Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurágúst 2002næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728293031
    1234567

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 14
SUÐURNES 14 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ STAÐFESTUR hefur verið samn- ingur um að Héðinn hf. byggi nýja mótttöku-, flokkunar- og sorp- brennslustöð fyrir Sorpeyðingar- stöð Suðurnesja sf. á iðnaðarsvæð- inu í Helguvík. Fyrsta greiðslan var innt af hendi í gær og jarð- vegsframkvæmdir hefjast á næst- unni. Taka á stöðina í notkun í lok næsta árs. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. bauð byggingu stöðvarinnar út á Evrópska efnahagssvæðinu. Til- boði Heklu og Járnbendingar var tekið á síðasta vetri en eftir að fyr- irtækin riftu samningum vegna þess að þau treystu sér ekki til að standa við tilboð sitt var samið við Héðin hf. um framkvæmdina. Sá samningur hefur nú verið staðfest- ur með greiðslu á 74 milljónum króna sem er um 10% af samn- ingsupphæðinni. Minni hreinsun Við athöfn sem fram fór af þessu tilefni í gær kom fram að verkið er tvískipt. Annars vegar er um að ræða byggingu stálgrind- arhúss sem hýsa á mótttöku- og flokkunarstöð og hins vegar hús undir brennslulínuna sjálfa. Flokk- unar- og mótttökuhúsið er liðlega 1000 fermetrar að stærð. Þar verð- ur tekið á móti öllu sorpi undir þaki og fer það ýmist beint í sorpþró til brennslu eða er flokkað til endurvinnslu. Því sorpi sem flokka á er sturtað á flokkunargólf og vinnuvélar notaðar til að flytja það í mismunandi gáma sem standa á neðra gólfi hússins. Helstu flokkar til endurvinnslu verða timbur, blöð og pappi, net og málmar. Brennsluhlutinn er rúmlega 600 fermetrar að stærð. Brennslulínan er belgísk, frá fyrirtækinu BS Engineering og getur afkastað lið- lega 12 þúsund tonnum á ári. Fram kom hjá tæknimönnum að brennsluofninn er snúningsofn með svældri brennslu. Sorpið koksast fremur en brennur í ofn- inum. Gasið sem til verður brenn- ur í eftirbrennslurýminu án þess að olíu þurfi til. Reykgasið fer síð- an í gegnum hreinsibúnað sem á að uppfylla ströngustu reglur Evr- ópusambandsins um útblástur en þær reglur taka væntanlega gildi hér á landi á næstu árum. Vegna minni þarfar á hreinsun útblásturs á stöðin að vera umhverfisvænni en aðrar þær stöðvar sem einkum komu til álita. Gjallið úr brennsl- unni verður síðan urðað. Gert er ráð fyrir því að orkan frá brennslustöðinni verði nýtt. Meiri stofnkostnaður Kostnaður við uppbyggingu stöðvarinnar er um 8,7 milljónir evra eða sem svarar 750 milljónum króna. Er það töluvert meiri stofn- kostnaður en við þá stöð sem Hekla og Járnbending buðu fram en hún átti að kosta 6 milljónir dala sem svarar til 530 milljóna króna á núverandi gengi. Hins vegar mun rekstrarkostnaður verða minni með þeirri tækni sem notuð er í stöðinni sem byggð verður, að sögn Guðjóns Guð- mundssonar framkvæmdastjóra Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Þrátt fyrir þann tíma sem fór í viðræður við fyrri tilboðsgjafa er útlit fyrir að hægt verði að taka sorpbrennsluna í gagnið fyrir lok næsta árs, að sögn Guðjóns, eða á sama tíma og áformað hefur verið. Sorpeyðingarstöðin vinnur nú að því að tunnuvæða Suðurnesin, taka upp sorphreinsum með tunnum í stað poka. Þessa dagana er verið að dreifa fyrstu tunnunum í Njarð- vík og síðan fara þær í hin byggð- arlögin, önnur en Grindavík sem þegar er komin með sorphreinsun með tunnum. Samningur við Héðin hf. um byggingu sorpbrennslustöðvar staðfestur Sorpið koksast fremur en brennur í ofninum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Guðmundur