Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigurþór Mar-geirsson fæddist á Stokkseyri 27. október 1925. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 22. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Mar- geir Guðmundur Rögnvaldsson, verkamaður í Vest- mannaeyjum, f. 10.6. 1898 í Hnífsdal, d. 20.11. 1930, og Anna Gíslína Gísladóttir, húsmóðir í Vest- mannaeyjum, f. 6.7. 1898 á Stokks- eyri, d. 11.9 1984. Sigurþór ólst upp hjá hjá móðurforeldrum sín- um, Guðrúnu Sigurðardóttur, f. 5.10. 1868, d. 30.12. 1945, og Gísla Gíslasyni, f. 27.11. 1866, d. 29.12. 1935, og móðursystkinum sínum, Gísla Gíslasyni, f. 6.10. 1904, d. 17.6. 1992, og Ingibjörgu Gísla- dóttur, f. 28.12. 1911. Systkini Sig- urþórs eru Sigurður Valdimar Ragnar Margeirsson, f. 17.9. 1928, d. 5.3. 1931, og Guðrún Margeirs- dóttir hjúkrunarfræðingur, f. 25.8. 1929. Hálfsystkini sammæðra eru Trausti Sigurðsson, stýrimaður og 1986, Jóhönnu Gerðu, f. 13.9. 1990, og Eygló Ósk, f. 1.2. 1995; 3) Ingi- björg Þórdís, f. 21.12. 1962, fram- kvæmdastjóri fjölskylduþjónust- unnar Miðgarðs í Reykjavík, gift Sigurði Kristni Erlingssyni, fram- kvæmdastjóra tölvufyrirtækisins Arcis. Þau eiga fjögur börn, Erling Jón f. 17.5. 1981, sambýliskona Hannah Ingeborg Hansen, Þóru Björgu, f. 25.10. 1989, Gísla Berg, f. 3.10. 1991, og Kristin Snæ, f. 3.8. 2001. Sigurþór stundaði verslunar- störf í Reykjavík á árunum 1953– 1958. 1958 flutti hann til Seattle í Washington í Bandaríkjunum þar sem hann starfaði hjá bílainnflutn- ingsfyrirtæki sem flutti inn Peug- eot-bíla en lærði jafnframt bifvéla- virkjun og varð bifvélavirkja- meistari. Sigurþór kom heim til Íslands 1963, stundaði verslunarstörf í Reykjavík 1963–64 en varð síðan forstjóri Hafrafells hf. í Reykjavík sem flutti inn og gerði við Peu- geot-bíla. Sigurþór seldi fyrirtæk- ið árið 1986. Hann starfaði síðan hjá bílafyrirtækinu Jöfri þar til hann lét af störfum árið 1998. Sig- urþór var virkur félagi í Lions- klúbbnum Frey í áratugi, auk þess í Bílgreinasambandinu, Gigtar- félagi Íslands, Húsbílafélaginu og SÍBS. Útför Sigurþórs verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fyrrverandi starfs- maður hjá ÍSAL, f. 14.12. 1932, og Brynja Sigurðardóttir hús- móðir, f. 20.6. 1934. Sigurþór kvæntist 3.7. 1954 Þóru Ásu Guðjohnsen, f. 17.3. 1930 á Húsavík, hús- móður. Hún er dóttir Sveinbjörns Guðjohn- sen, sparisjóðsstjóra á Húsavík, f. 14.3. 1873 á Húsavík, og Guðrún- ar Hallgerðar Eyjólfs- dóttur húsmóður, f. 18.9. 1897 á Kirkjubæ í Fljótsdalshéraði. Börn Sigurþórs og Þóru Ásu eru: 1) Halldór Gísli, f. 13.12. 1954, bílasmiður og versl- unarmaður í Hafnarfirði, kvæntur Sigríði Jónsdóttur, lyfjatækni og sjúkraliða á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi. Þau eiga tvö börn, Önnu Sigríði, f. 15.10. 1978, og Jón Þór, f. 28.6. 1985; 2) Guðrún Gerða, f. 5.10. 1956, skólaliði í Ölduselsskóla í Reykjavík, gift Gústafi Adolfi Hjaltasyni, vél- tæknifræðingi hjá Det Norske Veritas. Þau eiga fimm börn, Sig- urþór Hjalta, f. 5.5. 1979, Krist- rúnu, f. 6.1. 