Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ STOFNUNAR lagadeildar Háskól- ans í Reykjavík var fagnað í skól- anum í gær en á mánudag hóf 81 nemandi nám við nýstofnaða laga- deild skólans. Ráðherrar, þingmenn og dómarar voru meðal þeirra sem fögnuðu með kennurum, starfs- mönnum og nemendum, eða fulltrú- ar löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds, eins og Þórður S. Gunn- arsson deildarforseti orðaði það. Davíð Oddsson forsætisráðherra óskaði forráðamönnum Háskólans í Reykjavík, forystu lagadeild- arinnar, kennurum og þeim nem- endum sem munu sækja sér þangað veganesti í lögvísindum allra heilla í bráð og lengd. „Land okkar bygg- ist á lögum, að ráði bestu manna. Vel menntuð sveit lögfræðinga gegnir því lykilhlutverki á Íslandi framtíðarinnar. Hér hafa menn því þarft verk að vinna,“ sagði forsætis- ráðherra í ræðu sinni. Deildin stofnuð við kjöraðstæður Þórður S. Gunnarsson deild- arforseti sagði stofnun deildarinnar eðlilegt framhald þeirrar uppbygg- ingar sem átt hefur sér stað innan Háskólans í Reykjavík á und- anförnum árum og þeirri framtíð- arsýn sem stjórnendur skólans hafa. Guðfinna Bjarnadóttir rektor sagði stofnun deildarinnar stóra stund í stuttri sögu skólans. Hún sagði deildina stofnaða við kjör- aðstæður, úrvalsstarfsfólk hefði fengist til starfa við deildina og skólinn hefði getað valið úr stórum hópi umsækjenda. Þá væru í skól- anum kjöraðstæður til að stunda nám og ná árangri í námi. Sagði Guðfinna einnig fólk úr hinum ýmsu geirum samfélagsins gera miklar væntingar til deildarinnar og nemenda hennar. „Markmið skólans er að efla sam- keppnishæfni íslensks atvinnulífs. Samkeppni í lagakennslu held ég að sé góð, vegna þess líka að ef þessi deild verður einungis til þess að hin deildin [lagadeild Háskóla Íslands] verður betri þá er samt í ein- hverjum skilningi markmiðinu náð. En við ætlum að standa okkur vel og gera okkar besta,“ sagði Guð- finna. Jón Steinar Gunnlaugsson er pró- fessor við lagadeildina. Þá eru Að- alsteinn E. Jónasson, Einar Páll Tamimi og Ragnhildur Helgadóttir lektorar og Kristinn Freyr Krist- insson og Þórólfur Jónsson stunda- kennarar við deildina. Morgunblaðið/Kristinn Davíð Oddsson forsætisráðherra óskar Guðfinnu Bjarnadóttur, rektor Háskólans í Reykjavík, til hamingju. Fyrir aftan þau standa Þórður S. Gunnarsson deildarforseti og Sverrir Sverrisson, formaður háskólaráðs. 81 nemandi stundar nám við nýstofnaða lagadeild HR STJÓRNARNEFND Landspítala – háskólasjúkrahúss, LSH, hefur ósk- að eftir því að Ríkisendurskoðun geri úttekt á rekstri og árangri af sameiningu Sjúkrahúss Reykjavík- ur og Landspítala. Var þessi ákvörðun tekin á fundi stjórnar- nefndarinnar 15. ágúst sl. Bréf þessa efnis var sent Ríkisendur- skoðun, 19. ágúst. Þar segir að stjórnarnefndin telji afar mikilvægt að Ríkisendurskoðun leggi sjálf- stætt mat á starfsemi LSH, „enda er það tímabært nú þar sem nær þrjú ár eru frá því að heilbrigð- isráðherra tók ákvörðun um sam- einingu spítalanna tveggja.“ Í bréfinu er bent á að sameiningu sjúkrahúsanna sé ekki að fullu lok- ið, en að hún hafi þegar farið fram á mörgum sviðum spítalans. Því telur nefndin að mögulegt sé að leggja mat á annað hvort einstaka þætti þar sem sameiningin hefur sann- anlega verið framkvæmd, eða spít- alann í heild sinni með tilliti til þess að sameiningu er ekki alveg lokið. Er þess óskað í bréfinu að athug- un Ríkisendurskoðunar taki jöfnum höndum til árangurs í faglegu tilliti og rekstrarlegu. Ríkisendurskoðandi er í sumar- fríi. Samkvæmt upplýsingum hjá skrifstofu Ríkisendurskoðunar hef- ur hann því ekki enn farið yfir beiðni stjórnarnefndarinnar. Vilja að árangur verði metinn í faglegu og rekstr- arlegu tilliti Stjórnarnefnd LSH óskar eftir úttekt á rekstri og árangri af sameiningu FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu hefur fundað með þeim þremur hópum fjárfesta sem hafa sýnt áhuga á að eignast hlut í Landsbanka Íslands. Enn eru allir hóparnir með en nýs áfanga í við- ræðunum er ekki að vænta fyrr en í næstu viku. Að sögn Skarphéðins Steinarsson- ar hjá framkvæmdanefndinni hafa menn verið að fara yfir málin, skiptast á upplýsingum og óska eftir frekari upplýsingum. „Næsti áfangi,“ segir Skarphéðinn, „verður síðan væntanlega einhvern tíma í næstu viku. Við höfum kallað eftir tilteknum upplýsingum og eigum von á að fá þær eftir helgina.