Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 41
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 41
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Rannveig Á.Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 821 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakob Þórðarson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Kristbjörg Bjarnadóttir 456 8353
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
HÓTEL BORGARNES
Sími 437 1119
hotelbo@centrum.is
Verð frá síðustu öld!
Gisting fyrir tvo frá kr. 4.990.
Gisting og kvöldverður
kr. 4.990 á mann.
Morgunverður innifalinn
í gistingu.
og Sumarhótelið Hvanneyri
Sími 437 0010
N R
p an
sk li
- ruv
si
p an
n m
Ástvaldur Traustason
ÞETTA byrjaði eiginlegaþannig, að ég fékk send-an tölvupóst 8. mars síð-astliðinn, og var þarbent á ákveðna vefslóð,
http://www.luccaco.com/terra/
terra.htm, og reyndist þar vera á
ferðinni stutt kvikmynd, er nefnd-
ist á ensku „The miniature earth“,
sem útleggst á íslensku „Jörðin í
smækkaðri mynd“. Fyrir henni
stóð Allysson Lucca, sem ég því
miður veit engin frekari deili á.
Þegar ég fyrir skemmstu hugð-
ist fara inn á vefslóðina og skoða
kvikmyndina á ný, var þar tilkynn-
ing um, að sýningum væri hætt.
Myndin hefði fengið góðar við-
tökur, það væri ekki málið, raunar
hlotið fjölda verðlauna, en eig-
endum netþjónsins þætti hún of
umfangsmikil, of plássfrek og því
yrði hún að víkja.
Framleiðandinn er þessa stund-
ina að leita að útgefanda að bók og
fjölmiðlunardiski um þetta sama
efni. Ég ritaði Allyson Lucca bréf
og spurðist fyrir um texta mynd-
arinnar, og hún svaraði að bragði
og vísaði góðfúslega á hann. Sá
mun vera ritaður af Donella H.
Meadows, og ber upphaflega yf-
irskriftina „Who Lives in the
„Global Village?““, eða „Hver býr í
„heimsþorpinu“?“ og er frá árinu
1992 (sjá http://www.empower-
mentresources.com/info2/
theglobalvillage.html).
Þar kemur fram, að ef jarð-
arbúar væru einungis 1.000 talsins,
en ekki 6 milljarðar, eins og þeir
reyndar eru, og byggju allir í einu
og sama þorpinu, yrði skiptingin
þannig, miðað við núverandi hlut-
fall, að 584 væru af asískum upp-
runa, 124 frá Afríku, 95 frá Austur-
og Vestur-Evrópu, 84 frá Mið- og
Suður-Ameríku, 55 frá löndum
gömlu Sovétríkjanna, 52 frá Norð-
ur-Ameríku, og 6 frá Ástralíu og
Nýja-Sjálandi.
Og þetta fólk myndi eiga í all-
nokkrum vandræðum með tjá-
skipti, því 165 töluðu Mandarín
kínversku, 86 ensku, 83 hindi eða
urdu, 64 spænsku, 58 rússnesku og
37 arabísku. Þetta væru samt bara
móðurmál helmings íbúa þorpsins.
Hinir myndu tala (eftir fjölda)
bengali, portúgölsku, indónesísku,
japönsku, þýsku, frönsku og 200
önnur tungumál.
Í þessu 1.000 manna þorpi væru
329 kristnir (og af þeim 187 róm-
versk-kaþólskir, 84 mótmæl-
endatrúar, og 31 úr austurkirkj-
unni), 178 múslimar, 167 utan
trúfélaga, 132 hindúar, 60 búddh-
istar, 45 guðleysingjar, 3 gyðingar
og 86 tilheyrandi öðrum trúar-
brögðum.
Þriðjungur (330) væri börn og
einungis 60 íbúanna eldri en 65
ára. Einungis helmingur barnanna
væri ónæmur fyrir smit-
sjúkdómum, eins og mislingum og
lömunarveiki. Og ekki nema tæp-
lega helmingur giftra kvenna hefði
aðgang að nútíma getnaðarvörn-
um.
