Osló veturinn 1951, þótt ekki væri það fullfrágeng- ið fyrr en löngu seinna. Þriðja stórverkefnið, sem Stein- dór átti aðild að, hófst 1954 þegar dr. Björn Jóhannesson viðraði þá hug- mynd við hann að gera kort af meg- ingróðurlendum á afréttum landsins. Með slíku korti fengist óyggjandi vitneskja um útbreiðslu gróins lands, auk þess sem það skapaði grundvöll að umræðu um það hvort gróður aukist eða eyðist, hver áhrif beitar séu, o.s.frv. Taldi Björn einsýnt að Steindór yrði að taka þátt í korta- gerðinni vegna þess að hann var allra manna fróðastur um hálendisgróður landsins, auk þess sem rit hans um það efni og um íslensk gróðurhverfi yrðu að vera fræðileg undirstaða kortagerðarinnar. Varð það úr að Steindór var með leiðangri korta- gerðarmanna lengri eða skemmri tíma í 12 sumur, 1955–1966. Björn var leiðangursstjóri fyrstu tvö sumr- in, en síðan Ingvi Þorsteinsson þar til verkefnið fluttist frá Rannsókna- stofnun landbúnaðarins til Náttúru- fræðistofnunar árið 1992. Þá var lok- ið kortlagningu um 2⁄3 hluta alls landsins, einnig láglendis en ekki einungis afrétta eins og upphaflega var áætlað. Flokkunarlykill Stein- dórs Steindórssonar og skilgreining gróðurhverfa eru enn í fullu gildi og alfarið notuð við kortagerðina, sem nú fer fram á Náttúrufræðistofnun. Rúmum áratug eftir að Steindór lauk þátttöku í gróðurkortagerðinni (1966) bað Ingvi Þorsteinsson hann að koma með til Grænlands, en þar- lend stjórnvöld höfðu leitað til Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins um gerð gróðurkorts af sauðfjárræktar- héruðum Grænlands á sunnan- og suðvestanverðu landinu. Varð úr að flokkur Ingva ásamt Steindóri var á Grænlandi sumrin 1977–80; síðasta sumarið sem þeir voru að klifrast þarna fótgangandi um hlíðar og slakka varð Steindór 78 ára og ekki orðinn jafn fótviss og fyrr, enda hlaut hann nokkrar byltur og skrokkskjóður í þessum síðustu ferð- um, þótt ekki yrði honum varanlega meint af. Frá sjónarmiði „hreinna rann- sókna“ er rit Steindórs um uppruna íslensks gróður vafalítið áhugaverð- ast: On the Age and Immigration of the Icelandic Flora, sem Vísinda- félagið gaf út 1962. Um það ritaði Hákon Bjarnason skógræktarstjóri, að sér væri engin launung á, að hann teldi útkomu þessarar bókar með því allra merkasta sem skrifað hefði ver- ið um náttúru Íslands fyrr og síðar. Í ritinu leitast Steindór við, út frá út- breiðslu tegunda – líkt og Wallace forðum – að færa rök að því að veru- legur hluti íslenskra plantna hafi lif- að af síðasta jökulskeið, og þar með ísöldina. Hinir ýmsu hlutar íslenska lífrík- isins geta verið af þrennum toga: „upprunalegir“, þ.e. frá því fyrir ís- öld, aðfluttir eftir ísöld, eða innfluttir af mannavöldum. Ýmsir höfðu, og hafa síðan, tekist á við þá spurningu með ýmsum aðferðum hvort ein- hverjar plöntur hafi lifað af ísöldina, en löngum var það ríkjandi skoðun að fimbulvetur ísaldar hafi þakið landið jöklum svo fullkomlega að hin eldri flóra hafi gersamlega þurrkast út. Flestir hinna eldri jarðfræðinga og líffræðinga aðhylltust „tabula- rasa-kenninguna“ – að Ísland hefði komið algerlega gróðurvana undan jöklunum. En árið 1937 lýsti Sigurð- ur Þórarinsson þeirri niðurstöðu sinni að líklegt væri að einkum á fjór- um svæðum á landinu hafi fjöll staðið Mjög gott iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði á 2 hæðum í mjög góðu endabili á snyrtilegri og vel staðsettri húseign. Annars vegar rúmlega 500 fm jarð- hæð með góðum innkeyrsludyrum og uþb. 5 metra lofthæð og hins vegar u.þ.b. 200 fermetra skrifstofuhæð sem auk innangengis milli hæða hefur sérinngang á gafli. Á gafli hússins er einnig op fyrir gálgalyftu. Húsnæðið má því nýta hvort sem um er að ræða í einu lagi eða tvennu. Akoma er mjög góð, stór lóð og bílastæði malbikuð. Hægt er að koma fyrir 40 feta gámum á lóðinni. Næg bílastæði Þetta er húsnæði sem getur hentað fyrir margskonar starfsemi. Laust strax. DRAGHÁLS - TIL SÖLU Til leigu eru tvær hæðir, 3 og 4 í Austurstræti 18. Hæðirnar eru 105 fm með hlutdeild í sameign. Mögulegt er að leigja hæðirnar í sitthvoru lagi. Þetta er mjög skemmti- legt húsnæði og skiptist niður í mismunandi stór skrifstofu- herbergi. Lyfta er í húsinu. AUSTURSTRÆTI - TIL LEIGU Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 LAUFRIMI 24 - 4RA HERBERGJA OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17 Hér gefur að líta rúmgóða og bjarta 99 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í þessu fallega litla fjölbýlishúsi, þar sem hver íbúð hefur sérinngang. M.a. eru 3 góð svefnherb. og þvotta- hús innan íbúðar. Linoleum-dúkar á gólfum. Gott útsýni. Sérbílastæði. Stutt í alla þjónustu. Verð 12, 6 millj. KAREN OG ÓLAFUR SÝNA ÍBÚÐINA Í DAG Á MILLI KL. 14.00 OG 17.00 Kransar - krossar Kistuskeytingar • Samúðarvendir Heimsendingarþjónusta Eldriborgara afsláttur Opið sun.-mið. til kl. 21 fim.-lau. til kl. 22 Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.