1985, Ásbjörgu, f. 21.2. Elsku afi, það er svo erfitt að þú skyldir vera tekinn svona skyndilega frá okkur, en við huggum okkur við að þér líður núna vel hjá Guði og munt alltaf passa okkur. Þú varst svo góður vinur okkar, skemmtileg- ur og hafðir alltaf tíma til að hlusta á okkur, gera svo margt með okkur. Þú sagðir aldrei nei, þegar við báð- um þig um að hjálpa okkur, keyra okkur eitthvað eða aðstoða okkur. Það var svo gaman þegar við vorum að syngja saman og þú kenndir okk- ur svo mörg falleg lög, eins og Lilj- una, sem þér þótti svo vænt um og við munum aldrei gleyma. Elsku afi það er okkur svo dýr- mæt minning að hafa fengið að fara með ykkur ömmu í húsbílaferðalagið í sumar. Þar sem við spjölluðum, spiluðum, sungum og dönsuðum og áttum svo góðar stundir saman. Elsku afi, þú varst alltaf svo dug- legur að fylgjast með okkur í skól- anum og áhugamálunum okkar, og það gaf okkur svo mikið hvað þú varst stoltur að sjá okkur ná árangri í því sem við vorum að gera. Við höf- um haft það svo gott að hafa ykkur ömmu hjá okkur í sama húsi og alltaf getað komið til ykkar hvenær sem við vildum. Okkur finnst mjög gott að vera svona nálægt ömmu núna og getum stutt við hana og hún við okk- ur, við ætlum að passa hana fyrir þig. Elsku afi, við söknum þín svo mik- ið og munum alltaf elska þig og muna eftir þér. Við ætlum líka að segja Kristni Snæ mikið frá þér, af því að hann er of lítill til að muna eftir öll- um góðu stundunum sem hann átti með þér. Ég leit eina lilju í holti, hún lifði hjá steinum á mel. Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk, en blettinn sinn prýddi hún vel. Ég veit það er úti um engin, mörg önnur, sem glitrar og skín. Ég þræti ekki um litinn né ljómann, en liljan í holtinu er mín. Þessi lilja er mín lifandi trú. Hún er ljós mitt og líf mitt og yndi. Þessi lilja er mín lifandi trú. Og þó að í vindinum visni á völlum og engjum hvert blóm og haustvindar blási um heiðar með hörðum og deyðandi róm. Og þó að veturinn komi með kulda og klaka og hríðar og snjó. Hún lifir í hug mér sú lilja og líf hennar veitir mér fró. Þessi lilja er mér gefin af Guði og hún grær við hans kærleika og náð. Að vökva ’ana ætíð og vernda er vilji mín dýrasta ráð. Og hvar sem að leiðin mín liggur þá lilju í hjartastað ber en missi ég liljuna ljúfu þá lífið er farið frá mér. (Höf. ók.) Gísli Bergur og Þóra Björg. Okkur setti hljóð er okkur barst andlátsfregn okkar góða og trygga vinar, Sigurþórs Margeirssonar. Sumarið 1954 kvæntist Sigurþór sinni ágætu konu, Þóru Ásu Guð- johnsen frá Húsavík og áttu þau lengst heimili í Háagerði í Reykja- vík. Sigurþór var bifvélavirki að mennt og settust þau að um nokkurt skeið í Seattle í Bandaríkjunum. Þegar heim kom stofnaði hann Hafrafell hf. og rak bifreiðaumboð fyrir franska bifreiðaframleiðendur og bifreiðaverkstæði, fyrst á Grett- isgötu 21 en síðan í glæsilegum húsa- kynnum á Ártúnshöfða. Eftir að þau seldu fyrirtækið var hann þó nýjum eigendum til halds og trausts, sér- staklega í samskiptum við bílaverk- smiðjurnar erlendis, enda lék slík vinna í höndum hans. Nákvæmni og samviskusemi í hvívetna samfara einstakri ljúfmennsku í mannlegum samskiptum gerði hann eftirsóknar- verðan til slíkra starfa. Heimilisandinn á heimili Sigur- þórs og Þóru Ásu var einstakur, ein- lægnin og góðvildin í garð vina var slík að öllum hlaut að líða þar vel. Mörg gestaboð voru þar haldin af ýmsum tilefnum, smáum og stórum, veisluborð jafnan hlaðin af myndar- skap Þóru Ásu og ekkert til sparað, allir skyldu mettir og glaðir. Að gleðja vini sína og kunningja kunnu þessi samhentu hjón. Sigurþór var mikill tónlistarmaður og þegar hann hafði tekið sér gítarinn í hönd tókst honum að hrífa alla með í söng og gleði og var þá ávallt glatt á hjalla. Lög Oddgeirs og Ása í Bæ voru Vestmannaeyingnum kærust og túlkaði hann þau af listrænni næmi. Það er fullvíst hægt að segja um Sigurþór að hann hafi verið fallegur maður. Góðvild, hjartahlýja og til- litssemi í garð samferðarmanna var honum svo eðlislæg og einlæg að aðdáunarvert var, og nutu þess allir