Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.08.2002, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ LÖG hins eins sanna kúreka, Hallbjarnar Hjartarsonar, hafa lengi glatt landann og það er góð hugmynd að fá ýmsa flytjendur til að túlka vel val- in lög eftir hann. Það er fátt ís- lenskara en lögin hans Hallbjarnar, hann er einskonar blanda af Geir- mundarstuði og dægurvísnarauli Gylfa Ægissonar en með kúreka- hatt og viðkvæmari taug. Lög hans eru einföld og standa óstudd án íburðarmikilla útsetninga eða til- halds í flutningi og forvitnilegt að sjá hvernig öðrum tekst til að fanga einlægnina í lögum hans. Lagavalið gefur góðan þverskurð af verkum Hallbjarnar til þessa, þótt eflaust sakni einhverjir sinna uppáhaldslaga – hér er t.d. enginn Kántríbær. Krókódílasveitin er létt og leik- andi, gítarleikurinn fjölbreyttur og eins eru margar raddútsetningar vel heppnaðar. Söngvararnir kom- ast vel frá sínu, sérstaklega eru KK og Magnús Eiríksson afslapp- aðir í flutningi sínum á óðnum til Lukku Láka og undirleikurinn kliðmjúkur. „Sannur vinur“ er grípandi lag með glaðlegum brokktakti og áreynslulaus söngur Hreims Arnar gerir það að einu skemmtilegasta laginu á disknum. Magga Stína nær sérlega vel barnsleikanum í „Sveitadrengur- inn“ og varla hægt að finna heppi- legri rödd við lagið. Einmana slædgítar og við- kvæmnislegur söngur Margrétar Eir í gospelkynjaða laginu „Bæn- in“ dregur fram blíðari hliðina á lögum Hallbjarnar, sem og örlaga- mæðan í „Donna sjómanni“ sem Helgi Björnsson syngur. Minnis- stæðust hlýtur þó að vera útgáfan á „Kúreka norðursins“, því klass- íska lagi. Það er hægt verulega á laginu og slædgítarinn og djúp og rám viskírödd Þorgeirs Guð- mundssonar gefa því aukna dýpt í bæði eiginlegri og óeiginlegri merkingu – eitt andartak heyrir maður næstum því ýlfrið í sléttu- úlfunum og krafsið í hestshófum, meðan kúrekinn raular sína reynslusögu við snarkið frá eld- inum. Disknum lýkur á hinum fjör- uga ræl um Hundinn Húgó sem dýravinurinn dr. Gunni flytur – í þessu tilfelli sem öðru veit maður ekki hvort það er lagið sem velur söngvarann eða öfugt, svo vel fell- ur þetta saman. Allt ber vitni um að þetta er gert af virðingu fyrir tónlistarmannin- um Hallbirni, flutningur og útsetn- ingar vandaðar, smekkleg texta- bók fylgir og ljóst að föðurlandið hefur tekið í sátt þennan spámann kántrísins hér á landi á. Tónlist Undir hatti Hallbjarnar Ýmsir Kúrekinn – Lög Hallbjarnar Hjartarsonar Fljúgandi diskar - Edda Lög eftir Hallbjörn Hjartarson í flutningi hljómsveitarinnar Krókódílarnir og ým- issa söngvara. Hljómsveitina skipa Magnús Einarsson (rafgítar, kassagítar, mandólín, banjó), Eysteinn Eysteinsson (trommur, ásláttur), Pétur Hallgrímsson (rafgítar, kassagítar) og Friðþjófur Sig- urðsson (bassi). Söngvarar eru KK, Magnús Eiríksson, Magga Stína, Hreim- ur Örn, Helgi Björnsson, Þorgeir Guð- mundsson, Gunnar Ólason, Einar Ágúst, Margrét Eir og Dr. Gunni. Hrannar Ingi- marsson sá um upptökur og hljóð- blöndun, framleiðsla og upptökustjórn í höndum Friðþjófs Sigurðssonar. Steinunn Haraldsdóttir Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hallbirni Hjartarsyni er vottuð virðing á hljómdiskinum Kúrekinn.                                                                    LEIKARINN Ben Stiller hefur ákveðið að taka ekki þátt í vænt- anlegri uppfærslu á Broadway í New York af leikritinu Glengarry Glen Ross til að geta eytt meiri tíma með ný- fæddri dóttur sinni og eig- inkonu. Þeim Stiller og leikkonunni Christine Taylor fæddist dóttir á dögunum og seg- ist Stiller ekki tilbúinn að fórna þessum dýrmæta tíma í lífi fjöl- skyldunnar fyrir neitt annað. „Það var erfið ákvörðun að hætta við að taka að mér hlutverkið en forgangsröðun mín hefur breyst eft- ir að við eignuðumst stelpuna,“ sagði Stiller. Uppfærslan er eftir David Mamet, sem státar meðal annars af Pulitzer- verðlaunum, og hefði Stiller leikið þar í félagsskap Danny DeVito. Fjölskyldan í forgang Ábyrgur faðir: Ben Stiller. STJÖRNUSPÁ mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.