Á þessu ári kæmu til með að
fæðast 28 börn; 10 íbúar myndu
deyja, 3 úr hungri, 1 af völdum
krabbameins; 2 dauðsfallanna
yrðu í röðum nýfæddu barna árs-
ins. 1 íbúanna væri smitaður af
HIV-veirunni; sá einstaklingur
væri þó að líkindum ekki kominn
með eyðni. Miðað við 28 fæðingar
og 10 dauðsföll yrði íbúatalan því
komin í 1.018 í upphafi næsta árs.
Í þorpinu myndu 200 íbúanna
eiga 75% alls þess sem aflaðist, en
aðrir 200 bara 2%.
Einungis 70 hefðu yfir bifreið að
ráða (og sumir þeirra raunar fleir-
um en einni). Um þriðjungur íbú-
anna ætti kost á hreinu drykkjar-
vatni. Af hinum 670 fullorðnu í
þorpinu væri helmingurinn ólæs.
Íbúarnir hefðu til ráðstöfunar
6.000 ekrur lands, og af þeim væru
700 ræktað land, 1.400 haglendi
eða beitiland, 1.900 skóglendi,
2.000 eyðimörk, túndra, gang-
stéttir og annað óræktað land;
skógurinn væri á hröðu und-
anhaldi, óræktin í vexti. En hitt
væri nokkuð stöðugt.
Í þorpinu væru 5 hermenn, 7
kennarar, 1 læknir og 3 flótta-
menn. Bæjarkassinn og eigið fé
íbúanna væru samanlagt rúmlega
300 milljónir íslenskra króna á ári,
sem gerðu 300 þúsund krónur á
hvern íbúa, ef skiptingin væri jöfn
og réttlátt (sem hún er ekki, eins
og við höfum þegar séð). Af millj-
ónunum 300 færu 18 milljónir í
vopn og stríðsrekstur, tæplega 16
milljónir til menntamála og rúm-
lega 13 milljónir til heilbrigð-
ismála.
Í jörðu þar undir væri búið að
grafa svo mikið af kjarnorku-
vopnum, að hæglega mætti eyða
þorpinu oftar en einu sinni og
tvisvar og þrisvar. Einungis 100
manns gættu þessara tóla; hinir
myndu fylgjast náið með sérhverri
hreyfingu mannanna, væru stöð-
ugt á verði, fullir ótta, veltandi því
fyrir sér, hvort yfir höfuð væri
mögulegt að lifa þarna í samlyndi
og friði, og ef svo væri, hvort
sprengiefnið myndi ekki samt
losna úr dróma, annaðhvort fyrir
ógætni eða tæknileg mistök. Og ef
svo ólíklega vildi nú til, að ráða-
mönnum dytti í hug að afvopnast í
eitt skipti fyrir öll, og tækju í fram-
haldinu ákvörðun um að eyða þess-
ari feiknarstóru geimaldarpúður-
tunnu, hvar í ósköpunum ætti þá
að losna við öll geislavirku efnin,
sem í henni er að finna?
Morgunblaðið/Þorkell
Þorpið
Hvernig yrði skipting lífsgæða og annars, miðað
við það sem nú er, ef á jörðinni byggju einungis
1.000 manns? Sigurður Ægisson rakst á
þessa spurningu á Netinu, og komst að því að svar-
ið er allrar athygli vert og mikið umhugsunarefni.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Hagnaður Búnaðarbanka
Þau mistök urðu í blaðinu í gær í
frétt um hagnað Búnaðarbanka Ís-
lands hf., að sagt var að hagnaður
bankans á fyrsta ársfjórðungi 2002
hefði numið 1.529 m.kr. fyrir skatta
en 1.261 m.kr. að teknu tilliti til
reiknaðra skatta. Hið rétta er að hér
er um að ræða hagnað bankans á
fyrri hluta ársins 2002. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Brúðargjafir
Mörkinni 3, s: 588 0640
Opið mánudag-föstudags 11-18.
Lokað á laugardögum í sumar
Ísskálar frá
Kr. 4.290
Gjafabrjóstahöld
Meðgöngufatnaður í úrvali
Þumalína, Skólavörðustíg 41
Meðgöngubelti
brjóstahöld, nærfatnaður
Þumalína, Skólavörðustíg 41
FRÉTTIR
MENNTAMÁL