Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍBV og Fylkir eru úr leik / C2 Kristján hættir með Þórsara / C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR  Skart á trúarlegum nótum/B1  Andstæður á hverjum kolli/B2  Stílistar spara/B2  Haust- og vetrartískan/B4  Sjón er sögu ríkari/B6  Auðlesið efni/B8 Sérblöð í dag STÓRBRUNINN í Fákafeni er nú rannsakaður sem sakamál að feng- inni þeirri niðurstöðu lögreglunnar að eldurinn gæti ekki hafa kviknað af eðlilegum orsökum. Enginn liggur þó undir grun um íkveikju og hefur enginn verið handtekinn vegna málsins. Vettvangsrannsókn var gerð af tæknideild lögreglunnar fyrstu dagana eftir brunann og jafnframt hefur rannsóknardeild lögreglunn- ar unnið að málinu. Einnig hafa aðrir sérfræðingar verið kallaðir til, bæði frá ríkislögreglustjóra og Brunamálastofnun. Engar vísbendingar eru um eldsupptök út frá rafmagni og er sá möguleiki talinn útilokaður, m.a. með rannsókn sérfræðings frá rafmagnsöryggisdeild Löggilding- arstofu. Niðurstaða rannsóknar lögreglunnar, sem byggist á vett- vangsrannsókn og öðrum athug- unum, er sú að allar líkur séu á því að eldurinn sé af mannavöldum, þannig að um íkveikju sé að ræða. Kannað hverjir voru á ferð um húsnæðið „Öll ummerki benda til þess að þarna hafi verið farið inn og kveikt í,“ segir Hörður Jóhannesson, yf- irlögregluþjónn í Reykjavík. „Það hefur líka verið kannað hverjir gengu þarna um en það hefur ekki leitt okkur að neinni niðurstöðu og við höfum engan sérstakan grun- aðan um verknaðinn sem er kannski það alvarlegasta í málinu.“ Staðfest hefur verið að eldsupp- tökin eru í þeim hluta kjallara hússins sem hýsir vörulager Teppalands. Aðrir möguleikar hafa verið útilokaðir að því marki sem nauðsynlegt er með þeirri tækni og rannsóknaraðferðum sem lög- reglan ræður yfir, að því er fram kemur í fréttatilkynningu hennar um málið. Rannsókn lögreglunnar hefur m.a. beinst að því að upplýsa um mannaferðir á staðnum rétt fyrir brunann. Hefur verið rætt við marga sem voru á staðnum um það leyti sem eldurinn kom upp, bæði starfsmenn og viðskiptavini. Eftir því sem lögreglan kemst næst var enginn staddur á lagernum þegar eldsins varð vart. Íkveikja sem hefur í för með sér almannahættu varðar að minnsta kosti hálfs árs fangelsi skv. 164 gr. almennra hegningarlaga. Enn þyngri refsing, eða a.m.k. tveggja ára fangelsi, liggur við því ef brennuvargurinn hefur séð fram á, að mönnum mundi vera bersýni- legur lífsháski búinn eða eldsvoð- inn mundi hafa í för með sér aug- ljósa hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna. Bruninn í Fákafeni 9 rannsakaður sem sakamál Lögreglurannsókn bendir til íkveikju BÆJARSTJÓRN Seltjarnarness stóð í gær fyrir hátíðardagskrá til heiðurs Sigurgeiri Sigurðssyni, fyrrverandi bæjarstjóra á Seltjarn- arnesi, og Sigríði Gyðu Sigurð- ardóttur, eiginkonu hans. Sigurgeir lét af starfi bæj- arstjóra á Seltjarnarnesi í júní síð- astliðnum, en hann hafði þá starfað sem bæjar- og sveitarstjóri á Sel- tjarnarnesi frá árinu 1965. Hann sat í bæjarstjórn í 40 ár og færðu leikskólabörn þeim hjónum 40 rósir við athöfnina. Heiðursdagskráin í gær var hald- in í Seltjarnarneskirkju þar sem fléttað var saman tónlistaratriðum og stuttum ávörpum. Að lokinni dagskrá var móttaka í safn- aðarheimili kirkjunnar. Bæjarstjóri kvaddur með hátíð- ardagskrá Morgunblaðið/Arnaldur Leikskólabörn á Seltjarnarnesi tóku þátt í kveðjuhátíðinni og færðu Sigurgeiri fjölda rósa. BÆJARSTJÓRN Borgarbyggðar ákvað á fundi sínum í gær að nýjar kosningar í sveitarfélaginu færu fram 2. nóvember næstkomandi, en félagsmálaráðuneytið ógilti í júlí- lok, með úrskurði, sveitarstjórnar- kosningarnar sem fram fóru í Borgarbyggð hinn 25. maí síðast- liðinn. Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar, segir að ákvörðun bæjarstjórnar hafi verið tekin samkvæmt úr- skurðinum og í samráði við yfir- kjörstjórn. Í framhaldinu fari af stað hefðbundinn undirbúningur af hálfu kjörstjórnar fyrir kosning- arnar, sem verða, eins og fyrr seg- ir, í nóvember. Kosningarnar í Borgarbyggð Kosið verður 2. nóvember BRESKA blaðið The Independent segir í netútgáfu sinni að yfirtökutil- boð Philips Green í Arcadia geti verið í hættu eftir húsleit efnahagsbrota- deildar lögreglunnar í Reykjavík í húsakynnum Baugs á miðvikudags- kvöld. Green gerði yfirtökutilboð í Arcadia-keðjuna upp á 800 milljónir punda (um 109 milljarða íslenskra króna) í samráði við Baug. Baugur á 20% hlutafjár í Arcadia. Green viðurkennir í samtali við The Independent að húsleitin gæti skaðað tilboð hans. „Annaðhvort er þetta ekkert, og þá höldum við áfram, en ef það er eitthvað þarna hefur staðan breyst,“ sagði Green. Hann vonaðist til að selja tískufatakeðjurnar Miss Selfridge og Top Shop til Baugs til þess að vega á móti kostnaðinum við tilboðið. Baugur hafði lofað að styðja tilboð hans. Ekki náðist í Jón Ásgeir Jóhann- esson, stjórnarformann Baugs Group hf., í gærkvöld til að bera þessa frétt undir hann. Frétt The Independent um húsleitina hjá Baugi Group hf. Yfirtökutilboð gæti verið í hættu Afleiðingar bilunarinnar í sæstrengnum Cantat3 Korthafar er- lendis urðu fyr- ir óþægindum ÍSLENSKIR korthafar erlendis urðu fyrir óþægindum þegar allt síma- og netsamband við útlönd lá niðri í nokkra klukkutíma á miðvikudag vegna bilunar í Cantat3-sæstrengnum, sem ligg- ur milli Evrópu og Kanada í gegnum Ísland. Ragnar Önundarson, fram- kvæmdastjóri Europay á Íslandi, segir að fyrirtækið noti sæstreng- inn í sambandi við heimildargjöf í t.d. verslunum og þegar samband rofnar falli hún niður. Enn baga- legra sé að allt símasamband við landið rofnar og því sé ekki hægt að hringja og fá munnlega heim- ild. Lentu í erfiðleikum í verslunum Þess vegna sé ljóst að korthaf- ar fyrirtækisins hafi orðið fyrir miklum óþægindum vegna bilun- arinnar í sæstrengnum. Fólk geti hafa lent í erfiðleikum þegar það hafi verið að versla, gera upp á gististöðum, matstöðum, flugvöll- um og víðar, en ekki liggi fyrir um hve marga hafi verið að ræða eða hve vítæk áhrifin hafi verið. Þótt grípa hafi mátt til gamla lagsins og nota handvirkan búnað verði að hafa í huga að þá sé ætl- ast til þess að sá sem tekur við greiðslunni geti hringt og fengið heimild munnlega en ekki hafi heldur verið hægt að hringja. „Í nútímaþjóðfélagi erum við háð tækninni og svona lagað má bara ekki gerast,“ segir hann og bætir við að reynt verði að hafa sam- band við þá sem urðu fyrir óþæg- indum og þeim gerð grein fyrir málinu. Leifur Steinn Elísson, aðstoð- arframkvæmdastjóri VISA á Ís- landi, segir vel hugsanlegt að ein- hverjir hafi lent í vandræðum með VISA-kort erlendis vegna bilunarinnar í sæstrengnum, en að ekki hafi verið haft samband við sig vegna þess. Hótelgestir sýni t.d. venjulega kort sitt við komu eða fyrr og því ættu þeir ekki að hafa lent í vandræðum við brottför hafi hún átt sér stað meðan bilunin stóð yfir. Hann hafi þó heyrt að einhverjir hafi átt í erfiðleikum með að taka fé út úr hraðbönkum. Varakerfi erlendis taka við þegar bilun verður Hann segir að VISA sé með varakerfi erlendis, sem taki yfir þegar svona gerist eins og bilun í sæstreng, og gera megi því skóna að þau hafi ráðið við vandann að mestu leyti, en þau séu öðruvísi stillt og höftin meiri. Reglurnar varðandi t.d. það að taka út reiðufé séu stífari og því sé hugs- anlega ekki hægt að taka út eins mikið og heimild segi til um, þeg- ar heimildir fara um varakerfin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.