sem einhver samskipti áttu við hann. Ef eitthvað bjátaði á hjá þeim sem honum voru kærir var hann ávallt með útrétta hjálparhönd. Hann var hógvær, hlédrægur og dagfarsprúð- ur maður með fallega áru sem lýsti upp umhverfið og gerði það kær- leiksríkt. Það var Sigurþóri líkt að aðstoða sína góðu konu í áhugamálum henn- ar þegar dagsverki hans í viðskipta- rekstri var lokið. Þóra Ása hefur í langan tíma unnið öflugt starf í ætt- fræðirannsóknum. Til að létta henni vinnuna tók hann til við að ljósrita hvers kyns heimildir, kirkjubækur, manntöl, minningargreinar o.fl. Ekki lét hann við svo búið sitja, held- ur lærði bókband og batt inn hundr- uð bóka í gagnasafn hennar. Fyrir nokkrum árum keyptu þau hjón stórt hús í Logafold 68 ásamt dótturinni Ingibjörgu og tengdasyn- inum Sigurði, og bjuggu þar í sam- býli við þau. Þar innréttaði Sigurþór bjarta og fallega íbúð og þar nýtur sín hans bókbandshandverk, fræði- manninum Þóru Ásu til ómældrar gleði. Honum tókst vel það hlutverk að gleðja aðra. Að ferðast og skoða nýja staði var sameiginleg áhugamál þeirra hjóna. Margar ferðir fóru þau erlendis, á gamlar slóðir í Bandaríkjunum að hitta gamla vini og í Kanada, þar sem þau höfðu eignast marga vini. Fjölmargir voru þeir Vestur-Íslend- ingarnir sem áttu síðan öruggt skjól og leiðsögn þeirra, þegar þeir sóttu Ísland heim. Einnig gerðu þau víð- reist á aðra staði. Undanfarin ár lögðu þau áherslu á að kynnast Ís- landi betur. Sigurþór smíðaði mynd- arlegan húsbíl og ferðuðust þau mik- ið á honum, ýmist ein eða í samfloti við félaga sína. Vegferð hans í þess- ari jarðvist er nú lokið. Þóra Ása hefur misst mikið, ekki aðeins góðan lífsförunaut, heldur einstakan vin. Þóru Ásu, börnunum Halldóri Gísla, Guðrúnu Gerðu, Ingi- björgu Þórdísi, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum ástvinum óskum við blessunar á erfiðum tím- um. Minningin um góðan dreng mun lifa og ylja. Þorsteinn og Hrefna. Sigurþór Margeirsson var eitt af þeim fjölmörgu ungmennum, sem veiktust af berklum. Fyrir og um miðja síðustu öld voru berklar stærsta heilbrigðisvandamál þjóðar- innar. 17 ára fór hann á Vífilsstaða- hælið. Berklalyfin voru þá ókomin en með loftbrjóstaðgerðum náði hann sæmilegri heilsu og hélt áfram að taka þátt í atvinnulífinu í Eyjum. Hann þekkti vel hinn kunna lagahöf- und Oddgeir Kristjánsson og lék með honum í lúðrasveit. Textahöf- undar Oddgeirs voru Ási í Bæ og Árni úr Eyjum. Sigurþór kunni sög- una af því þegar Oddgeir hafði samið fallegt lag og Ási ætlaði að semja texta. Þeir hittust af þessu tilefni, en urðu eitthvað ósáttir og Oddgeir fór í hálfgerðum styttingi. Af þessu tilefni varð síðan til hinn rómantíski texti Ása: „Ég veit þú kemur í kvöld til mín, þó kveðjan væri stutt í gær.“ Tvisvar aftur þurfti Sigurþór á Víf- ilsstaði. Hann tók þar virkan þátt í félagslífi sjúklinga, spilaði á gítar, söng í kirkjukór og tók þátt í leiksýn- ingu. Hann tók einnig þátt í að girða um það bil hektara spildu austan við Vífilsstaðavatn, sem Hörður Ólafs- son hafði fengið til trjáplöntunar. Þar er nú myndarskógur. Frá Vífils- stöðum lá leiðin á Vinnuheimilið á Reykjalundi. Þar vann hann á járn- smíðaverkstæðinu en þar voru þá smíðuð öll skólahúsgögn landsins. Á Reykjalundi stundaði hann jafn- framt iðnskólanám, eftir að deild Iðnskólans var stofnuð þar. Á Reykjalundi hitti hann konuefni sitt, Þóru Ásu Guðjohnsen en hún hafði einnig verið berklasjúklingur. Eftir útskrift af Reykjalundi hófu þau hjón búskap í Reykjavík og Sigurþór vann við bílaviðgerðir. Nokkrum ár- um seinna fluttu þau til