Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 52

Morgunblaðið - 11.08.2002, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 2 og 4. Mán 4. Vit 398 SÍMI 588-0800 KRINGLAN www.sambioin.is Sýnd kl. 10. B.i. 14. Vit 393. 1/2 Kvikmyndir.is HETJA MUN RÍSA UPP... ...Á AFTURLAPPIRNAR. Sýnd kl. 5.50 og 8. Vit 415 Þú átt eftir að fá verk í beinin af hlátri. Kolrugluð grínmynd sem kemur öllum í gott skap. Í anda „God's must be crazy“ myndana. i í i i l i l l í ll í Sýnd kl. 6, 7, 8, 9, 10 og 11. POWERSÝNING kl. 10. Bi. 14. Vit 417 Sýnd kl. 1, 2, 3, 4 og 5. Mán kl. 3, 4 og 5. Íslenskt tal. Vit 418 Frumsýn ing Frumsýning Líkar þér illa við köngulær? Þeim líkar ekkert vel við þig heldur! Frábær mynd full af húmor og hryllingi sem á eftir að láta hárin rísa! 5 6 5 7 1 0 0 Fja rða rga t a 13 -15 Ha f na r f i r ð i www.sambioin.is Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán 6. Íslenskt tal. Kl. 10. Mán 8 og 10. B.i. 16. Sunnudagur kl. 2 og 4. Steve Martin Laura Dern Helena Bonham Garter Mávahlátur Kvikmyndir.is DV Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán 6. Með íslensku tali. S ag a u m s tr ák 1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2 26 þúsund áhorfendur  SG DV Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.05. Mán 6, 8 og 10.05. Hvað myndir þú gera ef þú gætir stöðvað tímann? Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán 6, 8 og 10. Frumsýning DV RadíóX Ný sérstök útgáfa! Nú í fyrsta sinn í kvikmyndahúsum með íslensku tali.  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.20. B. i. 16. Mán. kl. 5.40, 8 og 10.20  DV  HL. MBL Sýnd kl. 6. Mán 10. Síðustu sýningar 1/2 Kvikmyndir.is Sunnudagur kl. 2. Forsýning kl. 8. B. i. 12. Forsýning Ben affleck Morgan Freeman Vegna fjölda ás koranna verður myndin sýnd áfr am í örfáa daga SV Mbl ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 8 og 9. Hluti af ágóða myndarinnar rennur til Hjálparstofnunnar Kirkjunnar. BANDARÍSKA leikkonan og rokkstjarnan Courtn- ey Love mun væntanlega fara með hlutverk lafði Macbeth í nýrri kvikmynd sem gera á eftir leikriti Shakespeares í Hollywood. Meðal annarra leikara er Skotinn Peter Mullan. Franski leikstjórinn Luc Bess- on framleiðir myndina en Vincent Regan leikstýrir. Courtney hefur undanfarið numið framsögn til að undirbúa sig fyrir myndina. Hún hefur almennt feng- ið ágætis dóma fyrir myndir sem hún hefur leikið í, einkum The People vs. Larry Flynt. Lafði Courtney Courtney Love ÞAÐ ER sjaldan sem íslensk- ur myndasöguhöfundur nær tíu þúsund eintaka sölu. Ætli það hafi bara nokkurn tíma gerst? Nú er hins vegar orðin breyt- ing á því. Modi Thorsson heit- ir rithöfundur sem lengi hef- ur kafað í hinn drungalega fantasíuheim Dungeons & Dragons. Fyrir hina óinn- vígðu var Dungeons & Dragons upphafið að því sem í daglegu tali kallast hlutverka- spil (e. roleplay). Í slíkum spilum nota menn hugmyndaflugið til að spinna sögur sem síðan eru notaðar sem rammar utan um leikinn sjálfan. Sög- urnar eiga sér stað í einhverjum af hinum mörgu heimum (e. settings) sem spilararnir geta kosið sér til að vinna með. Allar þessar sagnir eiga sér gjöf að gjalda til meistara Tolkien en heimurinn sem hann skóp í Hringadróttinssögu og fleiri