“ Skarphéðinn segir að þau atriði sem menn séu að vinna með snúi einkum að fjárhagsstöðu hugsan- legra fjárfesta, þekkingu þeirra og reynslu af fjármálamarkaði, óskum þeirra um eignarhlut auk hugmynda um staðgreiðsluverð og áforma um rekstur þess banka sem menn hafa hug á að eignast hlut í. „Allt upplýs- ingastreymið gengur út á þessi atriði enda verður það á grundvelli þeirra sem við munum velja fjárfesti.“ Sala ríkisbankanna Hóparnir þrír enn allir með í viðræðum Morgunblaðið/Arnaldur Framkvæmdanefnd um einkavæðingu bíður nú eftir upplýsingum frá fjárfestahópunum þremur. UNNIÐ verður að ýmsum undirbún- ingsframkvæmdum á næstu vikum og mánuðum vegna Kárahnjúkavirkjun- ar, og er þar aðallega um að ræða vegagerð, brúargerð og lagningu raf- línu, skv. upplýsingum Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar. Framkvæmdir eru þegar hafnar við lagningu vegar frá Fljótsdalsvegi við Laugarfell að Fremri-Kárahnjúk við Jökulsá á Dal. Um er að ræða 24 kílómetra langan veg vegna undir- búnings framkvæmda við virkjunina, sem er skipt í tvo verkþætti og á upp- byggingu vegarins að vera lokið í des- ember. Lægsta tilboð í brú á Jökulsá á Dal 55,5 milljónir króna Sl. þriðjudag voru opnuð tilboð í byggingu brúar á Jökulsá á Dal en brúarstæðið mun verða sunnan Sand- fells innan við Fremri-Kárahnjúk. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 55,5 milljónir kr. Alls bárust tíu tilboð og nam lægsta tilboðsupphæðin 33,8 milljónum (61% af kostnaðaráætlun), frá Malarvinnslunni hf. á Egilsstöð- um. Flatey ehf. á Höfn bauð 39,8 millj. kr. og Íslenskir aðalverktakar hr. komu næstir í röðinni en tilboð þeirra hljóðaði upp á um 42,3 millj. kr. Fjögur fyrirtæki buðu í lagningu rafstrengja Einnig verður hafin vinna á yfir- standandi ári við lagningu rafstrengja og ídráttarrörs frá Bessastaðamelum í Fljótsdal inn á Teigsbjarg og síðan í öðrum verkhluta frá Teigsbjargi inn á Fljótsdalsheiði að Axará. Fjögur fyrirtæki buðu í verkið en tilboð voru opnuð sl. þriðjudag. Aust- firskir verktakar hf. á Egilsstöðum buðu lægst eða 19,6 millj. kr. í báða verkhlutana (48,4% af kostnaðaráætl- un). Grafan ehf. Reykjavík var með næst lægsta tilboðið eða 30,3 millj. kr. í báða verkhluta. Tilboð opnuð í undirbúningsfram- kvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar Unnið í haust að vegagerð, brúar- smíði og raflínu GUÐMUNDUR Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, seg- ir það ekki rétt sem fram kom í Morgunblaðinu í gær, að rekstri Nýbrauðs í Mosfellsbæ hafi ver- ið hætt vegna þess að Bónus hafi hætt kaupum á brauðum frá fyrirtækinu í þessari viku. Guðmundur segir að það hafi ekki skipt sköpum í málinu þar sem fyrirtækið hafi þegar verið lýst gjaldþrota síðastliðið vor. Bónus eigi því ekki sök á rekstr- arstöðvun fyrirtækisins nú. Hann segir að í framhaldi af gjaldþroti Nýbrauðs í vor hafi stærsti kröfuhafinn, Kornax, leitað eftir áframhaldandi við- skiptum við Bónus með hið um- rædda Bónusbrauð. Boðið hafi verið ákveðið verð sem Bónus hafi ekki getað sætt sig við. Því hafi verið leitað eftir tilboði frá Myllunni og því verið tekið. „Þessi nýi samningur við Mylluna gerir það að verkum að Bónus getur áfram boðið hið umrædda Bónusbrauð á góðu verði til neytenda. Um það snýst málið af hálfu Bónuss. Bónus harmar að starfsmönn- um Nýbrauðs hafi verið sagt upp störfum,“ segir Guðmund- ur. Framkvæmdastjóri Bónuss um Nýbrauð Eigum ekki sök á rekstr- arstöðvun FOKKER-flugvél Flugfélags Íslands hætti við lendingu á Reykjavíkurflugvelli síðdegis í gær og tók einn hring í staðinn á meðan vinnuflokkur sem var nærri flugbrautinni kom sér í burtu. Vélin var að koma frá Ísa- firði og þar sem flugumferðar- stjóri náði ekki sambandi við vinnuflokkinn áður en vélin kom á lokastefnu bað hann flugmenn hennar að hætta við lendingu og taka hring á meðan verið væri að koma mönnunum í burtu. Um öryggisráðstöfun var að ræða til þess að tryggja örugga lendingu vélarinnar. Vinnu- flokkur truflaði lendingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.