Seattle í Bandaríkjunum þar sem móðir Þóru og bræður voru búsett. En ættjörðin togaði þau aftur heim eftir nokkurra ára útivist. Sigurþór hafði unnið í Seattle hjá góðu bifreiðaumboði og það var grundvöllurinn að því að hann rak fyrirtækið Hafrafell hf., Peugeot-umboðið í áratugi. Hann hafði orð á sér fyrir sanngirni í við- skiptum og góða þjónustu. Honum þótti alla tíð vænt um Reykjalund og SÍBS og vildi veg þess sem mestan. Mörg síðustu árin var hann í stjórn Reykjavíkurdeildar SÍBS og vildi þar vinna undir kjörorði SÍBS „Styðjum sjúka til sjálfsbjargar“. Eftir meira en hálfrar aldar kynni við Þóru Ásu og Sigurþór er þakk- læti efst í huga og við erum þakklát fyrir að vinskapur hefur haldist með börnum og barnabörnum. Afkom- endur og þeir sem þekktu munu minnast Sigurþórs er þeir heyra góðs manns getið. Sigrún K. Árnadóttir og Sveinn Indriðason. Hlýja og glettni koma upp í hug- ann þegar Sigurþórs Margeirssonar er minnst. Ég þekkti hann samt varla undir þessu nafni sínu, enda Siggi miklu þjálla í munni þegar við krakkarnir norðan úr landi fengum að njóta samvista við hann. Hann var tíður gestur á heimili okkar á Ak- ureyri og í hvert sinn sem hann leit inn með Þóru Ásu konu sinni á ferð- um þeirra um landið blasti við manni brosið góða og vinsemdin sem var áberandi þáttur í fari hans. Siggi var margur maður. Hann gat verið rólegur og yfirvegaður, jafnvel íhugull og ávallt elskur að margvíslegu mannlífi heima og heiman. Þess á milli tók hann fjör- kippinn og hentist á milli landshorna á bílunum sínum og hélt þá einatt uppi hrókasamræðum yfir landið þvert og endilangt. Og ekki gleymast heldur ferðirnar austur á Mývatn þar sem asinn og einlægnin fór skemmtilega saman í einni og sömu sálinni. Hann var ferðalangur af lífi og sál. Að leiðarlokum ber að þakka margt. Ekki aðeins hlýjuna og glettnina, heldur og traustið. Siggi var sannur vinur vina sinna. Hann bætti þá sem voru návistum við hann og glæddi andrúmið hvar sem hann fór. Minningin lifir því áfram og kennir þeim sem eftir lifa að vin- semdin og tryggðin eru eðlisþættir sem öllu skipta í samskiptum fólks. Fjölskyldan þakkar samfylgdina og sendir Þóru Ásu, börnum og barna- börnum innilegar samúðarkveðjur á sorgarstundu. Sigmundur Ernir Rúnarsson. Kveðja frá Lionsklúbbnum Frey Sigurþór Margeirsson gekk í Frey í nóvember 1972. Hann var mjög áhugasamur félagi alla tíð og mætti á fundi ef hann mögulega gat. Þá var hann einnig mjög liðtækur við fjár- öflun klúbbsins, sölu jóladagatala. Hann lét sig aldrei vanta á vinnu- fundi til að undirbúa söluna og kom venjulega með börn og síðar barna- börn með sér og var oft með fjöl- mennasta liðið. Síðan sendi hann börnin út í hverfið sitt til að selja og reyndust þau hinir bestu sölumenn. Þá lét hann sig heldur ekki vanta í merkjaferðir klúbbsins, þegar farið var um landið, til að merkja brýr og hálendisvegi. Hann hafði ákveðið að taka þátt í hinni árlegu merkinga- ferð, sem farin verður um næstu helgi, en örlögin tóku í taumana. Störfin fyrir klúbbinn voru miklu fleiri og öll vel af hendi leyst. Hans verður því sárt saknað. Eiginkonu og öðrum vandamönnum sendum við einlægar samúðarkveðjur. SIGURÞÓR MARGEIRSSON                            !"#$%&#% "''(# )% *+&#% "''(#+  , -.  / '0%1,% %/%#& )( 2&#''!/%33&  !"  #  $ %        ,%#&#+ %       %   &   &    4 4  2&#"&'%& )5#'2 67                 '  &(  ) -% !% #&"#$%$5&% '2 %&'$5&% ##%&#2%#''(# ## % %&''(# %0# 01'$5&%  0% #& %&''(# ###-5% '$5&% #&2% %&'$5&%  &-5%,%'&#''(# (02%#+

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.