ritum er endalaus uppspretta hugmynda fyrir nútímafantasíuhöfunda. Modi hefur lengi gegnt hlutverki sagnameistara í slíkum spilum og er bókin sem hér er til umfjöllunar að nokkru leyti byggð á þeim sögum sem hann hefur mat- reitt ofan í meðspilara sína. Það er því ekki amalegt að geta komið þessari sögu á framfæri við stærri hóp les- enda í formi myndasögu. Aðalpersóna bókarinnar, Vecna, er forn fjandi sem gegnir stóru hlutverki í einhverjum Dungeons & Dragons heiminum. Í byrjun bókarinnar gefur á að líta mikið umsátur uppvakninga, drísla og allra handa andskota um borgarvirkið Fleeth og Vecna vakir yfir stríðinu með sinni ófrýnilegu ásjónu. Innan borgarmúranna er að finna töfrapresta og hermenn sem berjast hetjulegri baráttu gegn árás- arhernum. Prestarnir tilbiðja hinn mikla Pholtus sem sagan segir að geti eytt heilu óvinaherjunum með ljósi sínu ef svo ber undir. Vecna hefur harma að hefna gegn prestsreglu Pholtusar og stefnir að því að leggja borgina í rúst og nota íbúa hennar sínum illu áformum til framdráttar. Það er ekki mikil léttúð yfir skrif- um Moda. Hann beitir mergjuðu tungutaki til að koma sögunni og dramanu til skila eins og til siðs er í góðum fantasíum. Það er reyndar svo að á stundum átti ég nokkuð erfitt með að fóta mig í textanum og sum orðin skildi ég einfaldlega ekki (hvað þýðir til dæmis þetta „revenant“ sem nefnt er í titlinum?) en ætli það segi ekki meira um enskukunnáttu mína en ritstíl höfundar. Illmennska og ófrýnileiki þeirra vondu er mikill og pínslirnar sem þeir bjóða eiga sko ekkert skylt við tannpínu eða fót- svepp; ónei, á boð- stólunum er eitthvað miklu verra eins og ei- líf áþján í helvíti og svoleiðis. Sagan er vel ofin og augljóst að Modi hefur gefið sér langan tíma til að vinna hin smæstu smáatriði og áreiðanlegt að hin verk- lega notkun á sögunni í spilaumhverfinu hefur gefið henni aukna dýpt. Kevin McCann er nokk- uð flinkur teiknari. Myndir hans eru drungalegar í takt við söguefnið og notkun hans á málningu til að lita persónurnar er oft vel heppnuð en slíkt er ekki mjög algengt í myndasögum í dag. Vel teiknaðar persónurnar í forgrunni eiga þó betra skilið en notk- un McCanns á afskaplega stirðum tölvuteikningum sem bakgrunn. Byggingar og önnur föst fyrirbæri mynda oft hróplega mótsögn við lif- andi áferðina á persónunum. Slík at- riði geta ráðið úrslitum í sögum á borð við þessa þar sem kröftug og þung stemmningin skiptir svo miklu. Það er ekki laust við að hjartað slái ofurlítið hraðar í garð myndasagna sem gerðar eru af íslenskum höfund- um. Það er fátt jafnkitlandi fyrir þjóð- arstoltið eins og að vita að við hlið manns í Bónus stendur hæfileikarík- ur einstaklingur sem er að ,,meika það í útlöndum“. Modi þarf þó enga íslendingarembuhækju til að hljóta góðan róm fyrir þetta verk sitt. Hann er vel að þessum tíu þúsund eintökum kominn og vonandi að þær sölutölur hækki bara með komandi heftum af þessari framhaldssögu. MYNDASAGA VIKUNNAR Kominn tími til að skipta um vinnu. Verklegur söguspuni Heimir Snorrason Myndasaga vikunnar er Vecna- Hand of the Revenant eftir Modi Thorsson og Kevin McCann. Iron Hammer Graphics gefur út, 2002. Bókin fæst í Nexus og kostar 1.250 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.