Sveinsson, framkvæmdastjóri Héðins hf., tekur við upphafsgreiðslu frá Guðjóni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. Rögnvaldur Einarsson, yfirmaður tæknideildar Héð- ins, er lengst til vinstri og Hallgrímur Bogason, stjórnarformaður Sorpeyðingarstöðvarinnar, lengst til hægri. Helguvík SKIPUÐ hefur verið öryggisnefnd vegna komandi Ljósanætur, menn- ingarhátíðarinnar í Reykjanesbæ. Hún mun meðal annars hafa yf- irumsjón með upplýsinga- og ör- yggismiðstöð við Hafnargötu. Ljósanótt verður haldin í Reykja- nesbæ dagana 5. til 8. september næstkomandi og nær hátíðin há- marki á laugardagskvöldið. Stein- þór Jónsson, formaður ljósanefnd- ar, leggur áherslu á að vel hafi tekist til við Ljósanótt þau tvö skipti sem hátiðin hefur verið hald- in. Þannig hafi engin vandræði ver- ið þótt 20 þúsund manns hafi komið saman í miðbæ Keflavíkur fyrir ári. Hann vill ekki tengja aukna vinnu við öryggismál að þessu sinni við atburði sem urðu á menningarnótt í Reykjavík á dögunum heldur segir hann að mikilvægt sé að viðhalda þeim árangri sem náðst hafi á Ljósanótt síðustu ár. Öryggismiðstöð opin Í öryggisnefndinni eru meðal annars fulltrúar frá lögreglu, sjúkrahúsi og björgunarsveit. Hún vinnur að forvarnarmálum, umferð- ar- og öryggismálum og hefur yf- irumsjón með upplýsinga- og ör- yggismiðstöð við Hafnargötuna. Þar verður haldið utan um upplýs- ingamiðlun, týnd börn og skyndi- hjálp svo dæmi séu tekin. Þar verð- ur sjúkrabíll til staðar og hægt verður að hringja í sérstakt örygg- isnúmer nefndarinnar. Upplýsingar um öryggismál verða kynntar bæjarbúum í dag- skrá Ljósanætur sem gefin verður út á næstunni. Sérstök öryggis- nefnd skipuð vegna Ljósanætur Reykjanesbær FYRSTA Bláa lóns-hlaupið fer fram á morgun, laugardag. Hlaupnir verða sex og tólf kílómetrar, í karla- og kvennaflokkum. Bláa lóns-hlaupið er samvinnu- verkefni Bláa lónsins og Grindavík- urbæjar og er haldið í tilefni opnunar nýs vegar milli Grindavíkur og Bláa lónsins. Aðrir styrktaraðilar hlaups- ins eru: Flugleiðir, Sparisjóðurinn í Keflavík, Þingvallaleið og Vífilfell. Skráning hefst kl. 11 á baðstaðn- um við Bláa lónið. Að skráningu lok- inni verður þátttakendum ekið með Þingvallaleið til Grindavíkur og hefst hlaupið þar kl. 13. Hlaupið er eftir nýja veginum og endað á bað- staðnum þar sem öllum þátttakend- um verður boðið í lónið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Aðalverðlaun í hlaupinu eru út- dráttarverðlaun sem eru ferð fyrir tvo að eigin vali til einhvers áfanga- staðar Flugleiða í Evrópu, í boði flugfélagsins. Þátttökugjald er þús- und krónur fyrir fullorðna og fimm hundruð fyrir börn. Hlaupið eftir nýj- um vegi Bláa lónið SANDGERÐISDAGAR hefjast í kvöld og standa fram á nótt aðfara- nótt sunnudags. Sandgerðisdagarnir hefjast í kvöld, klukkan 20, með setningarat- höfn og tónlistardagskrá í Safnaðar- heimilinu þar sem söngfólk og annað listafólk úr bæjarfélaginu kemur fram. Síðan verður meðal annars sagna- og hagyrðingakvöld í Lions- húsinu, trúbadúrakeppni í Vitanum og dansleikur fram á rauða nótt. Fjölbreytt dagskrá verður á morgun og lýkur annað kvöld með bryggjusöng, flugeldasýningu og dansleikjum. Sandgerðis- dagar verða settir í kvöld Sandgerði ♦ ♦ ♦ Brúðargjafalistar Mörkinni 3, s: 588 0640 Opið mánudag-föstudags 11-18. Lokað á laugardögum í sumar Hnífapör og matarstell frá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 202. tölublað (30.08.2002)
https://timarit.is/issue/250841

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

202. tölublað (30.08.2002)

Aðgerðir: